Alþýðublaðið - 24.12.1945, Page 11

Alþýðublaðið - 24.12.1945, Page 11
Jólablað Álþýðublaðswí Sigurður Einarsson: i Heilagt blóm í helgi'lundum 'huliðsfjarra landa við hyldjúpt vatn vex heilagt blóm og 'hárauð blöð þess anda heilögum ilmi. Þess rauðu skuggum værar bárur vagga. Þar vefst um lundinn höfug angan þess svo friðarljúf og máttug, að 'hún megnar í mildri rósemd kvöl hvers hjarta áð þagga. Við rætur blómsins líða kristallslindir í lygnan 'hyl og hjala létt og stökkva á safírsteinum og stórum perlum. En nái þeirra niður mennsku eyra, er numin hver ein kvöl úr brjósti manns. Og friður dýpri og fyllri, en orð má greiná sem furðuljóman skín um vitund hans. Hér mælast hvorki augnablik né aldir, því eilífð sjálf í vitund þinni varir hér og lifir sem völdug orka. Þú finnur Hkt og loga í sálu þinni ljóma hvers kristalls, skin hvers safírsteins, 'að safinn rauði, er brýzt í blómsins krónu og blóð þíns hjarta er eitt, og hrynja eins. Og sál þín verður skyggn án þess að skelfast þú skynjar allt, sem var þér eins og villuþoka á f jöllum og vetrarmyrkur. Það angar um þig sumár þúsund sólna og svalur ljómi milljón vetrarstjarna í hvíta-brimi hátignar og helgi, — þú höndlaðir Hfs þíns mið — og sjálfs þíns kjarna. Og síðan er þér ásýnd allra hlutia svo un'g og góð, en dagar þínir bæn og bið og friður unz blessun dauðans, drýpur á hjartað döggmild eins og vomótt, en dýrðarsýnin líður fyrir brá sem hinnsta ástargjöf útlagans og þjónsins, sem andartak var leyft að skynja og sjá.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.