Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 39

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 39
Julio Cortázar Ský sem hunsar öll landamæri Tómas R. Einarsson þýddi . . . á skemmtiferjum fljótanna og að áliðnum kvöldum í Storyville fæddist eina alheimstónlist aldarinnar, tónlist sem þjappaði mannfólkinu betur saman en esperantóið, Unesco eða flugvélarnar, tónlist sem var nógu einföld til að ná eyrum heimsins og nógu góð til að eignast eigin sögu, með flokkadráttum, bannfæringum og villutrú, til að skapa charles- ton, black bottom, shimmy, foxtrott, stomp og blúsa, til að eignast flokkunarkerfí og merkimiða, ólíkar stíltegundir, svíng, bíbopp og svalan djass, tónlist sem var mótvægi við klassíkina og gat af sér heitan djass og gáfumannadjass, mannleg tónlist sem átti sér sögu andstætt dýrslegri og hálfvitalegri dansmúsíkinni, polka, valsi og sömbu, tónlist sem jafnt mátti heyra og dást að í Kaupmannahöfn, Mendoza og Höfðaborg, sem þjappaði saman ungmennum með plötur undir arminum og gaf þeim nöfn og lög sem allir þekktu og urðu lykill að nánari kynnum, sem svo aftur drógu úr einsemd þeirra innan um skrifstofustjóra og fjölskyldur, mitt í óendanlega sárum ástarævintýrum, tónlist þar sem ímyndunaraflinu var gefinn laus taumurinn og rúm var fyrir ólíkar skoðanir, slitnar sjötíu og átta snúninga plötur með Freddie Keppard eða Bunk Johnson, aftur- haldsklíkur dixflandaðdáenda, Bix Beiderbecke-fræðinga eða djarfa sókn þeirra Theloniusar Monks, Horace Silvers og Thads Jones, smekk- leysi Errolls Garners og Arts Tatums, hryggðina og ofstækið, hrifningu á smágrúppunum, dularfullar hljóðritanir með dulnefnum og uppnefnum vegna samninga við önnur plötufyrirtæki eða duttlunga augnabliksins, og innvígðar skemmtanir á laugardagskvöldum, heima hjá einhverjum stúdentinum eða í kjallarabúllu þar sem stúlkumar vilja endilega dansa og hlusta á Star eyes eða When your man is going to put you down, og frá þeim berst hæg og mild angan af ilmvatni, hörundi og hita, þær lofa TMM 1993:2 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.