Morgunblaðið - 19.11.1964, Page 1

Morgunblaðið - 19.11.1964, Page 1
28 síður p® USA leggur niður 95 herbækistöðvar í Ameríku og Evropu 1 gær strandaði Bára KE 3 á Öndverðarnesi, fremst á Snæfellsnesi. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir tókst ekki að ná bátnum út og er hann nú að malast við klettana, eins og myndin sýnir. — Skipverjar gátu stigið á land úr stefni bátsins. Sjá nánar á baksíðu. Washington, 18. nóv. (NTB) ROBERT McNamara, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi með fréttamönn um í dag, að Bandaríkjamenn hefðu ákveðið að leggja nið- ur 95 hernaðarlegar hæki- stöðvar í Anteríku og Evrópu. Væru bækistöðvar þessar annaðhvort úreltar eða þeim væri ofaukið. Lagði ráðherr- ann áherzlu á, að þessi á- kvörðun myndi ekki veikja varnir Bandaríkjanna. — En sparnaður vegna hennar myndi nema um 500 milljón- um dollara (rúml. 20 milljarð- ar ísl. kr.) McNamara sagði, að nokkrar hernaðarbækistöðvanna, sem leggja ætti niður, væru í fimm Evrópulöndum, en ekki væri unnt að skýra frá hvaða lönd það væru fyrr en lokið væri viðræð- um við ríkisstjórnir viðkomandi landa. Hins vegar kvaðst hann skýra frá því á morgun, fimmtu- dag, hvaða bækistöðvar í Banda- ríkjunum yrðu lagðar niður. — Bækistöðvarnar, sem um væru að ræða væru flugvellir, vopna- búr flughersins og landhersins og nokkrar skipasmíðastöðvar. McNamara sagði, að Banda- ríkjamenn hefðu gripið til slíkra aðgerða áður og samtals myndi sparnaðurinn nema milljarði dollara (um 43 milljörðum ísl. kr.), þegar núverandi áætlun kæmi til framkvæmda. Isfendingar greiddu ekki at- kvæði um kjarnorkuflota NATO Norðurlönd tóku ekki þátt í umræðunum í stjórnmálanefndinni París, 18. nóv. (NTB) NEFNDARSTÖRFUM var haldið áfram á ráðstefnu þing manna Atlantshafsbandalags- ríkjanna í París í dag. Stjórn- málanefndin samdi ályktunar liilögu um hinn fyrirhugaða kjarnorkuflota bandalagsins og verður hún lögð fyrir alls- herjarfund þingmannanna á morgun. Herma fregnir, að í tillögunni sé skorað á öll lönd Allantshafsbandalagsins, að rannsaka möguleika á hag- kvæmri lausn vandamálanna varðandi stofnun kjarnorku- flotans. Fulltrúar Noregs, Dan- merkur og íslands í stjórn- málanefndinni tóku ekki þátt f umræðunum um kjarnorku- flotann ög greiddu ekki atkvæði um ályktunartillög- nna. Fregnir herma, að tillagan sé fyrst og fremst stjórnmála- legs eðlis, en í henni sé ekki f jallað um tæknileg eða hern- aðarleg atriði. Fréttamaður NTB hefur það eftir norskum heimildum í París, að tillagan sé þannig úr garði gerð, að bæði þeir, sem hlynntir séu sameiginlegum kjarnorkuher og andvígir hon- um, geti samþykkt hana. Ljóst sé, að ekki hafi verið unnt að taka afstöðu til hernaðarlegra vandamála, þar sem ekki séu fyr ir hendi endanlegar áætlanir um kjarnorkuherinn. Upprunalega áætlunin um kjarnorkuflota með 25 skipum sé úrelt. Norskar heimildir segja, að mjög mikilvæg sé tillaga, sem samþykkt var í hermálanefnd þingmannafundarins um hinn hreyfanlega herafla NATO. — f tillögunni eru öll aðildarríki hvött til að vinna að uppbygg- ingu heraflans, sem oft hefur verið nefndur slökkvilið NATO. Þess er farið á leit við aðildar- ríkin, að þau láti herliðinu í té hermenn, flutningatæki eða fjár- hagsaðstoð. IVIaðurinn í kassanum njósnari Egyptunum vísað úr landi Róm, 18. nóv. (NTB): — • Lögreglan í Róm skýrði frá því í kvöld, að enginn vafi léki á því, að maðurinn, sem tveir Egyptar ætluðu að senda úr landi í kkssa í gærkvöldi, hefði verið flæktur í njósna- starfsemi. • Lögreglustjórinn í Róm, Nicola Scire, skýrði frá þessu og upplýsti einnig, að maður inn, sem í gær kvaðst heita Joseph Dahan, hefði logið til nafns. En ekki væri unnt að gefa upp hið rétta nafn hans að svo stöddu. • Fregnir í dag hermdu, að maðurinn í kassanum hefði njósnað bæði fyrir fsrael og Egyptaland. og samkvæmt heimildum frönsku fréttastof- unnar AFP, sagði hann lög- reglunni í Róm, að hann hefði komizt að mikilvægum leynd armálum, er hann starfaði um tíma við egypzka sendiráðið í Róm. • Egypzku sendiráðsstarfs- mönnunum tveimur, sem komu með kassann á flugvöll inn i gærkvöldi, og Iögreglan handtók, hefur nú verið vísað úr landi. Héldu þeir héimleið- is í dag. Talsmaður lögreglunnar 1 Tel-Aviv, skýrði frá því í k'völd, að Joseph Dehan væri sennilega sami maðurinn og Framhald á bls. 27 Mikil mannaskipti í vændum innan kommúnistaflokks Sovétríkjanna Moskvu, 18. nóv. (NTB) 0 Erlendir fréttamenn í Moskvu segja, að mikil mannaskipti séu nú í vændum innan kommúnista- flokks Sovétríkjanna. Sé það Nikolay Podgorny, einn af með- limum æðstaráðsins, sem skipa muni nýja menn í æðstu embætti flokksins í hinum ýmsu héruð- um Sovétríkjanna. • A fundi miðstjórnar sovézka kommúnistaflokksins á mánu- daginn var ákveðið, að í næsta mánuði skyldu valdir nýir for- menn flokksins í 73 mikilvæg- ustu héruðum Sovétríkjanna, og talið er, að Podgorny hafi val þeirra með höndum. 0 Fréttamenn telja, að Podgorny sé nú næst valdamestur innan kommúnistaflokksins, en valda- mestur sé Leonid Breznev, aðal- ritari hans. Frá falli Krúsjeffs hefur verið orðrómur á kreiki um að Pod- gorny væri á hraðri uppleið inn- an kommúnistaflokksins. Fékkst það staðfest, þegar spurðist, að hann hefði lagt fram skýrslu um skipulaigsmál á fundi miðstjórn- arinnar á mánudaginn. Frétta- menn segja, að Podgorny sé nú yfirmaður skipulagsdeildar flokksins, en hún hefur eftirlit með hinum ýmsu flokksdeildum um ailt landið, og yfirmaður hennar fjallar um spjaldskrána yfir flokksmenn, sem varðveitt er í Kreml. Þrjá síðustu mánuð- ina, sem Krúsjeff var við völd, gegndi Breznev þessu embætti, og hefur alltaf verið talið, að sá sem það gerði hefði lykilaðstöðu í sovézkum stjórnmálum. Það er á grundvelli áður- nefndar spjaldskrár, sem flokkS' Framhaid á bls. 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.