Morgunblaðið - 20.05.1954, Page 11
rmnTrnnn
Fimmtudagur 20. maí 1954
MORGUNBLABI&
11
TAKIÐ EFTIR MERKJNI)
Vinsældirnar aukast með degi hverium.
SK(RI\jlS-SPORTSKYRTUR
fást í tegunda-, Iita- og stærðarúrvali á
börn og fullorðna í eftirtöldum verzlun-
um í Reykjavík:
Vinnufatabúðinni Laugaveg 76
Fata- & Sportvörubúðinni Laugaveg 10
ölafía SisríSur Jénsiólfir
Aðalstræti 4 h. f.
Tóledó
Aðalstræti 4
Fischerssundi.
Mæður! Munið sérstaklega eftir
að kynna yður verð og gæði á
barnaskyrtum okkar. — Kaupið
S K í R N I S SPORTSKYRTUR
á börnin, áður en þau fara í sveit-
ina.
Einstakar tegundir fást víðar.
Efnið er þæft. Verðið er hagkvæmt.
Sérhæfð framleiðsla
'UerLsmicijan S)ldmir Lf
Húseigendur
Nú er rétti tíminn að mála
Utanhússmálning,
Olíumálning
Gúmmímálning
og aðrar málningarvörur
Einnig glæsilegt úrval af veggfóðri
Regnhoginn
Laugaveg 62
Fyrir fólksbíla:
BíEalyftur
1% tonns.
Fram- og aftur mottur.
Einnig lausar mottur.
Fyrir vöriabila:
Tvsir kjélar
fyrir einn!
Athugið að með því að
nota MC CALL’S snið-
in og sauma sjálfar,
getið þér fengið tvo
kjóla fyrir andvirði eins
tilbúins
Ný sending af
4£»
Mc Call’s sniðum
og frönskum
sumarkjólaefnum.
3 tonna,
5 tonna,
8 tonna.
FELGUR 20“
RÆSIR H.f.
Bergstaðastræti 28.
Svíþjóðarbátur
100 tonna í góðu lagi til leigu. — Uppl. hjá
Landssambandi íslenzkra útvegsmanna.
LAKK
í mörgum litum.
Bifreiðavöruverzlun
Friðriks Berfelsen
Sími 2872.
tfárgreiðslu-
dama
óskast. Gott kaup.
PERMANENTSTOFAN
Ingólfsstræti 6. Sími 4109.
FYRIR sxömmu barst mét and-
látsfregn Ólafíu Sigríðar Jóns-
dóttur, er búið hafði um árabil á
Laugavegi 153 Hún var mikil vin
kona foreldra minna, og hafði
verið svo lengi, er ég fyrst mundi
eftir mér. enda dvaldi hún og sum
barna hennar í nokkur sumur á
heimili þeirra. Og þó að ég þekkti
hana lítið af eigin raun hin fyrstu
hana lítið hin fyrstu ár æfi minn-
ar, þar eð foreldrar mínir bjuggu
þá fjarri Reykjavík, þá mátti þó
segja, að ég drykki velvild til
hennar og fjölskyldunnar allrar
með móðurmjólkinni. Svo hlýtt
var foreldrum mínum til hennar
og hennar fólks.
Oft kom ég á heimili Ólafíu og
mætti þar ávailt gólðvild og alúð
eins og allir sem þangað lögðu
leið sína.
Ólafía var hinn mesti mann-
vinur í þess orð fyllstu merkingu,
vildi af heilum hug bæta allra
böl og rétta þeim hlýja vinar-
hönd, er sorg og einstæðingsskap-
ur þjakaði. Einnig áttu dýrin vini
að mæta, þar sem hún var.
Vel man ég þessa glöðu svip-
hreinu og léttstígu konu, því að
hún var fjörmikil og glaðlynd svo
að öllum leið vel í návist henn-
ar. Andlitið var frítt og fíngert,
ennið hátt og bjart, yfir athug-
ulum augum gáfulegum og ó-
venju góðlegum, er spegltiðu hýrt
bros og oft léttan hlátur.
Ólafía lézt 27. febr. s.l Ilún
var fædd 21 september 1370 að
Seli í Grímsnesi. Foreldrar henn-
ar voru þau hión Jón Oddsson og
Guðbjörg Halldórsdóttir er þar
bjuggu á Seli Faðir hennar var
ættaður frá Bala í Gnúpverja-
hreppi, en móðir hennar frá
Hrosshaga í Biskupstungum, dótt-
ir Halldórs bónda Guðnasonar
Runólfssonar bónda í Brattholti.
