Morgunblaðið - 05.12.1964, Qupperneq 23
Laugardagur 5. des. 1964
MORCUNBLAÐIÐ
23
Sýning 25 listamanna
• Einar Sigurðsson
Framh. af bls. 32
Ólafsson hefur á hendi fisk-
sölu fyrir tvö frystihús, þ. e.
Fiskiðjuna hf í Vestmanna-
eyjum og frystihús í Kópa-
vogi. Fiskiðjan hf hafði átt
aðild að Sölumiðstöðinni og
framleitt um 6% af þáverandi
útflutningi Sölumiðstöðvar-
innar.
Vegna þess sem gerðist á
stjórnarfundi SH sl. fimmtu-
dag, hefur Morgunblaðið átt
stutt samtal við Einar Sig-
urðsson og spurt hann nokk-
urra spurninga viðvíkjandi
þessu máli.
„Mundi það ekki vera að
bera niður á röngum stað að
segja sig úr SH, vegna þess
að yfirvöld hafa ekki fram-
fylgt tillögu, sem samþykkt
var á aðalfundi SH?“
„Ástæðan til þess, að ég
orðaði þetta eins og ég gerði
á stjórnarfundinum á fimmtu
daginn, var sú, að ég get ekki
sagt mig úr SH ef Sölumið-
stöðin verður ásamt SÍS lög-
gilt sem eini útflutningsaðil-
inn á frosnum fiski og síld.“
„í>ér hafið þá kannski ekki
trú á að farið verði eftir sam-
(þykkt aðalfundarins?"
„Nei, ég hef ekki trú á því,
og þar sem úrsögn úr SH er
að nokkru leyti bundin við
áramót, er nauðsynlegt fyrir
mig að hafa sagt mig úr sam-
tökunum fyrir áramót, hver
svo sem úrslitin verða. En
frystihúsin eru bundin með
fr.amleiðslu sína í eitt ár eftir
að þau hafa sagt sig úr sam-
tökunum.“
„Ef þér hefðuð mátt ráða,
hvort hefðuð þér heldur vilj-
að að tillagan, sem samþykkt
var á aðalfundi SH yrði að
veruleika eða að útflutningur
verði gefinn frjáls?“
j Einar Sigurðsson svaraði:
„Eg er einn af stofnendum
SH og hef unað þessu skipu-
lagi nú í nærri aldarfjórðung.
Hef ég að sjálfsögðu ekki
nema allt gott um SH að
segja. Ég hef verið formaður
Sölumiðstöðvarinnar eða vara
formaður lengst af og ráðið
þar miklu um skipulag og
starfsemi. En því er ekki að
leyna að ég hef í mörg ár
verið óánægður með það fé-
lagsform, sem þar er starfað
eftir og hvað eftir annað rætt
á félags- og stjórnarfundum
um nauðsyn á breytingu, hef
seinni árin talið að Sölumið-
stöðin væri sterkari í hluta-
félagsformi. Að sjálfsögðu
mundi ég fúslega sætta mig
við þetta skipulag áfram, ef
SH fengi þá aðstöðu, sem ég
tel að sé forsenda fyrir því
að samtökin geti starfað, án
þess að liðast meira eða
minna sundur.
Hinsvegar get ég sagt, að
í hjarta mínu vil ég sem víð-
tækast frelsi, jafnt á athafna-
sviðinu sem í verzlun.“
„bér afsakið þó við spyrj-
um, en teljið þér meiri gróða
von af útflutningi á frystum
fiski, ef útflutningsfyrirtækið
er í einkaeign?“
Einar Sigurðsson svaraði:
„Fyrir þjóðina í heild tel
ég, að það skipulag sem farið
er fram á í tillögunni, færi
henni betra verð fyrir fisk-
inn, þar sem ekki þarf að ótt-
ast undirboð, sem alltaf gerir
vart við sig, þegar margir eru
á markaðnum með sömu vöru.
En hinsvegar álít ég, að ein-
stök fyrirtæki, sem hafa ekki
alltof mikið magn að selja,
geti náð í einstökum tilfell-
um hærra verði og haft minni
sölukostnað en stóru fyrir-
tækin.“
Að öðru leyti kvaðst Einar
Sigurðsson ekki vilja ræða
þetta mál á opinberum vett-
vangi, bezt væri að bíða og
sjá hverju fram yndi.
í DAG verður opnuð samsýning
á 35 verkum eftir 25 þekkta lista-
menn. Listaverkin eru öll til
sölu og er fyrirkomulag sýning-
arinnar þannig að þær myndir
sem seljast eru strax afhentar
kaupendum, en nýjar myndir
settar upp í stað þeirra.
