Morgunblaðið - 20.05.1954, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐbÐ
Fimmtudasrur 20. maí 1954
FÁiikennileg loftför
fljúga yfir JSoreg
Ferming á Akranesi
ISÍÐAST liðinni viku varð vart einkennilegra loftíyrirbæra i
Noregi. Þrjú einkennileg loftför sem ekki áttu þó neitt skylt
við flugvélar, flugu í oddaflugi í afar mikilli hæð yfir Kautokeino,
og voru næstum komin út fyrir bæinn þegar þeirra varð vart.
„Kjsrnorkii-karSöfl-
iir" É
WASHINGTON—Með kjarnorku
virðist mega geyma matvæli tak-
markalaust án frystingar. Þannig
hafa menn gert tilraunir með
lauk, kartöflur og fleiri matvæli
Hafa þau geymzt árum saman
án þess að spillast.
Vísindamenn haída því fram,
að geislun vinní á rotnunar-
bakteríum Þykjast þeix og geta
sannað, að ekki sé mönnum
skaðsamlegt að neyta fæðu, sem
svo hefir geymzt.
Bandaríkjastjórn hefir gert 5
ára áætlun um a.ð loita ráða til
að geyma matvæli rneð geislun.
Svellir sig, mi fríður
GENF — Hálffertugur indó-kín-
verskur friðarsinni er í þann veg-
inn að svelta í hel í Genf. Hann
hefir svarið að neyta einskis, fyrr.
en friður hefir komizt á í landi
hans.
Læknir. sem skoðað hefir Vo
Song Thiet, segir, að hann eigi
varla langt eftir. Hefir hann nú
soltið á 4. viku í tjaldi sínu, sem
stendur skammt frá fundarstað,
þar sem fulltrúar austurs og vest-
urs reyna að komast að sam-
komulagi urn lok striðsins.
Vo Song Thiet lætur allar for-
tölur eins og vind um eyru þjóta,
svo að kunningjar hans óttast, að
sulturinn verði honum að aldur-
tila.
IFÍBsnslca iðitisýningin
Mynd þessi er tekin af fermingu í Akraneskirkju (prestur Jón
M. Guðjónsson). Öli fermingarbörnin klæðast hvítum kyrtlum.
(Ljósm. Árni Böðvarsson).
Kíarnorkuraniusókmr
frssgnýtfiar iyrir
NEW YORK. — Iðnrekendur í Bandaríkjunum hafa nú hrundið í
framkvæmd víðáttumikilli starfsemi, sem miðar að því að auka og
endurbæta framleiðsluna og skapa þannig aukna almenna velmegun.
Til grundvallar þessari starfsemi liggur margvíslegur árangur, sem
fram hefur komið við kjarnorkutilraunir á vegum Bandaríkja-
stjórnar.
í ÞÁGU FRIÐARINS
Tímaritið Wall Street Journal
greinir frá því, að f jölmörg fram-
leiðslufyrirtæki hagnýti sér nú þá
þekkingu, tækni og aðferðir, sem
fundizt hafa með starfi kjarnorku
málanefndarinnar í þágu friðar-
ins. Vísindamenn hjá fyrirtækj-
um þessum hagnýta nú þekkingu
á sviði kjarnorkuvísinda við ger-
ilsneyðingu matvæla og lyfja,
við framlgjðslu nýrra plastefna
og málma, til að auka stálfram-
leiðsluna og bæta læknavísindin.
Drengjamet í jsrí-
HORFÐI Á UNDRIÐ í
3—4 MÍNÚTUR
Bóndi nokkur sem staddur var
nokkuð fyrir utan bæin, horfði á
undur þetta í kíki sínum í 3—4
mínútvr. Hann skýrði svo frá að
loftforin hefðu verið í svo mikilli
hæð, að ekki hefði verið unnt að
sjá hvernig þau hefðu nákvæm-
lega lit'ð út. En það hefðu alls
ekki verið flugvélar, og færði
hann því til sönnunar að ekkert
vé'larhijóð hefði heyrst. .
STÆRSTA LOFTFARIÐ
Á'UNDAN
Þennan dag var bjart og hreint
véður og þess vegna gott skyggni.
Eitt ioftfarið var taRsvert stærra
en hin og hafði það forystuna og
flaug fremst og hæst. Bóndanum
virtist það vera formlegast í lög-
un og vera rauðbrúnt að lit á
einni hliðinni.
