Morgunblaðið - 30.09.1961, Qupperneq 15
Laugardagur 30. sept. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
15
— Fóstbræður
Frh. af bls. 10.
Inn lítur það alls ekki út fyrir
að vera svo nýtt. Og skrýtið var
að koma í póstafgreiðslu þessa
xnikla hotels. Þar sátu tvær stúlk-
ur við afgreiðslu —- og hafði önn-
ur handarhaldslausan bolla fyrir
peningakassa, en hin lok af skó-
kassa. Svo gekk þeim ákaflega
treglega að gefa til baka úr þess-
um furðulegu „bönkum" sínum.
Það er óneitanlega margt.aust-
ur í henni Rússíá, sem manni
ikom dálítið spánskt fyrir sjónir.
Eitt af því er fréttaflutningur-
inn, eða öllu heldur skorturinn á
fréttum. Þannig var t.d. eina blað
ið á ensku, sem virtist fáanlegt,
|>ar sem við fórum um, hið
torezka kommúnistablað „Daily
Worker“. — í Leningrad frétt-
um við hið sviplega fráfall Dags
Hammarskjölds í fréttasendingu
„Voice of America“ frá Saloniki
í Grikklandi (sem heyrðist reynd
ar allvel) — og sömuleiðis um
allar atómsprengjutilraunirnar.
sem engin rússnesk fréttaþjón-
usta sagði frá. Gat ég nú frætt
rússnesku túlkana okkar um,
hvað væri að gerást í þeim efn-
um. Því var engu svarað.
— Lenirrgrad er falleg borg —
er það ekki?
— Jú, falleg borg og gömul,
með breiðum strætum, en bíla-
umferðin ótrúlega lítil. — Þar
hlýddum við á frábæran
blandaðan kór, Háskólakórinn.
Meðal annars flutti hann hinn
fræga Lofsöng Beethovens („Þitt
lof, ó drottinn"). En túlkurinn
kynnti: „Beethoven — Song
about Nature“!
Svo kom það býsna skringi-
lega ' við okkur, hve fólk
virtist ákaft í að kaupa utan af
okkur fötin — og líka voru menn
mjög kaupfúsir á tyggigúmmí,
vildu gjarna kaupa 5 plötur fyr-
ir 1—2 rúblur (rúblan gildir nú
nær 48 krónur ísl.) — Það er
e.t.v. ekki svo undarlegt. þótt
Rússarnir hefðu ágirnd á fötun-|
um okkar, því að fátt sáum við(
fatnaðar, sem okkur fýsti að,
kaupa — 160 rúblur kostuðu t.d.
föt, sem enginn okkar hefði vilj-
að kaupa fyrir fjórðung þess
verðs. — Eitt get ég sagt þér
enn, sem kom mér spánskt fyr-
ir sjónir. í Riga, sem er 660 þús.
manna borg. tjáði fulltrúi mennta
málaráðuneytisins okkur með
miklu stolti, að þar hefðu verið
byggðar 1900 íbúðir sl. ár. Mér
varð hugsað til þess að það myndi
líklega ekki þykja neitt til að
halda á loft í Reykjavrk, ef hún
væri orðin 8—9 sinnum stærri
en hún er.
— En maður á ekki að dvelja
svo mjög við svona hluti, sagði
Ágúst, því að flest, sem að okk-
ur sneri var með hinum mesta
myndarbrag. — Minnist ég sér-
staklega ballett-sýninga í Bolsjoi
leikhúsinu í Moskvu og í Lenin-
grad, þar sem við sáum Svana-
vatn Tsjaikovskís. Þá var stór-
kostlegt að skoða Vetrarhöllina
í Leningrad — hefi ég tæpast séð
neitt jafnstórfenglegt. — Meðan
við dvöldumst í borginni, bjugg-
um við í gistihúsi við torgið,
þar sem hin mikla og fræga ís-
aks-kirkja stendur. Hún er nú
safnhús, eins og fjölmargar aðr-
ar kirkjur í Sovétríkjunum í
dag. Ég hjó sérstaklega eftir því,
að þegar inn er gengið, blasir við
risastór mynd af — ja, hverjum
nema Gagarín!
Mig langar til að koma því
hér að, sagði Ágúst, hve frábærr-
ar gestrisni við kórmenn nutum
hjá dr. Kristni Guðmundssyni,
sendiherra í Moskvu, og konu
hans, og Ingva Ingvarssyni. sendi
ráðsritara, og frú hans — en
Ingvi var félagi okkar og sér-
stakur fararstjóri kórsins í Sovét
ríkjunum, til þess skipaður af
utanríkisráðuneytinu. — í veizlu
hjá sendiherrahjónunum hittum
við marga fræga rússneska lista-
menn. Þar hittum við einnig
„undrabarnið“ okkar, hana Þór-
unni Jóhannsdóttur, sem gift er
ungum rússneskum pianóleikara,
eins og kunnugt er — Vladimir
Ashkinazy. Hann er nú talinn
einhver hinn efnilegasti af ung-
um píanóleikurum Sovétríkj-
anna. Þórunn lét í ljós mikinn
áhuga á, að þau hjón kæmu hing-
að heim -til hljómleikahalds, ef
tækifæri gæfist.
