Alþýðublaðið - 24.12.1947, Blaðsíða 33

Alþýðublaðið - 24.12.1947, Blaðsíða 33
Jólablað 'Alþýðublaðsins iBimititniiiiiiiiiBE ■ ■■■■■■ b ■ iiiimiiimitumiiiBiiiiitimmm / Vanti yðiir góðan og gangvissan mótor, hvort heldur er til lands eöa s jónotkunar er rétta leiðin að leita hans hjá ■ ■■ l 'i " .i Oísli J. Johnsen, elzta mótorfirma landsins. Hafnarhúsinu, Reykjavík. Símar 2747 og 6647. leiðin vissulega skemur gengin af tveim en einum. Hann greikkaði sporið og náði í þennan vegfar- anda. Þetta var lágvaxinn, rosk- iím náungi. Eftir klæðum hans að dærna, svörtum frakka og barða- stórum hatti, gat Dewar sér til að hann væri uppgjafa kennari eða jafnvel prestur. «, ,,Goit|t kvöld,“ sagði Dewar. „Gott kvöld,“ svaraði gamli herrann og sýnilega eins giaður yfir að hitta Dewar eins og Ðewar var að hitta hann Hlið við hlið ruddu þeir veginn. Lítið töluðust þeir við. Niðuriútur og starandi á veginn . tritlaði gamli karlinn á- fram álíka hratt og fólk, sem nokk uð er við aldur, en ekki um of þungt á sér af fitu. Dewár fylgdi. Hann rifjaði upp f'yrri ótta sinn í huganum og brosti að sjalfum sér um leið og hami reyndi að skýra hanin. Það er hlægi legt hve ímyndundn getur náð valdi yfir manni þegar hann er einn. Ferðamennirnir tveir náiguðust nú Krossveginn. í gömlu kastala- rústunum göptu tómir gluggarnir eins og augnatóftir í hauskúpu. Mánaskinið varpaði mjóum og rýtjulegum skuggum rústanna á veginn eins og skugga holdlausrar handar, sem benti á gálgahólirn. Gamli maðurinn stanzaði, er hann isá þessa skugga teygja sig yfir veginn, rétt fyrir framan sig, og horfði órólegur í 'kringum sig. Dimm ský huldu mánann. Uglan gólaði í annað sinn. En Dewar stóð öruggur við hlið gamla mannsins tílbúinn til áð hughreysta hann og vermda fyrir ímynduðum ótta. „Það er sagt, að þeir sjáist stundum hérna á veginum,“ sagði skelkaði litli maðurinn með titr- andi rödd. Haldið þér að til séu slíkar verur enn í dag?“ „Hvað?“ sagði Dewar vingjarn- lega, um leið og hann veitti því athygli, að í mánaskininu sást eng_ inn skuggi af gamla manninum dökklædda. „Líkamir klæddir holdi og' blóði,“ hvíslaði hann. „Lifandi menn.“ ... Og eymdarlegt ugluvæl rauf næt urkyrrðina í þriðja og síðasta sinn. H. Montgomery.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.