Morgunblaðið - 20.05.1954, Qupperneq 24
24
MORG IJ N B L AÐ 1 Ð
Fimmtudagur 20. maí 1954
Aðalfundur Oháða fri*
Siendur aðelus
fyrir klrkfti
safnaðerirBS
I KIRKJUBYGGINGARSJOÐI
eru nú hátt á annað hundrað
þúsund krónur, kirkjulóð er feng-
in, teikning tiibúin, safnaðar-
menn hafa lofað mörg hundruð
dagsverkum í sjálfboðavinnu.
lofað hefir verið að gefa skírnar-
font, skirnarskál og prédikunar-
stól og safnaðarstarfið hefir
aídrei verið jafn blómlegt og
vetur þótt við mikla húsnæðis-
crðugleika sé að etja. Það eitt
bindur hendur safnaðarfólks og
heftir framtak þess, að synjað
hefir verið um leyfi til að byggja
hina litlu safnaðarkirkju til þessa
og treystir söfnuðurinn því nú
sem einn maður, að leyfið verði
veitt i vor þegar losað hefir ver-
ið svo mjög um höftin í bygginga
málum sem raun ber vitni.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn hér
í bae hélt aðalfund sinn í fyrra
mánuði og var hann fjölsóttur
eins og aðrar samkomur safnað-
arins. Andrés Andrésson safn-
aðarformaður setti fundinn, fund
arstjóri var kjörinn Guðmundur
Þórðarson stud. med. og fundar-
ritari Sigurður Hafliðason Dag-
skrá fundarins hófst með því að
prestur safnaðarins sera Emil
Björnsson, minntist safnaðar-
manna, er látizt höfðu frá sein-
asta aðalfundi Risu fundarmenn
ur sætum í virðingarskyni við
minningu hinna látnu meðan
presturinn las upp nöfn þeirra
og var athöfn þessi áhrifamikil
og eftirminnileg.
væri mjög brýn þörf fyrir hana.
Hann kvað Fjárhagsráð ávallt
hafa synjað um byggingarieyfi,
en nú kvað hann hafa verið sótt
um íeyfi til Innflutningsskrif-
stofunnar og vænti hann hess að
lengur vrði ekki synjað um þetta
leyfi. Að lokum bar formaður
fram þá ósk að safnaðarlífið
mætti hér eftir sem hingað til
verða saínaðarfólki til ánægju
og uppbyggingar, ekki sizt þeim,
sem ættu við erfiðleika að etja
eða um sárt að binda. Þessu næst
las Bogi Sigurðsson safnaðar-
gjaldkeri upp safnaðarreikning-
ana og hefur hagur safnaðarins
aldrei staðið með jafn miklum
blóma. Er það fyrst og fremst að
þakka framúrskarandi miklu
starfi Kvenfélags og Bræðra-
félags safriaðarins er styrktu
safnaðarstarfið með ráðum og
dáð s.l. ár.
STARFIÐ
Því næst tók safnaðarformað-
ur, Andrés Andrésson til máls og
flutti ýtarlega skýrslu um safn-
aðarstarfið á liðnu ári og hefir
starfið aldrei verið blómlegra,
þrátt fyrir erfið húsnæðisskilyrði
og er það vegna mikillar og al-
mennrar þátttöku safnaðarfólks
i guðþjónustuhaldi, og öllu félags
lífi. Haldnar voru guðsþjonustur
annan hvern sunnudag sem fyr,
5 kvöldvökur voru haldnar milli
aðalfunda með ágætri og fjöl-
breyttri dagskrá, jólaskemmtun
fyrir börn, farin var skemmtiferð
eins og undanfarin ár, kirkjudag-
ur haldinn með miklum myndar-
brag eins og á liðnum árum, og
þá haldin útiguðsþjónusta á
kirkjulóð safnaðarins, og margar
samkomur voru haldnar innan
safnaðarins sem ótaldar eru.
