Morgunblaðið - 19.11.1964, Qupperneq 27
1 Finvmtudagur 19. nóv. 1964
M0RGUNBLAÐ1Ð
27
— Maðurinn
i kassanum
Framhald af bls. 1
Mordechaí Luk, sem er ísra-
elskur ríkisborgari af Gyð-
ingaættum, fæddur í Marokko.
Hefði hann oft komizt á saka-
skrá í ísrael. Talsmaðurinn
! sagði, að Luk hefði farið yfir
í landamærin til Egyptalands
1961 og verið neyddur til að
njósna fyrir Egypta. Hann
væri kvæntur og ætti fjögur
börn. Talsmaðurinn lagði á-
herzlu á, að Luk hefði ekki
l starfað fyrir neina aðila í Isra
j el.
Alþjóðalögreglan „Interpol“
og lögreglan í Róm, Napólí
og Frankfurt, vinna nú að
rannsókn hins dularfulla
ráns.
• Ekki sami Missinn
ítalska stjórnin hefur sent
sendiráði Egyptalands í Róm
harðorð mótmæli vegna at-
burðarins i gærkvöldi, en
sendiherra Egypta, Ahmed
Naguib Hashin, lýsti hryggð
sinni og sagðist ekkert um
málið vita. f yfirlýsingu frá
, sendiráðinu segir, að það hafi
ekkert vitað um innihald kass
ans, sem sendiráðsstarfsmenn
. irnir tveir fluttu á flugvöll-
' inn. Annar þeirra sagði, áð
áður en hann hél-t frá Ítalíu,
að kassinn á flugvellinum
hefði ekki verið sá sami og
sendur var frá sendiráðinu.
Maðurinn í kassanum var
yfirheyrður í Róm í dag. Seg
I ist hann hafa starfað í Napólí
tvö undanfarin ár sem túlkur
fyrir ferðaskrifstofu, en að
— Óveður
Framh. af bls. 2?
magnstruflanirnar eru taldar af
völdum veðursins, sennilega sam
sláttur eða að línur hafi slitnað.
Viðgerðarflokkur er kominn á
vettvang. Bílum er vel fært um
vegi en krapaelgur er á þeim
þessa stundina.
— Sigurður.
Akureyri, 18. nóv.
Veður er fremur aðgerðarlítið
þessa stundina hér á Akureyri.
Vegir munu færir bæði vestur og
austur um heiðar héðan. Útlit er
fyrir suðaustan garra.
— Sv. P.
JVfcðrudalsfjöll ófær
Grímsstöðum á Fjöllum,
‘I 18. nóv.
Nokkur hríð hefir verið undan-
farið og er færð að þyngjast á
heiðum. Möðrudalsfjallgarðar lok
uðust í fyrradag, en þá var bíl-
um hjálpað yfir. Fólksbíll bilaði
á þessari leið og var hann tek-
inn á bílpall og fluttur austur
yfir. Hér er nú suðaustan storm-
ur með renningskófi. Snjómagn
er ekki mikið en setur í skafla.
Fé liggur hér úti á Grímsstöð-
um en á útbæjunum er búið að
taka það á hús. Fé er hér óvenju-
lega vænt í haust og voru lömb
betri til frálags en lengi hefir
verið. Einnig er fullorðið fé
óvenju vænt. Ekki geta menn
ráðið í hvað veldur nema ef vera
skyldi að venju fremur greri
gnemma í vor.
— Benedikt.
Seyðisfjörður 18. nóv.
Veður er að ganga upp hér
fyrir austan í dag. Fjallvegir eru
þó enn færir og Fjarðarheiði vel
fær jeppum og stærri bílum.
— Sveinn.
Símasambandslaust
Símasambandslaust var til Suð
urfjarða Austurlands 1 gær og
gat blaðið því ekki haft samband
við fréttaritara sína þar. Einnig
var símasambandslaust við Vík
í Mýrdal.
Vélgeymsla fauk
Borgareyrum
Austur-Landeyjum, 18. nóv.
