Alþýðublaðið - 24.12.1945, Blaðsíða 11
Jólablað Álþýðublaðswí
Sigurður Einarsson:
i
Heilagt blóm
í helgi'lundum 'huliðsfjarra landa
við hyldjúpt vatn
vex heilagt blóm og 'hárauð blöð þess anda
heilögum ilmi.
Þess rauðu skuggum værar bárur vagga.
Þar vefst um lundinn höfug angan þess
svo friðarljúf og máttug, að 'hún megnar
í mildri rósemd kvöl hvers hjarta áð þagga.
Við rætur blómsins líða kristallslindir
í lygnan 'hyl
og hjala létt og stökkva á safírsteinum
og stórum perlum.
En nái þeirra niður mennsku eyra,
er numin hver ein kvöl úr brjósti manns.
Og friður dýpri og fyllri, en orð má greiná
sem furðuljóman skín um vitund hans.
Hér mælast hvorki augnablik né aldir,
því eilífð sjálf
í vitund þinni varir hér og lifir
sem völdug orka.
Þú finnur Hkt og loga í sálu þinni
ljóma hvers kristalls, skin hvers safírsteins,
'að safinn rauði, er brýzt í blómsins krónu
og blóð þíns hjarta er eitt, og hrynja eins.
Og sál þín verður skyggn án þess að skelfast
þú skynjar allt,
sem var þér eins og villuþoka á f jöllum
og vetrarmyrkur.
Það angar um þig sumár þúsund sólna
og svalur ljómi milljón vetrarstjarna
í hvíta-brimi hátignar og helgi,
— þú höndlaðir Hfs þíns mið — og sjálfs þíns kjarna.
Og síðan er þér ásýnd allra hlutia
svo un'g og góð,
en dagar þínir bæn og bið og friður
unz blessun dauðans,
drýpur á hjartað döggmild eins og vomótt,
en dýrðarsýnin líður fyrir brá
sem hinnsta ástargjöf útlagans og þjónsins,
sem andartak var leyft að skynja og sjá.