Morgunblaðið - 19.11.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.11.1964, Blaðsíða 16
16 MORGU N BLAOIÐ Mmmtuðagur 19. nóv. 1964 Það er ekki vandséð hvaðan Jélabæktirnar koma í ár stórkostiegar bækur „MÆLT MÁL“ hið gagnmerka og skemmtilega ritsafn Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, sem þér áttuð að fá í jólagjöf í fyrra, en stöðv- aðist í verkfallinu, er nú komin í bókabúðir um allt land. Jólabók við allra hæfi. Ný KJARVALSBÓK fögur málverkabók, 75 teikningar þar á meðal fjöldi teikninga af vinum listamannsins frá ýmsum timum. 25 málverka- heilsíður í litum, 6 yfir heila opnu, yfirlit yfir listsköpun meistarans í'60 ár. Jafnframt er bókin snilldarlega vel skrifuð ævisaga meistarans, þar sem höfundurinn, Thor Vilhjálmsson, fylgir honum og segir sögu hans, frá því hann fór lítill drengur úr föðurhúsum og til síðustu ára. Snilidarverk og hin fegursta jólagjöf. BLÖNDALS málverkabók, ævisöguþættir á fjórum tungumáium eftir Tómas Guðmundsson, Eggert Stefáns son Kristján Karlsson og Rík- harð Jónsson. Stærsta mál- verkabókin sem forlagið hefir gefið út. 50 heilsiðulitmyndir auk teikninga. Dýrasta bók sem hér hefir verið gefin út. RITSAFN STEINS STEINAR, öll ljóð skáldsins, sem út komu í sex kvæðabókum, og 40 kvæði sem aldrei áður hafa komið út og ennfremur Hlíðar-Jóns rímur, 35 erindi. Ennfremur allt er skáldið ritaði í lausu máli. Kvæða- safn og greinar Steins Stein- ars með ritgerð Kristjáns Karlssonar er einn af aðal- bókmenntaviðburðum ársins. Tvær HALLDÓRS LAXNESS bækur koma næstu daga, hin fyrri, fyrsta skáldsaga höf- undar, er út kom -fyrir hálfri öld, Barn náttúrunnar, skáld- saga er mun hrífa æskuna í dag eins og frostaveturinn 1918, er hún yljaði fólki, svo um munaði. Barn náttúrunn- ar kemur út á morgun. „SJÖSTAFAKVERIÐ" er nafn á nýrri bók eftir Hall- dór Laxness er út kemur í lok næstu viku. Eru það sjö sögur, og þarf ekki að hika við að fullyrða að það sé bók- menntaviðburður ársins númer eitt. Mætti 1 sagna- safninu nefna sérstaklega tvær sÖgur, Kórvilla á Vest- fjörðum og Jón í Brauðhús- um, er taka fram Öllu, sem skáldið hefir áður skrifað. Þá er komin ný útgáfa af Reisu- bókarkorni Halldórs Laxness fyrir nokkru i mjög litlu upp lagi. HELGAFELL, Unuhúsi, Veghúsastíg 7 Hreinn Sigurvinsson frá Sæbóli á Ingjaldssandi Fæddur 17. apríl 1946, fórst með vb. Mumma ÍS 366, 10. október 1964. Hann lék sér í bernsku við sól- gullinn sæ, um sandinn lágu hans spor. Skipin hans flutu í blíðasta blæ, búin til ferðar hvert vor: Sum voru hvít og sum voru blá, en seglin úr Ijósri voð. Fullhugans djörfung og far- mannsins þrá fagnaði sérhverri gnoð. Sumarhlýr andblær við salta strönd, söng honum vögguijóð með kufung og skeljar í krepptri hönd, og kvöldskinið rautt sem blóð. Svo lét hann úr höfn og í hilling- um sá, hefja sig framandi strönd. Sólþrunginn byrinn í segli við rá, söng um þau framtíðar lönd. En báran er kröpp, og blikandi haf byltist í kolsvarta dröfn. — Sérðu ekki bát koma sjónum af, siglandi