Alþýðublaðið - 24.12.1947, Blaðsíða 24
24
im«
Jólablað Alþýðublaðsins
HEIMA
I.
ÞAÐ ER SAGT, 'að það sé erf-
itt að vera stjórnmálamaður á ís-
landi. Ég hygg líka að sú skoðun
fari ekki eftir pólitískum flokk-
um, — að sömu sögu hafi allir að
segja. Fyrir nokkrum árum ritaði
einn af kunnustu stjórnmála-
mönnum landsins grein, þar sem
hann hélt því fram, a'ð ísienzkir
stjórnmálaleiðtogar féllu flestir
fyrir aldur fram, og nefndi hann
mörg dæmi þessu itil' sönnunar. Ef
þétta er rétt, sem mér er nær að
halda, er ástæðan sú, að hér er
stjórnmálabaráttan tímafrekari og
jafnframt hatranunari en annars
staðar. Störfin falla á færri hend-
ur og í fámemiinu verður baráttan
bitrari.
Heimili þeirra manna, sem sí-
fellt standa í harðri baráttu, en
það gera stjórnmálaleiðtogarnir,
eru eins og óasi, dvölin þar logn-
stund í stormaveðri, hvíld í hálfn-
uðu striti. En það vill ganga erf-
iðlega að éignast þessar stundir,
því að stjórnmalamennirnir eru
umsetnir. Síminn hringir og
dyrnar eru knúðar. Erindin eru
hin margvíslegustu alit frá erfið-
um stjórnmálum og niður í ó-
merkilegasta kvabb. — Ég hef oít
hugsað um það fádæma tiMits-
leysi, sem allir stjórnmálaleiðtog-
ar okkar, hvaða flokk sem þeir
leiða, verða að þoia.
Ég hygg að éiginkonur stjórn-
málamannanna íslenzku séu sam-
mála þessum orðum mínum og
vildu kjósa að friðarstundirnar
væru íleiri. Veit ég, að margar
þeirra öfunda þær konur, sem
ekki eiga menn sína á sífelldum
kvöldfundum, en hafa þá heima
við. arin heimilisins, sem ekki
þurfa að óttast dyrabjöliluna eða
símann öllum stundum. Enda
reyna konur stjórnmálamannanna
að búa mönnum sínum sem flest-
ar friðarstundir heima.
. II.
Stefán Jóhann Slefánsson for-
sætisráðherra og formaður AI-
þýðuflokksins býr ekki í skraut-
hýsi og hefur aldrei átt skraut-
hýsi. Að vísu var honum fyrir
nokkrum árum gefið slíkt hús í
einni árásargreininni á hann, en
það sat bara við það. Því miður
fékk hann ekki það hús. — Hann
býr í litlu, snotru húsi við Ás-
vallagötu 54, einu af húsum Sam-
vinnubyggingarféíags Reykjavík-
ur. og umhverfis það er fallegur
blóma- og trjágarður, sem frú
Helga hefur aðallega ræktað og
fóstrað, en liann lagt hönd að á
strjáium stundum að, kvöldi til
eða um helgar á sumrura, Húsið
er ekki stórt, en það er tvær hæð-
ir. Það er nógu stórt, enda er það
ekki búið þungum og stórum lúx-
ushúsgögnum eðá kristalsvörum,
silfri eða postulíni. Hins vegar er
þar geysimikið af bókum og nokk-
uð af vönduðum málverkum eftir
listmálara okkar. Heimilið er lát-
laust og hlýtt, andar friði móti
manni undir eins og maður stígur
yfir þröskuldinn. Hvar sem mað-
ur lítur um þessar stofur, finnur
maður, að þar hafa hlýjar hendur
unnið að, hendui*, sem höfðu sköp-
unargleði og áttu alúð og um-
hyggju í ríkum mæli, enda hygg
ég að óvíða sé jafn hlýlega um-
1 I H I I I B.B IIIIIIBI ■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■IBSS
Forsætisráðherrann í skrifstofu
sinni. Á veggnum sést málverkið af
bernskuheimili hans, Dagverðareyri.