En kona Halldórs í Hrosshaga var
Ingunn ljósmóðir Guðmundsdótt-
ir hreppstjóra og dannsbrogs-
manna í Bræðratungu. Um sex
ára aldur fór Ólafía í fóstur til
Guðmundur móðurbróður síns að
Brjámsstöðum á Skeiðlum og
dvaldist þar síðan öll uppvaxt-
arár sín. Árið 1893 gekk hún að
eiga Kristinn Ásgrímsson Guð-
mundssonar bónda á Reykjum í
Ölfusi Jakobssonar Snorrasonar
prests að Húsafelli. Kristinn var
maður prýðisvel greindur, verk-
hagur, starfssamur og dagfarsgóð-
ur svo að orð fór af. Þau hjón
hófu búskap á Brjámsstöðum og
bjuggu þar í sex ár, en fluttu þá
til Reykjavíkur og áttu þar heima
síðan. Tók Kristinn þá að stunda
sjó á þilskipum en vann að stein-
smíði á vetrum. Börn áttu þau
átta og komust öll til fullorð-
insára, þau eru: Hannes, giftur
Helgu Þorvaldsdóttur, Ingveldur,
gift og þúsett í Noregi og gift
norskum manni, Þórunn, gift
HiiinmgarorS 1
Gunnari Oddssyni, Jón kvæntist
Önnu Halldórsdóttur, en missti
hana fyrir nokkrum árum, Guð-
mundur kvæntur Ingibjörgu
Steinþórsdóttur, Guðbergur dá-
inn, kvæntist Steinunni Krist-
mundsdóttur, Guðbjörg gift Sæ-
mundi Gíslasyni og Þóra ógift,
var alltaf með móður sinni. Þou
eru öll búsett í Reykjavík, nema
Ingveldur Öll eru þau systkin.
góðum gáfum gædd og miklum
mannkostum þúin. Má segja, að
þar falli ekki eplið langt frá eik-
inni.
Það er nú engin furða þó að
efnahagurinn væri fremur erfið-
ur á meðan börnin voru ö)l í
ómegð. Þó tókst þeim að koma
þeim upp án allrar utanaðkom-
andi hjálpar og hafa börnin öll
menntast vel hvert á sínu sviði.
Jafnskjótt og þau komust til
þroska fóru þau áð starfa, svo
að brátt tók hagurinn að batna
og nokkru áður en Kristinn and-
aðist, 1926 höfðu þau hjón komið
sér upp íbúð, sem Ólafía svo
stækkaði verulega nokkrum ár-
um eftir lát manns síns. ' Sam-
heldni og eining innan fjölskyld-
unnar var alla tíð mjög til fyrir-
myndar, enda naut Ólafía vináttu
og virðingar barna sinni Og
tengdabarna til æviloka.
Ólafía var alla tíg einlæg trú-
kona. Hún trúði á handleiðslu
Guðs, af svo hreinum og einlæg-
um hug, að þrátt fyrir margs
konar raunir og erfiðleika á
langri, annasamri ævi, átti gleð-
in og mannúðin stórt rúm í huga
hennar. Hún trúði á sigur hins
góða og treysti því, að framtiðiri
bæri í skauti sínu heim, þar sem
réttlætið réði
Um skeið tók Ólafía allmikinn
þátt í félagsmálum kvenna Og
var mjög hugleikið um bætt kjör
alþýðunnar. Hún var ákaflega
vinsæl og skemmtin í samræðum
og orðheppin, rökfim og f-ljót til
svars, enda skarpgáfuð og bók-
hneigð. Hún las það, er hún gat
komist yfir með svo takmarkaðan
tíma sem húsmóðir á stóru heim-
ili hefur yfir að ráða, og fylgdist
af áhuga með landsmálum fram
á síðustu ár Ég held líka, að alla
tíð hafi fróðleikur og bókmennt
staðið hug hennar nær en þau
störf, sem hún varð alla ævi að
vinna.
Börn hennar og barnabörn
komu oft til hennar og gerðu yf-
irleitt allt til þess að létta henni
þunga ellinnar. Heilsa hennar
mátti teljast fremur góð þar til á
síðastliðinu hausti, en þá lagðist
hún í rúmið.
Börn hennar og barnabörn og
annað venzlafólk, svo og allir
hinir fjölmörgú vinir hennar,
minnast þessarar merku gáfu-
konu með innilegu þakklæti fyrir
allt það, er hún var þeim á sinni
löngu ævi
Blessuð sé minning hennar.
Gróa Jóhannsdóttir,
Galtarholti.
STULKA
ekki yngri en 25 ára, getur
fengið vbmu við framleiðslu-
störf nú þegar.
Efnagerð Reykjavíkur.
Laugavegi 16, 3. hæð.
4* BEZT AÐ AUGLYSA
í MORGUTSBLAÐUSU
ÍBtJÐ ÓSKAST
Mig vantar íbúð sem fyrst. 2—4 herbergi.
Aðeins tvennt i heimili. Uppl. í síma 7363.
Guðbr. Jörundsson.
I
u*