Skólavarðan - 01.06.2001, Síða 24
Á fundinum kom fram að Norðmenn
eru komnir lengst Norðurlandaþjóða í því
að draga nemendur inn í skipulagningu
náms og skólastarfs. Norsku kennarasam-
tökin hafa gert formlegan samning við
félag nemenda í framhaldsskólum um
þátttöku þeirra síðarnefndu í starfi skóla og
gæðamati. Á hverri önn eru haldnir tveir
fundir með forsvarsmönnum nemenda og
kennarasambandið heldur árlega námskeið
fyrir nýja fulltrúa sem koma inn í starfið.
Norski menntamálaráðherrann hefur lagt
mikla áherslu á að nemendur í framhalds-
skólum landsins eigi að vera virkir gæðaeft-
irlitsmenn og taka þátt í að ákveða um-
gjörð og innihald gæðakannana í skólum
sínum.
Í Svíþjóð er unnið kappsamlega að því að
auka áhrif og ábyrgð nemenda í framhalds-
skólum. Í hverju sveitarfélagi eru nefnd-
ir með fulltrúum nemenda, kennara og
sveitarstjórna sem fylgjast með þróun
mála.
Danskir framhaldsskólakennarar hafa
einnig á undanförnum árum aukið mjög
ábyrgð nemenda á eigin námi. Þeir héldu
nýlega vinnufund með fulltrúum fram-
haldsskólanema þar sem m.a. voru ræddar
breyttar áherslur í skólastarfi. Fulltrúar
nemenda lögðu áherslu á að þeim þætti
mikilvægt að breyta námsmati og töldu að
sífelldar umræður um einkunnir og að
standast próf stýrðu kennslunni of mikið
og trufluðu sjálft námsferlið. Þeir lögðu
einnig áherslu á aukna ábyrgð nemenda á
eigin námi og vildu til dæmis fá fleiri hóp-
verkefni því að slík vinna gerði námið
meira skapandi. Í framtíðarskólanum sjá
þeir fyrir sér meiri fjölbreytni í kennslu-
háttum og mati og mun sjálfstæðari vinnu
nemenda en nú tíðkast. Danskir kennarar
slá þó þann varnagla að svona fyrirkomulag
henti engan veginn öllum, sterkir nemend-
ur geta vel stýrt námi sínu en þeir veikari
detta út.
Í Finnlandi er ástandið svipað og á Ís-
landi. Þar er engin formleg samvinna við
samtök nemenda en í öllum framhaldsskól-
um er nemendaráð sem á að veita umsögn
um námskrá skólans.
Framtíðarskólinn - mun verða skóla-
kerfi í framtíðinni?
Umræður fóru fram í hópum og voru
allir sammála um að skólinn sem stofnun
gegndi miklu hlutverki í þjóðfélaginu og
væri því ómissandi. Áhersla var lögð á
breytta kennslu í framtíðinni þar sem færni
nemenda í að leita sjálfir eftir þekkingu
yrði þjálfuð. Skólinn verður einnig að velja
vinnuaðferðir sem gera nemendur hæfa til
að lifa og starfa í lýðræðisþjóðfélagi og
styrkja siðferðisvitund þeirra. Þar sem flest
löndin sjá fram á kennaraskort á komandi
árum er mikilvægt að gera kennaranám að-
laðandi og benda á það sem kennarar
kunna umfram aðrar stéttir. Þeir kunna að
miðla þekkingu og eru sérfræðingar í að
draga fram og styrkja persónulega og al-
menna hæfni nemenda jafnframt því að
stuðla að þroska þeirra.
Rætt var um tilhneigingu stórra fyrir-
tækja, bæði í Noregi og Svíþjóð, til þess að
stofna sína eigin skóla og byggja upp eigin
fagmenntun svo að menntun ungmenna
þar verður innan lokaðra ramma eins og
þekkist frá Japan. Svíar hafa einnig áhyggj-
ur af síauknum fjölda einkaskóla á fram-
haldsskólastigi sem þurfa hvorki að fylgja
almennri námskrá framhaldsskóla né ráða
menntaða kennara á sömu kjörum og í al-
mennum skólum. Þar ræða menn nú, með
þátttöku sænska menntamálaráðuneytisins,
spurninguna: „Eru frjálsu skólarnir ógn eða
kostur?“
Ósa Knútsdóttir
Frétt i r
26
Fundur í framhaldsskóladeild NLS var
haldinn í Reykjavík dagana 21.-22.
maí. Á fundinum voru m.a. rædd tvö
þemu, samábyrgð nemenda (elev-
medindflydelse) og framtíðarskólinn
(skal skolen findes?)
NLS fundur framhaldsskóladeildar
Gæðaeftirlit nemenda
Í síðasta tölublaði misritaðist nafn Atla Guðlaugssonar
sem skrifaði í umræðuna á bls. 5. Beðist er velvirðingar á
þessum leiðu mistökum.
Leiðrétting
Þátttakendur á námskeiðinu Haukur í horni hjá End-
urmenntunarstofnun Háskóla Íslands í umsjón Önnu
Sjafnar Sigurðardóttur hafa síðastliðin þrjú ár gefið út
Handbók fyrir umsjónarkennara í framhaldsskólum.
Nú er kominn út nýr bæklingur um foreldrasamstarf í
framhaldsskólum sem er einnig unninn af nemendum
á námskeiðinu og er hann til sölu hjá Háskólafjölritun.
Ýmsir framhaldsskólar hafa á síðastliðnum árum
keypt Handbók fyrir umsjónarkennara, sem var unnin
á námskeiðinu síðastliðin tvö ár, handa öllum um-
sjónarkennurum sínum og ætti nýi bæklingurinn að
vera kærkomin viðbót fyrir þá. Nú er verið að sameina
allt efnið í eitt hefti og verður það til-
búið í byrjun júní.
Pantanir berist til Háskólafjölritunar: sighar@prenta.is
Nánari upplýsingar veitir Anna Sjöfn Sigurðardóttir:
asjofn@ismennt.is
Foreldrasamstarf í framhaldsskólum
Aðalfundur Samtaka fámennra skóla haldinn á Stóru-
tjörnum 28. apríl 2001 lýsir ánægju sinni með það að búið
er að lagfæra að verulegu leyti þá annmarka sem voru á
nýgerðum kjarasamningum varðandi umsjónarkennara.
Fundurinn væntir þess að samstarfsnefnd haldi áfram á
sömu braut og lagi fleira er varðar fámenna skóla, svo sem
vinnuskilgreiningu skólastjóra.
Ályktun