Yfir 60 listaverk eftir 25 lista-
menn eru nú til sölu í Gallery
16, og er því aðeins helmiragur
verkanna til sýnis í einu. Meðal
verka, sem nú eru til sýnis má
nefna olíumálverk eftir Sigurð
Akureyri, 4. des.
KVENFÉL AGIB Framtíðin
gengst fyrir jólamarkaði í Hótel
KEA isunnudaginn 6. des. Hann
hefst kl. 13,30 og stendur fram
eftir degi.
Þar verða ti;l sölu mörg h.undr
uð munir, sem fó 'ag-skonur hafa
unnið sjálfar að öllu leyti af
mikilili elju. Ein þeirra hefiur t.d.
gert yfir 40 muni. AUir eru miun
irnir mjög eigulegir og vandaðir
og ætlaðir ýmist til skraiuts eða
nytja. Eru þeir hinir ákjóisianleg-
ustu til jólagjafa. Þeir verða seld
ir á sannvirði.
Framtíðin hefur líka kaffi-
söilu þennan daig á sama stað, og
ýmis skemimtiatriði, sem börn
úr 3arnasikóla Akureyrar ann-
ast, verða til að gleðja geisti, leik
þættir, söngur, hljóðfærasláttur
og fleira.
— Saksóknari
Framhald af bls. 32.
í bókhiaildi Eimisikipafélaigs Rvík
ur h.f. m.a. uppgjör vegn.a leigu
ferða skips á árunum 1955—’57,
samtals um £ 64.408-0-0, og í
bókhaldi Harald Faaberg h. f.
m.a. tímaleigu tvegigja skipa ár-
in 1955—1956 um £ 13.040-0-0,
svo og fyrrgreind £ 111.779-0-0,
sem færð voru á reikning fél-
lagsins í Lonc’Jm. Eru þetta tal-
in vera brot gegn 262. gr. hegn
ingarlaiga og bókhai'dslög'um,
Enn fremur hefur saiksóknari
i sömu ákæru höfðað máil á hend
ur einum manni fyrir að haifa
notið persónulegs fjárvinnings
af of háum farmgjöldum, sem
ákærðu Harald Faaberg og
Óskar Aðalsteinn hafi innheimt
hjá einum framileiðanda, sbr. I)
lið hér að framan, svo og sótt
til ábyrgðar tvo meðstjómend-
ur fyrrgreindra tveggja fyrir-
tækja.
Málið verður þingfest í 9aka-
dómi miðvikudaginn 3. febrúar
næstkomandi.
Þórður Björnsson upplýsti
ennfremur, að mál þetta hefði
hafizt er gerð var húsraninsókn
og bókhaild fyrirtækisins var
gert upptækt í marzmánuði 1961.
Bókhaldið hefur síðan verið í
umfangismikilíú endurskjoðun og
dómsrannsókn. Að því húnu var
það sent til saksóknara ríkisins,
sem hefur höfðað máilið.
Sverri Haraldsson og Valtý
Pétursson. Gouache-myndir eftir
Þorvald Skúlason og Kristján
Davíðsson, teikningar eftir Hörð
Ágústsson og Hring Jóhannesson,
grafik eftir Braga Ásgeirsson,
vatnslitamyndir eftir Örlyg Sig-
urðsson og Pétur Friðrik Sig-
urðsson.
Þetta er önnur samsýning í
Gallery 16 og er ráðgert að halda
slíkar samsýningar mánaðarlega
framvegis. Sýningin verður opin
frá kl. 1—10 e.h. alla daga fram
á miðvikudagskvöld. Aðgangur
er ókeypis.
Allur ágóði af jólamarkaðin-
um Og kaffisölunmi rennur til
Elliheimilis Akureyrar, en Fram
tíðin hefur um iangt skeið unnið
því aillt það gagn, sem hún hef-
ur mátt; gaf m.a. eina milljón kr.
á vígsdudegi þesis 1962. Mikil
þörf er á að stækka elliheimilið.
Þar eru nú 28 vistmenn, en tuigir
á biðlista og rekstur þess á ýms-
an hátt óhagkvæmur, meðan vist
menn eru ekki fleiri.
Á sunnudaginn gefst Akureyr
ingum kostur á að styrkja gott
miálefni, um leið og þeir geta
keypt góða og girnilega muni Dg
notið veitinga og skeanmtaina.
— Sv. P.
Frárennslið frá
Hörpugötu-
húsunum
Blaðinu hefur borizit eftirfar-
andí frá skri.f.sú-fu borgarverk-
fræðings:
í SAMBANDI við blaðaskrif
Þjóðviljans um útrás holræsis
við flugbrautarenda hjá Suður-
götu, skal eftirfarandi tekið
fram:
Upphatflega voru öll hús við
Hörpugötu, beggja vegna flug-
brautar, tengd við útrás þessa,
ásamt húsum við Góuigötu og
Rey kj aivíkurveg.
