Morgunblaðið - 30.09.1961, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.09.1961, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ I,augardagur 30. sept. 1961 y Spil frá Evrópumeist aramótinu H É R koma tvö spil íslenzku sveitarinnar í opnu flokkunum. Spilin eru úr leikum við Prakk- land og tíaliu. Franska sveitin er mjög sterk með alla sterk- ustu spilarar Frakklands, en ítalía er með nýja sveit, sem ekki er álitin sérstaklega sterk. Enginn veit þó með vissu um styrkleika ítalanna, en eitt er þó víst, að sveitin getur ekki verið eins sterk og hin fraega ítalska sveit, sem hefur unnið * D G 9 2 V G 9 6 2 * G 3 2 * 8 2 * Á 10 7 6 N A — 5 4 3 V Á D 8 X K 4 V A 7 5 3 ♦ Á D S ♦ 10 9 5 4 * D G * K 7 5 A K 8 X 10 ♦ K 8 7 6 * Á 10 9 6 4 3 Á öðru borðinu sátu Stefán og Jóhann N.—S., en R. Balche- rich og P. Ghestem A.—V. -r- Þessir frönsku spilarar eru tald- ir með beztu spilurum heims- ins og hjá þeim gengu sagnir þannig: Austur Suður Vestur Norður 1 hjarta pass 1 spaði pass 1 grand pass 2 lauf pass 2 tiglar pass 2 spaðar pass 3 lauf pass 3 tiglar pass 3 spaðar pass 4 lauf ' pass 4 hjörtu pass pass pass Spilið tapaðist hjá frönsku spil- runum og er það einkennilegt, því gjafarslagir eru ekki nema tveir eða þrír. — Á hinu borð- inu spiluðu Guðlaugur og Lárus Karlsson einnig 4 hjörtu og unnu og fékk Island því sam- tals 720 fyrir spilið eða 13 stig. “My Fair Lady„ NEW YORK, 27. sept. (AP). — Kvikmyndafélagið Warnér Brothers hefir, að sögn, boðið 5,5 milljónir dollara fyrir rétt- inn til þess að kvkimynda d kvikmynd Cary Grant hafa verið nefnd sem líkleg í aðalhlutvenkin í „My Fair Lady“, Eliza Doo- little og prófessor Higgins. allar keppnir undanfarin ár. Fyrri hálfleikur í leiknum milli ísiands og Italíu í opna flokknum var sýndur á Bridge- töflunni. Var leikurinn mjög jafn og spennandi ög í hálfleik var staðað 18:18. Spilið, sem hér fer á eftir er frá þessum leik og er gaman að athuga það sökum þess að það gefur mikla tnöguleika. A K X G 7 ♦ A 9 7 6 ♦ Á D 10 5 3 2 A 9 8 6 3 ---A G 10 7 5 4 V A 9 6 4 w VD83 ♦ G10 V A^Á87 6 ♦ 8 6 4 ——-—* G A Á D 2 X K 10 5 2 ♦ K 5 2 ♦ K 9 7 óperettuna vinsælu „My Fair Lady“ — auk ágóðahluta af sýningartekjum, er nema mun 47,5% af brúttótekjum yfir 20 millj. * dollara. Önnur 5% mundu svo ganga til erfingja Bernards Shaw, en óperettan er byggð á leikriti hans „Pyg- malion“, eins og kunnugt er. — Talið er, að Twentieth Cent ury-Fox kvikmyndafélagið eigi metið áður í greiðslu fyr- ir kvikmyndunarrétt: 2 millj. og 270 þúsundir dollara fyrír óperettuna „South Pacific". Þau Audrey Hepburn og Það skeði á dögunum, að einn þeirra manna, sem reglulega ferð ast í Long Island lestinni, Char- les Winston að nafni, gleymdi regnhlífinni á leiðinni heim. Til þess ag hafa svolitla von um að endurheimta hana, sendi hann frá sér svohljóðandi aug- lýsingu: „Gleymdi regnhlíf í lest- inni. Vil vekja athygli finnand- ans á því, að regnhiífin er ind- versk Og fylgja henni álög, eins Og þar er títt. Næsta sólarhring fékk hann sendar 14 regnhlífar. Leikfélag Reykjavíkur er nú að hefja starfsemi sína. Teknar verða upp sýningar á sunnudag 1. októbcr á gamanleiknum „Sex eða 7“ sem félagið sýndi á síðast- liðnu vori. Þetta bráð- skemmtilega leikrit var sýnt þá 11 sinnum, alltaf fyrir fullu húsi áhorfenda, en sýn- ingum varð að hætta vegna þess að langt var liðið á sumar og leikarar fóru í frí. Myndin er af þeim hjónum Thomas og Muriel Chad- wick sem eru leikin af frú Regínu Þórðardóttur og Brynjólfi Jóhannessyni. Stefán og Jóhann voru N.—S. á öðru borðinu og þar gengu sagnir þannig: Austur Suður Vestur Norður pass 1 hjarta pass 2 lauf pass 2 tiglar pass 4 tiglar pass 5 lauf pass 6 lauf Norður var þannig sagnhafi í 6 laufum og Austri lét út tigul gosa. Eins og sést á spilinu, þá eru margir möguleikar að vinna það. Terence Reese, sem lýsti spilinu, sagði að réttast væri að drepa heima á tigul ás. Taka siðan trompin og kasta tveim- ur hjörtum í ás og drottningu í spaða. Síðan væri rétt að fara inn á tigulkóng og spila síðan á tigul 9 og þannig fást 12 slag- ir. Stefán, sem var sagnhafi, valdi ekki þessa aðferð, heldur trompaði hann einn tigul í borði eftir að hafa kastað hjört- unum niður í spaðana. Spilið