* Austan ofsaveður með stór-
rigningu öðru hvoru hefir gengið
hér yfir í dag. Á tímabili vott-
aði fyrir krapa, enda var hiti þá
urn frostmark, en hlýnaði svo
sögn lögreglunnar, talar hann
10 tungumál reiprennandi,
m.a. ensku, þýzku, ítölskiu,
arabísku og hebresku.
• Rotaður í veitingahúsi
Maðurinn sagðist hafa far-
ði til Rómar sl. sunnudag til
þess að hitta mann, sem átti
að afhenda honum-háa fjár-
upphæð. Á mánudagskvöldið
hefði hann verið á veitinga-
húsi í Róm og hitt þar Egypt-
ana tvo, sem veittu honum
höfuðhögg og höfðu hann á
brott með sér í bifreið. Sagð-
ist maðurinn ekki hafa séð
Egypta þessa fyrr. Þeir hefðu
flutt hann til húss eins og
haldið honum þar fram á
mánudag. Þá hefðu þeir gefið
honum svefnlyf í sprautu og
hann ekki vitað af sér fyrr en
í kassanum á flugvellinum.
Hann kveðst alls ekki geta
gert sér grein fyrir ástæðunni
til ránsins. Maðurinn sagðist
hafa verið nýbúinn að sækja
um lengingu dvalarleyfis síns
í Napólí, en þar hafi hann
ætlað að ganga að eiga unga
ítalska stúlku. Lögreglan yf-
irheyrði stúlku þessa í Napólí
í kvöld, en ekki hefur verið
skýrt frá niðurstöðum yfir-
heyrslunnar.
• Kassinn notaður áður
Lögreglan í Róm rannsak-
aði í gær kassann, sem mað-
urinn fannst í. Herma fregnir,
að allt bendi til þess, að hann
hafi verið notaður áður í
sama tilgangi. Er hann sér-
staklega innréttaður með stól,
sem er skrúfaður fastur og
mjúkum púða til þess að
vernda höfuðið, ef maður sit- 1
ur í 'stólnum. I
aftur. Um kl. 2 í nótt byrjaði að
hvessa með snörpum hrinum, en
lægði á milli. Kl. 10 í morgun var
komið aftaka veður, svo vatn
rauk eins og mjöll öðru hvoru og
hélzt iþað til kl. 2 að fór að draga
úr veðurhæð. Ég átti tal við sím-
stöðvamar hér undir Eyjafjöllum
um kl. 5 í dag. Var þá enn ekki
vitað um tjón af völdum veðurs-
ins, enda eru hér yfir höfuð
traustar, vel gerðar og nýlegar
byggingar. Á Skíðabakka í
Austur-Landeyjum, hjá Eyvindi
bónda Ágústssyni, fauk véla-
geymsla, braggi, er var í smíðum,
vegna frosta nú undanfarið var
ekki að öllu fullgerður. Hann er
talinn gerónýtur.
Vestmannaeyjum 18. nóv.
Stólparok var hér í nótt og dag
13—14 vindstig á austan. Er á
daginn leið færðist veðrið til suð
urs og var enn hvasst með kvöld-
inu. Snjór var hér nokkur og
hálka, en frostlaust. Ekki er
kunnugt um slysfarir eða
skemmdir af völdum veðursins.
— Björn.
— Slysastabir
Framhald af bls. 10
Snorrabrautar hafa orðið 19 á-
rekstrar, þrátt fyrir góða götu-
vita, en þarna er ekið hratt og
oft orðið stutt á milli bifreiða
eða að ekið er of fljótt inn á
gatnamótin. Engin slys á fólki
hafa orðið þar, enda gæta gang-
andi vegfarendur sín oftast þar
sem slík umferð er og götuljós.
Önnur gatnamót við Snorrabraut
ina em líka nokkuð slæm, eins
og við Njálsgötu og við Lauga-
veg.
Krlngum spennistöðina í Hafn
arstræti hafa orðið 17 árekstrar
á árinu. Þetta eru tvenn gatna-
mót og flókin umferð, og talsvert
um akreinabrengl hjá ökumönn-
um.
