Morgunblaðið - 05.12.1964, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.12.1964, Qupperneq 1
Bygging nýju olíustöðvar- innar í Hvalfirði leyfð UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ heíur sent frá sér fréttatil- h.vnningu, þar sem frá því er skýrt, að ríkisstjórnin hafi nú levft byggingu fjögurra nýrra ©líugeyma í Hvalfirði, vatns- geymis, bryggju og legufæra. Mál þetta hefur verið all- lengi á döfinni, og hafði ríkis- stjórnin áður fallizt á, að fram færi athugun á fram- kvæmdum þessum, eins og kunnugt er. Geymar þessir koma í stað eldri geyma, sem nauðsynlegt var að endurnýja. Fréttatilkynning utanríkis- ráðuneytisins hljóðar svo: „Eins og áður hefur verið skýrt frá opinberlega, féilst ríkisstjórn- in á sínum tima á, að fram færi athugun á byggingu oliugeyma í Hvalfirði, ásamt bryggju vegna afnota geymgnna og aðstöðu fyr- ir legufæri skipa samkvæmt framkvæmdaáætlun Atlantshafs- bandalagsins. í framhaldi af þessari athugun hefur ríkis- stjórnin nú leyft ofangreindar framkvæmdir. Verða byggðir í Hvalfirði fimm nýir geymar, fjórir fyrir olíu og einn fyrir vatn, auk afgreiðslubryggju og legufæra. vist á Spáni flugleiðis frá Spáni sl. miðviku- dag á fyrirhugaðri ferð sinni til Argentínu, en hann var gerður útlægur frá heimalandi sínu fyrir níu árum. Yfirvöldin í Brasilíu sendu Peron aftur til Spánar. Ekki virðist Peron þó enn hafa gefizt upp við að reyna að kom- ast til Angentínu. Sagði talsmað- ur hans í dag, að Peron mundi enn reyna að komast þangað á þessu ári. Belgísku fallhlífahermennlrulr, sem sendlr voru til Stanleyville í Kongó til að bjarga hvítum mönn- nm úr höndum uppreisnarmanna, eru nú komnir heim. Hér sést Baudouin konungur sæm^ foringja faUhlifaliðsins, Charles Eaurent ofursta, heiðursmerki við koinuna til Brússel. Sevilla, Spáni, 4. des (NTB) JUAN Peron, fyrrum forseti Argentínu, hefur fengið heimild til að setjast að í Terremolinos, skammt frá Malaga á Suður- Spáni, að því er haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Se- villa. Það skilyrði er þó sett fyrir dvöl hans á Spáni að hann forð- ist að ræða við fréttamenn. Peron var neitað um landvist í Brasilíu er hann kom þangað Hinir nýju geymar eru nauð- synleg endurnýjun á gömlum geymum, sem fyrir eru í Hval- firði, og verður öll notkun þeirra og mannvirkjanna háð sam- komulagi við ríkisstjórn Íslands. Skipaferðir um Hvalfjörð breyt- ast ekkert frá því, sem verið hef- ur í samhandi við hin nýju mann- virki og tilgangur stöðvarinnar þar verður sá einn, að geyma varabirgðir og legufæri. sem nota má ef til ófriðar kemur eða dregur. Um mannvirkin og fram- kvæmdirnar í Hvalfirði gilda á- kvæði varnarsamningsins frá 8. maí 1951. Utanríkisráðúneytið, Keykjavík, 4. desember 1964“. Kínverjar neita enn Segja alþjóðaráðstefnu kommúnista óþarfa — Tékkar og Austur-Þjáðverjar styðja tillögu Rússa Moskvu, 4. des. (NTB-AP) t Kínverjar hafa enn á ný 'vísað á bug tillögu Sovét- ríkjanna um að boðuð verði ráfistefna kommúnistaleið- tof'a 26 ríkja í marz nk. til að urdirbúa