Morgunblaðið - 30.09.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.09.1961, Blaðsíða 24
Vettvangur Sjá bls 13. 221. tbl. — Laugardagur 30. september 1961 SUS-síða Sjá bls. 17. Maður talinn af í Vestmannaeyjum S.L. miðvikudagskvöld var sakn- a9 Vilhjálms Guðmundssonar, Urðarvegi 9, Vestmanaiaeyjum, og hefur Vilhjálmur ekki fund- izt þrátt fyrir mikla leit í Vest- mannaeyjum þá um kvöldið, í fyrradag og í gær. Er Vilhjálm- ur talinn af. Á miðvikudagskvöldið var þeg- ar hafin leit að Vilhjálmi og léit- að fram á nótt án árangurs. 1 fgrradag 0g í gær var leitað um. Heimaey og meðfram sjónum, og ennfremur leituðu froskmenn í höfninni báða dagana. Leitin hef- ur ekki borið árangur, og er Vil- hjálmur talinn af. Vilhjálmur Guðmundsson var 65 ára að aldri. Hann lætur eftir sig ltenu og uppkomin börn. Tvennf siasasf í árekstrl Akranesi, 29. sept. KLUKKAN að ganga 11 í gær- morgun var geysiharður bíla- árekstur í góðu veðri á þjóð- veginum í Leirársveit, vestan við túnið á Beitistöðum. i Vörubíll ók norður veginn, en suður veginn kom fólksbíllinn 'ÞOKVALÐUR Axelsson sýnirj ■ blaðamönnum hvernig hægt* er að láta sig fljóta í makind- ;um. Hann er ekki búinn aðf setja á sig lofttæki, sundfitj eða blýbelti. Sjá bls. 23. Áfengi stolið hjá ÁTVR ER starfsmenn útsölu Áfengis- verzlunar rikisins við Snorra- braut komu til vinnu í gærmorg- Un sáu þeir að brotizt hafði verið inn í útsöluna þá um nóttina, og stolið áfengi að verðmæti á þrett- ánda þúsund krónur. Þjófurinn hafði fyrst komizt 1 gegnum tréhlera fyrir glugga skrifstofuherbergis og í skrif- stof'uherberginu tókst honum að brjóta gat á þil, og komast þann- ig inn í sjálfa víngeymsluna, þar sem mikið magn áfengis var geymt. Úr geymslunni stal þjófurinn allmöigum flöskum af skozku viskíi, Johnny Walker Black Label. en hver flaska kostar um 400 krónur. Er verðmæti þýfisins á þrettánda þúsund krónur. — Þá brauzt þjófurinn einnig inn í verzlunina Kjöt og Grænmeti í sama húsi, en þar mun engu hafa verið stolið. Gunnar Gunnarsson fær rúmlega 300.000,- krónur ísland vann Danmörku TORQUAY, 29. sept.: — ís-1 land vann Danmörk í 8. um- ferð á EvrópumeistaramótinU' í bridge með 6:0 (122:80, í hálfleik 60:42). Sviss vann ír- land 6:0, Frakkland vann Spán' 6:0, England vann Ítalíu 6:0, Noregur vann Finnland 6:0, Þýzkaland vann Líbanon 6:0 og Egyptaland vann HoIIand 6:0. — Staðan eftir 8. umferð er þessi: — 1. England 48 stig; 2. Danmörk 38; 3. Sviss 36; 4. Noregur 35; 5. ftalía 33; 6.—7 ísland og Frakkland 30; 8. Þýzkaland 28; 9. Spánn 25;' 10,—11. Holland og Egypta- " land 24; 12.13. Svíþjóð og Belgía 21; 14. írland 13; 15. 'Finnland 5, og 16. Líbanon 3 'stig. — Axel. : Kaupmannahöfn, 29. sept. Einkaskeyti frá Páli Jónssyni. EINS og skýrt var frá í gær var þá kveðinn upp dómur í máli lögfræðingsins Per Finn Jacobsens. Var hann dæmd- ur til þriggja ára fangelsis- vistar og sviptur lögfræðings réttindum ævilangt. í forsendum dómsins segir að Jacobsen hafi m.a. gerzt sekur um fjárdrátt gagnvart Halldóri Kiljan Laxness og Gunnari Gunnarssyni, en hann var umboðsmaður rit- höfundanna. Jacobsen tók í óleyfi út og eyddi rúmlega 42.000,00 d. kr. (rúmL 260.000,00 ísl. kr.) af inneign Halldórs Kiljans Lax- ness og seldi í óleyfi veðbréf að upphæð d. kr. 39.000,00 (rúml. 240.000,00 ísl. kr.), sem Gunnar Gunnarsson átti. Veðbréfið hafði Jacobsen áður keypt af útgáfu- fyrirfækinu Gyldendal fyrir hönd Gunnars. í dómi, sem kveðinn var upp i yfirréttinum í Kaupmanna- höfn, er víxlarafyrirtækinu Mor ville gert að skila aftur veð- bréfunum, sem það keypti af Jacobsen. Segir í dómnum að Jacobsen hafi ekki haft heim- ild til að selja bréfin, heldur hafi verið ákveðið að þau skyldu lögð í banka. Þegar Morville keypti bréfin voru þau