FELAGSLÍF
Lítið félagsheimili opnaði söfn-
uðurinn í haust að Laugaveg 3
f.yrir sérstaka velvild safnaðar-
formanns, sem lánar húsnæðið,
og hafa Kvenfélag og Bræðra-
íélag safnaðarins haldið þar fundi
sína og kirkjukórinn hefir þar
söngæfingar. Unglingafélag safn-
aðarins hefir og haft þar fundi
og samkomur, æft barnakór, haft
þjóðdansanámskeið og tómstuda-
kvöld, en sunnudagaskóla fyrir
yngstu börnin hefir söfnuðurinn
fengið að hafa í Austurbæjar-
skólanum og stofnaði safnaðar-
presturinn þennan skóla í haust.
Guðmundur Jóhannsson, sem
stjórnar barnakór safnaðarins,
hefir starfað við sunnudagaskól-
ann í allan vetur ásamt barna-
kórnum, og ýmsum öðrum. Nýt-
ur sunnudagaskólinn þegar
mikilla vinsælda og hafa um 300
börn sótt hann á hverjum sunnu-
degi í vetur og öll börn verið
velkomin þangað. Formaður safn-
aðarins þakkaði safnaðarpresti
ánægjulegt samstarf á árinu og
starf hans í þágu safnaðarins í
heild og lét í ljós að allur söfn-
uðurinn biði þess með mikilli
eftirvæntingu að innflutnings-
yfirvöldin veittu leyfi til þess að
byggja safnaðarkirkjuna, enda
A 2,, HUDRAÐ ÞUSUND KR.
í HAPPDRÆTTISSJÓDI
Handbært fé til fyrirhug-
aðrar kirkjubyggingar safn-
aðarins.er nú hátt á annað hundr-
að þúsurd krónur, þar af er milli
140—150 þúsund í kirkjubygg-
ingarsjóði, yfir 16 þúsund í
Minningargjafasjóði þeim ér
Baldvin Einarsson stofnaði innan
vébanda safnaðarins, og fleiri sér-
sjóðir eru tiltækilegir. Megnið
af handbæru fé, eða yfir 100 þús.
kr., safnaðist með kirkjubygg-
ingarhappdrætti á s. 1. ári og
var Guðmundur Þórðarson stud.
med. framkvæmdastjóri þessa
happdrættis. Safnaðarfólk tók
mjög almennan þátt í þeirri fjár-
öflun, en hitt er þó frásagnaðar-
verðara að mjög mikið af happ-
drættismiðunum seldist úti á
landi. Á mörgum fámennum
stöðum seldist t. d. fyrir 500—
1000 krónur og sýnir það glöggt
að starf safnaðarins er mikils
metið víða um land. Fundarmenn
létu í.ljós einlæga ánægju með
batnandi fjárhag safnaðarins og
þökkuðu það einkum safnaðarfor
manni, gjaldkera og framkvæmda
stjóra happdrættisins auk félag-
anna sem fyrr getur, og auk þess
voru bornar fram þakkir til
allra í söfnuðinum og utan hans
sem sty*'kt hafa starfið fram á
þennan dag. Voru reikningar
safnaðarins slðan samþykktir
einróma.
Kennarar og nemendur Löngumýrarskóla.
Húsmæðraskólinn á Löttgianýri 10 ára
DAGANA 15. og 16. þ.m. minnist
Húsmæðraskólinn á Löngumýri í
Skagafirði 10 ára afmaglis síns
með hátíðahöldum.
Stofriandi skólans, fröken Ingi-
björg Jóhannsdóttir, sem hefur
yeitt, skólanum fo.rstöðu frá upp-
hafi, hefur boðið öllum fyrrver-
andi nemendum skólans til veizlu
fagnaðar yið þetta tækifæri. Lík-
ur eru. til, að þar verði saman-
komið fjölmenni víðs vegar af
landinu, því að margur hefur
ánægju al að heimsækja Skaga-
fjörð, hið iríða hérað, og fornar
stöðvar, sem glaðar og góðar
endurrninningar éru bundnar við.
