Morgunblaðið - 19.11.1964, Qupperneq 15
Fimmtudagur 19. nóv. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
15
Washington, 10. nóv.
CM ÞESSAR mundir stendur
yfir hér í Washington sýning
á málverkum íslenzku lista-
konunnar, Ragnheiðar Jóns-
dóttur Ream. Sýningin, sem
opnuð var 1. nóv. og stendur
til 19. nóv., er í listasal Am-
erican University og hafa að
sjálfsögðu margir fslendingar
lagt leið sína þangað síðustu
daga.
I byrjun næsta mánaðar
verða málverk Ragnheiðar
flutt til Baltimore, því að 6.
des. n.k. opnar Baltimore
Museum sýningu á verkum
hennar. Lesendur Mbl. minn-
ast þess e.t.v., að Ragnheiður
tók í sumar þátt í samkeppni,
sem Baltimore Museum held-
ur árlega, í því skyni að styðja
unga listamenn. Eru valdir
þrír listamenn hverju sinni,
þeir verðlaunaðir og sýningar
haldnar á verkum þeirra.
Ragnheiður varð ein þeirra
þriggja, sem verðlaunin hlutu
í ár og eini málarinn, — hin-
ir tveir voru myndhöggvari
og grafiker.
Sýningin í American IJni-
versity er önnur einkasýning
Ragnheiðar. Hins vegar hefur
hún sýnt nokkrum sinnum á
samsýningum, m.a. á árleg-
um samsýningum Félags lista-
manna í Washington (Was-
hington Society of Artists). valdar eftir
Myndir á þær sýningar eru ár (í okt. sl.)
Ragnheiður
og Guðiaug
með nokkrura íslenzkum konum á sýningunni. Talið frá vinstri: Systurnar Anna
Jónadætur, Ólöf IVIatthíasson, Ragnheiður Jónsdóttir og Ásta Gunnarsdóttir.
samkeppni og 1
hlaut Ragnheið-
Ragnheiður Jónsdóttir á sýningu sinni.
ur verðlaun fyrir stóra lands-
lagsmynd, er hún sendi þang-
að. —
Að því er Ragnheiður sagði
mér, er ég hitti hana stundar-
korn að máli, eru oft sendar
hátt í tvö þúsund myndir í
þessa samkeppni en aðeins
u.þ.b. 100 myndir teknar.
Ragnheiður hefir einnig átt
myndir hjá Corcoran Gallery
of Art í Washington. Safnið
rekur svokallað Art Central
Gallery, þar sem fastir með-
limir geta komið og fengið
málverk leigð fyrir ákveðna
prósentu af verði þess. Kaupi
viðkomandi málverkið gengur
leigan upp í greiðslu. Ragn-
heiður hefur selt þó nnokkr-
ar myndir þannig.
— • —
Ragnheiður Jónsdóttir kom
til Washington á stríðsárun-
um til þess að vinna á skrif-
stofu íslenzka sendiráðsins.
Hún hóf þá fyrst að nema mál
aralist, — var tvö ár hjá Dante
Radice en hóf nám haustið
1954 — fyrir réttum 10 árum
— við American University.
Segist Ragnheiður aldrei hafa
málað fyrr — „ég hataði teikn
ingu í skóla“, sagði hún.
Árið 1945 giftist Ragnheiður
Donald F. Ream, eðlisfræð-
ingi, sem starfar hjá stjórn-
inni í Washington. I>au hafa
síðan búið í Maryland.
Á sýningu Ragnheiðar eru
16 olíumálverk, 8 myndir mál-
aðar með olíu á pappír og 8
teikningar, Eru teikningarnar
og mörg málverkanna fantasí-
ur byggðar á skissum, sem
Ragnheiður gerði af kletta-
veggnum í Almannagjá síðast
þegar hún var heima. Verkin
eru öll unnin á síðasta ári.
Þess má að lokum geta að
hjá Ragnheiði dveljast um
þessar mundir foreldrar henn-
ar, Sigríður Bogadóttir og
Jón Halldórsson, fyrrum söng-
stjóri Karlakórsins Fóst-
bræðra. Komu þau hjónin
hingað m.a. til þess að halda
hátíðlegt, ásamt einkadóttur-
inni og tengdasyninum, 75 ára
afmæli Jóns, sem var 2. nóv sl.
Hataði teikningu í
skóla - nú verðlaun-
uð fyrir málverk
Tíu barna- og unglinga-
bækur frá „Æskunni“
Nokkur málverk á sýningunni.
Fró Valdastöðum til Veturhúsa
BÓKAÚTGÁFA „Æskunnar“ hef
jr á þessu ári gefið út 7 bækur,
en fyrirhugað er að þær verði
ells 10 áður en árinu lýkur. Á
blaðamannafundi, sem forráða-
menn barnablaðsins „Æskunn-
er“ og bókaútgáfunnar boðuðu
til í fyrrailag, voru þessar bæk-
ur kynntar blaðamönnum. Hér
er um að ræða barna- og ungl-
ingabækur, sumar í annarri út-
gáfu.