undirrituð af Jacobsen með tilvísun í sérstakt umboð frá Gunnari, sem ekki var til. — Ráðist á stúlku / í Vcstmannaeyjum AÐFARANÓTT miðvikudagsins 20. sept. sl. var framin árás á stúlku í Vestmannaeyjúm Og henni veittir allmiklir líkamsá- verkar og grunur leikur á að um nauðgunartilraun hafi verið að ræða samfara árásinnL Málið hef ur verið í rannsókn, Og er frum- rannsókn í þann veg að ljúka. Ofbeldismaðurinn hefur setið í gæzluvarðhaldi í viku en hefur nú verið látinn laus. Er hér um að ræða ungan aðkomumann. Lögfræðingur Gunnars Gunn- arssonar, Fabritius Tengnagel, hélt því fram að Morville bæri skylda til að afhenda bréfin þar sem farizt hafði fyrir að krefjast þess að umboð Jacob- sens yrði lagt fram við kaupin. 1 dómi yfirréttarins segir að úr því Jacobsen hafði ekki heimild til að selja og víxlara- fyrirtækið sýndi ekki þá var- færni, sem fyrirskipuð er í skuldabréfalögum, beri að af- henda Gunnari Gunnarssyni aft- ur bréfin. Auk þess fær Gunn- ar Gunnarsson greiddar d. kr. 6.990,00 í vexti og d. kr. 3.300,- 00 í málskostnað — Alls fær Gunnar Gunnarsson því sem svarar rúmlega 310.000,00 ísl.- kr. — VnrðbergsSundur um íslund og vestrænu snmvinnn Varðarkaffi í Valhöll í dag kl. 3-5 síðd. VARÐBERG, hið nýstofnaða fé- lag ungra áhugamanna um vest- ræna samvinnu, efnir til félags- fundar í Tjarnarcafé næstkom- andi þriðjudagskvöld kl. hálfníu. Kvennadeild SVFÍ bárnst 30 þus. kr. NÝLEGA færði Kvennadeild ÍSlysavarnafélagsins í Reykja- vík Slysavarnafélagi íslands kr. 30.000,00 til greiðslu á björgunarkennslutækjum, sem félagið er í þann veginn að taka í notkun. Hefur Kvenna- deildin áður á þessu ári fært, félaginu kr. 130.000.00 til starf ,semi sinnar, og með þessum framlögum enn á ný sýnt að Íhún er ein af styrkustu stoð- um slysavarnastarfsins í land- Fundarefni verður „ísland og vestræn samvinna“. Framsögu- menn verða: Emil Jónsson, ráðherra, Jóhann. Hafstein, ráðherra, Ólafur Jóhannesson, þingmaður Að ræðum framsögumanna loknum verða frjálsar umræður. Félagsmönnum er heimilt að taka með sér gesti á fund þennan, sem ekki er að efa, að verði mjög fjöl- sóttur. Fulftrúaráð Keimdallar FULLTRÚARÁÖ Heim- dallar FUS heldur fund í dag, laugardag, klukkan 2:30 e. h. í Valhöll við Suðurgötu. R-11062. Fólksbíllinn R-2968 fylgdi fast á eftir vörubílnum og ætlaði að skjótast fram með honum, en ók þá beint í flasið á R-11062, sem var að koma frá Hvanneyri með einn .farþega, frú Rögnu Einarsdóttur. Skullu bílarnir svo fast saman að þeir eru taldir ónýtir. Bílstjórana sakaði hvorugan, en frú Ragna hlaut meiðsli, skarst m.a. á enni. Farþeginn í hinum bílnum, } firverkfræðingur Vegagerðar ríkisins, Árni Pálsson, skarst 1 andilti. —^ Sjúkrabílinn sótti þau, sem slasazt höfðu og flutti hingað. Liggur frú Ragna í sjúkrahúsinu og bíður frekari rannsóknar, en líður sæmilega, sagði Bragi Níelsson læknir. — Árni Pálsson hvarf heim er gert hafði verið að sárum hans. —■ Oddur. Norrænu listsýn- ingunni lýkur á sunnudag NORRÆNU listsýningunni, sem staðið hefur yfir að undan- förnu, lýkur á sunnudagskvöld. Sýningin er bæði í Listasafni ríkjsins og Listamannask&lan- um. — Á 3. þúsund, manns hafa nú þegar séð sýninguna og nokk- ur verk selzt. Norræna listsýningin er ann- að hvert ár á Norðurlöndunum til skiptis. Næsta sýning verður því hér að 10 árum liðnum. BINGÓ-KVÖLD verður haldið af Heim dalli F.U.S. næstkomandi sunnudag i Sjálfstæðishúsinu og hefst það stundvislega kl. 8:30 e.h. Jörgensen kemur til Islands JÖRGEN Jörgensen, fyrrver- andi menntamálaráðherra Dan- merkur, og frú hans, koma til íslands 5. október nk. í boði ríkisstjórnar íslands og munu dveljast hér til 10. sama mán- aðar. — (Frá menntamálaráðu- neytinu).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.