Tíminn - 24.12.1947, Síða 12
12
JÓLABLAÐ TÍMANS 1947
ÁSMUNDUR HELGASDN FRA BJARG!:
Gömul jólamLn.n.Ln.g
Sigurður Jóhannson hafði verið sjómað-
ur síðastliðið sumar hjá Steingrími á Hag-
barði.
Hann átti heima suður á Síðu.og var
búinn að ákveða að verða pósti samferða
þangað suður í desember.
Móðir hans átti heima á sama heimili
og ég. Hafði Sigurður lofað henni, að
heimsækja hana og dvelja hjá henni um
tíma, eftir að formaður hans væri hættur
sjóferðum, þar til hann héldi heim til átt-
haga og konuefnis.
Steingrímur hætti róðrum síðustu daga
í október, en fyrstu daga í nóvember kom
Sigurður. Gat því orðið um þriggja vikna
dvöl að ræða hjá okkur.
Vorið áður hafði ég verið tekinn í krist-
inna manna tölu og taldi mig því með
fullorðna fólkinu.
Það varð brátt mikill kunningskapur á
milli okkar Sigurðar, þó við hefðum aldrei
sést áður og þó hann væri 6 árum eldri.
Hann var hinn mesti æringi og um leið
skemmtilegur, söngelskur mjög, hafði
mikla söngrödd og þótti kunna að beita
henni vel, kunni mikið af lögum, gömlum
og nýjum, m. a. eftir þá Helgasyni, Helga
og Jónas, við mörg af hinum hugðnæmu
kvæðum og vísum góðskáldanna, sem við
höfðum lært lítið eitt, og höfðum hinar
mestu mætur á.
Þá kunni hann flest lögin við sálmana
í hinni nýútkomnu sálmabók.
Okkur unglingunum þótti það því mikill
fengur, að fá þennan mann til dvalar á
heeimilið. Aðeins var eitt að: Hvað straum-
ur tímans rann fljótt, fljótara en vani
hans var, að mér fannst.
Tíðarfarið í nóvember var óstillt og hret-
veðrasamt, svo lítið var hægt að leika sér
úti, en það gerði ekki mikið til, því þess
meira var sungið í ljósaskiptunum undir
stjórn Sigurðar.
Við unglingarnir báðum Sigurð oft, að
dvelja hjá okkur fram yfir hátíðarnar, en
því var hann ófáanlegur til að lofa, sama
þó húsbændurnir byðu honum að dvelja
þar fram í janúar. Hann varð „að komast
heim fyrir jólin.“
Það eitt var víst, að við ungmennin,
báðum þess heitast af bænum okkar þá,
að veðrin yrðu svo vond fyrir jólin, að
Sigurður kæmist ekki suður, en hlyti að
gista okkar heimili.
Svo rann upp sá dagur er Sigurður skyldi
leggja af stað til heimferðar, en það var
annar sunnudagur í Aðventu, því að póstur
átti að fara í þessa póstferð á mánudaginn
eftir.
Jóhann, annar bóndinn, ætlaði að verða
Sigurði samferða í kaupstaðinn, og ég var
líka sendur eða fékk að fara. Við lögðum
af stað laust fyrir hádegi. Þá var sunnan
hvassviðri og ekkert útlit fyrir að það
batnaði, en þó þurrt veður.
Við áttum yfir fjall að sækja. Sannar-
lega festi ekki fis á fötum okkar meðan
við strituðum yfir það.
Þegar við vorum komnir niður að bæjum
hinum megin skall á okkur ofsarok með svo
stórfelldri rigningu, að líkast var, sem yfir
okkur væri hellt stanzlaust úr skjólum. Jó-
hann bóndi sagði þá, að við skyldum sem
fljótast forða okkur til þess bæjar, sem
næst var. Þetta gerðum við.
Þegar þar kom, báðum við að lofa okkur
að vera inni í húsaskjóli meðan þessi
demba færi fram hjá, því þeir fullorðnu
fullyrtu, að svona demba stæði ekki lengi
yfir.
Það var auðsótt að fá húsaskjól, okkur
svo fylgt í baðstofu, sem var vel upphituð
frá blessuðum kúnum, og fannst mér það
mikil viðbrigði, að koma í þann notalega
hita úr slíku veðri.
Við urðum að taka því með þolinmæði
að vera þarna, það sem eftir var dagsins
og nóttina eftir, því veðrið hélzt hið sama
lengi fram eftir nóttu.
Snemma morguninn næsta, var haldið
áfram, en þó leið sú, sem við áttum ófarna,
væri ekki löng, var hún seinfarin.
Ár og lækir ultu nú fram kolmórauð,
svo illt var yfir að fara. Þó komumst við
stundu fyrir hádegi á póststaðinn, en þá
var pósturinn á bak og burt, hafði farið
með birtingu, því að hann bjóst við hæg-
fara ferð yfir heiðina og vötnunum svo
miklum, að til tafar kæmi við þau.
Nú var komið babb í bátinn fyrir Sigurð,
hann var alókunnugur leið yfir heiðina,
hestlaus, en kunnugir menn sögðu honum,
að vötn þau er hann þyrfti yfir að fara,
væru svo djúp og straumhörð, að ekki væru
fær nema á hesti.
Sigurður sá þá þann kost vænstan að
hætta við suðurferð og snúa aftur heim
með okkur. Þetta gladdi mig sannarlega.
í kaupstaðarferðinni kom ekkert mark-
vert fyrir; við gistum í kaupstaðnum um
nóttina, en héldum svo heim daginn eftir,
með jólaskjatta á baki, í sæmilegu leiði.
Okkur yngri liðþjálfunum fannst nú
sem dagarnir liðu heldur dræmt því mikið
var hlakkað til jólanna.
