Skólavarðan - 01.02.2002, Page 6
Þing KÍ - skó lamál
7
FG með fjögur. Ef stjórn Kennarasam-
bandsins nú er sett upp samkvæmt sér-
stakri tillögu FG væri hún þannig skipuð og
formennirnir deildu og drottnuðu með
þessum hætti innan hennar:
Eiríkur Jónsson
formaður Kennarasambandsins
Eiríkur Jónsson
formaður Kennarasambandsins
Björg Bjarnadóttir
formaður FL og varaformaður KÍ
Björg Bjarnadóttir
formaður FL og varaformaður KÍ
Elna Katrín Jónsdóttir
formaður FF og varaformaður KÍ
Elna Katrín Jónsdóttir
formaður FF og varaformaður KÍ
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
formaður FG og varaformaður KÍ
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
formaður FG og varaformaður KÍ
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
formaður FG og varaformaður KÍ
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
formaður FG og varaformaður KÍ
Hanna Hjartardóttir
formaður SÍ og varaformaður KÍ
Sigrún Grendal
formaður FT og varaformaður KÍ
Oddný Harðardóttir
formaður FS og varaformaður KÍ
Hér fara sjö formenn með þrettán at-
kvæði í stjórn Kennarasambandsins. At-
hyglisvert er að formaður KÍ sem kosinn er
í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal 7500
félagsmanna fer aðeins með tvö atkvæði.
Stjórn Kennarasambands Íslands er þar
með að mestu leyti stjórn „atvinnufor-
manna“ og því útilokað að starfandi kenn-
arar, til dæmis við framhalds- eða grunn-
skóla, eigi þess kost að sitja í stjórninni.
Þeim hefur verið ýtt út og hafa formenn-
irnir tekið við atkvæðisrétti þeirra.
Eftir tveggja ára reynslu af starfi nýja
Kennarasambandsins bjóst ég við lagabreyt-
ingum til að auka vald KÍ-þings, styrkja sam-
bandið og stjórn þess, til dæmis með fjölgun
stjórnarmanna kosinna af þinginu eftir
félagslegum áhuga fólks, framsækni þess og
baráttuvilja fyrir bættum kjörum og betri
skóla en ekki eftir félagslegum eyrnamerkj-
um. Jafnfram vonaðist ég til að þingið kysi
gjaldkera beinni kosningu sem fulltrúa
félagsmanna hvað varðar rekstur og fjármál.
Í þrjá áratugi hef ég tekið virkan þátt í
félagsmálum kennarastéttarinnar og verið í
hópi þeirra sem lagt hafa áherslu á félags-
legt lýðræði og valddreifingu. Ekki veit ég
hvaða rök liggja að baki þessum tillögum.
Varla eru það sparnaðarhugmyndir ef litið
er til hinna miklu umsvifa í rekstri Kenn-
arasambandsins. Er þetta valdataka hinna
sterku foringja eða vill ráðandi forysta ekki
að Kennarasambandið verði sterk heildar-
samtök heldur aðeins samstarfsvettvangur
aðildarfélaganna um rekstur skrifstofu í
Kennarahúsinu?
Valgeir Gestsson
skrifstofustjóri Kennarasambandsins
Á þingi Kennarasambands Íslands 8. - 9.
mars mun skólamálaráð KÍ leggja fram til-
lögu að siðareglum kennara í KÍ, tillögu að
skólastefnu KÍ, tillögu að stefnu um mennt-
un kennara, námsráðgjafa og skólastjórn-
enda í KÍ og tillögu að skólamálaályktunum
sem munu innhalda tillögur um ýmis
skólapólitísk málefni líðandi stundar og mál
sem skólamálaráð þarf að vinna að á næsta
starfstímabili.
