Morgunblaðið - 30.09.1961, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.09.1961, Blaðsíða 17
Laugardagur 30. sept. 1961 MORGVNBLAÐIÐ 17 Æ SlvATVJJ ÚTGEFANDt: SAMBAND UNGRÁ SJÁLFSTÆÐISMANNA í i —* i JWL RITSTJÓRAR: BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON NY VINNULÖGGJÖF ÁRIÐ 1936 fluttu tveir þing-i meim Sjálfstæðisflokksins, þeir Thor Thors og Garðar heitinn Þorsteinsson, frum- varp á Alþingi um vinnulög- gjöf. Þessir þingmenn báðir voru þá framarlega í röðum ungra Sjálfstæðismanna. Frumvarp þetta dagaði uppi og sömuleiðis á Alþingi 1937, er frumvarp þetta var endur- flutt. Um aðdraganda og undir- búning þessa frumvarps komst Thor Thors svo að orði í þing- ræðu: „Það var árið 1931, að þetta mál var rætt í félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík (Heimdalli), og árið 1932 var samþykkt ákveð in tillaga á sambandsþingi ungra Sjálfstæðismanna um, að svipuð vinnulöggjöf og gildir á Norðurlöndum skyldi undirbúin hér“ (Alþ.tíð 1937, c 303) Enda þótt svo færi um frumvörp þau, sem að ofan getur, komst mikil hreyfing á þetta mál um svipað leyti. Lyktir urðu þær, að skipuð var milliþinganefnd í málið og árið 1938 lagði hún fyrir Al- þingi frumvarp, sem síðan var samþykkt og er enn í dag gildanrdi lög um stéttarfélög og vinnudeilur á fslandi. Eins og að líkum lætur fékk frumvarp þetta mikinn and- byr og gengu kommúnistar þar fremstir í flokki. Sé blað- að í Alþingistíðindum frá þess um tíma má sjá þar hinar furðulegustu nafngiftir, sem frumvarpinu og flutnings- mönrnum þess voru valin. Ein- ar Olgeirsson komst t. d. svo að orði í þingræðu: „Með þessu frumvarpi er verið að stofna til ófriðar í landinu. Verkalýðurinn mun verja frelsi sitt. Hann mun ekki virða þræla og þvingunarlög." ísleifur Högnason, þáver- andi þingmaður kommúmsta sagði: | „Með frumvarpinu er fyrsta sporið stigið í þá átt að gera íslenzka verkamenn að þræl- um.“ En Alþingi íét ekki hótanir kommúnista á sig fá. Frum- varpið varð að lögum og er það mál allra sanngjarnra manna, að það hafi verið mjög tímabært eins og sakir stóðu þá. Þessi lög hafa nú gilt hér í 23 ár og eru vissulega farin að láta á sjá fyrir aldurs sak- ir, enda nýjar aðstæður gert það að verkum, að lög þessi eru úrelt í mörgum greinum. Ummæli Thor Thors, sem vitnað er í hér að ofan, sýna glögglega. að upptökin að um- ræðum, sem síðar hleyptu mál inu á skrið, voru hjá ungum Sjálfstæðismönnum, Heimdalli í Reykjavík og Sambandi ungra Sjálfstæðismanna. Það er því vissulega gleðilegt, að á 16. þingi S. U. S. á Akureyri fyrir skömmu skuli hafa verið samþykkt ítarleg ályktun um breytingar á vinnulöggjöfinni. Sýnir það, að ungir Sjálfstæð- ismenn eru ennþá í forystu í þessu máli. Samband ungra Sjálfstæðismanna eru fyrstu heildarsamtök á íslandi, sem senda frá sér á opinberum vettvangi ítarlegt álit um það, í hvaða átt væntanlegar breyt ingar á vinnulöggjöfinni skuli ganga. Engimi vafi er á því, að kommúnistar munu nú skera upp herör gegn öllum hugsan- legum breyting-um á vinnu- löggjöfinni. Þeir munu nú end urtaka öll gömlu stóryrðin frá 