Þó var sungið í stað rökkursvefns undir
stjórn Sigurðar, ef ekki var veður til að
leika og hlaupa úti á tjörn og túni.
En tíðin hafði nú líka skipt um ham eins
og rjúpan, því norðaustan átt hafði kom-
izt til valda hjá Vetri sjóla, en það þýðir
frost og snjó um Austurland. Urðu því
talsverð svellalög og gaddur, þar sem snjór
var en frysti. Umferð, þar sem brattlent
var, gat því ekki talizt greið.
Þó versnaði enn meir, þegar þur haglélja
snjór dreif niður á harðfennið og svellin.
Svona var þá umhorfs á aðfanga daginn.
En það þótti okkur allt annað en gott, því
að við áttum heimboð á jóladaginn á næsta
bæ, en þar á milli voru smáskriður og all-
brattar brekkur yfir að fara; en þá ferð
þóttumst við ekki mega undir höfuð leggja.
Blessuð jólanóttin kom og fór fram með
venju. Allir fengu jólakerti, brydda sauð-
skinnsskó með „leppum“ í og svo eitthvert
plagg, svo hann eða hún yrði ekki bann-
settum jólakettinum að bráð. Líka höfðum
við félagarnir þrír: Gvendur, Mundi og
Þórður minnst á, að eitthvað yrði hann
Sigurður að fá, þó ekki ætti hann hér
heima, því satt að segja þótti okkur hann
hafa unnið fyrir því með söngkennslunhi
sinni, og við fengum að sjá þá bæn okkar
uppfyllta.
Þegar fólk hafði afklæðst gömlu fötun-
um og farið í hin nýju, var matur á disk-
um inn borinn: glóðarbakað flatbrauð,
pottbrauð, lúðuriklingur, rauður og sætur,
súrir kjammar, kúasmjör nýtt, sauðasmjör
frá sumrinu, og mjólkurgrautur í „for-
hlað.“
Eftir að mat var lokið voru lestrar og
sálmabækurnar teknar fram og sungið og
lesið í Vídalíns postillu. Þá heyrðum við
fyrst sungna hina ýmsu jólasálma í nýju
bókinni.
Mig furðaði á því, að þegar Sigurður
byrjaði að syngja sálminn „f dag er glatt
í döprum hjörtum“ þá kannaðist ég við
lagið á visu sem ég kunni og fannst þá,
að ekki væri það gott til söngs við sjálfan
jólalesturinn. Vísan byrjar svona:
í skýjum fölnuð sól er sigin ....
Jóladagurinn rann upp heiðskír, kaldur,
bjartur. Þegar búið var að syngja og lesa
jóladagslestur Vídalíns var setzt að snæð-
ingi á hangikjöti, reyktum magálum, súrs-
uðum bringukollum og fleiru góðmeti.
Þegar öllu þessu umstangi var lokið,
fórum við að týgja okkur til farar í heim-
boðið, en þá var runnin á norðan gola með
litlu norðanfjúki.
Húsbændurnir sögðu að öruggara væri,
að við gengjum á broddum, svo við værum
ekki alltaf að detta og ef til vill hrapa á
hörðu fönnunum á skriðunum. Skyldu þeir
Sigurður og Gvendur ganga á fjórskefl-
ingsbroddum og styðja þær Gunnu og
Gerðu, sem gengu ójárnaðar, en við Þórður,
sem ekki var treyst eins vel, áttum að sjá
um okkur sjálfa á tvískeflingsbroddum.
Okkur þótti þetta heldur gott, að fá að
ferðast á broddum milli bæja í byggð. Eldri
mennirnir áminntu okkur um að beita
broddunum er á bröttu fannirnar kæmi,
þannig, að þeir yrðu okkur að liði.
Við álitum að ekki þyrfti neinn sérstakan
lærdóm til þess að ganga á broddum, og
hlógum að þeirri áminningu.
Þegar farið var af stað vildu þær báðar,
Gunna og Gerða, fá að njóta þeirra rétt-
inda að halda einhvers staðar í limi Sig-
urðar, því að þær treystu honum betur
en Gvendi. Sá varð endir á því stríði að
Sigurður skyldi leiða Gunnu suður, en
Gerðu norður.
Þegar komið var á Biðugilsjaðar kom
okkur saman um að hvíla áður en lagt
yrði í skriðurnar, virða fyrir okkur útsýnið.
. Þar voru vindamót og „blæju“logn. Máninn
slagaði út úr fullur upp á himinninn.
Dóttir Njörfa var búin að láta út kindur
sínar er dreifðu sér vel um stjörnuheiði.
Hræsvelgur færðist í aukana, snæfokið
lagði á sjó út, smá hvolpum kippti upp.
Frostið herti, en logn var í Biðugili.
Gilið fékk nafn sitt af því, að er Gvendur
Goluþytur, forfaðir Gvendar okkar var að
lyftja skyrbiður milli bæja rakst önnur bið-
an í stein við veginn, hrökk upp af klakkn-
um og valt í sjó niður, en merkti steina
skyrslettum.
Þá komu í huga minn þessar leirhend-
ingar og hafa geymzt þar síðan — munu
nú hálf mölétnar sem fleira. Samt læt ég
þær róa:
Norðan blæs napur gjóstur
næðir of sali hvala.
Bára á boðum skellur
brýtur og froðu spýtir.
Fold undir feldi hvítum
felur sig vel og dvelur.
í mjúku moldar skauti
móður frjó nýja gróðurs.
Þegar kom á bröttu fannirnar hörðu,
kom í ljós, að við kunnum heldur lítið að
beita broddunum, hætti við að létta á
fætinum í stað þess að berja honum sem
fastast niður í hverju spori, en það lærðist
smám saman eins og allt annað.