í ársbyrjun 1961 var holræs-
inu í Hörpugötu, norðan flug-
brautar snúið við þannig að frá-
rennsli frá byggðinni norðan
flugbrautar fer nú út í aðalræsi
frá Háskólahverfi.
Umtöluð útrás tekur því að-
eins við frárennsli frá 6 húsum
við Hörpugötu, sunnan flug-
brautar.
Ekki er hægt að tengja þessi
hús við áðurnefnt Háskólaræsi,
því þá hefði það valdið þeim
truflunum á flugsamgöngum, að
bæði utan- og innanlandsflug
hefði lagst niður um tíma.
Með fyrirhuguðuim holræsa-
framkvæmdum í Skildinganesi
leggst útrás þessi niður. Þangað
til mun verða fylgzt með að út-
rás þesi gegni sínu hlutverki,
eins og gert hefur verið hingað
tÍIL
— Jólin nálgast
Framihald af bls. 10
jólasveinninn eigi heima á ís-
landi eða Norðurpólnum.
Þrjár yngismeyjar, Rúna,
Sigga og Bjarma, voru að
skoða nýja og stóra bítlaplötu
í Hljóðfæraverzlun Sigríðar
Helgadóttur í Vesturveri.
— Je minn, sagði Rúna,
þessa plötu vil ég fá í jóla-
gjöf.
Þær drógu fram plötuna og
bollalögðu, hver þeirra fjór-
menninga væri sætastur, Jón,
Eáll, Georg eða Ringó.
Sálmurinn „Heims um ból“
barst okkur til eyrna. Þessi
yndislegi . jólasálmur, sem
hljómar á hverju heimili á
helgustu hátíð ársins, er á
nýrri hljómplötu, sem Haukur
Morthens hefur sungið inn á.
Þetta er jólaplata, eins og
titill hennar ber með sér, en
hún heitir „Hátíð í bæ“.
Hvorki meira né minna en
tuttugu jóla- og barnasöngv-
ar.
Og þarna var Haukur sjálf-
ur mættur til þess að tryggja
sér eintak, því að platan var
einmitt að koma í búðina.
— Þær eru orðnar æði marg
ar plöturnar þínar, Haukur,
sögðum við.
— Það má nú segja, sagði
hann. Ég hef ekki einu sinni
tölu á þeim öllum sjálfur. Á
þeim 12 árum, sem ég hef
stundað þetta, hef ég sungið
nokkuð á annað hundrað lög
á plötur.
— Og nú eru það jólalögin?
— Já, platan er helguð jól-
unum og er fyrir fólk á öll-
um aldri. Jólasálmar, jóla-
söngvar fyrir unga fólkið í
skemmtilegum búningi Ólafs
Gaupks, sem reyndar hefur
útsett öll lögin á plötunni. Svo
eru innan um falleg, sígild
lög, sem mér þykir mjög vænt
um og ég veit, að eiga eftir að
heyrast oft, t.d. lag úr kvik-
myndinni Mondo Cane, sem
-túlkar þrá farmannsins á jól-
unum.
Platan snýst stöðugt á plötu
spilaranum og fólk staldrar
við til þess að hlusta. Jafnvel
stúlkurnar þrjár, sem óskuðu
sér bítlaplötuna f jólagjöf,
leggja við eyrun og draga
- Páll páfl
Framhald af bls. 1
Áður hafði páfi snætt árdegis-
verð með nokkrum drengjum á
•heimili fyrir munaðarlausa.
Einn drengjanna ávarpaði páfa,
og sagði m.a.:
— Margir okkar eru föðurlaus-
ir. Margir okkar eiga engar mæð-
ur. Sumir okkar, eins og ég, eiga
engann að í heiminum. Þér hafið
farið frá stórmennum og merk-
um stöðum til að heimsækja
okkur í okkar fátæklega um-
hverfi. ... Við getum ekkert gef-
ið yður, því við eigum ekkert.
En við biðjum Guð að launa yðar
heilagleika.
Páfi færði heimilinu peninga-
gjöf, sem nægir til að standa
undir eins árs rekstri þess.
Talið er að um 100 þúsund
manns hafi verið saman komnir
er páfi fór frá munaðarleysingja-
heimilinu áleiðis til kaþólsks
drengjaskóla þar skammt frá.