1938. Þá er hollt að hafa í huga, að sú löggjöf, er þeir þá börðust gegn varð til mik- illa hagsbóta fyrir alla aðila, ekki sízt verkamenn sjálfa, og að sú löggjöf, sem . þeir vilja nú halda dauðahaldi í, hét þrælalög á sínum tíma. —15. AðaSfundur FUS í DalasýsSu ** n. * ♦ \ AÐALFUNDUR Félags x ungra Sjálfstæðismanna í Dalasýslu var haldinn í Búðardal föstudag- inn í síðustu viku. Jóhann Péturs Bon, Stóru-Tungu, setti fundinn og stýrði honum í forföllum for- fnanns Elísar G. Þorsteinssonar. Hann flutti og skýrslu fráfarandi stjórnar. Félagsstarfið á liðnu ári Fulltriiaráð Heimdallar FULLTRÚARÁÐ Heim- dallar FUS heldur fund í dag, laugardag, klukkan 2:30 e. h. í Valhöll við Suðurgötu. ♦------♦ BINOÓ-KVÖLD verSur haldið af Helm dalli F.U.S. næstkomandi sunnudag f Sjálfstæðishúsinu og heh* það stundvíslega kl. 8:3« e.h. var með svipuðu sniði og áður. Haldin var ein skemmtun utan héraðsmóts Sjálfstæðismanna í Dalasýslu, sem haldiðVar á veg- um félagsins. Farin var skemmti- ferð í Grundarfjörð á Snæfells- nesi og var þátttaka í þeirri ferð all góð. Félagið sendi fulltrúa á 16. þing Sambands ungra Sjálf- stæðismanna, sem haldið var á Akureyri fyrr í þessum manuði, eins og kunnugt er. í stjórn voru kjörnir: Formað- ur, Skjöldur Stefánsson, sýslu- skrifari, Búðardal. Aðalstjórn: Ágúst Breiðdal, Krossi, Brynjólf- ur Aðalsteinsson, Brautarholti, Jóhann Pétursson, Stóru-Tungu, Kristján Sæmundsson, Brunná. í Varastjórn: Sigvaldi Guðmunds son, Hamraendum, Sigurrós Sig- tryggsdóttir, Búðardal, Jóhann Sæmundsson, Litla Múla, Elis G. Þorsteinsson, Hrappsstöðum og Grétar Bæring Ingvarsson, Hóli. Endurskoðendur voru kjörnir Framhald á bls. 23. Austur-þýzkir stúdentar verffa nauffugir viljugir aff taka undir meff leppstjórn kommúnista í landinu, hver svo sem stefna hennar er. Hér sézt vígbúnaffarstefnunni lagt lið. Stúdentar í tveím lendum AUSTUR-ÞÝZK ALAND Öllum er kunnur hinn gífur- legi flóttamannastraumur frá Austur-Þýzkalandi, þar til lepp- stjórn kommúnista í landinu greip til gaddavírsins til að stöðva hann, fyrr í sumar. Áber andi var, hve margt af flótta- fólkinu var ungt að árum — undir 25 ára aldri/ svo og hve margir stúdentar háfa flúið land ið. Tíðar fangelsanir stúdenta í Austur-Þýzkalandi bera glöggan vott þeim járnhæl kúgunarinn- ar, sem yfir þeim vofir ár og síð. Allir þarlendir stúdentar, sem komast vilja í háskóla, verða við inngöngu sína að undirrita yfirlýsingu, sem felur í sér skuldbindingu um að styðja jafrtan í einu og öllu stefnu leppstjórnarinnar í land- inu. Og því er fylgt fast eftir af stjórnarvaldanna hálfu, að stúdentarnir láti í þessu efni ekki sitja við orðin tóm. Einn ,,árangurinn“ af þessari vesölu viðleitni austur-þýzku stjórnar- innar til að tryggja sér fylgi má sjá á meðfylgjandi mynd. Hvergi er akademiskt frelsi og yfirleitt allt frelsi jafn svívirði- lega fótum troðið og hjá þeim þjóðum, sem kommúnistar hafa getað þröngvað stjórnarháttum sínum upp á. SUÐUR-AFRÍKA í lýðveldinu Suður-Afríku heyja stúdentar harða baráttu fyrir auknu jafnrétti hvítra manna og svartra — og hefur sú barátta þeirra staðið um ára bil. Einkum hafa stúdentasam- tökin barizt fyrir rétti þeirra síðarnefndu til að njóta skóla- göngu og eru ótaldar þær kröfu göngur, sem farnar hafa verið í því skyni. 