Skólavarðan - 01.06.2001, Síða 18
Á skólatorginu hafa foreldrar meiri
möguleika en áður á að fylgjast með því
sem börnin eru að gera í skólanum. Því er
einnig ætlað að vera miðill þar sem foreldr-
ar geta komið skoðunum sínum á framfæri
við skólayfirvöld og haft þannig aukin áhrif
á skólastarfið. Skólatorgið getur auðveldað
kennurum samskipti við foreldra með því
að koma til þeirra upplýsingum um nám,
hegðun og annað sem kennarar vilja koma
á framfæri. Þorbjörg Þorsteinsdóttir verk-
efnisstjóri skólatorgsins segir reynsluna af
því mjög góða og að það uppfylli þær
væntingar sem til þess voru gerðar.
Þriði þriðjudagur í september
Í heimi þar sem mikið er talað um of-
beldisdýrkun, skortur er á umburðarlyndi,
blóðug stríð eru háð og fólk sveltur er um-
ræða um frið og friðarmenningu nauðsyn-
leg. Kenna þarf börnum að bera virðingu
fyrir ólíkum kynþáttum og menningu og
innræta þeim umburðarlyndi.
„Skóli er ákjósanlegur staður fyrir friðar-
umræðu,“ segir Þorbjörg, „og kemur netið
þar að góðum notum. Meðal þess sem
skólatorgið var talið góður vettvangur fyrir
eru svokallaðir friðarbekkir. Friðarvefurinn
á skólatorginu er kjörinn fyrir börn til að
láta rödd sína heyrast.“
Það var Gunnar Hersveinn, foreldri í
Melaskóla, sem kynnti hugmyndina um
friðarbekkinn fyrir Eddu Pétursdóttur
kennara og nemendum hennar. „Hug-
myndin er komin af netinu, alþjóðlegt ár
friðar var að byrja og ég rakst þar á samtök
sem heita One Day. Í kjölfarið kynnti ég
verkefnið fyrir Eddu og nemendum hennar
sem tóku strax mjög vel í þetta,“ segir
Gunnar.
Sameinuðu þjóðirnar hafa
lýst því yfir að skoðanir barna
séu jafn gildar og fullorðinna.
„SÞ hafa tileinkað börnum einn
dag á ári, þriðja þriðjudag í
september, og kalla hann „Hear
the Children Day“, segir Þor-
björg. „Ástæðan er sú að menn
telja að börn geti tekið þátt í
því að breyta heiminum og að
allt of mörg börn búi við stríðs-
ástand og skort.
Með þátttöku barna í um-
ræðum um frið og uppákomum
þeirra í hverfi sínu eða heima-
byggð geta þau látið gott af sér
leiða og skipst á hugmyndum
um leiðir í átt til friðar í heim-
inum.“
Tökum þátt og látum gott
af okkur leiða
Með því að skrá bekkinn sinn
sem friðarbekk á vefnum geta
nemendur tekið þátt í skemmti-
legu og gjöfulu verkefni þar
sem þeir, foreldrar og kennari
sameinast um tiltekið markmið.
Það sem til þarf er að annaðhvort kennari
eða eitthvert foreldri taki að sér að hafa
umsjón með verkinu og skrá sig síðan á
vefnum.
„Á vefnum má nú þegar sjá hugmyndir
að verkefnum,“ segir Þorbjörg. „Meðal
annars að reisa friðartré í hverfinu til að
minna fólk á að rækta frið í hjarta sínu,
standa fyrir friðarmínútum í skólanum á al-
þjóðadegi friðar, fylgjast með viðburðum á
netinu, hafa samband við aðra friðarbekki,
ræða innan bekkjarins um gildi friðar og
síðast en ekki síst taka þátt í starfi friðar-
bekkja á skólatorginu. Einnig má finna
hugmyndabanka á slóðinni www. Peace-
club.com/pdub.htm.
Nemendur 6E í Melaskóla ákváðu að
gera bekkinn sinn að friðarbekk árið 1999,
eftir að Gunnar hafði kynnt verkefnið fyrir
þeim, og ákváðu jafnframt að verkefnið
myndi ná fram til ársins 2002. Fyrsta verk
þeirra var að hvetja Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra til að helga 1. jan-
úar árið 2000 friði. Borgarstjóri tók erind-
inu vel og lýsti daginn dag friðar í Reykja-
vík. Verkefnið var alþjóðlegt og núna
er unnið að því um víða veröld að gera
1. janúar að degi friðar.
Friðarbekkurinn í Melaskóla hefur
einnig samið friðarljóð sem skeytt var við
lengsta ljóð veraldar (the Peace Poem
Project). Krakkarnir hafa staðið fyrir frið-
armínútum og hvatt aðra til að gera slíkt
hið sama og nú eru þau að vinna með
Manifesto 2000 eða yfirlýsinguna um frið-
armenningu og afnám ofbeldis í heiminum.
6E hvetur börn og foreldra þeirra til að
ræða friðarhugtakið og skrifa undir yfirlýs-
inguna á netinu.
Börnin vinna líka innan bekkjarins og
leggja mikla áherslu á að koma af stað um-
ræðu um frið, umburðarlyndi, ofbeldi og
fordóma, svo að eitthvað sé nefnt.
Friðarbekkir eru ekki margir ennþá en
ástæða er til að hvetja skólafólk til að fara
inn á netið, skoða það sem þar fer fram og
meta hvort ekki sé sjálfsagt að skrá bekkinn
sinn sem friðarbekk og leggja sitt af mörk-
um til eflingar friði í heiminum. Slóðin er
www.skolatorg.is.“
Þorbjörg hvetur í lokin alla nemendur,
foreldra og kennara til að skoða starf og
hugmyndir friðarbekkjanna „og um leið
skulum við gera síðustu línur texta
Lennons, Imagine, að okkar þar sem hann
segir: I hope some day you´ll join us. And
the world will be as one.“
Steinunn Þorsteinsdóttir
Fr iðarstarf í skó lum
20
Í september árið 2000 var skólatorg.is
tekið í notkun á veraldarvefnum. Að
því standa Tæknival sem gaf allan
búnað, Selásskóli sem er sérstakur
þróunarskóli þess og Íslenska
menntanetið hjá Skýrr sem hýsir
verkefnið.
Friðarbekkir á veraldarvefnum
- www.skolatorg.is vettvangur friðarumræðu
Með því að skrá bekk-
inn sinn sem friðarbekk
á vefnum geta nemend-
ur tekið þátt í skemmti-
legu og gjöfulu verkefni
þar sem þeir, foreldrar
og kennari sameinast
um tiltekið markmið.