Morgunblaðið - 19.11.1964, Page 17
Fimmtudagur 19. nóv. 1964
MORGUNBLADI0
17
BFO vill breytingar
á umferðarlögunum
Á meðfylg-jandi mynd, sem
sýnir, er afsal var nndirritað
til handa Landsbanka Islands,
eru talið frá vinstri: Haraldur
Jónasson í stjórn sparisjóðs-
UNDANFARBE) ÁR hafa farið
fram viðræður milli ráðamanna
Sparisjóðs Akraness og Lands-
banka íslands um að Landsbank-
in setti upp útibú á Akranesi og
tæki um leið við allri starfsemi
sparisjóðsins. Endir á viðræðum
þessum var sá, að samkomulag
var gert milli aðila, og nú um
síðastliðin mánaðamót opnaði
Landsbanki íslands útibú sitt í
húsakynnum þeim, sem Spari-
sjóður Akraness hafði áður starf-
að í.
Útibú þetta mun starfa með
svipuðum hætti og önnur útibú
Landsbankans utan Reykjavíkur,
og er afgreiðslutími þess alla
virka daga kl. 10—15, nema laug-
ardaga kl. 10—12. Auk þeirrar
starfsemi, sem sparisjóðurinn áð-
ur hafði, mun Landsbankinn
annast alls konar erlend við-
6kipti. Útibússtjóri Landsbank-
ans á Akranesi er Sveinn Elías-
son, en hann hefur verið starfs-
maður Landsbankans um árabil
og síðast verið útibússtjóri í
Reykjavík. Aðrir starfsmenn
bankans eru flestir þeir sömu og
áður störfuðu við Sparisjóð
Akraness.
Sparisjóður Akraness, sem nú
hættir störfum, var orðinn einn
stærsti sparisjóður landsins.
Hann var stofnaður 8. júní 1018
og hét þá Sparisjóður Borgar-
fjarðarsýslu. í fyrstu stjórn spari
ins, Jón Axel Pétursson banka
stjóri, Svanbjörn Frímanns-
son bankastjóri, Pétur Bene-
diktsson bankastjóri, Árni
Böðvarsson sparisjóðsstjóri,
sjóðsins voru Pétur Ottesen, Ól-
afur B. Björnsson og Árni Böðv-
arsson. Þegar Akranes fékk kaup
staðarréttindi árið 1942, var nafni
sjóðsins breytt í Sparisjóð Akra-
ness, og var Árni Böðvarsson ráð
inn sparisjóðsstjóri um það leyti.
Árni Böðvarsson hefur því verið
starfsmaður sparisjóðsis alla tíð,
nú síðastliðin 22 ár sem spari-
sjóðsstjóri. Einnig hefur hann
setið í stjórn sparisjóðsins flest
árin.
Einkaskeyti frá fréttaritara
Mbl Kaupmannahöfn 17. nóv.
• Tveir þeirra, sem sæti eiga í
þingnefndinni, er fjallar um
handritamálið hafa sent K. B.
Andersen, menntamálaráðherra
Dana, spumingalista varðandi
málið. Em það þeir Helveg
Petersen, fyrrv. menntamálaráð-
herra og Ib Thyretfod, þingmað-
ur Vinstriflokksins.
# Danska bláðið Information
kveðst þeirrar skoðunar, að
raunverulega muni prófessor
Jóni Helgasyni verða falið að
svara spurningunum. Blaðið seg-
Guðmundur Björnsson, Guð-
mundur Sveinbjömsson og
Sigurður G. Sigurðsson allir
úr stjórn sparisjóðsins.
í tilefni af opnun útibús Lands
bankans á Akranesi bauð Lands-
bankinn til hófs að Hótel Akra-
ness síðastliðinn laugardag; til-
kynnti bankinn þar gjöf til
Sjúkrahúss Akraness, kr. 100
þús., sem verja á til tækjakaupa
fyrir sjúkrahúsið, og aðra gjöf
til Dagheimilis Akraness, kr. 100
þús. Einnig tilkynnti bankinn 5
þús. króna kjöf til fyrsta barns-
ins, sem fæðist á Akranesi eftir
stofnun útibúsins.
ir, að Petersen vilji fá greinar-
góðar upplýsingar um hverjir
möguleikar séu á áframhaldandi
rannsóknum handritanna, ef þau
verða afhent og þeir, sem rann-
saka þau, hafa ekki konunglega
bókasafnið sér til stuðnings.
Einnig spyrji hann hve oft hand-
rit hafi verið lánuð úr Árna-
safni til rannsókna.
• Skýrslan um starfið
Árnasafn hefur nú sent frá
séri skýrslu um starfið í safninu
á árinu 1963. í>etta er fyrsta
raunverulega ársskýrslan, sem
safnið birtir, en ráðgert er, að
það verði gert árlega framvegis,
á afmælisdegi Árna IvXagnússonar
13. nóv. Verður skýrslan send
söfnum og vísindastofnunum,
sem vinna að samskonar rann-
sóknum qg Árnasafn.
