Alþýðublaðið - 24.12.1947, Qupperneq 29

Alþýðublaðið - 24.12.1947, Qupperneq 29
Jólablcn) ^Alþýrfubladsins flokkanna í flestum öðrum lönd- um. Hann mun og eiga meira bókasafn ög stærra um sósíalism- ann en fiestir ef ekki allir aðrir íslendingar. — Ég spurði Stefán ei'tt sinn að því, hvað hann læsi helzt, þegar dagblöðunum væri sleppit. ,,Ég lés fyrst og fremst bækur um jafnaðarstefnuna og félags. málefni,“ svaraði hánn, og svo bætti hahn við: „En svo les ég npkkuð skáldrit og æviáögltr. !Mér héfur alltaf þótft gamah að ævi- sögum.“ — Allir ungir menn hafa eitt sin,n ætlað sér að verða skáld. Éefur þú ...?“ Hann greip fram í fyrir mér. „Ég held ekki, — kamiske ég hafi þó einhvem tíma verið eins og alííjr hihir hvað þetta snertir. Hins vegar þýddi ég einu sinni skáldisögur, én það var bara til að geta staðið stráum af .fæði og hús- næði. Ég gekk með söguna í vas- ahum — og þýddi svo í matmáls- tímanum.“ Bókasáfn Stefáns er líka mikið og vandað. Frú Helga hefur bund- ið margar bækur hans. Hún sagði eitt sinn við mig: „Það er svo gaman að binda bækur stundum á kvöldin, þegar Stefán er á fundum og eftir að drengirnir eru sofnaðir" VII. Og þá man ég það, að ég er nokkrum sinnum búinn að nefna frúna í húsinu, án þess að kynma hana nánar. Þau giftust 1927, Stefán og Helga Bjömsdóttir Ólafs frá Mýr- arhúsum, og þau eiga þrjá sýni, Stefán Val, fæddan 1929, Bjöm, fæddan 1934, og Óla litla, sem er fæddur 1940. — Frú Helga hefur að mínu viti alla þá kosti til að bera, sem prýða mega konu gifta stjórnmálaleiðtoga, sem mikið mæðir á. Ég er handviss um að Stefán Jóhann á það konu sinni að þakka, að hann nýtur enn góðrar heilsu. Hún hefur búið honum friðsælt og gott heimili. Þegar hann kemur heim af þreyt- andi fundum, verður að vera kyrrð og ró. Hún hefur búið sjálfri sér litið blómaskot í aðal- stofunni. Þegar Stefán situr við skrifborðið sitt og lés eða skrifar, situr hún í „stofunni“ sinni, við fállega gluggann, við vinnu sína. Ög þár ©r ihýndin, sem fyl'gir þessari gréin, tekin af þeim. Ég spurði, frú Helgu eitt sinn að því, hvort ekki' væri epfitt 'iað'. vera gift stjórnmálaleiðtoga. Hún svaraði: ,,Ef ég ætti aðeins að hugsa um mig og börnin og heimilið, þá hefði ég ekki óskað eftir því, að Stefán skipti sér af stjórnmálpm., En flokksmennirnir télja, að hann verði að gera það. Maður sækir hvorki frið.né þá velmegun. sem annars væri hægt að há me2> venjuleguan störfum. í stjórnmála- baráttuna.“ Og ég veit, að frú Helga mælti af heilum hug. Ég sagði líka einu sinni við Stefán: — Er ekki erfitt að þola ár eftir ár persónuleg hróp, níð og róg? „Onei, ekki ef maður gerir allt eftir beztu sannfæringu og veit, að ofsóknirnar stafa ekki af sann- leiksást. Það ér ekki svo erfdtt fyr- ir mann sjálfan að öðru leyti en því, að mann getur rtekið það sárt, að sjá fjölskyldu sína líða fyrir það á einhvern hátt“ — Vildirðu ekki helzt að sími vær bannaður með lögum? Stefán hló og svarað: „Ekki held ég það Ég er, yfir- leitt á móti bönnum. En það er satt, síminn er erfiður, þreytandi, ekki þó svo mjög á vinnu- stað. Hann er aðallega þreyitandi heima.“ — Hver er sá maður, sem þú hefur kynnzt, sem þér hefur þótt mest itil koma? Stefán svaraði samstundis: „Jón Baldvinsson, tvímælalaust. Hann ber af öllum mönnum, sem ég hef kynnzt, bæði persónulega og sem stjórnmálamaður.“ . ,,— Hvenær hefur þér þótt bar- áttan skemmtilegust ? „1921, þegar Jón Baldvinsson var kosinn í fyrsta sinn, og 1946, þegar við sönnuðum, að Alþýðu- flökkurinn hafði yfirunnið klofn- inginn.“ Sú sönnun var líka persónuleg- túí' sigur fyrir Stefán Jóhann meira en nokkurn annan einstak- an mann. Hrópin um „dauða flokkinn“ köfnuðu þá í kverkum andstæðinganna. Við sönnuðum, að stefna okkar Alþýðuflokks- manna þjó •yfir^ríku frjómagni, isem ber ávöxt fyrir alþýðu lands- ins, og því meiri, sem hún fylkir sér fastar um hana. VIII. Heimili forsætisráðherrans er eins og myndarlegt alþýðuheim- ili. Þar sameinast menning góðs sveitaheimilis og ástundun og nýtni öruggs heimilis við sjóinn. Það er gæfa fyrir samitök, að kunna að velja sér forvígismenn. Þeir, sem valið hafa Stefán .Jóhann Stefánsson til forustu, mega vera öruggir um það, að þeir gátu ekki valið betur, hvorrt sem hann vinn- ur fyrir flokkinn eða þjóðina. — Sjálfur hefur hann þann ófrávíkj- anlega mælikvarða fyrir störf sín, að svo bezt vinni hann vel fyrir flokkinn, að hann kappkosti að vinna vel fyrir þjóðina. V S V

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.