I sambandi við afmælishófið,
er sýning á hgndavinnu p.emeoda
og skemmtisamkoma með fjöl-
breyttum skemmtiatriðum, svo
sem song, upplestrum, ræðuþöld-
Guðmundsson, Stefán Árnason
og Tryggvi Gíslason. Gestur
Gíslason var kosinn meohjálp-
ari og fyrsti safnaðarráðsmaður
í stað Ásmundar Gestssonar, sem
féll frá í vetur. Annar safnaðar-
ráðsmaður er Filippus Ámunda-
son. Varamenn, endurskoðendur
og dyraverðir eru hinir sömu og
áður. Tvær fjölmennar nefndir,
fjáröflunarnefnd og kirkjnbygg-
ingarnefnd voru lagðar niður
sökum þess að hentugra þykir á
þessu stigi málsins að hafa eina
fámenna framkvæmdanefnd er
starfi með stjórn safnaðarins að
undirbúningi . kirkjubyggingar-
innar, og var formanni falið að
skipa framkvæmdanefndina. •—
Gerðar voru ýmsar samþykktir
á fundinum sem eru efnislega á
þessa leið:
KIRKJULEG LIST
Tilkynnt var á fundinum að
Bræðrafélag saínaðarins hefði
ákveðið að gefa skírnaríont í
fyrirhugaða kirkju og hygðist fá
listamann til að smíða hann. f
því sambandi benti prestur safn-
aðarins á, hve mikils vert það
væri að-allir kirkjumunir sem
kirkjan eignaðist væru gerðir af
hinum færustu listamönnum, og
væri farsælla að bíða heldur
lengur eftir þeim en að kaupa
nokkuð eða þiggja til kirkjunn-
ar sem væri óvandað eða illa
gert. Söfnuðurinn hefir þegar
eignast forkunnar fagran messu-
hökul, frá frú Unni Ólafsdóttur,
en Kvenfélagið gaf þennan hökul
í vor fyrir forgöngu fröken Maríu
Maack.
Auk þess hefir verið heitið að
gefa prédikunarstól útskorinn af
listamanni, altarisklæði listsaum-
uð og skírnarskál úr silfri.
STJORN
Andrés Andrésson var einróma
endurkj ör inn saf n aðarf ormaður.
Úr stjórn áttu að ganga Rannveig
Einarsdóttir og ísleikur Þor- j
sfeinsson, en voru endurkjörin.'
Fyrir í stjórn voru Einar Einars-'
son, Ingibjörg ísaksdóttir, Jó-
hann Ármann Jónasson, Sigurjón .
SAMÞYKKTIR
Skorað var eindregið á inn-
flutningsskrifstofuna að veita nú
þegar í vor byggingarleyfi fyrir
safnaðarkirkju, var áskorun þessi
rökstudd með því, hve lítið efni
þurfi til kirkjunnar, hve þörf
safnaðarins fyrir hana sé brýn
og hve margt og mikið sé nú
farið að leyfa dð byggja.
Samþykkt var að nota nýja
lagaheímild frá Alþingi til hækk-
unar sóknargjalda á þessu ári og
miða við að safnaðargjaldið verði
jafnhátt og í Þjóðkirkjusöfnuð-
unum í bænum.
Skorað var á bæjarráð og bæj-
arstjórnina að veita söfnuðinum
bróðurpart af framlagi Reykja-
víkurbæjar til kirkjubygginga í
bænum. Þar sem um bæjarfram-
lag væri að ræða ættu saínaðar-
menn samt rétt til þess að þjóð-
kirkjumenn þar eð báðir væru
skattgreiðendur í bænum. Þá var
og samþykkt að þakka Kven-
félagi og Bræðrafélagi safnaðar-
ins fórnfýsi í störfum fyrir mál-
efni safnaðarins á liðnu ári og
Aðventsöfnuðinum fyrir kirkju-
lán og bróðurhug í öllum grein-
um.
Að lokum þakkaði safnaðar-
formaður safnaðarfólki áriægju-
legt samstarf og fundarmönnpm
komuna.
Fundurinn var fjölsóttur og all-
ir með einum huga að eflingu
safr.aðarstarfsins og kristnilífs í
landinu.
(Fréttatilkynning).
Úr eldhúsinu.
um, pinleik á harmoniku og
stuttri gamanleiksýningu. Sam-
koman á sunnudaginn hefst með
guðsþjónustu. Sóknarpresturinn
sr. Gunnar Gíslason í Glaumbæ,
predikar. Á samkomu þessari flyt
ur erindi hinn þjóðkunni um-
bótamaður Jónas Kristjánsson,
læknir, og mun marga Skagfirð-
inga fýsa að sjá hann og heyra.
