Morgunblaðið - 20.05.1954, Síða 2
2
'i'
MORGVNBLAÐ1D
n-
-□
Þrjú ný frímerki
koma úSl.júní
Hinn 1. júní næstkomandi verða
.gefin út 3 frímerki með mynd af
íyrsta ráðherra íslands, Hannesi
Hafstein, til minningar um, að
l. febrúar s.l. var hálf öld liðin
"írá því er fyrsti ráðherrann tók
við embætti. — Verðgildi frí-
iherkja þessara verður kr. 1,25,
2,45 og 5.
□....- --------------□
ándenen & Sóierg opni
niðskóla m mánað®?
UM næstu mánaðamót verður settur á stofn hér í Reykjavík nýr
fagskóli. Er það sniðskóli og mun hann vera sá fyrsti hér í
þeirri grein. Stofnendur skólans eru Arne S. Andersen og Óskar
Sólberg, eigendur saumstofunnar Andersen & Sólberg. Munu þeir
sjálfir annast kennsluna til að byrja með.
Skóli þessi er aðallega fyrir
klæðskera og saumastúlkur, en
sérstök deild mun einnig verða
n m
merk búnaðarnýjunp
Járnsmiður á Akureyri býr iil verkfæri til
eð koma húsdýraáburði undir grasró!
Akureyri, 18. maí.
NÚ fyrir skömmu var reynt nýtt jarðvinnslutæki, sem Magnús
Árnason jnrnsmiður á Akureyri hefur smíðað. Nefnist það
mykjuplógur, og er til þess að plægja húsdýraáburð undir grasrót.
Teljá sérfræðingar í búnaðarmálum tæki þetta mjög þarflegt og
-eina hina rnerkustu uppfinningu á þessu sviði hér innanlands.
PIiOGUR OG KERRA
Mykjuplógurinn saman stendur
•af plóg og tvíhjóla kerru, líkist
að ytra útiiti einna mest jeppa-
kerru. Sjálfur er plógurinn tví-
vængja og líkist þúfnaplógum,
■eins og þeir gerðust áður fyrr,
J>cgar sléttur voru gerðar með
því að skella þúfurnar af. Plóg-
uiinn er festur aftan í heimilis-
dráttarvél með þar til gerðu
.stillanlegu beizli, í þessu tilfelli
Pcrguson, en má að sjálfsögðu
vcra hvaða dráttarvél sem er, ef
hún hefir lyftuútbúnað. Aftan í
befzlið, yfir plógskeranum, er
kerran tengd. Hún er 2x1,10 að
-ummáli með hallandi botni frá
htiðum, er enda í rennu í miðj-
unni. Við hliðar er kerran 35
on. að dýpt, en í miðju 62 cm.
1 rennunni er snígill, sem drifinn
«er af vélinni og tengdur henni
rheð drifskafti. Er snigillinn 20
cm í þvermál og á honum 19
vafningar á tveggja tommu röri.
Frafn úr kerrunni gengur stút-
ui-, og er hann utan um snigil-
cndann. Neðan á þessum stút er
gat, sem hægt er að loka. Þegar
plægja skal húsdýraáburðinn
undir grasrótina með mykjuplógn
ura, er hann látinn rista 10—12
cm. niður í grassvörðinn. Framan
á plógnum er skeri, sem ristir
fyrir í svörðinn. Síðan gengur
plógurinn í rifuna og lyftir grás-
sverðinum upp til beggja handa
og opnar þannig rifu, sem er
55 sm á breidd. Jafnframt snýst
nú snigillinn og þrýstir mykju,
sem nú hefir verið látin í kerr-
una, og fellur hún niður í rifu
þá, er plógurinn hefir myndað.
Eftir að mykjan er fallin niður
í rifuna, fellur grassvörðurina
að sjálfu sér saman yfir henni
og sést nú á landinu aðeins eins
og lítils háttar rispa. Onnur um-
merki skilur plógurinn ekki eftir.
TíLRAUNIN TÓKST VEL
Tilraunin, sem hér að framan
er lýst, var gerð' fyrir skömma
að Lundi við Akureyri. Er hér
um að ræða framhald tilrauna,
Mykjuplógurinn aftaní dráttar-
vélinni. — Á neðri myndinni
er sýnt ofaní mykjukerruna og
snigilinn í botni hennar.
(Ljósm.: Vignir Guðmundss.)
sem Ólafur Jónsson hóf hér á Ak-
ureyri fyrir nokkrum árum. Bún-
aðarfélag ísl. hafði sent 2 menn
til þess að vera í dómnefnd um
notagildi þessa nýja áhalds. Voru
það þeir Haraldur Árnason og
Ólafur Guðmundsson. Ennfrem-
ur voru í nefndinni Ólafur Jóns-
son búnaðarráðunautur og Árni
JónsSon tilraunastjóri. Vóru þeir
tveir fulltrúar Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar, en það hefir
í hyggju að kaupa þetta nýja
landbúnaðarverkfæri.
