Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Side 102
og virðingu fyrir hæfileikum hvors annars þótt víglína kalda stríðsins hafi skilið þá að. Thor dregur hér fram þær mótsagnir sem óhjákvæmi- lega koma upp hjá þeim gáfuðu mönnum sem í senn hrífast af því sem er hrifningar vert en eru um leið svo bundnir af stjómmála- og stéttar- skoðunum að þeir hljóta að þurfa að vaða í eins konar mótsagnagraut líkt og kom berlegast fram í sambandi Kristjáns við Halldór Laxness. En lýsingin á þessum athyglisverða núningi er í stöðugu reiptogi við ættarhugsun sem sífellt er á sveimi í bókinni, hvort sem hún birtist sem skyldleikaræktun borgarastéttarinnar eða sem heimsmynd bændasamfélagsins, en í hvorugt þessara fyrirbæra hefur Thor sótt sér neinn safa í verkum sínum. Hann hneigist því eins og ósjálfrátt til að láta spurninguna um „hverra manna hann sé“, sem getið var um í upphafi, kaffæra hina spurninguna sem óneitanlega er athyglisverðari. Þessar ættfærslur bæta engu við nema til að upplýsa lesendur um að þessi eða hinn sé tengdur hinum eða þessum o.s.frv. og verður á stundum hálf hvimleitt. Ég held meira að segja að hin eiginlega þungamiðja Radda í garðinum, garðurinn sem Thor ræktar í huga sér, sé í andstöðu við þessa hugsun: mynd garðsins táknar í raun og veru einkaheim hins móderníska rithöfundar, sem byggður er á hans eigin skynjun og er ræktaður af hugsun hans. Raddirnar sem þangað koma hljóma að handan, hann hleypir þeim inn að vild til að auka upp- skeruna en hún fer fyrst og fremst eftir því hvemig hugarræktunin gengur íyrir sig en ekki eftir ætt og fjölskyldu. Þetta verður einkum ljóst í seinni hlutanum, þegar kemur að alþýðufólkinu fyrir norðan. Meginstef seinni hlutans er sambandið við for- tíðina sem Thor er að reyna að koma á ekki aðeins við það fólk sem stendur honum nálægt í minningunni heldur við heilu kynslóðirnar, við ómálga strit nafnlausrar alþýðu, við hin erfiðu kjör fólks á Tjörnesi, í utanverðri Kinninni og í Flateyjardal. Þarna sleppir minninu og eftir verða sögur úr munnmælum en þær em allar í einhverri yfirmennskri stærð sem þó nær því aldrei að verða goðsöguleg. Þæreru „hrikaleg- ar“ en þó fjarlægar lesanda og ná ekki að þyrlast upp í blæbrigðaríkan strók líkt og þær sögur sem Stefán Jónsson sagði í sjálfsævisögu sinni Að breyta fjalli (1987) og vom af svipuðum slóðum og oft af sama fólki. Það er ekki sök sér þótt tveir menn segi frá á ólíkan hátt en saman- burðurinn er hér nærtækur og þar skortir það í sögum Thors sem gerir hinar „hrikalegu" sögur Stefáns margræðar; að hið kómíska vegi salt á móti hinu „hrikalega". Thor hrífst af þessu fólki en hrifning hans hindrar hann í að finna tjáning- arform sem hæfir henni. Hann sneiðir meðvitað framhjáhinni „goðsögulegu" leið ýkjusögunn- ar en daðrar við það sem oftast er kallað „þjóð- legur fróðleikur“, form ævisöguþáttarins með öllu sínu búandliði sem flakkar um grunnmynd byggða á jarðnæði, ættum og búskap, fólki sem ekkert er svo sem vitað um annað en það sem greinir frá í stopulum skeytasendingum kirkju- bókanna, munnmælum og einstaka heimildum samtíðarmanna sem síðan er púslað saman með frösum eins og: „í kirkjubók er párað“, „var meðalmaður á hæð, móeygður“, „var gefinn fyrir tóbak“. Að vekja fólk þannig upp úr óminninu er eins konar línudans milli rígbund- ins forms og „þess sem á penna heldur“ og reyndar er því svo farið að kannski best lukkuðu tilraunir „atvinnuhöfunda" á seinni árum til að færa sér þetta form í nyt eru þegar öllu er á botninn hvolft algerlega innan þessarar hefðar, það er að segja: Hallgrímur smali og húsfreyjan á Bjargi (1990) eftir Þorstein frá Hamri og síðan þriggja binda verk Hannesar Péturssonar: Mis- skipt er manna láni (1982-86). Þar var ekki í sjálfu sér hróflað við forminu sem slíku en listfengi í meðferð máls og nákvæm og greinar- góð heimildavinna lyfti þessum verkum upp í undraverðar hæðir. Tilraunir Thors til að nýta sér þetta form sem millilið til að greina frá sögu lands og fólks við norðurströndina bera hins vegar ekki sannfærandi árangur. Það er eins og áður sagði einkenni á þessum síðari hluta að reynt er að greina frá samfélagi sem nú er horfíð, setja fólk aftur í eyðidali og við hrjóstrugar 100 TMM 1993:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.