Þjóðmál - 01.06.2014, Síða 35
34 Þjóðmál SUmAR 2014
og olíuhagsmunir komu þar sterklega við
sögu . Má með sanni segja að Ögmundur
sé trúr fortíð sinni og má mikið læra af því
sem hann þegir um ekki síður en því sem
hann segir . Brynjar, sem ekki leggur sig
eftir að orðlengja um hlutina og nær þar
af leiðandi ekki að krækja í nema um það
bil 10% af út send inga rtímanum, var í þetta
sinn fyrri til að svara spurningu Heimis .
Sagðist hann hafa þá kenningu að ástæðan
fyrir þessum vægu viðbrögðum væri sú að
pressan á Vesturlöndum væri svo vinstri
sinnuð . Því tæki hún frekar málstað þessara
Langt-í-burtu-þjóða og benti á að meira
að segja hörðustu femínistar láti vera að
gagnrýna mannréttindabrot gegn konum,
þótt þeir séu fljótir til þegar eitthvað ber
út af á Vesturlöndum . Allt er þetta rétt,
þótt það útskýri í sjálfu sér fátt og kafi
ekki djúpt . Þó virtist Brynjar snerta þarna
auman blett hjá Ögmundi, því ekki er að
orðlengja að hann tókst á flug og kvað
langa drápu um störf sín sem fréttamaður,
átök í Sýrlandi, afstöðu fólks til frelsis —
og svei mér þá ef heilbrigðisþjónustan hér
heima og strætó komu ekki líka við sögu .
Og ekki má gleyma hinni klassísku kanínu í
hatti vinstri manna: hrikalegum ofsóknum
kirkjunnar á miðöldum . Eftir að hafa slengt
öllu nema eldhúsvaskinum inn í umræðuna
stóð ekkert eftir annað en að Ögmundur
hafði ekki minnst einu orði á afstöðu sína
til upphaflegu spurn ingar innar: „Hvers
vegna eru viðbrögð Vesturlanda svona veik
í þessum málum?“ Þáttarstjórnandinn var
ekki sáttur við þessi undanbrögð og hélt
áfram að spyrja um afstöðu þeirra og benti
á hávær mótmæli hér og annars staðar
þegar illa væri farið með konur á Indlandi
eða í Rússlandi . En þegar kæmi að konum
í arabaheiminum væri eins og enginn þyrði
að segja neitt . Brynjar ákvað að halda sig
við kenningu sína og benti Ögmundi á
að það stæðist ekki að kalla þetta annan
menningarheim því að Rússland væri annar
menningarheimur og sama mætti segja
um Indland . Ögmundur var kominn út í
horn og klykkti því út með að hann hafnaði
vinstri-hægri kenningu Brynjars en sagði
svo: „Skýringin er sú að við gagnrýnum
síður það sem fjær okkur er, en nær okkur .“
Þegar þarna var komið skellti ég upp úr .
Þennan útvarpsþátt mætti nota sem
kennslu efni í tvískinnungi og undan-
bragðahefð vinstri manna . Á sigurvegara
um ræð unnar — þáttarstjórnand ann sem
sleppti viðmælendunum ekki af önglinum
fyrr en allt líf var úr þeim undið — má
hins vegar hengja orðu . Þótt Brynjar hafi
átt loka lagið í síðu Ögmundar hefði hann
mátt fylgja kenningu sinni betur eftir, því
að kenning er ekki kenning ef hún er ekki
rökstudd á trúverðugan hátt . Brynjar hafði
greini lega ekki hugsað þetta mál mjög
djúpt en í þess stað reitt sig á eigið innsæi .
Ög mund ur brást hins vegar við að vinstri
manna sið; fór undan í flæmingi og dreifði
um ræðunni með orðgnótt, sem hljómað
hefði glimrandi í óperettu eftir Gilbert og
Sullivan, en svaraði engu .
Erfitt er að trúa að svo skynugur maður sem Ögmundur er trúi því fimbul fambi
sem hann bar þarna á borð, en svo vill til að
Þ áttarstjórnandinn var ekki sáttur við þessi undanbrögð . . .
og benti á hávær mótmæli
hér og annars staðar þegar illa væri
farið með konur á Indlandi eða
í Rússlandi . En þegar kæmi að
konum í arabaheiminum væri eins
og enginn þyrði að segja neitt . . .