Skólavarðan - 01.12.2002, Síða 16
Börnin verða stundum leið á vatni og
mjólk og heimta aðra drykki, hvað á að
bjóða þeim upp á til tilbreytingar? Hreinir
ávaxtasafar eru auðvitað hollir í hófi en nú
er okkur sagt að þeir séu mjög súrir og
glerungseyðing tanna í samræmi við það.
Þá flækir það málin enn að
ýmist heyrir maður talað
um orkudrykki eða íþrótta-
drykki. Skólavarðan fékk
Ólaf Unnarsson næringar-
fræðing hjá Mjólkursamsöl-
unni til að segja okkur hvað
snýr upp og hvað niður í
þessari umræðu.
Orkudrykkir
„Ég tel mjög eðlilegt að
erfitt sé að átta sig á hvað
snýr upp og niður varðandi
orku- og íþróttadrykki,“
segir Ólafur. „Úrval slíkra
drykkja hefur aukist veru-
lega. Til orkudrykkja hafa
gjarnan verið taldir drykkir sem innihalda
örvandi efni eins og koffein, ginseng eða
guarana og væri því jafnvel betur við hæfi
að kalla þá örvandi drykki en orkudrykki.
Algengt er að orkudrykkir innihaldi 11-
12% af kolvetnum, mest strásykur eða
súkrósa, þrúgusykur eða glúkósa og/eða á-
vaxtasykur, þ.e. frúktósa, og oft lítið magn
af dextríni sem er fjölsykra. Þessara drykkja
er neytt vegna örvandi áhrifa þeirra og á
umbúðum sumra þeirra er tekið fram að
þeir séu ekki ætlaðir börnum.
Þetta eru allt drykkir sem börn ættu að
forðast.
Íþróttadrykkir
Til íþróttadrykkja teljast svo drykkir sem
ekki innihalda örvandi efni og eru ætlaðir
til að bæta vökvatap sem verður við
áreynslu, til að fólk haldi betur út á æfing-
um eða jafni sig fyrr eftir æfingar. Innihald
kolvetna er að öllu jöfnu minna en í orku-
drykkjum, algengt 6-9%. Samsetning kol-
vetna er nokkuð breytileg en algengust eru
þó strásykur, þrúgusykur eða fjölsykrur
eins og maltodextrín. Sumir íþróttadrykkir
innihalda nær eingöngu fjölsykrur í stað
sykurefna og valda því ekki sömu blóðsyk-
ursveiflum og drykkir með hátt hlutfall af
sykurefnum, auk þess sem talið er að þeir
bæti vökvatapið hraðar. Því má almennt
segja að þeir henti börnum betur en
íþróttadrykkir sem ríkir eru af sykri. Hins-
vegar er mikilvægt að átta sig á því að þrátt
fyrir að þessir drykkir séu oftast ekki kol-
sýrðir eru þeir súrir og því ekki gott að
sötra þá í tíma og ótíma. Auk þess er rétt
að geta þess að þrátt fyrir að þessir drykkir
gefi hitaeiningar eða orku þá innihalda þeir
að öðru leyti litla næringu. Þó má benda á
að sumir íþróttadrykkir innihalda sölt til að
bæta það tap sem verður við að svitna.
Mikilvægast er þó að
bæta vökvatap og í flestum tilfellum
hentar vatn því mjög vel.
Orkuhleðsludrykkir
Auk hefðbundinna íþróttadrykkja eru til
drykkir sem gjarnan eru kallaðir orku-
hleðsludrykkir. Algengt er að þeir innihaldi
þrisvar til fjórum sinnum meira magn af
kolvetnum en hefðbundnir íþróttadrykkir
og þá á ekki að nota meðan á íþróttaiðkun
stendur. Mun minna úrval er af þessari teg-
und íþróttadrykkja. Sumir nota hleðslu-
drykki til að ná upp kolvetnaforða líkamans
fyrstu tvo tímana eftir að áreynslu lýkur en
þá er kolvetnahleðsla vöðva mest. Fyrir
flesta þá sem stunda almenningsíþróttir er
talið nóg að boða kolvetna-
ríkt fæði eins og brauð,
pasta, múslí eða kartöflur.
Lesið
innihaldslýsinguna!
Nafn drykkjarins gefur
ekki alltaf til kynna hvort um
orkudrykk eða svokallaðan
íþróttadrykk er að ræða. All-
ir drykkir sem seldir eru hér
á landi eru merktir með
innihaldslýsingu. Með því að
skoða hana má sjá hvort
drykkurinn sé orkudrykkur
sem innihaldi örvandi efni
og börn ættu að forðast sér-
staklega. Að lokum er rétt að
benda foreldrum á efni á
heimasíðu Manneldisráðs
(„Gott nesti-lykill að góðri líðan“
http://www.manneldi.is/ht/b/nesti.htm)
þar sem fjallað er um hollt og gott nesti,
þar með taldir drykkir fyrir skólabörn.“
Nest isdrykkir í skó lann
18
Svokallaðir orkudrykkir hafa flætt yfir
landið á undanförnum árum og nú er
svo komið að maður veit ekkert í sinn
haus - eru þessir drykkir fullir af koff-
íni og öðrum óþverra og skaðlegir
börnum og unglingum eða eru þeir
bara alveg ágætis viðbót við oft og
tíðum fábreytt skólanestið?
Vatn er auðvitað best en...
„Sumir íþróttadrykkir innihalda nær eingöngu fjölsykrur
í stað sykurefna og valda því ekki sömu blóðsykur-
sveiflum og drykkir með hátt hlutfall af sykurefnum, auk
þess sem talið er að þeir bæti vökvatapið hraðar. Því
má almennt segja að þeir henti börnum betur en
íþróttadrykkir sem ríkir eru af sykri.“
„Orkudrykkja er neytt vegna örvandi áhrifa þeirra,“
segir Ólafur Unnarsson, „og á umbúðum sumra þeirra
er tekið fram að þeir séu ekki ætlaðir börnum. Þetta
eru allt drykkir sem börn ættu að forðast.“