Þjóðmál - 01.03.2009, Blaðsíða 61
Þjóðmál VOR 2009 59
Smáfuglarnir hafa verið að hvísla um það hverju það sætir að rithöfundar á opinberu fram
færi skuli ganga einna harðast fram í orðum og
athöfnum í mótmælum gegn landsstjórninni .
Upplýst hefur verið að Hallgrímur Helgason,
sem lengi var eins konar málpípa Baugsveldisins,
var í hópi sem gerði aðsúg að Geir H . Haarde
forsætisráðherra . Þar réðst Hallgrímur að bíl
ráðherrans og barði hann allan, afmyndaður af
reiði . Hallgrímur Helgason hefur lengi þegið
listamannalaun frá hinu opinbera, nú síðast
laun í 12 mánuði, sem margir væru tilbúnir til
að sætta sig við . Nýlega var skýrt frá því að Hall
grími hefði verið úthlutað föstum launum til
þriggja ára, alls rúmlega 9,6 milljónum króna .
Hefur Hallgrímur í meira en áratug verið
nær samfellt á föstum launum úr ríkissjóði .
Rithöfund urinn þakkar fyrir sig og lemur bíla
á launum frá skattgreiðendum, fyrst Baugur er
hættur að borga .
Þráinn Bertelsson er annar rithöfundur
á opinberu framfæri, en smáfuglarnir hafa
aldrei fengið skýringu á því afhverju . Þráinn er
æviráðinn hjá skattgreiðendum og líklega ekki
hægt að reka því hann hefur um árabil þegið
heiðurslaun listamanna . Á heiðurslaunum hef
ur Þráinn setið og skrifað eitraðar greinar gegn
þeim sem hann virðist fyrirlíta . Lengi vel stund
aði Þráinn þessa iðju í skjóli Fréttablaðsins en
nú ritar hann á vefritið Eyjuna . Þegar fréttist
af veikindum Geirs H . Haarde var Þráinn við
sama heygarðshornið:
„Ég veit ekki hvort kom fyrst álagið í starfinu
og olli sjúkdómnum . Eða sjúkdómur sem olli
getuleysi í starfi . Ég óska þeim báðum Ingibjörgu
Sólrúnu skjóts og góðs bata, en fer jafnframt
fram á að þau stígi þegar í stað til hliðar og
hugsi sér ekki til endurkomu í stjórnmál fyrr
en fullum bata er náð . Næstu vikur í íslenskum
stjórnmálum krefast fullrar einbeitingar og
óskertra starfskrafta . Það kemur maður í manns
stað og enginn er ómissandi . Bið ykkur svo
lengstra orða að fá ekki stórmennskubrjálæði
á sjúkrahúsum ykkar og heimta byggingar á
hátæknisjúkrahúsum ef þið eigið afturkvæmt til
vinnu .“
Smáfuglana setti hljóða þegar þeir lásu þessi
ótrúlegu skrif Þráins sem lifir á samborgurum
sínum og þykir ekkert sjálfsagðara .
Eiður Guðnason, fyrrverandi ráðherra og
sendiherra, er sammála smáfuglunum um skrif
Þráins Bertelssonar . Í bloggi sínu segir Eiður:
„Í athugasemd við ótrúlega ósmekkleg skrif
Þráins Bertelssonar á Eyjunni lýsti ég þeirri
skoðun að makalaust væri að þar skyldi halda um
penna maður, sem væri í heiðursritlaunaflokki
Alþingis . Ummæli Þráins um veikindi Geirs H .
Haarde og Ingibjargar Sólrúnar voru fádæma
ósmekkleg . Ekki síður var það sem hann
skrifaði um Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
fáséður ritsóðaskapur . Um Björn sagði Þráinn
Bertelsson: „Mér finnst makalaust að maður af
þessum „saur og hland“kalíber skuli hafa geta
tranað sér fram í ráðherraembætti .“ Þessi mikla
heift skýrist ef til vill af því að ég man ekki betur
en Björn Bjarnason hafi að minnsta kosti tvisvar
í netfærslum sínum beðið Þráin Bertelsson að
greina frá því hvernig það bar til að hann komst
í heiðurslaunaflokk Alþingis . Ég veit ekki til þess
að Þráinn hafi svarað Birni . Ég nefndi í athuga
semd minni að Þráinn væri í heiðurslaunaflokki
vegna atbeina Framsóknarflokksins . Það eru ekki
ný tíðindi og á margra vitorði . Líklega er þetta
viðkvæmt mál, því heiðurslaunarithöfundurinn
lét fjarlægja athugasemd mína af Eyjunni . Lengi
lifi ritfrelsið! Það mega greinilega ekki allir viðra
skoðanir sínar í athugasemdum við skrif Þráins
Bertelssonar .“
Smáfuglarnir velta því fyrir sér hvaða gildi séu
lögð til grundvallar því þegar Alþingi ákveður
að veita listamönnum heiðurslaun . Líklega eru
Íslendingar eina þjóð í heimi sem hefur ritsóða
á launaskrá skattgreiðenda .
Birtist á vefsíðunni amx .is í lok janúar 2009.
Tveir rithöfundar
á framfæri hins opinbera