Tvær víðkunnar sögur eftir
Charles Dickens eru meðal þess
era bóka, Oliver Twist í þýðingu
Hannesar J. Magnússonar skóla
stjóra og Davíð Copperfield í
þýðingu Sigurðar Skúlasonar
magisters. Báðar eru sögur þess
ar í annarri útgáfu, prýddar
fjölda mynda.
Klúbbfimdur
Sjálfstæðisfélag-
aima á Akureyri
KLÚBBFUNDUR Sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri, verður
haldinn í Sjálfstæðishúsinu (litla
sal) í kvöld og hefst kl. 20.30.
Dagskrá fundarins er þessi:
1) Erindi: Mannanöfn á ís-
landi, Gísli Jónsson, mennta-
skólakennari flytur.
2) Kvikmyndasýning.
i Sjálfstæðisfélögin á Akureyri
Þá er ennfremur 2. útgáfa af
Spæjurunum eftir Gunnar Nilan
í þýðingu Guðjóns Guðjónssonar
fyrrum skólastjóra. Örkin hans
Nóa eftir Walt Disney kemur nú
út í fimmtu prentun, ennfrem-
ur í þýðingu Guðjóns Guðjóns-
sonar prýdd fjölda mynda hins
heimskunna teiknara eins og
fyrri útgáfur bókarinnar.
Barnabókin Litla lambið eftir
séra Jón Kr. ísfeld hefir verið
framhaldssaga í Æskunni. Bók-
in er prýdd mörgum myndum
eftir Þórdísi Tryggvadóttur lista
konu. Bók þessi er sérstaklega
ætluð yngstu lesendunufn.
Gefin er út í annað sinn sagan
Hejtan unga eftir Herbert Strang
í þýðingu Sigurðar Skúlasonar
magisters. Bókin var áður gefin
út 1934 og þá prentuð í Ríkis-
prentsmiðjunni Gutenberg en
Litbrá hefir nú endurprentað
bókina.
I tilefni þess, að barnablaðið
Æskan er um þessar mundir 65
ára, hefir bókaútgáfa Æskunnar
gefið út eitt af verkum ind-
verska spekingsins Tagore, Móð
r og barn í þýðingu Gunnars
Dal rithöfundar. Er bókin í sér-
stakri hátíðaúlgáfu.
Allar þessar bækur að undan-
tekinni Hetjunni ungu eru prent
aðar í prentsmiðjunni Odda og
hinar smekklegustu að öllum
'oúnaði.
BÓKAÚTGÁFAN FRÓÐI hefur
sent á markaðinn þrjár bækur.
Sú stærsta heitir: Frá Valdastöð-
um til Veturhúsa. Brot úr end-
urntinningum Björns Jóhanns-
sonar, skólastjóra á Vopnafirði.
Veturhús í Jökuldalsheiði voru
Sumarhús Bjarts bónda í „Sjálf-
stæðu fólki" Laxness. Jökuldals-
heiðin er komin í auðn fyrir ára-
tugum, og mun enginn heiðar-
búa vera lífs í dag, annar en
Björn Jóhannsson.
Sagan gerist þar, sem menn
lifðu veturinn, be' " vegna
þess, að húsin von. igreist
til þess að fenna í kaf í stað
þess að fjúka. Og við bar, að
Veturhúsin sæjust hreint ekki
ofanjarðar, heldur aðeins hlemm-
urinn yfir göngunum, sem lágu
ofan i fönnina.
Bók Björns er fallega útgefin,
prýdd myndum. Hún er 223 bls.
að stærð, prentuð í Prentsmiðju
Jóns Helgasonar.
Hinar bækurnar tvær eru
barnabækur. Sú fyrri heitir
Strokudrengurinn eftir Astrid
Lindgren ag fjallar um Rasmus á
flakki með Paradísar-Óskari. —
Hún er þýdd af Jónínu Stein-
dórsdóttur. Saga þessi hlaut H. C.
Andersen verðlaunin 1958. —
Fjölmargar myndir prýða bók-
ina, sem er 240 bls. að stærð,
prentuð í Prentsmiðju Jóns
Helgasonar.
Sú síðari heitir Lísa litla 1
Ólátagerði, einnig eftir Astrid
Lindgren, þýdd af Eiríki Sig-
urðssyni, skólastjóra á AkureyrL
Bókin er ætluð telpum og drengj-
um á aldrinum 5—10 ára, og er
þriðja bókin um Lísu og félaga
hennar. Hún er 203 bls. að stærð,
prýdd mörgum myndum. Prent-
uð er bókin í Prentsmiðjunni
LEIFTRI.