Siðareglur
Siðareglur eru tilraun til að lýsa þeim
starfsreglum sem starfsstétt telur sig þurfa að
fara eftir til að geta rækt skyldur sínar við
samfélagið, starfið og starfsfélaga. Sú tillaga
að siðareglum kennara í KÍ sem lögð verður
fyrir þing KÍ er byggð á drögum að siðaregl-
um kennara sem skólamálahópar í Kennara-
sambandi Íslands hinu eldra og Hinu íslenska
kennarafélagi mótuðu frá 1993 til 1999 og
siðareglum leikskólakennara sem fyrst voru
samþykktar 1991. Fjallað var um tillögu að
siðareglum í skólamálanefndum aðildafélaga
KÍ á starfstímanum, á ársfundi skólamálaráðs
KÍ 2001 og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands
veitti ráðgjöf við verkið. Skólamálaráð leggur
til að á næsta starfstímabili verði áfram unnið
með siðareglurnar, kynning og umræður um
siðareglurnar fari fram meðal kennara og að
samdar verði tillögur um siðanefnd KÍ fyrir
3. þing KÍ 2005.
Skólastefna
Tillaga um skólastefnu skiptist í almenn-
an hluta og fjóra kafla þar sem fjallað er um
hvert skólastig fyrir sig, þ.e. leikskóla,
grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistar-
skóla. Skólamálaráð KÍ samdi almenna
hlutann en skólamálanefndir félaga í KÍ
sömdu kafla um hvert skólastig. Almenni
hlutinn fjallar um hlutverk skólans og það
sem þarf að leggja megináherslu á til að
byggja upp, efla og bæta menntun, þjón-
ustu, fagmennsku og starfsaðstæður kenn-
ara, námsráðgjafa og stjórnenda svo að þeir
geti betur sinnt hlutverki sínu. Af nýjum
áherslum í skólastefnu KÍ má nefna Ísland
sem fjölmenningarsamfélag og ráðgjafarkerfi
reyndra kennara. Aukin áhersla er lögð á
stjórnun skóla og nauðsyn þess að tölvu-
tækni og nútímaleg fjarskipti verði eðlileg-
ur hluti af starfsumhverfi kennara. Bent er á
að gera þurfi átak í kennaramenntun til að
vinna gegn kennaraskorti. Áhersla er lögð á
að skólar leggi til öll kennslutæki sem not-
uð eru í skólanum, stoðþjónustu sé bætt og
sköpuð betri skilyrði fyrir mat á skólastarfi
og þróunarstarf í skólum.
Menntunarstefna
Skólamálaráð samdi á starfstímabilinu til-
lögu að nýrri stefnu um grunn-, framhalds-
og endurmenntun kennara, námsráðgjafa
og skólastjórnenda. Áfram er lögð áhersla á
kröfu um lengingu grunnnáms kennara í
fjögur ár og að kennaranám sé samsett nám
í fræðigrein og uppeldis- og kennslufræði.
Krafa er um fjölbreytt framhaldsnám og
m.a. bent á þörfina á að bjóða upp á fram-
haldsnám í námsgagnagerð og nám fyrir
æfingakennara og stuðningskennara nýliða í
kennslu. Endurmenntun á að vera sjálfsagð-
ur hluti af starfinu og áhersla lögð á vett-
vangsnám, þ.e. að efla endurmenntun sem
fram fer í skólunum á starfstíma skóla, með
samvinnu fólks á tilteknu starfssviði því það
er talin árangursríkasta leiðin til að breyta
kennsluaðferðum og öðrum starfsháttum.
Fagleg umræða
Við þurfum að halda áfram að styrkja
stöðu kennarastéttarinnar og efla fag-
mennsku okkar með gagnrýnni og upp-
byggilegri umræðu um kennarastarfið og
skólastarf í heild. Ofangreind stefnuplögg
er öll að finna á heimasíðu KÍ undir skóla-
málaráð og vil ég hvetja kennara, námsráð-
gjafa og skólastjórnendur til að kynna sér
þau og taka virkan þátt í faglegri umræðu
úti í skólunum við undirbúning þingsins.
Hjördís Þorgeirsdóttir
formaður skólamálaráðs KÍ
Skólamál á þingi KÍ
Siðareglur efla fagmennsku kennara