Tilraunin tókst að segja má
ágætlega, miðað við það land,
sem hún var reynd á, en það
var rennislétt tún. Eftir er að
rannsaka hvernig plógurinn
reynist á. misjöfnu landi, en von-
ir standa þó til, að víðtæk notk-
un sé möguleg með þessu tæki.
Afköst mykjuplógsins eru allt
að 100 tonn af áburði á hektar-
ann á 8 klst., miðað við að 70
sm. séu á milli plógfars. — Það
er álit búfræðinga, að mykju-
plógar Magnúsar Árnasonar
járnsmiðs, sé eitt hið merkasta
jarðvinnslutæki, sem hér á landi
hefir verið fundið upp á síðari
árum. — Vignir.
fyrir húsmæður. Er ætlunin að
starfrækja þennan skólá á sama
hátt og samsvarandi skóla er-
lendis, en þeir eru víða. Morgun-
blaðið ræddi í gær við þá félaga
um fyrirkomulag skólans og
komst Oskar m.a. svo að orði:
ALIILIÐA TILSÖGN í SNIÐUM
— Hér á landi hefur undan-
farin ár verið hægt að fá nám-
skeið í tilskurði, en skóla með
alhliða tilsögn í því efni hefur
algerlega vantað, svo þeir, sem
atvinnu hafa af saumaskap og af
að sníða, hafa orðið að fara til
annarra landa til að læra þetta.
En nú mun verða bætt úr þessu
með stofnun þessa skóla, og byrj-
aður nýr þáttur í íslenzkum fata-
iðnaði.
EFTIRLIT MEÐ GOLLUM
— Þá er það einnig ætlun
okkar að hafa samvinnu með
efnaframleiðendum í að leita upp
galla þá, er koma fram í fram-
leiðslunni á hverjum tíma, en
slíkt kemur æfinlega fyrir, á
þann hátt að endurskoða snið,
framleiðsluaðferð og jafnframt
skipuleggja framleiðsluna. Er
með þessu gerð tilraun til að
koma íslenzkri fataframleiðslu á
jafn hátt stig og samskonar er-
lendri.
STARFAR í 6 FLOKKUM
Til að byrja með'mún skólinn
starfa í 6 deildum, og eru þar
bæði kvöldnámskeið og einnig
dagskóli. í fyrstu déildinni er
kenndur svonefndur tilskurður
og nær það yfir herra- og dömu-
fatnað allán. Er þetta lengsta
námið eða kennslustundir sam-
tals 120. Út úr þessari deild taka
nemendur próf. I annari deild er
kenndur dömutilskurður, og er
þar átt við kápur og draktir. Þá
er í þriðju deildinni kennd karl-
mannafatasnið, fjórða dömukjóla
snið, fimmta barnafatnaðarsnið
og að lókum verður námskeið
fyrir húsmæður. Er það stytzta
námið og miðað við 24 kennslu-
stundir. — Húsmæðranámskeiðin
eru kvöldnámskeið og eru 1—2
daga í viku.
UNNIÐ VIÐ KLÆÐA-
SKURÐ í 15 ÁR
Skólinn mun starfa sex mán-
uði á hverju ári. Hann verður
til húsa að Laugaveg 118 á sama
stað og saumastofan Anderson &
Sólberg. Eins og áður er sagt,
munu eigendur saumastofunnar
sjálfir annast kennslu sniðskól-
ans, en Arne Andersen, sem er
danskur maður, hefur mjög
kynnt sér þessi mál og verið á
ýmsum slikum skólum erlendis.
Hann hefur unnið við klæða-
skurð í 15 ár, bæði hér og í Dan-
mörku. Hann hefur dvalið 8 ár
hér í Reykjavík.
M. Th.
Ný aðferð viS raf-
lapir í hús
ÞEIR Guðjón Ormsson og Jó-
hannes Pálsson sem báðir eru
rafvirkjar, skýrðu blaðamönnum
svo frá í gær, að þeir hefðu fyrir
skömmu fundið upp nýjan út-
búnað í sambandi við raflagnir í
hús, sem er talsvert frábrugðin
eldri aðferðum við raflagnir. Er
sérstaklega miðað við þjáleinöngr
unarrafmagnsvír, en notkun hans
hefur mikið aukizt síðastliðin ár.
Fimmtudagur 20. maí 1954
Frá kvöldskemmtun Norræna félagsins. — Efst t. v. er Eiríkur
Juuranto, aðalræðismaður íslands í Finnlandi, í miðið Guðrún Á.
Símonar er skemmti með söng og t. h. Guðlaugur Rósinkranz,
formaður Norræna félagsins. Á neðri myndinni er finnski óperu-
söngvarinn Koskinen er söng með aðstoð Fritz Weisshappel.