— En hvað um Finnland?
— Þar var stórkostlegt að'
koma. Songbræður okkar í
„Muntre Musikanter" höfðu bú-
ið okkur slíkar glæsimóttökur,
að við urðum að draga úr þeim
söngsins vegna. — Já, það var
eins og að koma heim (þar er
ekki um neinar ýkjur að ræða),
og'við eignuðumst þar vini, sem
aldrei gleymast.
— Rússarnir vorú frábærlega
gestrisnir líka — en á allt
annan hátt. Þar var allt
meira framandi. Þrátt fyrir allt,
itm fyrir okkur var gert í Sovét-
ríkjunum, fundum við þar ekki
til þeirrar tilfinningar — eins og
í Finnlandi — að við værum
heima hjá okkur. Og satt að
segja finn ég nú betur en nokkru
sinni — eftir Garðaríkis-reisuna
— hve gott er, að forsjónin hefir
skákað mér niður hér. í minni
gömlu og góðu Reykjavík.
HPINGUNUM.
Qjgu'iftóuiCO
Ít KVÖLD kynnir Hallbjörg*4;
ungan sjómann, sem syngur í
fyrsta sinn á hljómleikum.'
Hann heitir Kristján Már og
er bróðir Hallbjargar. Hugur'
Íhans stóð snemma til söngs,
en hann varð að vinna fyrir
sér og 15 ára gamall fór hann'
á sjóinn og átti því fá tæki-
færi til að sækja hljómleika'
leða stunda söng. Kristján gat
að þessu sinni sótt hljómleika,
systur sinnar og varð fagnað-
arfundur hjá þeim systkinum.
JEr Hallbjörg heyrði bróður
sinn syngja ákvað hún að gefa
honum tækifæri til að koma.
fram opinberlega.
Á
N&o
llJVYU/
óáí udiftLL
DAGLE6K
Vegna breytinga
á verkstæði mínu, eru ýmis konar trésmíðavélar
til sölu.
BJÖRN ÓLAFSSON
Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði — Sími 50174.
Bókhald — SuBurnes
Get tekið að mér bókhald fyrir útgerðarmenn og
fyrirtæki. Uppl. í síma: 7532 Sandgerði.
— Verblagsgrund-
völlurinn
vöruverði til bænda verður ekkl
helmingur þeirra hækkunar, sem
orðið hefði, ef rökstuddar til-
lögur fulltrúa framleiðenda í sex
manna nefnd hefðu fengið að
standa.
Með skírskotun til framanrit-
aðrar gagnrýni framieiðsluráðs á
því að gengið hefur verið í veru-
legum atriðum geg„ rökum full-
trúa þéss í sex manna nefnd og
yfirnefnd um breytingar á verð-
’agsgrundvellinum til leiðrétting
ar fyrir bændur, þá skorar fram-
leiðsluráð á meirihluta yfirnefnd
ar að taka þessi rök til athug-
unar að nýju og væntir þess, að
sú athugun gæti leitt til þess. að
réttur yrði hlutur bænda í þessu
efni.
Sverrir Gíslason
Einar Ólafsson
Páll Metúsalemsson
Helgi Pétursson
Bjarni Bjarnason
Bjarni Halldórsson
Pétur Ottesen
Jónas Kristjánsson.“
Framhald af bls. 10.
2) Þá höfðu fulltrúar fram'
leiðenda lágt til að ull á fóðraða
kind yrði reiknuð 1,7 kg. Er það
byggt á þriggja ára athugun á
því ullarmagni, sem fram kem-
ur til sölu. er sýndi 1,6—1,7 kg
á fóðraða kind. Heimanotkun á
ull er sára lítil nú orðið. Þetta
ullarmagn hækkaði meirihluti
yfirnefndar upp í 2 kg á fóðraða
kind, eins og það raunar var
áður, en var lengi búið að sýna
sig. að vera of mikið. Auk þess
ákvað meirihluti yfirnefndar
hærra verð á ull inn í grundvöll-
inn heldur en aðal útflytjandi
ullar taldi skynsamlegt að gera,
sem veldur verðlækkun á öðrum
afurðum.
