Ljóðormur - 01.06.1990, Síða 20

Ljóðormur - 01.06.1990, Síða 20
18 Heinz Czechowsld Bjórdrykkja í rigningu Sennilega, það er ógjömingur, sagði hún, og fysn hans beið skipbrot. Því gengu þau undir regnhlíf um göturnar en gleðin vildi ekki lifna með þeim framar. Svo þau ákváðu að fara á knæpu. Breyta til, hugsaði hann, einfaldlega breyta til, hugsa um eitthvað annað. París til dæmis: kannski dugar kort til að hugsa sig þangað, borgarkort póstkort. En það rigndi líka í París. Það var janúar og veitingastaðurinn „Le Pub“ í Rue Soufflot bauð upp á 120 tegundir af bjór. í bakherberginu glumdi í hljómsveit. Var hún hér? Var hún þar? Franz Gíslason þýddi. Heinz Czechowski fæddist I Dresden 7. febrúar 1935; gaf út fyrstu ljóðabók sína Nachmitlag eines Liebespaares 1962. Síðar komu út ljóðabækumar Wasserfahrt (1967) og Schafe und Steme (1974). Czechowski hefúr einnig gefið úr ritgerðasöfn og prósarit, t.a.m. ferðaminningar frá París, svo og Ijóðasöfn af ýmsu tagi. Hann býr núna í Leipzig. — Ljóðin hér að ffaman eru öll tekin úr úrvali ljóða eftir Czechowski sem upprunalega kom út undir heitinu Ich, beispi- elsweise hjá Reclam-forlaginu í Leipzig 1982.

x

Ljóðormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.