Morgunblaðið - 19.11.1964, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 19. nóv. 196*
sagbi Peter Snell eftir heimsmetið i miluhlaupi
— SVONA reyni ég aldrei aft-
ur að hlaupa miluhlaup, sagði
heimsins bezti millivegalengda-
hlaupari eftir að hanm bættí
eigið heimsmet í mílulilaupi á
þriðjudag í Auekland. Og þjá'f-
ari hans, Arthur Lydiard sagði
að heimsmetið sýndi, að jafnvel
hlauparar eins og Peter Snell
gætu lært af mettilraununv
„Það sem Snell lærði af þessari
mettilraun var að enginn skyldi
brenna sig á því, að eyða öllum
kröftum sínum til að hafa góð-
an millitíma í há'fnaðri vcga-
lengd“ sagði þjálfarinn, og bætti
við: „Ef Snell ætlar að bæta
heimsmetið svo að einhverju
nemi, verður hann að breyta til
þetta varðandi.“
Snell sagði sjálfur, að þetta
væri í fyrsta iOg siíðasta sdrun, sean
hann bygigði upp hlaupið í því
augnamiði að hlaupa fyrstu 800
m. á 1.54,0. Slíkt er brjálæði,
sagði hann. En 3 ástæður lágu
til þesis að ég tók þessa ákvörð*
un: 1. Ég var mjög vell upplagð-
ur. 2. Ég vildi sýna, að ég gæti
gert hið sama og Herb. Elliott
gerði. 3. Ég hafði aldrei reynt
þetta og vildi öðlast reynsluna.
Snell sagði, að þefta væri í
fyrsta sinn í keppni sem hann
hafi heyrt köll og hróþ áhorf-
enda. Telur hann það haáa verið
vegna þess hversú langt á imd
an hann var öðrum keppenduim
Framhald á bis. 27
*
BR í Evropukeppni í körfuknattBeik:
ÍR í riöli meö írlandi, Eng-
landi og Frakklandi
Þegar Ajax og Valur
skildu jöfn
Og í kvöld er það Flfi og Ajax
HÉR koma tvær myndir frá
leik Ajax — dönsku meistar-
anna, og Valsmanna sem hafa
boðið þeim heim til íslands.
Leik þessara liða lyktaði með
jafntefli 27 mörk -gegn 27 í
fyrrakvöld að Hálogaiandi
eins og sagt var frá í frásögn
af leiknum í blaðinu í gær.
Á þriggja dálka myndinni,
Ove Ejlertsen stöðvar sókn
Vals á línunni — en fékk
þarna aukakast þar sem hon-
um var ýtt inn fyrir. En sjá
má hve Ove Andersen (lengst
t.v.) er vel með, því hann er
kominn af stað áleiðis að
marki Vals til að vera þar til-
búinn að fá knöttinn frá
Ejlertsen. Lengst til hægri er
Jan Wichmann sem skoraði 4
af mörkum Dananna.
Á ••minni myndinni hefur i'
Vagn Olsen markvörður lok- £
að markinu fyrir Stefáni I
Sandholt sem stokkið hefur V
inn í teiginn til að skora. En V
Stefán hitti á smuguna — £
viljandi eða óviljandi — milli i
fóta markvarðarins. J
Myndirnar tók Sveinn Þor- \
móðsson. f
Þriðji leikur danska liðsins |
verður í kvöld fimmtudag, kl. I
20.15 að Hálogalandi. Þá mæta |
þeir hinum reyndu leikmönn- I
um FH. Ef að líkum lætur,
verður þarna hraður leikur og I
skemmtilegur og %iiðað við I
hina fyrri leikina má ætla |
að FH vinni — þó eflaust megi '
líka búast við að Danir séu
orðnir langeygðir eftir sigri. I
EINS OG getið hefur verið hér
á síðunni tilkynnti ÍR þátttöku
fjTir lið sitt í körfuknattleik; í
Evrópukeppni meistaraliða 1964,
en eins og kunnugt er urðu ÍR-
ingar Islandsmeistarar sL vor.
Um síðustu helgi barst þeim
skeyti frá framkvæmdanefnd
kepjuiinnar þar sem þeim var til
kynnt að þeim hefði verið skipað
í riðil nr. 2, ásamt Irlandi, Eng-
landi og Frakklandi. Eiga þeir að
leika sinn fyrsta leik gegn írum,
hér hcima og er ákveðið að sá
leikur fari fram í íþróttahúsinu
á Keflbvikurflugvelli laugardag
inn 5. desember nk. LeilÞn er
tvöföid umferð, þ.e. heima og
heiman, þannig að ÍR-ingar
fara utan einhvemtíma eftir leik
inn hér heima og eigi síðar en
20. desember, því að umferðinni
skal lokið þann dag.'