Skóiinn á Löngumýri hefur
sýnt það um 10 ára skeið að
vaxtarskilyrði hafa fallið hon-
um í skaut, því að hann heldur
áfram að vaxa og þroskast, þar
eð aðsókn að skólanum hefur
jafnan verið góð. Skagfirðingar
hafa kunnað að meta og notfæra
sér þetta menntasetur, sem for-
stöðukonan, fröken Ingibjörg hef
ur reist og stoí'nsett í föðurtúni
sínu, svo sem bezt má sjá aí því,
að heimingur flcstra árganga
skóians hefur verið skagfirzkar
stúikur. Alls hafa 319 nemendur
dvalizt við nám í skólanum þessi
10 ár auk þeirra, sem hafa stund-
að framhaldsr.ám.
Kennarar skólans eru: skóla-
stýran frk. Ingibjörg Jóhanns-
dóttir, Björg Jóhannesdóttir
sauma- og hannyrðakennari, Sig-
urlaug Eggertsdóttir hússtjórnar-
kennari og Jóhanna Jóhannsdótt-
ir yefnaðarkennari. Söngkennari
er Árni Jónsscn, Víðimel. Mar-
grét Jóhannesdóttir hjúkrunar-
kona kennir hjálp í viðlögum og
heimilishjúkrun, og Jón Bergs-
son hinn alþekkti hggleiksmaður
hefur kennt nemendum dráttlist
og híllugerð. Fæðiskostnaður
varð s.l, vetur kr. 11,25 á dag og
húsnæði, Ijós og hiti kr. 50,00 á
mánuði.
Hinn 26. júní n.k. hefst kennsla
í skólanum, sem verður með svip
uðu sniði og venjulegt er í lýð-
háskólum nágrannalandanna.
Markmið þessa skólahalds er að
reyna að vekja áhuga nemenda
fyrir gildi þjóðlegra verðmæta,
leitast við að vekja þá til trúar
á sjálfa sig, guð og fósturjörðina.
Skóli þessi er fyrir stúlkur frá
14 ára aldri og starfar í nám-
skeiðum um tveggja mánaða
tima. Einnig verður veitt tilsögn
í verklegum námsgreinum, ef
óskað er, auk söngkennslu og
þjóðdansa, og sund verður iðkað-
í sundlauginni í Varmahlíð, sem
er hálfrar stundar gang frá Löngu
mýri.
Mjög er vandað til vals kenn-
ara, sem munu flytja erindi til
skiptis um ýmis málefni til fróð-
leiks og skemmtunar.
Rétt er að geta þess, að fæði
sumarskólans verður selt við
réttu kostnaðarverði. — jón.
aroarsysiu
jk ÐALFUNDUR sýslunefndar Norður-ísafjarðarsýslu var hald-
•í® inn á ísafirði 10.—14. april. Samkvæmt venju lágu mörg mál-
efni fyrir fundinum og hlutu öll afgreiðslu.
AÐAL ÚTGJALDALIDIR
Aðal útgjaldaliðir sýslusjóðs
eru stjórn sýslumála og sýslu-
fundir 13 þús. kr., menntamál
rúml. 25 þús. kr. þar af til hér-
aðsskóla í Reykjanesi rúml. 14
þús. kr., samgöngumál 24 þús.
kr., heilbrigðismál 15 þús. kr., til
ýmissra óvissra gjalda og eftir-
stöðvar 20 þús. kr.
Helztu tekjulindir sýslusjóðs
voru niðurjöfnunargjald, rúml.
68 þús. kr., sýsluvegagjald 12 þús.
kr., stríðsgróðaskattur 6 þús. kr.
Samþykktar voru ýmiss konar
ályktanir um héraðsmál, svo sern
rafmagnsmál og fyrirhugaðar
framkvæmdir í þeim, refaeyðing-
ar, vegamál og þátttöku sýslu-
sjóðs í minnisvarða yfir Ólafs-
dalshjónin Torfa Bjarnason og
Guðlaugu Sakaríasdóttur. AUir
sveitarsjóðsreikningar voru sam-
þykktir svo og reikningar sýslu-
sjóðs fyrir árið 1953. Fjárhagur
sýslusjóðs er ágætur. -Sýslufund-
inum lauk miðvikudaginn 14.
þessa mánaðar. — Páll.
í..