Morgunblaðið - 26.06.1930, Blaðsíða 51
i mosqonblaðið (4k4k44k4kákdkákák4k4k4kák4k&4k dkák&k&k&kákákJ^ák&t&dká&ák
FisKiveiðahlutafjelagið „Alliance"
r
Elsta og stærsta togaraútgerðarstarfsemi d Islandi.
Fiskverkunar- og lýsisbræðslustöð Alliance á Þormóðsstöðúm.
Fiskiveiðahl.utafjelagið „Alli-
ance“ var stofnað áríð 1906.
Voru stofnendur þess: Thor
Jensen kaupmaður, og skip-
stjórarnir: Jón Ólafsson, Jón
Sigurðsson, Halldór Kr. Þor-
steinsson, Magnús Magnússon,
Kolbeinn Þorsteinsson og Jafet
Ólafsson. Fjórir þessara skip-
stjóra höfðu áður gert með sjer
fjelag og keypt kúttera árið
1904, en þilskipaútgerð stóð þá
hjer í mestum blóma. í páska-
veðrinu 7. apríl 1906 fórst Jafet
Ólafsson, ásamt mörgum öðr-
um, en árið 1910 seldi Thor
Jensen hlut sinn og gekk úr
fjelaginu.
Þegar h/f. ,,Alliance“ var
stofnað, höfðu íslendingar litla
þekkingu á togaraútg/erð og
enga reynslu á því sviði. Að
vísu höfðu verið keyptir tveir
togarar hingað til lands frá
Englandi, en þeir voru báðir
gamlir og mjög ófullkomnir,
enda varð árangurinn eftir því.
í febrúar 1907 kom fyrsta
skip fjelagsins, „Jón forseti“,
hingað til lands, og stýrði hon-
um Halldór Kr. Þorsteinsson
skipstjóri, sem þá hafði dvalið
á annað ár í Englandi til þess
að kynna sjer botnvörpuveiðar.
„Jón forseti“ var smíðaður í
Glasgow svo fullkominn, sem
þá var frekast kostur. Var hann
fyrsti togari, er Islendingar
ljetu smíða, og má því segja,
að með komu hans hefjist tog-
araútgerð Islendinga.
Það kom strax í ljós, að tog-
araútgerð gæti, ef skynsamlega
væri að farið, orðið arðvænlegur
atvinnuvegur fyrir landsmenn,
enda fóru menn þá óðum að
feta í fótspor þessara manna og
liefir togurum síðan fjölgað ár
frá ári, uns Islendingar eiga nú
40 togara.
Fjelagið hefir eignast 6 tog-
ara, en af þeim mist tvo, þá
Skúla fógeta, bygðan 1911,
fórst hann í Norðursjónum í
byrjun ófriðarins, 26. ág. 1914,
og Jón forseta, sem strandaði á
Stafnestöngum 27. febr. 1928;
á það því nú 4 togara. Auk þess
eiga stofnendur „Alliance“, þeir
sem enn eru í fjelaginu, 4 aðra
togara að nokkru eða öllu leyti,
og hafa þannig umráð yfir Vs
hluta af togaraútgerð lands-
manna.
Fjelagið hefir komið sjer upp
fullkomnum fiskþurkunarstöðv-
um með tilheyrandi húsakynn-
um og getur það nú breitt til
þurkunar í einu ca. 600,000 kg.
fiskjar. Auk þess hefir fjelagið
bygt fiskþurkunarhús, sem af-
greiðir að meðaltali 10,000 kg.
af fullþurum fiski á sólarhring.
Árið 1929 voru útfluttar af-
urðir h/f. „Alliance“ og þeirra
fjelaga, sem það hefir umsjón
með, sem hjer segir:
Verkaður saltfiskur 3180 þús-
und kg.
Óverkaður saltfiskur 2080
þús. kg.
ísfiskur kr. 675.000.
Lýsi kr. 358.800.
Sama ár flutti fjelagið inn
14,000 smál. kol og 7,000 smál.
salt. Mestan hluta veiðarfæra
lætur fjelagið vinna á vinnu-
stofu sinni við Tryggvagöttr, og
er unnið að netagerð o. fl. alt
árið.
Hjá fjelaginu voru sama ár
unnin:
Á skipunum 50.000 dagsverk.
Við fiskverkun 27.600 dags-
verk.
Netagerð 1.460 dagsverk.
Uppskipun. 7.880 dagsverk.
önnur störf 7.070 dagsverk,
og hafa þannig verið unnin 314
dagsverk að meðaltali hvern
virkan Mag ársins.
Stjórn fjelagsins hafa þeir
alla tíð skipað: Jón Ólafsson,
Halldór Kr. Þorsteinsson, Magn-
ús Magnússon, Jón Sigurðsson,
og Jón Ólafsson, sem jafnan
hefir verið framkvæmdastjóri
þess.
Netahnýtingarstofa Alliance við Tryggvagötu.
Fiskþvottur á fiskverkunarstöð Alliance í Ánanaustvm.