írska iiðið sem mætir. ÍR-ing-
um heitir Collegians Basketball
Club, í Belfast á írlandi. Fátt er
vitað um getu írana nema að
landslið þeirra er talið svipað að
styrkleika og landslið Skota. —
Eins og menn rekur kannski
minni til sigruðu Skotar íslend-
inga í landsleik fyrir tveimur
árum með nokkurra stiga mun,
svo búast má við að frar séu í
heild heldur sterkiari en íslend
ingar.
Ooð inni
í GÆR hafði Bjarne Poulsen,
sen.diherra Dana í Reykjavík síð-
degisboð fyrir Ajax-menn og gest
gjafa þeirra í Val og fleiri
framámenn í íþróttum á íslandi.
Hélt sendiherrann stutta ræðu
við það tækifæri, og seinna
kom hann gestum á óvart með
því að tilkynna að einn af Ajax-
mönnum ætti 25 ára afmæli og
færði honum smágjöf.
Þátttökulig í þessari keppni
eru alls 39, þar af eru 15 meist-
aralið kvenna. Meðal þessara liða
eru mörg þekkt lið svo sem ,
Real Madrid, Spartak frá Tékkó
slóvaksíu, og Honved félagið, sem
Puskas keppti fyrir áður en hann
flýði frá Ungverjalandi.
Sigurvegari úr leikjum ÍR og
Dómarar á leiknum á Kefla-
víkurflugvelli verða Peter Hom
frá Englandi og danskur dómari
sem ekki hefur verið gefið nafn
ið á ennþá, en búast má við að
það verði reyndasti milliríkja-
dómari þeirra Viggo Bertram,
lítur því út fyrir að nokkurs
þjóðajafnréttis ætti að gæta hvað
dómam snertir.
frana mætir svo sigurvegara úr
leikjum Englendinga og Frakka,
sem telja má víst að verði Frakk
ar. Hvort ÍR kemst áfram í 2.
umferð keppninnar skal engu
um spáð en vonandi fáum við að
sjá góðan leik þann 5. desember:
Ajax vill fá Fram
til keppni í Höfn
DÖNSKU handknattleiksmennirnir sem hér ern, liðsmenn
Kanpmannahafnarliðsins Ajax, hafa boðið Fram-liðinu að
koma í heimsókn til Kaupmannahafnar í næsta mánuði og
leika við Ajax í Kaupmannahöfn.
Um það leyti verða Framarar á ferð ytra, því 8. des.
keppa Fram og Retbergslid í Gautaborg í 1. umferð um Ev-
rópubikar i handknattleik.
Danirnir vilja fá Fram til leiks við sig um helgina 5.—6.
desember, en þá á Ajax frí frá deildakeppninni dönsku og
enginn leikur mun vera í Kaupmannahöfn.
Þetta tilboð mun fararstjórn danska liðsins hafa boðið
Fiam, en ólíklegt má telja að Fram gleypi við þessu, þar
sem slíkur ieikur, þótt góður væri, gæfi Svíunum, sem eru
stutt frá Höfn, kærkomið tækifæri til að „kortleggja“ leik
íslenzka liðsins. Tilboð Ajax er jafn gott fyrir það, enda
vakir það eitt fyrir Dönum að hitta Framara aftur og reyna
að bæta fyrir stóra tapið, 27-16 í Íteflavík.
Norðmenn slegnir út
HOLLENZKA liðið D.W.S.
Amsterdam hefur unnið sér rétt
til keppni í 3. umferð í keppn-
inni um Evrópubikarinn í
knattspymu. Unnu þeir í 2. um-
ferð keppninnar norska liðið Lyn
frá Ósló með samtals 8-1.
í fyrri leik liðanna, sem fram
fór á heimavelli Hollendinga
unnu heimamenn með 5-0. f gær-
kvöldi var síðari leikurinn í Ósló.
Norðmenn náðu þar engan veg-
inn að jafna fyrri ósigur og Hol-
lendingar unnu með 3-1.
í fyrstu umferð unnu Lyn-
menn lið Haka, Finnlandi.
Borgakeppnin
Fernec Varos-liðið í Budapest
vann í gær liðið Austria í Vínar-
borg með 2-0. Leikurinn var
aukaleikur liðanna í keppni um
bikar borga. Eftir fyrstu tvo leik-
ina voru liðin jöfn, 2-2.
Aldrei aftur reyni ég að ná
afburðagóðum millitíma