EFTIRGRENNSLANIR
HAFÐAR
Kautokeinobúar gerðu flug-
stöðinni í Bardufoss þegar aðvart
um fyrirbæri þetta og hófust þeg-
ar eftirgrennslanir um hvað þetta
kynni að hafa verið. Yfirstjórn
flugfélagsins Nord, hefur einnig
tekið upp rannsókn á málinu.
Aðalfundi sýslu-
nefndar Veslur-
Barðasfrandas. lokii
á miðvikudag
PATREKSFIRÐI, 15. maí: — S.l.
mánudag lauk aðalfundi sýslu-
nefndar Vestur-Barðastrandar-
sýslu, sem settur var að sýslu-
mannssetrinu Brattahlíð á Pat-
reksfirði. Jóhann Skaítason sýslu
maður setti fundinn og stjórnaði
honum. Yms mál lágu fyrir og
margar ályktanir voru gerðar,
Má þar til nefna bygging héraðs-
skóla, um rannsóknir á jarðhita-
skilyrðum í sýslunni, raforkumál,
byggingasamþykkt Vestur-Barða
strandasýslu, endurreisn Skál-
holts, vegamál o. fl.
Aætluð sýslusjóðsgjöld hrepp-
anna nema kr. 141,000,00, sýslu-
vegasjóðsgjöld um kr. 105.000,00.
Aðrar tekjur og eftirstöðvar frá
fyrra ári kr. 53.000,00. Helztu út-
gjaldaliðir eru þessir, til heil-
brigðismála og rekstur sjúkra-
hússins kr. 82,500,00 og til ný-
bygging vega kr. 105.000,00.
Skuldlausar eignir sýslusjóðs
nema tæplega hálfri milljón kr.
— Karl.
Aðalfundur Félags
ungra Sjálhfæðis-
manna í Eyjum
VESTMANNAEYJAR, 15. maí.
— Félag ungra Sjálfstæðis-
manna hér-í Eyjum hélt nýlega
aðalfund sinn.
Fráfarandi formaður, Jóhann
Friðfinnsson, gaf ítarlega skýrslu
um starf félagsins á liðnu ári,
en það hafði verið mjög fjöl-
breytt og þróttmikið.
í stjórn félagsáns voru nú
kjörnir: Þórarinn Þorsteinsson
form., Sigfús Johnsen varaform ,
Theódór Georgsson ritari, Ragnar
Hafliðason gjaldkeri og Heið-
mundur Sigmundsson meðstjórn-
andi. Félag ungra Sjálfstæðis-
manna er eina starfandi stjórn-
málafélagið meðal æskufólks hér
í Vestmannaeyjum.
Bj. Guðm.
AKUREYRI, 15. maí: — Fyrri
hluti vormó|s í frjálsum íþrótt-
um forT’'ffam,á Akureyrarleik-
vangi í dag. Veður var gott. A
mótinu var sett eitt ísl. drengja-
met og tvö Akureyrarmet.
Helztu úrslit:
100 m hlaup: — 1. Leifur Tóm-
asson, KA, 11,4 sek., 2. Stefán
Hermannsson, MA, 11,4 sek. og
’ 3. Friðleifur Stefánsson, MA,
11,5 sek. .
1500 h mlaup: — 1. Einar Gunn
laugsson, Þór, 4:25,4 mín., 2.
I Kristinn Bergsson, Þór, 4:36,2
mín., 3. Ingimar Jónsson, KA,
4:42,0 mín.
Stangarstökk: — Valgarður Sig
urðsson, Þór, 3,45 m (Ak.-met).
Þrístökk: — 1. Vilhj. Einarsson
MA, 14,45 m. (ísl. drengjamet), 2.
Friðleifur Stefánsson, MA, 13.G4
m. og 3. Hörður Lárusson, MA,
12,57 m.
Spjótkast: — 1 Friðleifur Stef-
ánsson, MA, 50,00 m., 2. Haukur
Jakobsson, KA, 48,11 m. og 3.
Pálmi Pálmason, Þór, 47,50 m.
Vignir.