KföMstcenimfuit fterææa fél-
agsins fyrir finnski! gestlna
AÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ hélt Norræna félagið kvöldboð í
Þjóðleikhúskjallaranum, og bauð þangáð hinum finnsku
gestum er hér eru staddir í sambandi við finnsku iðnsýninguna.
Var þar margt manna saman komið.
RAUNHÆFUR ÁRANGUR
Formaður fslandsdeildar félags
ins þjóðleikhússtjóri Guðlaugur
Rósinkranz bauð gestina vel-
komna. Minntist hann í stuttri
ræðu hins samnorræna félags
með hlýjum vel völdum orðum.
Sagði m. a. að stundum heyrðust
um það raddir að sá félagsskap-
ur legði meiri áherslu á orðmælgi
en raunhæfan árangur í verki,
en sannaði að slík ummæli ættu
við engin rök að styðjast.
RÆÐA JUURANTOS
Því næst tók til máls F.iríkur
Juuranto aðalræðismaður íslands
í Finnlandi, um land sitt og
þjóð.
Hann sagði í upphafi að hann
myndi ekki flytja þar skipuleg-
an fyrirlestur en kaus heldur að
taka upp léttara hjal. Lýsti hann
í kátlegum orðum ýmsum þjóða-
einkennum Finna og samanburði
á þeim og öðrum Norðurlanda-
þjóðunum. Talaði um ýmsa erfið-
leika þei>ra bæði vegna þess að
þjóðinni er skift á milli tveggja
tungna, hinnar finnsku og
sænsku. Og hvernig Finnar eru
því vanir að lifa lífi sínu á tak-
mörkum hins frjálsa lýðræðislega
heims og hins öfluga nágranna í
austurátt.
Hann lýsti hinni óbuguðu
frelsisást sem til þessa og fram-
vegis býr með hinni finnsku þjóð,
og ýmiskonar erfiðleikum henn-
ar í íortíð og nútíð.
Frásögn Juuranto var fjör-
mikil og skemmtileg og var gerð-
ur góður rómur að máli hans.
SÖNG KOSKINENS
VEL FAGNÁH
Er Juuranto hafði lokið máli
sínu, hóf óperusöngvarinn Annti
Koskoinen söng sinn. Söng hann
fjögur lög, fyrst sitt hvort lagið
eftir Palmgreen og Sibelius, en
síðan finnskt þjóðlag. En er hann
var klappaður til að syngja fleiri
lög söng hann vögguvísu eftir
Jón Þórarinsson, með texta eftir
Kiljan og söng á íslenzku. Áheyr-
endur voru mjög hrifnir af þess-
um þróttmikla óperusöngvará
sem fyrr.
SÖNGUR GUÐRÚNAR
VAKTI HRIFNINGU
Því næst söng Guðrún Á.
Símonar nokkur lög. En Rósin-
kranz kynnti hana fyrir hinum
erlendu gestum, og komst að
orði á bá leið að hér gæfist þeim.
kostur á að hlýða á söng íslenzkr-
ar söngkonu.
Fyrst söng hún vögguvísu eftir
Þórarinn Jónsson. Síðan lag eft-
ir Brahms, og þá aríu úr Cavall-
ería Rusticana. En að lokum,
eftir mikið klapp, ítalskt lag, við
mikla hrifningu áheyienda.
Þar með var skemmtiatriðun-
um lokið. En gestirnir skemmtu
sér við dans fram til klukkan
eitt eftir miðnætti.
PALERMO, 17. maí. — Nýlega
er lokið hér himsm geysí
umfangsmiklu réttarhöldum íi
sambandi við bófaflokk Salva
tores Giulianos, sem vann
mörg hermdarverk á Sikiley á
árunum eftir heimsstyrjöldina,
63 menn fcngu refsingu fyrir
þátttöku í bófaflokknum. —
Flestir fengu 16 ára fangelsl
fyrir rán og morð, en samtals
námu fangelsisrefsingar 632
árum. — Keuter.
Framh. af bls. 1
þeim dýrt að halda samgönguni
uppi á þeirri leið. Það má einnig
búast við að uppreisnarmenrs
geri árásir á einstöku virki
Frakka, eitt og eitt í einu. Erfiit
er að flytja liðsauka að þeirn,
svo að hætt er við að kommún-
istar geti yfirbugað einstölg
smærri virki jafnvel á regntím-
anum.
Q Rigningarnar geta heldur
. ekki stöðvað skæruliðahern-
að kommúnista. Svo að Frakkar?
verða að vera stöðugt á verði o@
munu eiga erfitt með að safna
liði sínu öllu á einn stað.
Eftir hermálafregnritara
Observer
(Öll réttindi áskilin)