Eins er mikið um árekstra á
Skúlagötu fyrir framan B.P.-stöð
ina og kringum Nýborg, 10
árekstrar eru skráðir á hvorum
stað í ár. Þarna er mikil umferð,
þvi hvort tveggja er mikið notað,
benzín og áfengi.
Og á horni Tryggvagötu og
Pósthússtrætis eru þegar skráð-
ir 11 árekstrar, enda mikil um-
ferð um þau gatnamót til og frá
höíninni.
Þar sem Laufásvegur og Hring
raut skerast hjá Kennaraskól-
íum hafa orðið 16 árekstrar á
árinu og í þeim slasast 2 farþeg-
ar og bifreiðastjóri, og að auki
tveir fótgangandi. Árekstrar þar
gerast með ýmsu móti, þegar bíl
ar eru að beygja inn á Laufásveg
eða koma þaðan inn á Hring-
brautina og oft verða'þeir á milli
eyjanna á miðri götunni. Þarna
skammt frá stanza líka strætis-
vagnar, og fólk á þar af leið-
andi leið yfir mikla umferðar-
götu. Og lýsingin á gatnamótun
um er ekki alltof góð.
Áður en haldið er lengra aust-
ur, skulum við aðeins taka
Melatorgið, þar sem hafa orðið
10 árekstrar á árinu og einn slas-
azt. Þar eru ekki merktar tvö-
faldar akreinar, en mjög margir
bifreiðastjórar aka þetta hring-
torg svo sem þar sé tvöföld um-
ferð, enda tvöföld umferð á
næsta hringtorgi, Miklatorgi. En
sé tvöföld umferð um torgið, virð
ist akbrautin of mjó og eyjan
of stór.
Miklabrautin hefur nú um tíma
verið lokuð við gatnamót Grens-
ásvegar, en áður en það varð,
höfðu þegar orðið 12 árekstrar
og slasast 2 fanþegar, 1 bifreiða-
stjóri og 1 hjólxeiðamaður. Þarna
verða harðir árekstrar og hafa
oft oltið í þeim bílar, sem sýnir
að ekið er mjög hratt á þessum
stað. Auk þess var oft laus möl
á gatnamótunum og erfitt að
hemla snöggt, en það stendur nú
til bóta etfir að gatan er steypt.
Kaflinn á Miklubraut frá
Grensásvegi að Háaleitisbraut,
hefur því verið lokaður um tima
og umferðin beinzt inn á ný
malbikaða og breiða Háaleitis-
brautina. Þarna hefur til skamms
tíma verið illfær leið, en nú eru
komnar góðar götur, og um leið
og akstursskilyrði batna er ekið
hraðar. Inn á Há.aleitisbrautina
liggja Safamýri og Ármúli, allt
góðar malbikaðar götur, sem
verða fyrirsjáanlega viðsjálar.
Háaleitisbrautin hallar til norð-
urs og Ármúli til norðvesturs að
gatnamótunum og þegar kemur
hálka og ísing, verður þar hættu
legt umferðarhorn. Þetta er alveg
nýsköpuð hætta.
Skammt frá eru önnur nýtil-
komin hættuleg gatnamót, þar
sem Hallnrmúli og Suðurlands-
braut mætast. Þarna hafa orðið
15 árekstrar og 2 slys á mönnum
á skömmum tíma. í fyrra var
þessi hætta ekki fyrir hendi,
enda engir árekstrar skráðir
þarna.
Nokkru innar við Suðurlands-
braut, á kaflanum við Múlaveg,
er hæt.tulegur staður. Þar hafa
orðið 11 árekstrar, 3 slys á gang
andi fólki og eitt banaslys. Á
stuttum kafla á þessari miklu um
ferðargötu fer margt fólk úr
strætisvagni og gengur beint yfir
Suðurlandsbrautina. Lengi hefur
verið rætt um nauðsyn' þess að
gera þar útskot fyrir strætisvagn
inn og girða það frá götunni.