Þessi mynd var tekin á meðan undirbúningur að finnsku iðnsýn-
ingunni stóð yfir. Er verið að koma fyrir hinu stóra spjaldi (Finn-
landskorti) við innganginn. — Þurfti að fá stiga-bíl lánaðan hjá
slökkviliðinu við það vprk. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Mílumetin
frá byrjun
1913 P. Jones USA .... 4:14 4
1915 Taber USA .......... 4:12,6
1923 Nurmi Finnland . . 4:10,4
1931 Ladomegue Frakkl. 4:09,2
1933 Lovelock N-Sjál. . . 4:07,6
1934 Cunningham USA 4:06,8
1937 Wooderson England 4:06,4
1942 G. Hágg Svíþjóð .. 4:06,2
1942 G. Hágg Svíþjóð .. 4:04,6
1943 Anderson Svíþjóð .. 4:02,6
1944 Anderson Svíþjóð .. 4:01,6
1945 G. Hágg Svíþjóð .. 4:01,4-
1954 Bannister Engl.. 3:59,4
(Sjá íþróttadálka á bls. 20)
831 barn í Barna-
skóla Akureyrar
AKUREYRI, 17. maí: — Barna-
skóla Akureyrar var slitið hinn
13. maí að viðstöddum mörguro.
gestum.
j Skólastjóri, Hannes J. Magnús-
son, flutti ýtarlega skýrslu uro.
starf skólans síðastliðið ár. Alls
i voru í skólanum í vetur 831 bam
er skiptust í 32 deildir. 23 fastir
' kennarar eru við skólann og tveir
stundakennarar. Við inntökupróf
l 7 ára barna innrituðust í skólann.
180 börn, en 120 börn hverfa úr
skólanum, svo að fjölgun á þessu
eina ári verður um 60 börn. Gat
skólastjóri þess að ný skólabygg-
ing væri nú orðin svo knýjandi
nauðsyn, að það þyldi enga bið»
og er ekki séð hvernig hægt verð-
ur að koma öllum þessum börn-
um fyrir næsta vetur.
Heilsufar í skólanum hefur ver-
ið svo gott í vetur að fá dæmí
munu slíks.
Barnaprófi luku 118 börn. Þar
af fengu 9 ágætiseinkunn, 86 1.
einkunn og 21 2. einkunn. Við
skólaslit var útbýtt þrennurrt
bókaverðlaunum fyrir þrjár
beztu ritgerðir við barnapróf, er
bókaverzlun P. O. B. hefur ákveð
ið að veita á hverju vori. Verð-
laun þessi hlutu Ásgerður Ágústs
dóttir, Hjörtur Pálsson og Þor-
valdur Grétar Einarsson.
Sunnudaginn 9. maí var í skól-
anum sýning á handiðju barn-
anna, skrift, teikningum og vinna
bókum, og sótti hann mikill fjöldi
bæjarbúa.
BARNAKÓR TIL NOREGS
Skömmu eftir áramót barst
fyrirspurn frá Álasundi ura,
hvort hugsanlegt væri að Barna-
kór Akureyrar gæti komið til
Álasunds um miðjan júní og
sungið þar við opnun fiskimála-
hátíðar. Var boðin ókeypis dvöl
í Álasundi og margskonar fyrir-
greiðsla. Var nú farið að athuga
möguleika á að taka þessu tilboði
og er nú ákveðið að 30 barna kótr
fari til Noregs 12. júní n.k. með
Gullfaxa og dvelji þar í hálfari
mánuð. Með kórnum fara 3—4
kennarar.
Að lokum afhenti skólastjóri
barnaprófsskírteini, og kvaddi
börnin með stuttri ræðu, og lauk
ræðu sinni með þessum orðum;
„Skólinn verður fátækari, þeg-
ar þið hverfið héðan, en þjóðfé-
lagið ríkara. Þannig á það að
vera. Það á að vera hið mikla og
göfuga hlutverk skólans að stuðla
að því, að þjóðfélagið eignist sera
flesta góða og nýta þegna.“
— H. Vald.
Mikil umferð um
SiglufjarSarskarð
SIGLUFIRÐI, 15. maí: — Mikil
umferð bíla er daglega um Siglu-
fjarðarskarð, sem opnað var um
daginn, hálfum öðrum mánuði
fyrr en venjulega. — Munu reglu
legar áætlunarferðir hingað hefj-
ast í byrjun þessarar viku. —
Mikil samgöngubót er að hægt
skuli vera að opna Siglufjarðar-
skarð svona snemma vors.
— Stefán.
4
Y