Morgunblaðið - 05.01.1965, Blaðsíða 20
20
MCRCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. janúar 1965
Frá Gjaldheimtunni í Reykjavík
Símanúmer Gjaldheimtunnar í Reykja-
I
vík er nú 17940.
Gjaldheimtan.
Vegnca útfarar
herra ÓLAFS THORS, fyrrverandi forsætisráð-
herra loka neðangreindir bankar kl. 12 á hádegi,
þriðjudaginn 5. janúar, 1965.
Síðdegisafgreiðslurnar verða opnar eins og
venjulega.
Seðlabanki íslands
Landsbanki íslands
Búnaðarbanki íslands
Útvegsbanki Islands
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Verzlunarbanki íslands h.f.
Samvinnubanki íslands h.f.
Lokað
Skrifstofum okkar verður lokað eftir hádegi,
þriðjudaginn 5. þ.m. vegna jarðarfarar Ólafs Thors,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda.
Lokað
Skrifstofur vorar verða lokaðar eftir hádegi í dag,
vegna jarðarfarar fyrrverandi forsætisráðherra,
ÓLAFS THORS
Sölumiðstöð hráðfrystihúsanna
H.f. Jöklar.
Tryggingamiðstöðin h.f.
Miðstöðin h.f.
Lokað í dag
til kl. 4 vegna jarðarfarar Ólafs Thors, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Raftækjaverzl. Ljós og Hiti, Garðastr. 2.
Lokað
eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar Ólafs Thors
fyrrverandi forsætisráðherra.
Vinnuveitendasamband Islands.
Lokað
vegna jarðarfarar frá hádegi.
Samtrygging íslenzkra botnvörpunga.
Lokað
Skrifstofa Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verð
ur lokuð frá kl. 12 á hádegi í dag, þriðjudaginn 5.
janúar vegna jarðarfarar Ólafs Thors, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Framh. af bls. 17
þingmálafundur, sem þeir hefðu
komið á. Eins og vitað er, sigr-
aði Ólafur í þessum kosningum,
og ætíð jsíðan, enda hélt hann
tryggð og vináttu við kjósendur
sína allt til hins síðasta dags.
Og sjálfur kveð ég hann með
söknuði.
Hér í þessum fáu orðum verð-
ur ekki upptalið það sem hann
gerði fyrir sitt kjördæmi. En
kjósendur hans geta nú litið til
baka og borið saman það sem
var og það sem gert hefir verið
í hans þingmannstíð. Að vísu
hafa þar fleiri komið til, en
traust forysta er mikils virði.
Ýmislegt myndi áreiðanlega
skemmra á veg komið, ef hans
forusta hefði ekki komið til.
Hann er því kvaddur með virð-
ingu og einlægu þakklæti.
Megi land vort eignast sem
flesta forvígismenn honum líka.
Steini Guðmundsson,
Valdastöðum.
t
ÓLAFUR Thors var höfuðleið-
togi Sjálfstæðisflokksins og
fremsti foringi íslenzkrar þjóðar
í þrjá áratugi. Byltingarkenndar
framfarir og umbætur á lífi og
högum þjóðarinnar á þessu tíma-
bili markast framar öllu öðru af
stórbrotnum persónuleik hans,
dirfsku, bjartsýni og stórhug.
Við ungir Sjálfstæðismenn er-
um stoltir af því að hafa átt slík-
an foringja. Við erum stoltir af
því að hafa átt fyrir leiðtoga svip
mesta stjórnmálamann íslend-
inga þessarar aldar.
Við hrifumst af eldimóði hans
og baráttuhug. Þegar ungir Sjálf-
stæðismenn af öllu íslandi komu
saman til þings í marz sl. sendi
Ólafur Thors þinginu skeyti.
Þar var kall til nýrrar sóknar
fyrir hugsjónum og baráttumál-
um Sjálfstæðismanna og fram-
faramálum íslenzkrar þjóðar.
Það sýndi okkur, að eldmóður-
inn var jafn mikill og áður ag
baráttuandinn sá sami og áður.
Persónuleg kynni mín af Ólafi
Thors voru stutt. En hann sýndi
mér mikla vinsemd þann tíma,
sem ég þekkti hann. Eftir nokk-
ur samtöl, sem ég átti við hann
á sl. ári, gerði ég mér gleggri
grein fyrir því en áður, hvílik
áhrif þessi maðúr hlýtur að hafa
haft á alla þá, sem með honum
unnu og komust í snertingu við
glæsta persónu hans, andstæð-
inga jafnt og samherja.
Ungir Sjálfstæðismenn kveðja
mikinn foringja með söknuði,
þakklátir fyrir að hafa notið for-
ystu manns, sem allt til hins síð-
asta var yngstur allra, bjartsýn-
astur, djarfastur.
