Skólavarðan - 01.12.2002, Side 19
Er ekki alveg að fatta hvað fólk hefur á
móti bloggi.
Blogg er egóflipp er leið til að tala við
marga í einu er sköpun er sem sagt EKK-
ERT NÝTT (frekar en Gertrude Stein-
eftirhermur á borð við þessa málsgrein).
Eina sem er nýtt er að nú er í tísku að
hafa áhuga á sjálfum sér. Áður þorði eng-
inn út úr skápnum með þetta áhugamál.
Svo er auðveldara að iðka áhugamálið á ár-
angursríkan hátt með tilkomu bloggsins.
Blogg er bæði fyrir stelpur og stráka og
þess vegna mjög sniðugt til að draga stelp-
urnar að tölvunum. Blogg er að
miðla sjálfum sér til annarra og
ímynda sér að við það fái fleiri
áhuga á manni en maður sjálfur.
Er það ekki ágætis sjálfsstyrking?
Verst að sumt fólk verður svo upptekið
af þessu að það má ekki lengur vera að því
að tala við mann (með talfærunum). Verst
að tungutakið á öllum bloggsíðunum er al-
veg eins. Mjög líkt þessum texta hérna
nema með fleiri orðum á útlensku og há-
stöfum og slatta af upphrópunarmerkjum.
Það góða við bloggið er að það ýtir fólki
út í að skrifa. Vonandi ýtir það sem flestum
líka út í að hugsa og lesa. Og skrifa svo
kannski meira. Eða minna.
Svo líður tíminn og bloggið/skrif-
in/sköpunin/sjálfssýningin tekur á sig aðrar
myndir. Hvernig sem þróunin verður vona
ég að eintalið verði ekki allsráðandi. Fólk
þarf að tala saman og fá viðbrögð við því
sem það er að hugsa. Sem betur fer spjalla
flestir bloggarar við lesendur sína. Sem
verr fer eru flestir lesendur bestu vinir
bloggarans og tala núorðið bara við hann á
Netinu milli þess sem þeir setja efni inn á
eigin bloggsíður. Og þó, bloggið hennar
Betu rokk fer á bók og umræðan um það er
ekki bara í vefritinu Kistunni heldur líka í
Mogganum og á kaffihúsum.
Blogg er ágætt. Það hvetur fólk til að
skrifa og orða hugsanir sínar. Og dregur
stelpurnar að tölvunum. Ég er nefnilega
mjög upptekin af því núna að stelpur hafi
önnur áhugamál en lúkk, stráka og mat
sem má ekki borða og þarf að afborða í
næsta gymmi ef hann var borðaður. Ég
held það sé enn mikilvægara að berja
áhugamál inn í stelpur frá unga aldri en
stráka. Þeir sjá meira um það sjálfir.
Þess má geta að blogg er „íslenskun“ á
blog sem er stytting á weblog. Áður þurfti
fólk að eiga pening og/eða vera klárt í html
til að búa til og halda úti vefsíðu.
Svo kom nýr hugbúnaður fyrir
blogg-útgáfu (líklega árið 1999)
og blogger.com og fleiri aðilar
sem gerðu blönkum nemum í
tímaþröng með takmarkaða tölvukunnáttu
kleift að taka þátt í vefútgáfu. Bloggsíður
eru einfaldar, staðlaðar og sjálfvirkt útgefn-
ar. Innihald dæmigerðrar bloggsíðu er dag-
settir þankar höfundar, algengt er að segja
frá öðrum vefsíðum í örstuttu máli og setja
krækjur í þær. Margar bloggsíður eru
tengdar tilteknu áhugasviði höfundar, til
dæmis stjórnmálum eða tónlist, og bloggið
er í raun stærsti vettvangur áróðursskrifa
nútímans.
keg
Frétt i r og smáefni
22
Blogg
Stefna Fræðsluráðs Reykjavíkur er að í
grunnskólum borgarinnar starfi stuðnings-
teymi fyrir kennara vegna nemenda með
námserfiðleika og hegðunar- og samskipta-
örðugleika.
Deildarstjóri sérkennslu og fulltrúi skóla-
stjóra Húsaskóla fóru á námskeið í atferlis-
greiningu á vormisseri (feb.-maí 2002). Til-
gangur með námskeiðinu var að læra og
þjálfast í að leysa hegðunarvanda nemenda í
bekk og miðla til annarra kennara. Dr.
Gabriela Sigurðardóttir lektor við HÍ, Ing-
unn Magnúsdóttir og Margrét Þórarins-
dóttir sálfræðingar héldu námskeiðið. Í
framhaldi býðst fulltrúum frá Húsaskóla
handleiðsla frá Ingunni Magnúsdóttur sál-
fræðingi.
Frá stuðningsteyminu:
Markmiðið með stuðningsteyminu er að
kennarar eigi vísan stuðning hjá samkenn-
urum og fái hugmyndir að lausn vanda-
mála.
Í teyminu eru fimm reyndir kennarar
sem kenna mismunandi aldursstigum.
Þegar kennari lendir í þroti með hegðun-
ar- og/eða námsvanda í bekk getur hann
sótt um aðstoð frá teyminu á sérstökum
eyðublöðum. Teymið fer yfir málið og
hugmyndir að úrræðum eru ræddar. Kenn-
arinn velur svo og prófar það sem honum
finnst henta. Fundir sem haldnir eru með
kennara taka aðeins 30 mínútur og eitt mál
er rætt í einu.
Umsögn kennara:
,,Mér fannst mjög gott að leita til stuðn-
ingsteymisins, þó ekki væri nema til að tala
um nemandann sem á í erfiðleikum og létta
af mér áhyggjum. Það er styrkjandi að fá
ráðgjöf frá kennurum sem hafa reynslu og
finna að maður stendur ekki einn. Þeir
komu líka með úrræði sem mér hafði ekki
dottið í hug að ég gæti notað.
Mér leið mjög vel eftir fundinn. Útlitið
var svart en nú veit ég að hægt er að leysa
vandamálin þótt það taki stundum tíma.“
Lágmarksskilgreining á bloggsíðu gæti verið:
Dagsett textabrot einstaklings, gefin út á Netinu.
Stuðningsteymi í Húsaskóla
Í Húsaskóla er starfandi stuðnings-
teymi þar sem kennarar hjálpa hver
öðrum þegar vandamál koma upp
inni í bekk og bregðast skjótt við
hjálparkalli. Þetta úrræði var tekið í
notkun í haust og hefur þegar gefið
góða raun.