T-gatnamót eru þar sem Holta
vegur kemur á Suðurlandsbraut
og þar hafa orðið 10 árekstrar á
árinu. Suðurlandsbrautin er aðal
braut og ekkert skyggir á við
þessi gatnamót, svo erfitt er að
gera sér grein fyrir þessum
mörgu árekstrum. Líklega er or
sakarinnar helzt að leita í því,
að aðalbrautarréttur er ekki
virtur og hinn hraði akstur eftir
Suðurlandsbrautinni.
Langholtsvegur á kaflanum við
Drekavoginn og rétt þar í kring
héfur mjög háa slysatölu fyrir
vegfarendur. Þar hafa orðið 7
slys á gangandi fólki og einn
árekstur. Gatan er malbikuð og
engar gangstéttir, en hratt ekið.
Þarna virðist af einhverjum á-
stæðum vera mjög mikil gang-
andi umferð, og mikið um börn,
þó ekki sé skóli í nánd. Á nær-
liggjandi stöðum hafa einnig
orðið 4 slys á fólki í umferðinni.
Sundlaugavegur er einnig
slæmur, bæði við Sundlaugarnar,
þar sem orðið hafa 12 árekstrar
og 2 hjólreiðamenn slasazt og á
kaflanum frá Hrisateig að Laug
.arnesvegi, þar sem orðið hafa 8
árekstrar og 4 slasast á þessu
ári. Þarna er mikil umferð gang
andi fólks, enda stanza strætis-
vagnar, og margir eiga leið í
Sundlaugarnar. Auk þess var
mikið ekið um Hrísateiginn í sum
ar vegna tálmana á Sundlauga-
vegi.
Loks skulum við athuga
Reykjanesbrautina, þar sem eru
tveir slæmir staðir. Við Nesti
hafa orðið 15 árekstrar og 2 slas
ast, enda geysileg umferð. Og
við gatnamótin við Fossvogsveg
hafa orðið 13 árekstrar og eitt
slys á manni. Þar er mikil um-
ferð frá Bústaðahverfinu og Smá
íbúðahverfinu af ökutækjum, að
stytta leiðina yfir á Hafnarfjarð
arveginn.
Á umferðarkorti lögreglunnar
má sjá bólur sem tákna árekstra
og slys miklu víðar, en við verð
um að látá okkur nægja að taka
verstu staðina í þessari grein. —
Orsök þess að þeir eru öðrum
verri hvað úmferðarslys snertir,
liggur ekki alltaf Ijós fyrir. —
Sumsstaðar verða þau með svo
ólíkum hætti að ógerlegt er að
kenna neinu ákveðnu um hætt-
una. Þó vilja það verða sömu
götuhornin eða götukaflarnir,
sem ‘bera hæstu tölu umferðar-
slysa. Og á þeim stöðum er vissu
lega sérstök ástæða fil1 að fara
gætilega.
j Koreu-
j baElettinn
j kemur
J í dag
Jí DAG kemur til landsins 46
imanna flokkur listamanna og
íer það Kóreu-ballettinn, sem
/ ætlar að sýna hér á vegum
IÞjóðleikhússins. Fyrsta sýn-
\ing verður á laugardags-
i kvöld, en alls sýnir listafólk
íið hér þrisvar sinnum, þann
721.—23. þ. m.
\ Sala aðgöngumiða hófst í
ÍÞjóðleikhúsinu í gær og er
t selt á allar sýningarnar í einu.
/Listafólkið kemur hingað
i með flugvél frá Loftleiðum
ifrá Bandaríkjunum, en þar /
íhefur Kóreu-ballettinn sýnt 1
/að undanförnu í 60 borgum
Ivið mikla hrifningu. Kóreu
\ballettinn fer héðan aftur þ.
24. þ.m.
Myndin er af Stella Kivon 1
aðaldansara og sjórnanda
ballesins.
