Morgunblaðið - 05.12.1964, Blaðsíða 16
16
MOHGU NBLAÐIÐ
Laugárdagur 5. des. 1964
JRtqpnslMtofcffr
Útgefandi:
Fr amk væmdas t j óri:
Ritstjórár:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjóm:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
f lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir í»órðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
HÚS SKÁLDSINS
Hér sjást nokkur þeirra tugþheimilisfang til þesis að þauárust á níræðisafmælinu. Eins og
sjá má þurfti ekki nákvæmtúsunda bréfa, sem sir Winston bkæmust til ski'a.
Á níræðisafmæli Churchills
TALIÐ er að enginn
maður hafi nokkru sinni
fengið jafn margar afmæl-
iskveðjur og sir Winston
Churchill, þ-egar hann
varð níræður s.L mánudag.
Er áætlað að kveðjurnar
hafi verið um 60 þúsimd.
Og sir Winston sagði við
fréttamenn á eftir: Ég
vona að þeir, sem sýndu
mér þá vináttu að skrifa
mér, skilji að útilokað er
fyrir mig að svara svo
mörgum. En hlýhugur
þeirra hefur veitt mér
hina mestu ánægju.
Marmfjöldi var við heimili
sir Winstons aillan diaginn til
að fylgjast með gestakarmuim
og í v|on um að sjá afmælis-
barnirm bregða fyrir. Meðal
áhorfendanna voru hljómlist-
armenm, aem léku nokkur aif
uippábaldsllöguim gamilia
mannsins. Þegar 9vo mann-
f jöl dinm var að syngjia ,,For
he‘s a JaLIy Good Fellow“
birtust þau laifði ChurchiLl og
sir Winstan í ghigigamuim,
Noklkuð virtist sir Winston
orðinn hrumur því hann var
studdur báðum miegin. Mikil
fag.naðaróp glumdu um göt-
una þegar sir Winstim birt-
ist en hann svaraði með því
að veifla brosandi til mann-
fjöldans.
ÓFÚS GESTUR
Meðal afmæliagj'afla var
terta ein mikill, sem vó 55
kg., en á hana var letrað: „1
styrjöld — einbeitni; í ó-
sigri — þrjózka; í sigri —
göfuglyndi; x friði — góð-
viilji.“ Sir Winston bárust
kveðjur frá gömlum samherj
um og flornum óvinum. Meðal
þeima síðarnefndu var de
Valera, florseti íriands, sem
sendi hamingj'uióskir.
Borgarstjórinn í Pretoria í
Suður Afríku sendi sir Winst
on kveðjur og sagði að borg-
arbúár væru hreyknir af því
að Pretoria væri eina höfuið-
borgin, sem sir Winston hafi
gist gegn vilja sinum, en það
var þegar hann var þar tiangi
á dögum Búastríðsins.
IZVESTIA sker sig úr
31öð um allan heim minnt-
ust aflmælisins og hylltu sir
Winston. Undantekning var
þó Izvestia, máilgagn Sþvét-
stjórnarinnar. Biíaðið minnt-
ist að vísu afmælisins, en
sagði að sir Winston hafí
stofnað til „kalda stríðsins“
og sakaði hamn um að haifia
eftir fremsta megni reynt að
viðlhalda nýlendurveldi Breta.
Einkalæknir sir Winstons,
Moran lávarður, var meðal
gesta á afmælisdaginn og
sagði að sir Winston væri við
beztu heilsu.
Átján handteknir
vegna 'morðanna í Mississippi
TAavíð Stefánsson frá Fagra-
" skógi var meginhluta ævi
sinnar ástsælasta ljóðskáíd
íslendinga. Þótt rödd hans sé
nú hljóðnuð á hann við-
kvæman en sterkan streng í
brjósti þjóðar sinnar. Og ljóð
hans lifa á vörum fólksins.
Þau munu verða lærð, lesin
og sungin langt fram um ald-
irnar.
En nú er farið að ræða um
það, hvernig eigi að ráðstafa
húsi skáldsins frá Fagraskógi.