vannst því á báðum borðum og féll því, en gaman er að athuga hvernig bezt er að spila það. A X ♦ ♦ ísland og Frakkland mættust I 1. umferð í opna flokknum. Leikurinn var jafn og spenn- andi og var fylgzt með honum af mörgum áhorfendum. Spilið, sem hér fer á eftir, er frá þessum leik og fékk ísl. sveitin 12 stig fyrir leikinn: • A, B og C Gunnar Finnbogason, cand. mag., sendir Velvakanda nokkrar linur: „Það hefur víst tíðkazt langt um minni fram, að aðgreina bekki í skólum með bókstöf- um A, B, C o. s. frv., er um margar bekkjardeildir var að ræða á sama aldursstigi. Einnig voru (ög eru jafnvel enn) bekkir nefndir C, en nú þykir lítt hæfa að prýða nafn bekkjar mgð bókstaf, sem ekki er notaður í íslenzku máli. Jafnframt þessari aðgreiningu í bekki A, B o. s. frv., þá var raðað svo í bekki, að dugleg- asta námsfólkið var í A-bekk, en var álitið því lakara, því lengra, sem talið var í stafróf- inu. Nú mun víða vera búið að kasta fyrir borð þeirri merk- ingu eða mun, sem var á nem- endum A-bekkjar og B-bekkj- ar, hvað nám snertir, heldur geta slíkir bekkir verið sem jafnastir að námsgetu. - En þá ber að líta á það, að í augum margra utan skól- anna er munur á námsgetu A- og B-bekkjarnem., og þess vegna er ófært að kenna bekki við fyrstu stafi stafrófsins, enda hafa margir skólar farið inn á þá braut að velja ein- hverja aðra stafi úr stafrófinu til að auðkeima bekki. Þá hef- ir og komið fram, aJS ekki sé heppilegt að notast við þá bók- stafi, sem hljóma líkt í fram- burði. • Sauðskinna gæti verið táknrænt Nú legg ég til, að öll hin margvíslegu bókstafa heiti bekkja verði afnumin í minn- ingu hins mikla hanclrita-árs 1961 og skólarnir geri með því sitt til að vekja og viðhalda áhuga þjóðarinnar á fornum menntum. Það gæti t. d. orðið þann veg, að allr bekkir á sama aldursskeiði yrðu auð- kenndir með eftirfarandi nöfn um: Fagurskinna, Góðskinna, Mjóskinna, Gráskinna, Rauð- skinna, Bláskinna, Brún- skinna, Bleikskinna, Kálf- skinna, Morkinskinna, Sauð- skinna (gæti verið táknrænt) O. fl., sem of langt yrði upp að telja. * Ekki að æra neinn Þeir skólar, sem hafa aðrar tegundir bekkja, t. d. lands- prófsdeildir, gætu þá haft þessi nöfn: Járnsíða, Gullsíða, Kopar- síða, Eirsíða, Tinsíða, Silfur- síða, Stálsíða o. s. frv. Að sjálfsögðu yrði svo hægt að taka upp fasta skammstaf- anir á þessum heitum til notk unar í skýrslur svo að þessi heiti ættu ekki að þurfa að æra neinn. Ætli ísland yrði þá ekki eina landið í heiminum, sem hefði þennan sérstæða þátt á nafngift bekkja? Yrðu þetta ekki hinar einu varanlegu und irstöður handritahallar á ís« landi?“ • Hafsteinn miðill „Kæri Velvakauidi! Undanfarna mánuði hefi ég verið að reyna að fá fyrri bók ina um Miðilinn Hafstein Björnsson, sem rithöfundurinn frú Elínborg Lárusdóttir færði í letur og gefin var út árið 1946. Bókin er löngu uppseld hjá útgefandanum og bóksöl- um. Ekki er hún heldur til hjá fornbóksölum. Þetta er þeim mun bagalegra, þar eð gefnar hafa verið út tvær bækur um hinn þjóðkunna miðil Hafstein Björnsson, en aðeins seinna bindið verið fáanlegt. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þér út af þessu máli er sú, að ég vildi mega mælast til þess við útgefendur bók- anna um Hafstein miðil, að þeir endurprentuðu fyrra bind ið hið bráðasta, því að enginn efi er á því, að margir myndu hafa áhuga á að kaupa þessa athyglisverðu bók. Hræddur er ég um að seinna bindið sé á þrotum og væri því alveg sjálfsagt að gefa bæði bindin út í einni bók. Nú fara jólin að nálgast og væri ekki úr vegi að fá bókina á markað- inn þá. Við erum mörg, sem myndum vilja gefa slík bók í jólagjöf. Fróðir menn um sálarrann- sóknir telja Hafstein Björns- son tvímælalaust vera trans- miðil á heimsmælikvarða og það er því ekki vansalaust að bara skuli vera hægt að fá seinna bindi bókarinnar, sem fjallar um slíkan mann, á með- an allskonar fávizkurusl flæð- ir yfir bókamarkaðinn seint og snemma. Það er svo fjöl- mennur hópur fólks hér á landi, sem hefur áhuga á sál- arrannsóknum, að Sálarrann- sóknarfélag íslands ætti að beita sér fyrir því að þessu verki verði hrundið í fram- kvæmd hið fyrst í samráði við hlutaðeigandi aðila. M. G.**

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.