Styrmir Gunnarsson.
t
„ VINUR okkar Ólafur er látinn".
Á þennan hátt barst mér fregnin.
Reyknesingar kveðja ástælan
foringja og vin, sem um 39 ára
skeið hefur haft forustu um mál-
efni þeirra.
Ólafur Thors var fyrst kjörinn
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
haustið 1925. Hann vann þær
kosningar með miklum yfirburð-
um, og með því hófst hinn glæsi-
legi stjómmálaferill hans.
Við, sem frá upphafi höfum
fylgzt með stjórnmálabaráttunni
í því kjördæmi, vitum í hve vax-
andi mæli hann átti vinsældum
að fagna, ekki eingöngu hjá sam-
herjum, heldur einhig hjá mót-
herjum. Hvað vinsældir Ólafs
stóðu föstum fótum meðal ibúa
kjördæmisins kom ekki hvað sízt
í ljós haustið 1963, þegar hann
varð að láta af embætti forsætis-
ráðherra.
Fyrst og fremst var Ólafur
maður þjóðarinnar. Undir hans
forustu hafa verið teknar stærstu
ákvarðanirnar í stjórnmála- og
atvinnulegu tilliti, er hafa varan-
leg áhrif á framþróun hennar.
fslenzk stjórnmál hafa oft ver-
ið mjög hörð, og oft persónulegri
og harðskeyttari en í öðrum
löndum.
Um þann mann, sem hefur
verið einn af forustumönnum og
um þrjá áratugi formaður
stærsta stjórnmálaflokks þjóðar-
innar, hefur því oft verið storma-
samt. En þar nutu hinir fjöl-
mörgu, stórbrotnu eiginleikar Ó.l-
afs sín ekki hvað sízt. í þeim
hildarleik sýndi Ólafur ávallt
hve mikill drengskaparmaður
hann var.
Það er ekki undrunarefni, að
slíkur maður sem Ólafur var,
ætti marga aðdáendur, en það
lýsir mannkostum hans vel, hve
andstæðingamir mátu hann mik
ils.
Ég tel að Ólafur Thors hafi
verið mikill gæfumaður, að fá að
sjá ávöxt ævistarfs síns, hvernig
þjóðin undir öruggri forustu
hans komst úr fátækt til bjarg-
álna. Það verður með sanni sagt,
að á hans síðari árum var hann
ekki aðeins flokksleiðtogi, heldur
leiðtogi allrar þjóðarinnar.
Ég tel mér það mikla gæfu að
ég, sem ungur maður, kynntist
Ólafi og tengdist honum vináttu-
böndum, og ég hefi notið hans
hollu ráða og leiðbeininga á
mörgum sviðum.
í starfi mínu, fyrir samtök út-
vegsmanna, hefur á undanförn-
um árum oft orðið að leita til ís-
lenzkra stjórnarvalda. Hvort
heldur Ólafur fór með málefni
þeirra eða ekki, þá treystu út-
vegsmenn á réttsýni hans.
Ég vil svo votta frú Ingibjörgu,
börnum þeirra hjóna og öðrum
ættingjum, innilega samúð.
Sverrir Júlíusson.
t
ÞEGAR hringt var til okkar
hjóna á gamlársdagsmorgun og
okkur sagt, að Ólafur Thors hafi
látizt fyrr um morguninn, áttum
víð enfitt með að átta okkur á
þeirri staðreynd, að hann væri
genginn. Dauðinn virðist alltaf
koma óvænt, ekki sízt dauði
manns eins og Ólafs Thors, sem
í hugskoti mínu var ætíð gædd-
ur meira lífi en nokkur annar
maður, sem ég hefi kynnzt. Per-
sóna hans geislaði af meiri lífs-
orku og athafnaþrá, en nokkurs
annars manns, er ég hefi þekkt.
Að vásu vissi ég, að heilsu hans
hafði hrakað hin sfðari ár, en
hann hafði svo oft áður verið
veikur, en heiisan batnað aftur
og svo vonaði maður, að einnig
yrði í þetta sinn.
„Það syrtir að, er sumir
kve'ðja" segir Davíð Stefánsson
í einu ijóði sínu. Er fregnin um
andlát Ólafs Thors barst hér
syðra virtist mér einhver óhug-
ur hvíla yfir mönnum allan dag-
inn. Fánar blöktu allstaðar í
hálfa stöng og allir töluðu um
hinn mikl a missi, sem þjóðin
hafði orðið fyrir við frá-fall eins
mesta þjóðskörungs fslands á
þessari öld. Um þetta voru allir
sammála úr hvaða stjómmála-
flokki, sem þeir voru. Ólafur
Thors var elskaður og virtur af
öllum sem til hans þekktu, eklki
síður af andstæðingum í stjórn-
málum en kjósendum hans. Enda
var það svo, að ég tel, að enginn
íslenzkur stjórnmálamaður hafi
notið eins mikils jærsónufylgis í
kjördæmi sínu og einmitt hann.