alþjóðaráðstefnu kommúnista seinna á næsta ári. Er þetta haft eftir starfs- mönnum erlendra sendiráða í Peking, en engin staðfesting frá opinberum aðilum. ý í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu, sem birt var í dag, er hinsvegar lögð á það óherzla að boðað verði til leið togaráðstefnunnar. ♦ Þá hafa leiðtogar austur- þýzkra kommúnista hvatt til að boðuð verði alþjóðaráð- stefna til að ræða þær breyt- ingar, sem orðið hafa frá því síðasta ráðstefna var haldin 1960. Nikita Krúsjeff, fyrrum for- sætisráðherra, barðist lengi fyrir því að leiðtogar 26 ríkja kæmu saman í Moskvu hinn 15. desem- ber nk. til að ræða ýmis sameig- inleg mál og deilumál, og vildi hann að seinna yrði boðuð al- þjóðaráðstefna kommúnista. Kín- verjar hafa frá upphafi verið andvígir þessum fundarhöldum. Samkvæmt diplómatískum heim- ildum í Peking munu nýju ráða- mennirnir í Moskvu hafa haldið sig við tillögur Krúsjeffs og falið sendiherra sínum í Peking, Stepan Sjervonenko, milligöngu í málinu. Segja heimildirnar að sendiherranum hafi ekki tekizt að fá viðtal við Mao Tse-tung, leiðtoga kommúnistaflokksins, né heldur við Chou En-lai, forsætis- ráðherra, til að afhenda þeim orðsendingu Sovétstjórnarinnar. Varð Sjervonenko að afhenda starfsmanni í utanríkisráðuneyt- inu orðsendinguna, og fékk þau svör um leið að afstaða Kinverja til tillögunnar um leiðtogafund væri Sovétstjórninni kunn og þyrfti ekki frekari skýringa. Af þessum fréttum virðist ljóst að enginn árangur hafi orðið af við- ræðum Chou En-lais við sovézka ráðamenn í Moskvu í síðasta mánuði, og lausn deilumála ríkj- anna jafn fjarri og meðan Krús- jeff var við völd. Ekki hefur heldur fengizt nein Framhald á bls. 23 -<S> Páll páfi VI. kom til Indlands s.l. miðvikudag, og var þessi mynd tekin er hann sté út úr flugvél sinni ásamt fylgdarliði. Páll páfi VI. í Bombay: Hættiö vígbúnaði og veitið van- þróuðum ríkjum aðstoð 100 þúsund manns hylltu póía í fá- tækiahverfi borgarinnar Bombay, Indlandi, 4. des. — AP — PÁLL páfi VI. átti í dag fund með fréttamönnum í Bombay. Skoraði hann þar á allar þjóð- ir að draga úr vígbúnaði, og leggja hluta þess fjár, sem sparaðist, í alþjóðasjóð til að- stoðar vanþróuðum ríkjum. Páfinn heimsótti í dag fá- tækrahverfi í Bombay, heim- ili fyrir munaðarlausa, og var viðstaddur tvær messur. A blaðamannafundinum bað páfinn fréttamennina um að koma áleiðis sérstakri áskorun sinni til allra þjóða, svohljóð- andi: „Vér felum yður að koma sér- stökum boðskap vorum til allra þjóða á framfæri. Óskandi væri að þjóðirnar hættu vígbúnaðar- kapphlaupinu, og beindu fjár- munum sínum og framtaki þess í stað til aðstoðar meðbræðrum sínum í vanþróuðu löndunum; óskandi að sérhver þjóð, með frið í huga í stað hörmunga og styrjalda, iegði jafnvel aðeins hluta af vígbúnaðarfé sínu í al- þjóðasjóð til lausnar hinna mörgu vandamála varðandi skort á næringu, fatnaði, húsaskjóíi og læknishjálp, sem þjáir svo marg- ar þjóðir“. Framhald á bls. 23 Peron fær land- *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.