3) Fulltrúar framleiðenda
höfðu lagt til að kartöflur í grund
vellinum væru áætlaðar 10 tunn-
ur á bónda að meðaltali. Úrtak
hagstofustjóra yfir venjuleg bú,
sem ekki væru á neinn hátt af-
brigðileg, sýndi ,að kartöflumagn
ið var ekki nema 5 tunnur á bú
að meðaltali. Þetta færði meiri
hluti yfirnefndar upp i 15 tunn-
ur. s
4) Áður nefnt úrtak hagstofu-
stjóra sýnir, að aukabúgreinar
hafa ekki reynzt nema kr. 2.718,
00 á bónda og það lögðu full-
trúar framleiðenda í sex manna
nefnd til að sett væri inn í grund
völlinn. Þessa upphæð hækkaði
meirihluti yfirnefndar upp í kr.
10,900,00. Verður ekki á neinn
hátt séð, hvað ræður slíkum
vinnubrögðum.
Þær breytingar, sem meirihluti
yfirnefndar hefur gert á grund-
vellinum frá því sem fulltrúar
framleiðenda í sex manna nefnd
höfðu lagt til, valda því, að nið-
urstöðutölur grundvallarins
lækka úr kr. 200,334,00 í kr. 186.
890,00, eða um kr. 13,444,00. Auk
þess kemur svo aukning meiri-
hluta yfirnefndar á sauðfjáraf-
urðum, kartöflum og aukabú-
greinum, sem allt veldur lækk-
un á afurðaverði.
Niðurstaðan verður sú, eftir
meðferð meirihluta yfirnefndar á
grundvellinum ,að hækkun á bú-
Næsta dag, 23. sept., barst
framleiðsluráði svar yfirnefndar,
sem er á þessa leið:
„Á fundi yfirnefndar í dag var
lagt fram bréf frámleiðsluráðs,
dags. 22. þ.m., þar sem borin er
fram gagnrýni á ákvörðun yfir-
nefndar á nokkrum liðum verð-
lagsgrundvallar landbúnaðarvara
1961—62, og í því sambandi skor-
ar ráðið á meirihluta yfirnefnd-
ar að taka til athugunar á ný
þá liði, sem það telur ekki rétt
ákveðna af yfirnefnd.
Oddamaður yfirnefndar lét
bóka eftirfarandi ? tilefni af er-
indi framleiðsluráðs:
„Með því að ákvörðun yfir-
nefndar á verðlagsgrundvelli
1961—62 er tvímælalaust endan-
leg og óafturkallanleg, getur að
mínum dómi ekki komið til
greina að verða við þeirri áskor-
un framleiðsluráðs að taka til at.
hugunar að nýju þá liði, sem ráð-
ið telur ekki rétt ákveðna af
yfirnefnd."
Fulltrúi neytendahluta sex
manna nefndar í yfirnefnd lýsti
því yfir, að hann væri sammála
þessari bókun oddamanns.
Þetta tilkynnist yður hér með.
Fyrir hönd yfirnefndar:
Klemenz Tryggvason.**
Um dreifingar- og vinnslu-
kostnað á mjólk og mjólkurvör-
um varð að lokum samkomulag
i sex manna nefnd og einnig um
slátrunar-heildsölu og dreifingar-
kostnað sauðfjárafurða. Ennfrem
ur um dreifingarkostnað ann-
arra landbúnaðarvara. Kom
því ekki til úrskurðar yfir-
nefndar um þau atriði. En
þuð skal fram tekið að ekki tókst
að framfylgja tillögum fram-
leiðsluráðs um tilfærslu á verði
frá mjólkurafurðum til sauðfjár-
afurða, nema að hálfu leyti. Má
í því sambandi nefna, að verð til
bænda á mjólk hækkar frá því í
fyrra úr kr. 4,18 í kr. 4,71 á kg
eða um 12,7%, og I. verðflokkur
dilkakjöts úr kr. 19,69 í kr. 23,05
á kg, eða um 17,06%. Grundvall-
arhækkunin er að meðaltali um
14,5%.
1. OKTÓBER.
1. O K T Ó B E R.
Fyrsta
• •
BIIMGO —KVOLD
Heimdallar, F.U.S., verður í Sjáífstæðishúsinu su nnudaginn 1. október kl. 20,30 stundvíslega.
Marffir ffiæsiie-ír vinninffar, m. a.: Skriíbori, rafmagnsrakvél, gólflampi, greiðslusloppur o.fl.
DANSAÐ Á EFTIR Aðfföngumiðar afhentir í skrifstofu Sjálfstæðisfl okksins frá kl. 9—12 í dag.
ÓKEYPIS AÐGANGUR. Heimdallur, F. U . S.
1. OKTÓBER. 1. OKTÓBER.