Morgunblaðið - 18.04.1964, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.04.1964, Blaðsíða 21
1 Laug'ardaeur 18. apríl 1964 Mr**GUNBLA&IÐ Smíði Aswan-stíflunnar i ánnl Níl miðar vel áfram, og hinn 15. maí nk. verða mikil hátiða- höld í Egyptalandi. Nasser for- seti hefur boðið Krúsjeff for- 'sætisráðherra að koma til há- tíðarinnar, en þennan dag verð ur stórfljótinu veitt í nýjan far- veg, svo að unnt verði að ljúka við fyrstu stífluna. Munu þeir Krúsjeff og Nasser hvor um sig stjórna síðustu sprengingun um, sem opna ánni nýja far- veginn. Rússar hafa til þessa veitt Egyptum um 12 þúsund milljón króna styrk til smíð- innar, auk þess sem þeir hafa útvegað allar teikningar og sent mikinn fjölda sérfræðinga til að hafa umsjón með verk- inu. Meðfylgjandi mynd er ný og sýnir mannvirkin eins og þau eru. Fullgerð verður stífl- an 17 sinnum stærri en stærstu pýramídar Egypta , ímsir Bandaríkjamcnn hafa lagt sig fram i baráttunni fyrir jafnrétti kynþáttanna þar í landi, og margt hefur verið gert til að benda almenningi á nauðsyn þess að afnema allt misrétti. Ekki eru þó allir jafn öfgafengnir I baráttunni og presturinn Bruce Klunder. Farin var kröfuganga í borg- inni Cleveland, Ohio, nýlega, og tók Klunder þátt í henni. Var komið að stað þar sem verið var að vinna að nýrri skólabyggingu. Skyndilega tók Klunder sig út úr göngunni og varpaði sér fyrir ( jarðýtu. Beið hann að sjálfsögðu þegar ban.a Þótt undarlegt megi virðast slapp ökumaðurinn á kappakstursbíl númer 8 ómeiddur út úr fluginu. Mynd þessi var tekin á Eldora-brautinni í Florida rétt áður en nr. 8 lenti með braki og brestum á hvolfi á brautinni. En bílstjórinn, Bud Tingelstad, gekk ómeiddur á brott. Þegar Nikita Krúsjeff forsætis- ráðherra var nýlega í heim- sókn j Ungverjalandi, var hon- um gefinn forláta hestvagn. — Var mynd þessi tekin þegar Krúsjeff var að fara í reynslu- ferð í nýja farartækinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.