Fjölda fólks þekki éig, sem kaus
Ólaí til þings þótt það fylgdi ekki
Sjálfstæðisflokknum að málum
og kaus sína flokksmenn til bæj-
arstjórnar og hreppsnefnda.
Margs er að minnast frá löngu
liðnum árum. Ég minnist náina
samstarfs við hinn látna höfð-
ingja í rúma 2 áratugi. Ég minn-
ist kosningafundanna viða um
kjördæmið þar sem ■ Ólafur hélt
sínar gneistandi ræður og barð-
ist við andstæðinga sína en ætíð
á svo drengilegan hátt, að orð
fór af og oft undrast yfir vegna
þess, a'ð baráttuaðferðir andstœð
inganna gáfu oftast ekki tilefni
til þess. Ég minnist hinna fjöl-
mörgu árslhátíða Sjálfstæðisfé-
laganna i Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og síða-r í Reykjaneskjör-
dæmi, þar sem þau hjónin Ólafur
Thors og frú Ingibjörg settu sér-
stakan elskulegan blæ á sam-
komwrnar með ljúfmennsku
sinni og auðsærri gleði yfir, að
eyða kvöldstund með okkur. En
einna minnisstæðastir eru mér
fámennu fundimir, sem Ólafur
hélt með hópi trúnaðarmanna.
Þetta voru óformlegir fundir,
þar sem aillir lögðu sinn skerf
til málanna en Ólafur að sjálf-
sögðu miðdepillinn og áður en
varði var kvöldið liðið. Þegar
heim kom, var hugurinn fullur
af álhrifum af innblæstri Ólafs
Thors, hugmyndum og áfórmum
um hvað hægt væri að gera til
eflingar þeirri stefnu í þjóðmál-
um, sem við trú’ðum á og foringi
okkar hafði helgað líf sitt og
baráttu.
Á fundum sínum liagði Ólafur
Thors ætíð mikla áherzlu á það,
að kvenfóHkið í kjördæmi hans
tæki virkan þátt í flokksstarf-
seminni og voru því að hans á-
eggjan félög Sjálfstæðiskvenna
stofnuð víða um kjördæmi'ð þ.á.
m. félag það, sem ég hefi veitt
forstöðu nú um 16 ára skeið með
stuðningi og náinni samvinnu við
hinn mikla foringja okkar.
Við konur í Reykjaneskjör-
dæmi eigum Ólafi Thors mikið
að þakka og mikið upp að unna,
en ég veit, að minningu hans
heiðrum við bezt með þvi að
halda áfram ba-ráttu okkar fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og styðja og
styrkja þá stefnu, sem hann
helgaði líf sitt. Veit ég, að allar
Sjálfstæðiskonur í Reykjaneskjör
dæmi — og vfðar — eru sam-
mála um þetta. Með Ólaifi Thors
er tvímælalaust genginn einn
svipmesti og stórhrotnasti stjórn-
málaskörungur þessarar aldar og
kjósendur hans í Reykjaneskjör-
dæmi eru þakklátir fyrir, að
hafa átt þvi láni að fagna, að
hafa hann sem foringja sinn og
umboðsmann á Aliþingi íslend-
inga ailila hans stjómmálaævi.
Skarð hans verður því vandfyllt.
Ég hafði vonað, að Ólafur og
frú Ingibjörg mættu eiga eftir,
að fá mörg og friðsæl ár saman.
Þa'ð má geta nærri, að oft hefur
verið ónæðissamt á heimili þeirra
og frú Ingibjörg oft orðið að
sýna mikla þolinmæði og fórn-
fýsi, en hún var einmitt hin rétta
eiginkona fyrir umsvifamikinn
stjórnmálamann, enda var hug-
ur hans oft hjá henni í ferða-
lögum sínum um kjördæmið, og
í flestum ræðurn sínum minntist
hann hennar, sem hann elskaði
og virti meir en allt.
Að lokum vil ég þakka pe<r-
sónulega vináttu við okkur hjón-
in í áratugi og vi'ð vottum frú
Ingibjörgu, börnum, tengdabörn-
um og barnabörnum okkar inni-
legustu samúð.
Vigdís Jakobsdóttir.
Skriastofur vorar
verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar.
Kveldúlfur hf.