Fundur kaup-
félagsstjóra
KAUPFÉLAGSSTJÓRAR koma
saman á sinn árlaga fund í
Sambandshúsinu föstudaginn 20.
nóvember kl. 13.30 og stendur
fundurinn á föstudag og laugar-
dag. Mbl. spurðist fyrir um
hvaða mál væru á dagskrá og
fékk þær upplýsingar að ein-
ungis yrði rætt um málefni kaup-
félaiganna á breiðum grundvelli.
— Mannaskipti “
Framh. af b!s. 1
menn eru skipaðir í embætti og
hækkaðir í tign.
Þegar Podgorny hafði lagt fram
skýrsluna um skipulagsmál á
fundi miðstjórnarinnar, var sam-
þykkt að falla frá skiptingu
flokksins í iðnaðardeild og land-
búnaðardeild, en þá skiptingu
ákvað Krúsjeff 1982. Um leið var
samþykkt, að í næsta mánuði
skyldu valdir nýir formenn
flokksdeildanna í 73 mikilvæg-
ustu héruðum Sovétríkjanna.
Mörg þessara héraða eiga full-
trúa í miðstjórn flokksins og má
því vænta þess að breytinganna
verði einnig vart þar, en það er
miðstjórnin, sem markar stefnu
flokksins.
Krúsjeff skipaði 170 nýja full-
trúa í miðstjórnina og talið er,
að hinir nýju leiðtogar muni nú
losa sig við eitthvað af þeim.
í héruðunum 73, sem áður erú
nefnd, hafa verið tveir flokks
formenn frá 1962. Annar formað-
ur iðnaðardeildar, en hinn land-
búnaðardeildar. Nú á að breyta
þessu og verður formaðurinn að-
eins einn framvegis. Ef manna-
skiptin, sem standa fyrir dyrum,
ná einniig til minnstu flokksein-
inganna, er talið, að þau muni ná
til um 2000 lágtsettra embættis-
manna.
— íþróttir
Framhald af bls. 20.
í hlauipiruu. „Þetta komu eins og
bylgjur og sa.nnarlóga hjátpar
það manni þegar fæturnir eru
orðnir stífir af þreytu“, sagði
hann. Fram að þessu hefur
Snei l alltaf haldið sig í forystu
hópnum í hlaupi en runinið svo
fram úr á ógnarspretti og umnið
með yfirburðum.
Framtíðaráform Snells eru að
taka lífinu með ró á næstu rnán
uðuim. Þó mun hann keppa í
Wanganui — þar sem hann setti
fyrra miluheimsmet sitt — ano
an laugardag en vegalengdim er
ekki ákveðin. Hann fer stvo í
Evrópuferð í júní og júlí og
heimsækir þá yæntanlega Norð-
urlönd og keppir.
Til gamans fylgir hér skrá
yfir þróun heimsmetsins í míiu-
hlaupi — þessu frægasta hlaupi
allra hí’aupa:
4.12.6 Norman Tabe USA 1915
4.10.4 Paavo Nurmi, Finnl. 1923
4.09.2 J. Ladoumeque Fr. 1931
4.07.6 J. Lovelock N-Sjál. 1933
4.06.8 G. Cummingham 1934
4.06.4 S. Wooderson, Engl. 1937
4.06.2 Gunder Hægg, Svíþ. 1944
4.06.2 Arne Anders. Svþ. 1942
4 04.6 Gunder Hægg 1942
4.02.6 Arne Anders. Syþ. 1943
4.01.6 Arne Andersen Svtþ. 1944
4.01.4 Gunder Hægg 1945
3.59.4 R. Bannister, Engl. 1954
3.57.9 John Landy Ástral. 1954
3.57.2 Derek, Englandi 1957
3.54.5 Herb. Elliott, Ástral. 1958
3.54.4 Peter Snell, N-Sjál. 1962
3.54.1 Snelll 1964
Í
Hjartkær móðir okkar
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Fáskrúðsfirði,
andaðist á Hrafnistu 18. þ.m. — Jarðarförin auglýst
síðar.
Börnin.