Skýrslan, sem nú hefur verið
gefin út, er á ensku. Var hún
samin áður en frumvarpið um
afhendingu handritanna var lagt
fyrir danska þingið nú í haust.
í henni er ekki minnst á deilurn-
ar vegna væntanlegrar afhend-
ingar handritanna, en m.a. sagt
frá sýningunni, sem haldin var
í konumglega bókasafninu í til-
efni af 300 ára afmæli Árna
Magnússonar 1963. Á afmælinu
gaf safnið út 9 stór verk.
Skýrt er frá hve margir starfi
við safnið og segir, að það séu,
auk forstöðumannsins, Jóns
Helgasonar prófessors, Agnethe
Loth, háskólakennari, cand. maig.
Stefán Karlsson, aðstoðarmaður,
Bingitte Dall, sem sjái um við-
gerðir handritanna, Arne Mann
Nielsen, ljósmyndari og átta
vísindalegir ráðunautar. Einnig
starfi við safnið Gillan Fellows
Jensen, háskólakennari og sendi-
kennarinn í íslenzku við Kaup-
mannahafnarháskóla mag. art.
Jón Samsonarson.
EFTIRFARANDI tillögur voru 1
samþykktar á 4. sambandsþingi
. Bindindisfélags ökumanna 24.
j okt sl.:
Breytingar á umferðarlögTinum
Fjórða sambandsþing bindindis
félags ökumanna, haldið í Reykja
vík 24. október 1964, samþykkir
að skora á Alþingi að breyta
ákvæðum gildandi umferðarlaga
á þann vetg, að
1. Ákvæði 25. gr. umferðarlag-
anna, varðandi vínandamagn í
blóði ökumanna verði breytt
þannig, að í stað 0,50%, (pro
mille) komi 0,35%. í stað 1,20%.
komi 0,80%..
2. Það ákvæði sé sett í lögin,
að ökumönnum, sem taka gjald
fyrir akstur á fólki og/eða vör-
um, sé með öllu bannað að neyta
áfengra drykkja deyfandi og/eða
svæfandi lyfja síðustu 8 klukku-
stundirnar fyrir akstur. Sama
gildi um staðgengla þeirra.
3. Ökumönnum þeim, sem um
ræðir hér að framan, skal meðan
á starfstíma þeirra stendur, vera
með öllu óheimilt að kaupa á-
fenga drykki fyrir aðra, enda þótt
það sé gert án endurgjaldis.
4. Maður, sem tekin er fyrir
að hafa valdið umferðarbroti,
tjóni eða slysi, skal talinn hafa
ekið undir áfengisáhrifum, enda
þótt ekki náist til hans fyrr en
allt að 6 klukkustundum eftir
atburðinn, ef hann er þá undir
áhrifum áfengis.
5. Enginn, sem grunaður er
um ölvun við akstur, má neita
að láta flytja sig til læknisrann-
sóknar, eða sýna mótþróa geign
þeirri ráðstöfun.
6. Sambandsþing BPÖ telur,
að bifreiðastjórum, sem sviptir
hafa verið ökuleyfi ævilangt,
vegna ölvunar við akstur,skuli
ekki veitt ökuleyfi á ný, nema
að þeir hafi sannanlega verið
bindindismenn samfleytt 5 ár eft
ir brotið.
Tilögur um refsingar
1. Viðurlög við brotum um-
ferðarlaganna varðandi ölvun við
akstur, verði þyngd þannig, að
brot gegn 1. mgr. 25. greinar lag
anna, sbr. 3. mgr, sömu greinar,
varði ætíð sviptingu ökuleyfis
um ákveðinn tíma.
2. Hver sá, er innan 5 ára frá
fyrra broti verður sannur að
sök um ölvun við akstur, skal
sviptur ökuleyfi ævilangt.
3. Brot gegn þeim ákvæðum,
er um ræðir í tillögu nr. 2 hér
Fimmburar
fæðast í
Mozan-
bique
Lissabon, 17. nóv.
(NTB-AP)
ÍFRÉTTASTOFA í Portúgal
skýrði frá því í dag, að
blökkukona í Mozambique
hefði fætt fimmbura á mánu-4
daginn, fjóra drengi og eina?
stúlku. I
ól börnin i sjúkrahúsi í Ham-l
Konan, Clara Mantangua.J
bane héraði í Mozambique. íi
dag sagði læknirinn í sjúkra-t
húsinu, að móður og börnunu
liði vel og allt benti til þess/
að börnin myndu lifa án þessl
að þau hlytu sérstaka með-»
höndlun. i
Frú Mantangua og maðuri
hennar áttu fyrir tvo syni. i
að framan, varði sömu refsingu
og ölvun við akstur.
4. Brot gegn ákvæðum í til-
lögu nr. 3 sé látið varða svipt-
ingu ökuleyfis í ákveðinn tíma.