Átti lögreglan fullt í fangi með
að ryðja bifreið páfa braut gegn-
um mannþröngina. Hafði páfa
verið ráðlagt að stíga ekki út úr
bifreiðinni á leiðinni, því óttazt
var að hann yrði fyrir árásum
öfgamanna. Engu að síður sté
páfi út og blessaði fjöldann. og
var honum heilsað með gífurleg-
um fagnaðarlátum.
í kaþólska skólanum söng páfi
messu úti undir beru lofti. Hafði
um 16 þúsund unglingum verið
boðið til messunnar, en talið að
um fjögur þúsund aðrir hafi
einnig troðizt þangað inn.
fram plötuumslagið og virða
fyrir sér.
— Undirleikurinn er alveg
skínandi, segir Haukur. Þetta
eru, skal ég segja þér, danskir
hljóðfæraleikarar úr hljóm-
sveit gítarleikarans Jörn Grau
engaards, úrvalsmenn, þeirra
á meðal Paul Godske, sem var
kjörinn „jazzmaður ársins“ í
Danmörku 1962. Okkar ágæti
gítarleikari, Ólafur Gaukur,
leikur lika með.
Upptaka þessarar nýju plötu
var gerð í Kaupmannahöfn og
virðist hafa heppnazt með á-
gætum. Lögin á nýju plötunni
hans Hauks eiga eflaust eftir
að heyrast oft á næstunni, því
að um kcöldið spurðum við, að
upplag plötunnar væri þrotið
— en ný sending mun vera
væntanleg á mánudaginn að
því er Helgi Hjálmsson, fram-
kvæmdastjóri verzlunarinnar,
tjáði okkur.
f Alaska við Breiðholt ræð-
ur ríkjum Þór Snorrason, garð
yrkjumaður. Hér eru seld jóla
tré og jólagreinavafningar. Við
vafningsvinnuna vinna sex
manns, þeir hinir sömu og
eiga heiður að jólaskreyting-
unum á Skólavörðustíg, sem
fyrr getur.
— Við fáum greinarnar í 10
kílóa kippum, segir Þór, við
klippum þær til og vefjum
síðan á band.
— Er ekki vandasamt að
hengja þetta upp? spyrjum
við.
— Jú, segir hann. Sumstað-
ar er hátt og erfitt að athafna
sig — þetta er erfitt verk í
vondum veðrum. Stundum vill
þetta allt slitna niður, þegar
blæs. Þá verður maður að fara
út og laga.
— Hvað vefjið þið marga
metra um hver jól?
— Um síðustu jól vöfðum
við 1800 metra. Margir kaupa
þetta til þess að setja á svala-
handrið, en meterinn kostar
45 krónur.
— Viltu gefa fólki heilræði
varðandi meðferð jólatrjáa,
Þór?
— Það má ekki láta þau
standa nálægt miðstöðvarofn-
um, því að þá detta nálarnar
af. Mörgum hefur tekizt að
láta jólatré lifa og hafa getað
notað þau aftur um næstu jól.
Þetta er hægt með því að láta
trén í kalda geymslu, en setja
þau út, ef hlýtt er í veðri.
— Kinverjar
Framhald af bls. 1
staðfesting á þeim orðrómi, sem
uppi var meðan Chou En-lai var
í Moskvu, að fulltrúar landanna
tveggja muni koma saman til
fundar snemma á næsta ári til
að reyna að finna lausn á deilu-
málunum.
★
Antonin Novotny, forseti
Tékkóslóvakíu, hefur að undan-
förnu dvalizt í Moskvu og rætt
þar við sovézka leiðtoga. Hélt
hann heimleiðis í dag, og fylgdi
Leonid Brezhnev, aðalritari
kommúnistaflokksins, honum til
flugvallarins. í sameiginlegri
yfirlýsingu leiðtoga Sovétríkj-
anna og Tékkóslóvakíu í tilefni
heimsóknarinnar segir m.a. að
bæði löndin muni halda áfram
baráttu fyrir einingu kommún-
istaríkjanna. Telja báðir aðilar,
að alþjóðaráðstefna kommúnista-
leiðtoga væri þýðingarmikið spor
í þá átt að draga úr ágreiningn-
um.
★
Málgagn austur-þýzkra komm-
únista, Neues Deutschland, tekur
í s&ma streng í dag. Lýsir það
yfir stuðningi við hugmyndina
um alþjóðaráðstefnu kommún-
ista. Segir blaðið að austur-
þýzkir kommúnistar óski þess að
hin góða sambúð, sem nú ríki
milli Kína og Sovétríkjanna,
verði enn bætt, og telur ráðstefn-
una vænlegasta ráðið
Sigurðsson, Jóhannes Geir,
Jdlamarkaður Framtíð-
ariitnar á Akureyri
til ágóða fyrir elliheimilið