Félagsbréf - 01.12.1962, Qupperneq 59

Félagsbréf - 01.12.1962, Qupperneq 59
FÉLAGSBRÉF 55 Stefán Einarsson: íslenzk bókmenntasaga 874—1960. Snæbjörn Jónsson & Co. h.f. Reykjavík 1961. að má teljast heldur en ekki í frásögur færandi, að íslendingar hafa ekki alls fyrir löngu eignazt samfellda íslenzka bók- menntasögu á íslenzku frá elztu tímum frain á vora daga, og nefnist hún Islenzk bók- menntasaga 874—1960. Má segja, að tími hafi verið til kominn. Afreksmaðurinn er hinn merki vísinda- maður Stefán Einarsson, fyrrverandi pró- fessor við John Hopkins háskólann í Balti- more. Stefán hefur komið á langri ævi mörgu og margvíslegu í verk. Hann er í rauninni lærður hljóðfræðingur, eins og doktorsritgerð hans færir okkur heim sann- inn um (Beitrage zur Phonetik der is- landischen Sprache, Oslo 1927); að auki hefur hann ritað mikla kennslubók í íslenzku fyrir útlendinga (Icelandic Grammar, Texts, Glossary, Baltimore 1945). En á siðustu áratugum hefur hugur hans hneigzt æ meir að bókmenntum og rannsókn þeirra. Stefán hefur með öðrum orðum skipt um rannsóknarsvið: Hinn vísindalega skólaði málfræðingur ritar nú bókmenntasögu. — Þetta er sagt hér til skilningsauka á því, sem á eftir kemur. Þessi umskipti þakkar Stefán eða kennir Sigurði Nordal, læri- meistara sinum, í formála að Bókmennta- sögunni, en Stefán tileinkar Sigurði þessa nýju bók sína hálfáttræðum. Af fyrrsögðu má skilja, að Stefán Einars- son er enginn viðvaningur i því að glima við bókmenntaleg vandamál. Hann hefur látið frá sér fara m. a. History of Icelandic Prose Writers 1800—1940 (1948), Skáldaþing (1948) og A History of Icelandic Literature (1957). Hin nýja bók Stefáns, sem hér er til umræðu, er i raun réttri þýðing á ensku bókmenntasögunni frá 1957 að undanskildum nokkrum köflum um stöku skáld eða fræðimenn, sýnishornum um kveðskap, skrá yfir bókaflóð síðustu ára og loks hugleiðingum af ýmsu tagi. Það er ekki heiglum hent að semja sögu bókmennta heillar þjóðar um margra alda skeið, og sér í lagi, þegar um frumsmíð er að ræða. Það er ekki unnt annað en dást að hugrekki og framtaki Stefáns. Sá, sem færist i fang að rita bókmennta- sögu, verður nauðugur viljugur að byggja að langmestu leyti á verkum annarra vís- indamanna. En höfundi er mikill vandi á höndum og hefur í mörg horn að líta. — Þegar hann hefur kannað heimildir og aflað sér fanga, leitar á brýnt vandamál: hversu skuli skipa efninu niður, flokka verk og höfunda. Þetta er fjarska mikils vert, því að hér er um að ræða uppistöðuna eða sjálfa beinagrindina. Ifvernig hefur Stefán leyst þetta? Hvað áhrærir fornar bókmenntir, greinir Stefán að bundið mál og sundurlaust allar götur fram til siðskipta. Þegar frá er tekinn inngangskaflinn, rekur hann fyrst sögu kveð- skaparins (Eddukvæði, Dróttkvæði, Helgi- kvæði, Veraldlegur skáldskapur frá síðmið- öldum) og síðan sagnaritunarinnar (Bók- menntir klerka, Fyrstu sagnaritarar, Kon- ungasögur, Sögurnar, íslendingasögur, Sturl- unga saga, Fomaldar sögur, Riddara sögur og Lygisögur). Um þessa heildarskiptingu er það að segja, að hún er einföld og hand- hæg, og í raun og veru er ekki kleift að fetta fingur út í hana, þar eð Stefán gætir fyllsta samræmis við þessa niðurröðun. En hún er að mínum dómi ekki heppileg; er óneitanlega ankannalegt að lesa um rímna- kveðskap 14., 15. og 16. aldar án þess að hafa heyrt minnzt á þær sögur, sem þessi kveðskapargrein hvílir á. Þessi langi að- skilnaður bundins og óbundins máls er einkar villandi. Ákjósanlegt hefði verið að hluta þennan kafla bókmenntasögunnar í tvö tíma- bil: Fornöld og Miðöld (1350—1550). Við
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.