Morgunblaðið - 20.05.1954, Blaðsíða 1
28 síður (2 blöð)
41. árgangur.
113. tbl. — Fimmtudagur 20. maí 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Styrjöld hefur staðið í 7 ár
Enn er auíiið franskt herlið sent til Indó-Kína. f sjö ár hafa Frakkar
orðið að standa þar varðstöðu gegn útþenslu kommúnista. Nú er
róðurinn farinn að verða þungur fyrir þá, eftir að óþrjótandi
gnægðir vopna og vista eru fluttar frá Kína til kommúnisku upp-
reisnarmannanna. í greininni sem hér fylgir er greint frá erfið-
leikum Frakka á vígstöðvunum við Hanoi í Norður Indó-Kína.
Frakkar í úlfakreppu
í Norður Indó-Kínu
Kommúnistar flytja fíeriið frá
Dien Bien Phu
HERMÁLASÉRFRÆÐINGAR í Vesturlöndum hafa nú þungar
áhyggjur af því hve hernaðarstaða Frakka í norðurhluta Indó-
Kína virðist hafa versnað eftir fall Dien Bien Phu. Síðustu daga
berast fréttir af því að bardagar færist í aukana á óshólmum Rauð-
ár; kommúnistar efla hersveitir sínar stöðugt á þeim slóðum.
10 ÞÚSUND MANNA LIÐ,
EN EKKI EINVALALIÐ
PJ Frakkar ráða yfir þríhyrn-
ingi á óshólmum Rauðár, sem
er eins og hringgeiri 220 metra
langur. Þar er meðal annars að-
alborg Norður-Viet-Nam, sem
heitir Hanoi og fiefur 150 þúsund
íbúa. Til verndar þessu stóra og
þýðingarmikla svæði hafa Frakk
ar einungis 80 hersveitir (batta-
lionir), eða rúmlega 60 þúsund
manns. Mikill hluti varnarliðsir's
eru hermenn úr Afríku-nýlend-
um Frakka og innfæddir Viet-
nam hermenn. í þessari tölu eru
innifaldar bakvarðarsveitir og
flutningalið og sumir hermann-
anna hafa ekki fengið nægilega
þjálfun.
KOMMÚNISTAR
SAFNA LIÐI
Q Kommúnistahershöfðinginn
Giap hefur sent skæruliða
sína bak við víglínur Frakka. Það
er ekki víst hve margir skæru-
liðar þessir eru, en sennilega eru
þeir meir en 15 þúsund. Auk
þess hafa kommúnistar safúað
sterku vel búnu herliði við suður
hlið varnarsvæðisins, sem þegar
hefur látið til sín taka í orustum
undanfarna daga og nú síðustu
daga eflist her þeirra norður af
Hanoi með liðsflutningum frá
Dien Bien Phu. Munu nú þegar
| vera til taks þar um 10 þúsund
hermenn uppreisnarmanna.
VEGURINN FRÁ
DIEN BIEN PHU
□ I þessu sambandi má sér-
staklega benda á það, hve
uppreisnarmenn leggja mikla
áherzlu á það að fá frjáls afnot
af þjóðvegi nr. 41 frá Dien Bien
Phu til Rauðárósa. Hafa þeir sett
það að skilyrði fyrir því að Frakk
ar fái að fytja særða menn frá
Dien Bien Phu að loftárásir verði
ekki gerðar á þjóðveginn. Má
telja öruggt að þetta er vegna
þess að þeir hugsa sér að flytja
herlið eftir veginum.
□ Úrhellisrigningarnar, sem
fylgja hafátt monsúnvind-
anna eru að hefjast um þessar
mundir. Einstöku skúrir hafa
þegar fallið en rigningarnar hefj-
ast af fullum krafti ekki síðar
en um mánaðamótin.
HLÉ Á MEIRI HÁTTAR
BARDÖGUM
□ Rigningar þessar sem eru
óskaplega miklar tákna að
hlé hlýtur að verða að minnsta
kosti á meiri háttar orustum. En
Frakkar eiga í erfiðeikum með
að halda opinni samgönguleiðinni
milli hafnarborgarinnar Haip-
hong og Hanoi og það getur orðið
Framh. á bls. 2
40. þús. grískir fangar er fluttir
voru mnnsnli enn í þrælabúðum
1172 fengu þó nýSega frelsi
og flutfu heim frá OnpJandi
flóta að loka
landaiiaænim
MADRID, 19. maí. — Arriba,
málgagn spanska falangistaflokks
ins, skýrði frá því í dag, að það
gæti komið til mála að Spánverj-
ar lokuðu fyrir alla umferð milli
Spánar og Gibraltar. Segir blaðið
að þetta sé bæði vegna arðráns
Breta á spönskum verkamönnum
og vegna smygls, sem sé mikið
yfir landamærin. — Að lokum
krefst blaðið þess að Bretar skili
Spánverjum Gibraltar. — Reuter.
Aþena 19. maí. — Einkaskeyti frá Reuter.
NýLEGA komu tvö skip fullhlaðin frelsuðum grískum föngum
frá Ungverjalandi til heimalands síns. Hefur fólki þessu, sem
er fullorðnir karlmenn og konur verið haldið í nauðungarfangelsi
frá því á tímum grísku borgarastyrjaldarinnar. Auk þess hefur
hundruðum barna, sem kommúnistar rændu á sínum tíma í Grikk-
landi verið skilað aftur.