byrinn í höfn? — Um blásteinda vör fellur brim- úfinn sær, NÝ HLJÓMPLATA Tvfr sprellfjörug lög — tvö falleg, róleg lög — allt ný lög — eitthvað fyrir alla. Fyrir unglingana: Vin- sælasta lagið: „Du wah diddy“ með íslenzkum texta. Fyrir Bítlaunnendur: íslenzkt Bítillag: Bítilæði. Fyrir elskendur: „Allir elska einhvern ein- hverntíma". Fyrir foreldra og börn: „Vögguvísa“. Plata, sem skemmtlr, svæfir, heillar og tryllir! Hl'óðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur NAUST NAUST NAUST ítölsk vika í NAUSTI / Italskur matur ítölsk þjóðlög r Italski söngvaiinn ENZO GACUABDI syngur en bátinn hans hvergi sér. Aldan er hnigin og útsogið þvær ekkaþungt löðrandi sker. Hreinn Sigurvinsson var kom- inn af vestfirzkum og borgfirzk- um ættum. Móðir hans er Gúðdía Guðmundsdóttir, Einarssonar bónda og refaskyttu frá Brekku á Ingjaldssandi, en Guðmundur var ættaður úr Borgarfirði. Móð- ir Guðdísar er Guðrún Magnús- dóttir frá Tungufelli í Lunda- reykjadal. Faðrir Hreins er Sig- urvin Guðmundsson, Guðmunas- sonar, Jónssonar frá Seljalandi í Álftafirði við ísafjarðardjúp. Móðir Sigurvins er Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Arnarstapa á Snæfellsnesi. Hreinn var elztur af fimm systkinum og ólst upp í foreldfa- húsum. Hann var bráðþroska, mikiíl að vallarsýn og vörpuleg- ur. Hann var góðlyndur og glað- lyndur og búinn miklum skap- gæðum. Hann unni heimili sínu, foreldrum og systkinum, svo að til fyrirmyndar var, og kom það m.a. fram í margháttuðum stuðn- ingi og tillitssemi eftir að hann fór að heiman, en sjómennskan og hafið áttu hug hans allan, og hann hafði, þótt ungur væri, ver- ið á verðtíð í Vestmannaeyjum og víðar. Hann hafði þegar verið á strandferðaskipum og milli- landaskipum, og siglt um fjarlæg lönd og álfur. Markmið hans var Sjómannaskólinn, og var hann á- kveðinn í því að setjast í hann við fyrsta tækifæri, en enginn má slcöpum renna. Hreinn er aðeins 18 ára óharðn aður unglingur þegar hann lætur líf sitt við fiskveiðar á úthafinu. Æviferill hans varð ekki iangur, en þegar við lítum til baka, vin- ir hans, þökkum við þessum unga og prúða dreng, fyrir það skeið er leiðir lágu saman. Minn- ing hans er ljómuð lífskrafti og framtíðardraumum æskumanns- ins. Sár harmur er kveðinrí' að f jöl- skyldu hans, vinum og litla byggðarlaginu Ingjaldssandi, en minningin um góðan dreng og nýtan þjóðfélagsþegn lýsir gegn- um sorgina, eins og sólstafir. Sorgin er sár. Fórnin, sem færð hefur verið er stór. Missirinn er mikill. Við vottum horfnum vini virðingu, og fjölskyldu hans innilega hluttekningu og dýpstu samúð. Blessuð sé minning hans. Jón Ingiberg Bjarnason. Ingi Ingimundarson næstarettarlógmaoui Kiapparstíg íö IV hæð Simi 24753 GUSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Þórshamri við Templarasund Sími 1-11-71 .tURGIR ISL GUNNARSSON Málflutningsskrifstofa Lækjargötu 6 B. — II. hæð Benedikt Blöndal heraðsdomsiogucaður Austurstræti 3. — Sími 10223 *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.