5. Brot gegn ákvæðum í til-
lögu nr. 5, sé látið varða veru-
legri þyngingu við ákvörðun refs
inga eða sviptingu réttinda.
Tillögur um nýja lagasetningu
1. Fjórða sambandsþing BFÖ,
haldið í Reykjavík 24. október
1964, samþykkir að skora á Al-
þingi að setja lög, er skyldi alla
þá, er leyfi hafa á hverjum tíma
til áfengisveitinga að hafa einnig
jafnan til sölu óáfenga ávaxta-
drykki, þ.e. hin svo kölluðu óá-
fengu vín.
2. Fjórða sambandsþing BFÖ,
haldið í Reykjavík 24 október
1964, samþykkir að skora á Al-
þingi að setja lög um ökuskóla,
og að þar verði m.a. ákvæði um
kennslu í umferðarsálfræði og
um áhrif áfengis varðandi um-
ferð.
Til ríkisstjómar íslands
Sambandsþinig Bindindisfélágs
ökuinanna, haldið í Reykjavík
24. október 1964, telur mjög æski
legt, að hægri handar akstur
verði tekinn upp hér á landi hið
fyrsta, og skorar á ríkisstjornina
að láta hefja, eins fljótt og imnt
er, nauðsynlegan undirbúning að
því. Jafnframt heitir BFÖ öllum
þeim stuðningi við málið, er sam
tökin geta í té látið.
(Sambandsþingi er vel kunnuigt
um þann undirbúning, sem þegar
er hafinn í þessu máli til athug-
unar á kostnaði við umgetna
breytingu. Með tillögu sinni vill
það leggja áherzlu á, að það tel-
ur þessa breytingu óu. iflýjan-
leiga fyrr eða síðar, og þá flest,
sem mælir með því, að hún verði
gerð svo fljótt sem unnt er, eða
að afloknum öllum nauðsynleg-
um undirbúningi, sem hlýtur að
taka langan tima, en nauðsynlegt
er að geti hafizt sem fyrst, al-
mennt.
í næsta tbl. tímaritsins Um-
ferðar, sem væntanlega kemur út
í nóvember, og verður sent yður,
hr. forsætisráðherra, fjallar aðal
greinin um hægri handar akstur
og þær hugmyndir, sem BFÖ hef
ur um það, hvernig skuli vinna
að farsælli lausn í þeim málum).
Til dómsmálaráðherra fslands
Sambandsþing Bindindisfélags
ökumanna, haldið í Reykjavík 24.
október 1964, skorar á dómsmála-
ráðherra að beita sér fyrir því,
að uppkvaðninigum dóma og
framkvæmdum þeirra, vegna
brota á umferðarlögunum, verði
hraðað mikið meira en nú tíðk-
ast. Ennfremur að framfylgt sé
stranglaga ákvæðum 80. greinar
umferðarlaganna um fangelsun
og réttindasviptingu vegna ölvun-
ar við akstur.
(Sambandsþing BFÖ telur að
dómur og fullnæging hans, sem
kemur fljótt á eftir broti, sé sál-
fræðilega séð miklu áhrifameiri
og vænlegri til að bera árangur,
en ef mikill dráttur verður á.
Ennfremur mun hætta á því, að
maður, sem lengi verður að bíða
eftir fullnægingu dóma, líti að
lokum á hana sem hefnd frá
hálfu þjóðfélagsins en ekki refs-
ingu.)
Til borgarstjórans í Reykjavík
Sambandsþing Bindindisfélags
ökumanna, haldið í Reykjavík 24.
október 1964, samþykkir að lýsa
ánægju sinni yfir því, hve vel
hefur miðað áfram gatnagerð í
Reykjavík á yfirstandandi ári,
og telur að með slíkum fram-
kvæmdum sé strfn* að aukiyj
umferðarörygigi al'-nennri holl-
ustu og auki .oi eydihgu öku-
tækja.
Mexíkanskur list-
málari á Mokka
NÆSTU tvær vikur sýnir mexí-
kanskur listmálari, Bernabé
Gonzáles-Chapa málverk sín á
Mokka. Þetta er önnur sýning
hans hér á landi, en hann hefur
bomið hingað tvisvar sinnum
éður. Fyrri sýningin hans var
árið 1961 í Ásmundarsal við
Freyjugötu.
Gonzáles-Chapa er 36 ára að
aldri og segist hann hafa stundað
málaralist í 11 ár. Myndir þær,
sem hann sýnir nú á Mokka eru
flestar málaðar hér á landi og
eru þær unnar á ýmsan hátt
Mest er af olíumálverkum, en
auk þess vatnslitamyndir, aqu-
atint o. fl. Alls sýnir listamaður-
inn 26 myndir.
Landsbankinn tekur v/ð
rekrstri Sparisjóðs Akraness
Fyrirspurnir til mennta-
málaráðherra Dana
um handritamálið