1172 FA FRELSI
Samkomulag náðist loks við
ungversku stjórnina snemma á
þessu ári um að öll grísk börn og
Armar Verkamaona-
flokksins takast í kendnr
LUNDUNUM, 19. maí. — I dag
tókust armar brezka Verka-
mannaflokksins í hendur. — I
tilkynningu frá flokksstjórn-
inni í dag segir, að vinstri og
hægri armur flokksins óski að
varðveita einingu og frið.
Muni þeir ekki opinberlega
gera persónulegar árásir hvor
á annan framvegis.
ARAS MORRISONS
Tilkynning þessa efnis var
gefin út að loknum fundi, sem
kvaddur var saman til að
fjalla um árás, sem Herbert
Morrison gerði í neðri málstof
unni á Aneurin Bevan, for-
ingja vinstri arms flokksins.
„MEINDÝR“
f tímariti jafnaðarmanna hef-
ur Morrison líka komizt svo
að orði, að það hefði kostað
Verkamannaflokkinn 50 þing-
menn í kosningunum 1950, að
Bevan kallaði þá íhaldssamari
í flokknum „meindýr“.
Bevan hélt því fram á fundin-
um í dag, að hann hefði ekki
ætlað sér að meiða Morrison
né nokkurn annan flokks-
mann. Báðir aðilar létu mikið
yfir, að þeir kysu að halda
frið í flokknum í framtíðinni.
Húsbóndaíryggð, sem skeyðir
hvorki um skömm né heiður
Austurrískir þegmar falla
fyrir rússneskum vopnum
Vínarborg, 19. maí. Reuter-NTB.
IDAG .samþykkti austurríska þingið að fulltingja ríkisstjórninni,
þar sem hún vísar á bug ásökunum Rússa. Fjórir þingmenn
kommúnista urðu til þess einir manna ,að greiða atkvæði gegn
ályktun, þar sem viðurkennd er afstaða rrkisstjórnarinnar til Rússa
og borin fram krafa um friðarsamninga og brottkvaðningu her-
námsliðsins.
grein fyrir árekstrum, sem að
undanförnu hefðu orðið milli
rússneskra hermanna og aust-
urrísks almennings á rúss-
neska hernámssvæðinu að
undanförnu. — Kvað hann
marga borgara hafa misst lífið
í þeim viðskiptum.
De Yaleru tapar
ÍRLANDI, 19. maí. — Kosn-
ingar fóru fram í Irlandi og
hafa kosningatölur verið að
berast í dag án þess þó að
endanlegar tölur séu fyrir
hendi. En það er þegar ljóst
af kosningunum að flokkur de
Valera Fianna Fail hefur tap-
að atkvæðum. Hafði hann þeg
ar misst fjögur þingsæti til
andstöðuflokkanna. — Reuter.
nauðungarfangar þar í landi
skyldu fá frelsi. Að sögn Ung-
verja var hér um að ræða sam-
tals 1172 manns. Annaðist alþjóða
rauði krossinn fJutninga fólksins
frá Ungverjalandi.
ENN ERU 2000 EFTIR
En fólkið sem kom heim skýrir
frá því að enn sé fjöldi grískra
fanga í Ungverjalandi. Hefur
tala þeirra verið áætluð nálægt
2000.
f ÖLLUM LEPPRÍKJUM
Grískir fangar frá tímum borg-
arastyrjaldarinnar eru í öllum
leppríkjum Rússa á Balkanskaga
og einnig í Rússlandi. Samtals er
tala þeirra áætluð 40 þúsund
manns. Af þeim eru 4000 her-
menn úr gríska hernum, 14 þús.
börn, sem rænt var og 23 þúsund
borgarar, konur jafnt og karlar,
sem haldið er í þrælabúðum.
SLÆMT HEILBRIGÐIS-
ÁSTAND
Aðbúð þessa fólks er yfirhöfuð
mjög slæm. Að vísu dvelst all-
stór hluti barnanna á pólitískum
uppeldisheimilum. En af full-
orðna fólkinu, sem nú var skilað
heim frá Ungverjalandi voru
mjög margir haldnir berklum og
öðrum sjúkdómum.
ÁSÖKUN RÚSSA
Rússnesk yfirvöld hafa sakað
austurrísku stjórnina um andróð-
ur gegn Rússum, þar sem hún
vinni að bandalagi við Vestur-
Þýzkaland og stuðli að hernaðar-
anda í landinu.
ALÞJÓÐLEGAR VENJUR
BROTNAR
Atkvæðagreiðsla fór fram eftir
að forsætisráðherra hafði upp-
lýst, að rússnesk yfirvöld hefðu
þverbrotið ríkjandi siðu í sambúð
þjóða með því að láta Tass-frétta-
stofuna birta ásakanir sínar í stað
þess að koma þeim ríkisstjórninni
í hendur eftir venjulegum leið-
um milliríkjaviðskipta.
AUSTURRÍSKIR BORGARAR
DREPNIR
Þá gerði forsætisráðherra
Verður Saar-
deilan leyst?
STRASSBORG, 19. maí — Sjötta
þing Evrópuráðsins verður sett á
morgun, fimmtudag. Eitt merki-
legasta málið sem tekið verður til
meðferðar er Saar-vandamálið,
en nú fyrst hefur svo miðað
áfram í bví að líkur eru til að
það leysist. -Johannes Hoffman
forsætisráðherra er kominn til
Strassborgar og verður viðstadd-
ur umræðurnar. •—Reuter.
AUGLVSINGAR
sem birtast eiga í
Sunnudagsblaðinu
þurfa að hafa borizt
fyrir kl. 6
á föstudag