Morgunblaðið - 20.05.1954, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. maí 1954
Við mannialiS 1950 voru konur í fyrsia
sinn í minnihlufa
omir í
l^eyhjauíh
I/IÐ MANNTALIÐ 1950 taldist heimilismannafjöld/ á íslandi
samtals 143.961. Þar af voru 71.699 konur en 72.262 karlur.
Konur voru því 563 faerri heldur en karlar, eða á móti hverjum
1090 körlum komu 992 konur.
Er þetta fyrsta manntal á íslandi, þar sem konur eru færri en
kárlar. Við öll undanfarin manntöl hafa karlarnir verið í minni-
hluta. — Greinargerð sú, sem hér fer á eftir er gerð af Þorsteini
Þorsteinssyni fyrrverandi hagstofustjóra, en greinargerðin var í
Hagtíðindum, marz-hefti 1953.
KEYKVÍSKAR KONUR
í MEIRIHLUTA
Reykjavík er eini staðurinn á
landinu, sem konur vorú í meiri-
hluta árið 1950, eða alls 29.340 en
karlar 26.905.
I sveitunum eru konurnar til-
tölulega fámennastar, að'eips 877
á móti 1000 körlum. í minni bæj-
um, þorpum og kauptúnum erú
þær töluvert fjölmennari, 984 á
móti 1000 körlum. í kaupstöðum
ntan Reykjavíkur eru jafnmargir
karlar og konur, en í Reykjavík
eru konur í talsverðum meiri-
hluta, eða 1091 kona á móti 1000
körlum.
KONUR í ALDURSFORSÆTI
Við lestur hagskýrslunnar
kemur í ljós, að konur, sem
komnar eru yfir fimmtugt eru
í meirihluta. T, d. eru 3482
konur á aldrinum 50—54 ára
á móti 3453 körlum á sama
aldri, 1962 konur á aldrinum
65—69 ára á móti 1674 körlum,
1215 konur á aldrinum 75—79
á móti 917 körlum, 146 konur
á aldrinum 90—94 á móti 62
körlum og 29 konur sem komn
ar eru yfir 95 ára aldur á móti
11 körlum.
Aftur eru karlar á aldrinum
15—19 ára 6159 en konur 5969
og 30—34 ára karlar 5109 en
konur 4873.
Þetta er smekkle.gur sumartæki-
færisklæðnaður úr hvítu þunnu
efni. Pilsið er slétt, jakkinn er
beinn að framan, en að aftan er
hann felldur undir berustykkið.
— Takið eftir litla blóminu sem
síiungið er undir kragann að
framan.
ELZTA FÓLKIÐ í SVEITINNI
Telja má að rúmlega 30% lands
manna séu á barnsaldri, fyrir inn-
an 15 ára en 53% eru á því skeiði
sem menn eru almennt fullvinn-
andi, frá 20—64 ára. — Um 1/12
hluti landsmanna er á unglings-
aldri 15—19 ára og 1/13 hluti á
gamalsaldri, yfir 65 ára.
Hlutföllin milli aldursflokk-
anna skiptast mismunandi á milli
bæja og sveita.
í bæjum og þorpum eru ungl-
ingar innan 15 ára fjölmennastir,
unglingar 15—19 ára eru fjöl-
mennastir í sveitum, en fullvinn-
andi fólk á aldrinum 20—64 ára
er fjölmennast í Reykjavík og
gamla fólkið, 65 ára og eldri er
fjölmennast i sveitunum, eða
9,4% á móti 6,5% í Reykjavík.
Við manntalið 1950 voru lands-
menn, sem komni’r voru yfir átt-
rætt samtals 2158 manns, eða
1,5% af þjóðinni, en yfir nírætt
voru 248, þar af 175 konur, en 73
karlar og var nærri helmingur
þeirra í sveitum.
EKKJUR FLEIRI EN EKKLAR
Við manntalið 1950 voru
ekkjur hér á landi samtals
' 4937 en ekklar 2046 Ógiftir
karlar voru 42776 en konur
38996. í óvígðum hjúskap
bjuggu 2.202 karlar en 2190
konur. Konur, sem skilið hafa
við menn sína að borði og
sæng voru 245 en karlar 222,
og konur sem skildar voru að
lögum voru 703 en karlar 453.
Tala ekklanna er ekki nema
rúmlega % af tölu ekkna. Stafar
þessi mikli munur m. a. af því
að konur eru langlífari heldur en
karlmenn og að þær giftast yngri.
Hins vegar voru ógiftir karl-
menn 1950 nærri 3800 fleiri en
ógift kvenfólk og stafar það að
miklu leyti af því að á barns- og
unglingsaldri er karlkynið í meiri
hluta.
Fróðlegt verður að sjá árang-
urinn af nýrri manntalsskýrslum
— hvort kvenfólkið kemst aftur
í meirihluta! En af þessu sézt að
ógift kvenfólk í Reykjavík, sem
gjarna vill giftast ætti að leita
fyrir sér í sveitunum, þar sem
hörgull virðist vera á kvenfólki.
— A. Bj, tók saman.
Sífróna
Þegar skreytt er með sítrónusneið
er sneiðin skorin fyrst í tvennt
og síðan skorin aftur að berkin-
um, eins og myndin sýnir.
