Þjóðmál - 01.03.2009, Blaðsíða 79
Þjóðmál VOR 2009 77
Skyldum við gefast upp á lýðræðinu og
fela öskurkórunum og grjótkösturunum
völdin? Það virðist sama hvað gert er . Öllu
er mótmælt með hávaða og ólátum . Jafnvel
þó ríkisstjórnin sé fallin er haldið áfram .
Gamlárskvöldsstemning ríkir á torgum
hvert einasta kvöld . Ólæti ólátanna
vegna .
Virkisvetur .
*
Þá höfum við nýja ríkisstjórn . Til ham ingju með það . Í kvöld munu indíán
arnir á Aust urvelli væntanlega stíga
villtan dans við eld ana sína og sprengja
púð ur kellingar . Hvað mun þessi nýja
stjórn afreka? Hverjar verða fyrstu ráð
stafanir nýrrar stjórnar? Ef hún þá þor ir
nokkuð að gera annað en tala um þjóðar
hag .
Ég held hún athugi að stórhækka fjár
magn s tekjuskatt, setja á hátekjuskatt,
hækka stað greiðsluna, hækka öll gjöld og
álögur til ríkisins, lækka vexti og verð
trygg ingu svo að sparnaður leitar frá bönk
un um . Hún mun velta fyrir sér að auka
útgjöld til félags og heil brigðismála . Við
það vex verðbólgan og gengið mun líklega
falla þar til inn flutn ing ur stöðvast að
mestu . Heimskreppan hefur áhrif á út
flutninginn þannig að ekki blæs byrlega
fyrir stjórninni . Hún mun sjálfsagt auka
veiði heimildir og endurúthluta, sem
núna munu helst hækka fjallið af óseldum
afurðum .
Hún mun líklega breyta einhliða AGS
samn ingum með auknum ríkissjóðshalla
með óþekktum afleiðingum sem hljóta
að leiða til aukinna hafta á landinu .
Verðbólgan og atvinnuleysið geta því
auðveldlega farið í óþekktar hæðir fyrr en
varir .
Hugsanlega mun þessi nýja
stjórn fyrirskipa launa og bótahækkanir
yfir línuna . Þetta er jú ríkisstjórn
Skallagríms og hins vinnandi fólks . Og svo
auðvitað heilagrar Jóhönnu .
Nema að stjórnin hafi vit á að gera
helst ekkert eins og menn ásökuðu gömlu
stjórnina um að gera . Nema auðvitað að
reka Davíð úr Seðlabankanum .
En geri hún eitthvað af ofansögðu þá
hryn ur hún ofan í rústakjallarann í maí .
Eftir kosn ing ar fer næsta stjórn eins, en þá
hafa bylt ingar öflin og indíánarnir bæst í
ráðherra hópinn .
Loks þegar það er allt búið fara menn
að skima eftir leifunum af gamla íhaldinu .
Menn fara að rifja upp gömul orð Bjarna
heitins Benediktssonar: Munið það piltar,
að þótt við séum vondir, þá eru aðrir verri .
Það munu menn um síðir sjá .
2011 eða fyrr verða því aftur kosningar
og þá fyrst held ég að Sjálfstæðisflokkurinn
komi aftur að stjórn landsins . Þangað til
verður langur tími og miklir erfiðleikar .
Erfitt verður að koma fram pólitískum
málflutningi fyrir ofurveldi Baugsmiðl
anna . Pólitísk umræða mun því stjórnast
að miklu leyti af hags munum Baugs .
Nema að Sjálfstæðisflokkur inn fari loks að
huga að nútíma fjölmiðlun .
2015 hefur ástandið í USA hugsanlega
lag ast eitthvað og heimurinn þá líka . En
þá verður ESBumræðan löngu fyrir bí á
Íslandi og eng inn vill muna það sem hann
segir núna .