1 landssamtökum suður-afrískra stúdenta, sem haft hafa forgöngu í baráttunni gegn þessu ranglæti og misrétti, eru um 17 þúsund félagar — og hafa þeir notið stuðnings stúdenta um gjörvallan heim. Handtökur og fangelsanir hafa margsinnis átt sér stað í sambandi við þessar aðgerðir, en engu að síður er baráttunni haldið áfram af fullri einurð- og hvergi látið undan síga. Suffur-afrískir stúdentar krefjast þess aff allir kynþættir njóti sama réttar til aff afla sér menntunar. Rógi um Þýzkalands- ferð enn hnekkt Á SL. VORI birtist hér á sið- unni viðtal við Kára Jónsson, verzlunarstjóra frá Sauðárkróki. Tilefni viðtalsins var ferðalag nokkurra ungira manna og kvenna til Þýzkalands á veguim Æskulýðssamibands íslands. f við talinu við Kára var m.a. drepið á ósmekkleg lihfimæli, er örn Frið riksson, iðnnemi, hafði haft í frammi í Þjóðviljaviðtali. Viðtal- ið við Kára varð Erni þessum síðan tilefni til að endiurtaka róg- skrif sín ásamt hæfilegium við- bótarskamimti af ósannindum. í nýlegu Fréttabréfi Æ.S.f. birtist á bls. 8 yfirlýsing frá þeim þátttakendum í Þýzkalandsferð- inni, sem til náðist. Þar sem mál þau, er yfirlýsingin fjallar um, hafa áður verið rædd hér á síð- Unni, þykir rétt að birta hana hér: YFIRLYSING „Við undirritaðir, þátttakend- ur í hópferð æskulýðsleiðtoga um Schleswig-Holstein, 13.—30. maí sl. viljum taka eftirfarandi fram að gefnu tilefni. Ferð sú, er farin var í boði Æskulýðssambands Sleswig-Hol- stein, og á \tegum Æskulýðssam- bands íslands og Æskulýðsráðs Reykjavíkur, var kynningarferð, og var fulltrúum frá öllum fé- lögum innan ÆSÍ boðin þátttaka, jafnt pólitískum félögum sam öðr um æskulýðsfélögum. Tilefni þessarar yfirlýsingar var okkur gefið, er einn af þátt- takendum, örn Friðriksson, frá Iðnnemasambandi íslands, lét hafa eftir sér í viðtali við Þjóð- viljann alls kyns róg og ósanna lýsingu á ýmsum þáttum ferðar- innar. Sagði hann m.a. í viðtalinu, að mikill pólitiskur áróður hafi verið hafður í frammi í ferð þess- ari, en það er fjarri sanni. Við hörmum það mjög, að þessi fer&okkar skuli hafa verið dregin inn í pólitískan áróður, og frá- sögn af henni notuð á mjög óvið- eigandi hátt. Þessa framkomu Arnar er ekki hægt að réttlæta, og þykir okkur leitt að svo góður ferðafélagi, sem örn var, skuli hafa orðið til þess arna. Að lokum viljum við taka fram, að ferð þessi varð öllum til mik- illar ánægju, og var okkur mjög lærdómsrík. Við þökkum öllum, sem gerðu okkur kleift að fara hana, og hörmum þann skugga, sem hefur fallið á hana að ástæðu lausu. Guðmundur Gíslason, Haukur Sigtryggs, Helga Þórarinsdóttir, Guðmundur Þórarinsson, Ragnar Tómasson, Ásgrímur Björnsson, Ingibjörg Hannesdóttir, Guð- mundur Ólafsson, Árni Gunnars- son, Bjarni Guðmundsson, Har- aldur Henrysson, Friðjón Árna- son, Haukur Bjarnason, • Kári Jónsson“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.