Smákökur og sykurhrauðsterta
KARTÖFLUMJÖLSKÖKUR
175 gr. smjöriíki
125 gr. sykur
1 egg
150 gr. kartöflumjöl
150 gr. hveiti.
Smjörið er linað, síðan hrært
með sykrinum og egginu. Mjölið
er sigtað og hrært saman við. —
Deigig látið með tveim skeiðum
í litiar kökur á vel smurða plötu,
bakast ljósbrúnar (verða um 75
stk.).
TEKÖKUR
250 gr. smjörliki
250 gr. sykur
2 egg
250 gr. hveiti
100 gr. möndlur
Smjörið er linað og hrært með
sykrinum og eggjunum, hveitið
sigtað og látið út í. Möndlurnar
eru afhýddar og skornar smátt og
þeim síðan hrært saman við. —
Deigið er síðan látið með tveim
teskeiðum á plötu, og bakaðar
ljósbrúnar.
EGGJAHVÍTUKÖKUR
150 gr. smjörlíki
125 gr. sykur
150 gr. hveiti
um 5 eggjahvítur.
Smjörið er linað og hrært með
sykrinum. — Hveitið sigtað og
iátið út í, síðan eru hvíturnar
stífþeyttar og þær hrærðar sam-
an við. Búnar til litlar kökur,
bakast ljósbrúnar. (Þessar kökur
er tilvalið að búa til, ef maður
býr til ís og notar ekki nema
rauðurnar í hann).
FALSKAR MAKRÓNUR
125 gr. smjörlíki
100 gr. sykur
1 til 2 eggjarauður
250 gr, hveiti
1 sléttfull tsk. hjartasalt
Smjörið er linað og hrært með
Framh. á bls. 25
uman^ er Iwm i/í
Þá er golf að fá tétfan maf
Nú fer bráffum aff koma sá tími
aff hægt verffur aff nota frístund-
ir og helgar til þess aff sóla sig og
vinna í garffholunni. Þá er ekki
úr vegi aff eiga hentugan klæffn-
aff, eins og t. d. þessi liér á mynd-
inni er. — Kné-síðar nankins-
buxur, sem þér getiff sjálfar
saumað. Blússan er úr köflóttu
lérefti, og buxurnar sem eru með
klauf aff neðan eru skreyttar meff
köflótta efninu. — Þetta er hent-
ugur og ódýr sumarklæffnaffur.
NÚ ER sumarið komið og áður
en varir verður nóttin björt
og hlý, — börnin fára í sveitina
og sumarfríin fara í hönd. — Og
á sumrin þykir okkur gott að fá
léttan mat, ekki eintómt steikt
kjöt og uppbakaðar súpur. Hér á
eftir eru nokkrar tillögur um
léttar og fljótlegar sumarmáltíðir.
Það er e. t. v. nokkuð snemmt að
koma með uppskriftir af græn-
metismáltíðum, en það má alltaf
geyma kvennasíðuna í matreiðslu
bókinni og notfæra sér uppskrift-
irnar seinna.
★ • ★
; t
EGGJAK.4KA
4 til 6 egg , .
50 gr. smjör ;
salt
Eggin eru hrærð saman, smjör-
ið er brúnað örlítið á pönnu, eggj
unum síðan hellt á, hrært í þeim
þangað til kakan hangir vel sam-
an, (en má þó ekki vera of stif).
— Blanda má smáttskornu g æn-
meti eða kjötafgöngum samt n við
eggin á pönnunni.
★ ® ★
— Henfugf veggskrifborð —
SÚRMJÓLKURSÚPA
Eitt egg er hrært með 1 mat-
skeið af strásykri. Einn pottur af
súrmjólk látinn út i. Hrærist vél.
Litlar heimabakaðar tvíbökur
eru framreiddar með súpunni.
FÁTÆKIR RIDDARAR
Hveitibrauðssneiðar eru látnar
liggja í mjólkurbaði í 5—10 mín-
útur, síðan dyfið í egg sem hrært
hefur verið með mjólk. Sneiðarn-
ar eru síðan steiktar ljósbrúnar
á pönnu í smjöri eða smjöLLiki. —
Framh. á bls. 25
Tómaf
Veggskrifborðiff að ofan er danskt aff uppruna, mjög fallegt og
hentugt í senn, ekki sízt þar sem gólfrúm er lítiff. Sjálfur skápur
inn þarf ekki skýringa viff, myndin sýnir greinilega hve hagan-
lega hann er úr garði gerffur, meff hillum, hólfum og skúffum.
Sjálft skrifborðiff er um leiff lok miðhólfsins, sem taka má upp
og niffur eftir vild. Stólhaklff er sérstaklega miffaff viff, aff hægt
sé aff hengja á hann jakka eins og nokkurs konar herðátré, og
stólsetunni á aff lyfta upp og hengja buxurnar yfir hana. — Vildu
ekki íslenzkir húsgagnasmiðir reyna eitthvað svipað?
Þegar skreytt er meff tómatssneið
er sneiffin skorin að berkinum, og
síðan undiff upp á hana eins og
myndin sýnir.