Á að selja það og sundra
heimili hans við Bjarkarstíg
6 á Akureyri?
Sú tilhugsun er ekki hug-
þekk. Hitt mun flestum ís-
lendingum miklu nær skapi,
að heimili Davíðs Stefánsson-
ar frá Fagraskógi, hins sér-
stæða og ljúfa skálds, verði
varðveitt til handa framtíð-
inni eins og hann skildi við
það. Þar ætti bókasafn hans,
húsmunir og listaverk að
geymast.
Við íslendingar unnum
fornum bókmenntum okkar
og Við viljum gjarnan láta
kalla okkur söguþjóð. Þó er-
um við oft undarlega ræktar-
lausir gagnvart minjum lið-
ins tíma. Við látum Viðeyj-
arstofu Skúla Magnússonar
grotna niður við bæjardyr
höfuðborgarbúa, og við borð
liggur að Hrafnseyri, fæð-
ingarstaður Jóns Sigurðsson-
ar forseta fari í eyði.
Það væri þjóðinni allri til
sóma að gera vel við minn-
ingu Davíðs frá Fagraskógi.
Þess vegna væri eðlilegt, að
sameiginlegt átak alþjóðar
yrði gert til þess að kaupa hús
hans og gera það að minja-
safni um líf hans og starf.
Davíð Stefánsson var tengd-
ur átthögum sínum við Eyja-
fjörð sterkum og órjúfandi
böndum. En hann unni allri
þjóð sinni heitt og ljóð hans
bergmáluðu af ást til íslands
og þjóðar þese. Þess vegna
sameinast íslendingar um að
varðveita minningu hans og
gefa ókomnum kynslóðum
tækifæri til þess að kynnast
því úmhverfi, þar sem hann
lifði og hrærðist, gladdist og
hryggðist, þjáðist og þráði.
VINSTRI STJÓRN-
IN OG LÆRDÓM-
UR HENNAR
Cex ár voru í gær liðin frá
^ því, að hin svokallaða
vinstri stjórn gafst upp og
sagði af sér. Mun það ekki of-
mælt, að yfirgnæfandi meiri-
hluti íslendinga telji þá rík-
isstjórn hafa verið úrræða-
lausustu og ráðreikulustu
ríkisstjórn, sem setið hefur
hér á landi.
Þrátt fyrir þetta verður sú
staðreynd ekki sniðgengin, að
vinstri stjórnin og starfsferill
hennar fólu í sér marga at-
hyglisverða lærdóma. Áratug-
um saman höfðu hinir svo-
kölluðu vinstri flokkar bolla-
lagt um vinstri stjórn sem há-
leitt og þýðingarmikið tak-
mark í íslenzkúm stjórnmál-
um. Slík stjórn mundi öllum
vanda vaxin. Hún hlyti að
ráða fram úr öllum vanda-
málum með „hagsmuni verka
lýðsins fyrir augum.“ Þess
vegna hlyti hún að verða hag-
stæð og hagkvæm öllum al-
menningi. í kjölfar hennar
mundi sigla minnkandi dýr-
tíð, bætt lífskjör, vinnufriður
og öryggi.
Þetta voru þeir spádómar,
sem leiðtogar vinstri flokk-
anna höfðú árum saman end-
urtekið og borið á borð fyrir
þjóð sína.
En hvað gerðist svo, þegar
sjálfur raunveruleikinn kom í
ljós, reynslan af vinstri
stjórn?
Dýrtíð og verðbólga magn-
aðist hraðar en nokkru sinni
áður, lífskjör versnuðu, gengi
krónunnar hraðféll, skattar
og tollar margfölduðust, ó-
friður og uppnám á vinnu-
markaði var aldrei meiri, og
að lokum var það Alþýðu-
sambandsþing, sem í raun og
veru felldi vinstri stjórnina.
VITI TIL AD
VARAST
etta eru hinar bláköldu
staðreyndir um starf og
stefnu vinstri stjórnarinnar,
sem sat á árunum 1956—1958.
Forsætisráðherra hennar og
þáverandi formaður Fram-
sóknarflokksins lýsti því yfir,
þegar stjórnin gafst upp, að
innan hennar væri ekki sam-
staða um nokkur úrræði til1
lausnar þeim vanda, sem við
blasti. Óðaverðbólga væri
skollin yfir, en stjórnarflokk-
arnir gætu ekki komið sér
saman um eitt einasta úrræði
til þess að bjarga þjóðinni frá
hengifluginu, sem framund-
an væri.
Þannig tókst þá til, þegar
hin þráða vinstri stjórn loks-
ins komst á laggirnar. Allir
spádómarnir um þá farsæld,
sem af henni mundi hljótast
fyrir veraklýðinn og allan al-
menning á íslandi reyndust
fals og hjóm. Þegar til átti að
taka áttu vinstri menn engin
sameiginleg úrræði. Þeir gátu
bara haldið hástemmdar ræð-
Philadelphia, Mississippi,
4. des. (AP)
BANDARÍSKA rfkislögregl-
an, FBI, skýrði frá því í dag
að 18 menn hafi verið hand-
teknir í Mississippi. Eru þeir
sakaðir um aðild að morðun-
um sl. sumar á þremur stúd-
entum, er unnu að baráttu-
málum blökkumanna.
ur um ágæti vinstri stjórnar,
en þeir gátu ekkert fram-
kvæmt.
Það er í þessu ljósi sem
minningin um vinstri stjórn-
ina lifir í hugum íslenzks
fólks sem víti til að varast.
Aldrei framar vinstri stjórn
verður kjörorð mikils meiri-
hluta íslendinga.
Meðal hinna handteknu er
lögreglustjórinn í Neshoba-
héraði og aðstoðarmaður
hans.
Stúdentarnir þrír, einn þeirra
blökkumaður, voru myrtir hinn
22. júní sl. skammt frá borginni
Philadelphia. Fannst bifreið
þeirra brunnin skammt frá borg-
inni og lík stúdentanna rúmum
mánuði seinna Urðuð í fjallshlíð.
Stúdentarnir þrír voru á leið
frá bænum Meridian til Phila-
delphia, en þar hugðust þeir
reyna að komast að því hverjir
hafi staðið fyrir íkveikju í kirkju
blökkumanna fyrr í mánuðinum.
Á leiðinni til Philadelphia stöðv-
aði aðstoðarmaður lögreglustjór-
ans í Neshoba þá og sakaði öku-
manninn um of hraðan akstur.
Eftir að ökumaðurinn hafði
greitt 20 dollara sekt, var þre-
menningunum sleppt, en eftir
það sáust þeir ekki framar fyrr
en lík þeirra fundust hinn 4.
ágúsL
Kvikmyndasýnin«
Germaníu í dag
í DAG kl. 14 er kvikmyndasýn-
ing félagsins Germaníu í Nýja
bíói. Sýndar verða frétta- og
fræðslumyndir, t.d. frá Docu-
menta-sýningu á nútímalist,
fræðsluteiknimynd handa börn-
um og aðalmyndin er um sin-
fóníuhljómsveitina í Bamberg.
Öllum er heimill aðgangur, börn-
um þó aðeins í fylgd fullorðinna.
— Kongó
Framhald af bls. 12
aðgerðamma í StamLeyvitlia,
sjatmar, þurfta hvorki Ðamdia-
ríkin né önmur Vesfcuirveld-
amma, að taka silífca áklvörð-
um. En haldi uppreismapmeni*
áfram að ógma tilveru sfcjórn-
arimnar í Leopoldville, sitend-
uir stjóm Johmspns Bamda-
rikjaforseta amdspænis mikla
vamdamáli og verður að fcaka
ákvörðum, sem getur haft
úralitaáhrif á samibúð Bairadia-
rikjanma og ríkja Aflríku.
(Heimilldir: „The Newr
York Tirmes,< og grein
Colins Legium, fréttarifc-
ana „The Observer").