Morgunblaðið - 30.03.1965, Síða 2
2
MORCUNBLAÐ!B
Þriðjudagur 30. marz 1965
<
Stefán Jónsson, forseti bæ.jarstjórnar Hafnarfjarðar, býður fulltrúa velkomna í kaffisamsaeti.
Xil vinstri Hörður Bjarnason, form. Skipulaffsstjórnar ríkisins og til hægri Hafsteinn Baldvins-
»on bæjarstjóri Hafnarfjarðar. — Ljósm. Mbl.: Sv. I>orm.
Fyrsta ráðstefna byggingar-
fulltrúa af öllu landinu
I GÆR hófst í Reykjavík ráð-
stefna byggingarfulltrúa og
sveitarstjórnarmanna hvaðan
æva af landinu. Ráðstefna ]>essi
sem er haldin á vegum Skipu-
lagsstjórnar rikisins og Sam-
bands ísienzkra sveitarfélaga, er
hin fvrsta sinnar tegundar á ís-
landi. Megintilgangur hennar er
að kynna þeim, sem urr. bygg-
ingar- og skipulagsmál fjalia,
samþvkktir og reglur um þessi
mái og stuðla að því, að sem
hagkvæmust vinnubrögð verði
tekin upp í þessum efnum.
Hörður Bjarnason, form.
Skipulagsstjórnar ríkisins, setti
náðstefnuna. Sagði hann m.a., að
megintilgangur ráðstefnunnar
yrði að kynna fulltrúum sem
bezt ákvæði og reglur byggingar-
löggjafarinnar, sem ætlunin væri
að samræma á öllum skipulags-
skyldum stöðum. Annað höfuð-
verkefni ráðstefnunnar yrði að
kynna fulltrúunuim hina nýju
skipulagslöggjöf og þau störf og
ábyrgð, sem þeim væri lögð á
herðar á hverjum stað í sam-
bandi við framkvæmd þeirrar
undirstöðu byggðarinnar, sem
skipulagið hlýtur að vera.
Að ávarpi Harðar Bjarnasonar
loknu flutti Páll Líndal borgar-
lögmaður erindi um skipulagslög
in og Zophanías Pálsson um
samskipti byggingarfulltrúa og
skipulags.
, Þá var Ólafur Ásgeirsson kjör-
inn fundaritari ráðstefnunnar og
fundarstjórar þeir Hafsteinn
Baldvinsson, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar, Hjálmar Ólafsson, bæj-
arstjóri Kópavogs, Gunngeir Pét-
ursson, skrifstofustjóri bygginga-
fulltrúans í Reykjavík og Ólafur
G. Einarsson sveitarstjóri Garða-
hrepps.
Eftir hádegi fóru fulltrúar í
kynnisför um Kópavog, Garða-
hrepp og Hafnarfjörð. Kl. 5
síðdegis hélt síðan bæjarstjórn
Hafnarfjarðar þeim kaffisam-
sæti.
Gert er ráð fyrir, að ráðstefn-
unni ljúki á fimmtudagskvöld.
Kouur í Kópa-
VÖ£Í
SÝNIKENNSLA í gerð veizlu-
brauðs verður í Sjálfstæðishús-
inu í kvöld, kl. 20,30. Sérstak-
lega miðað við fermingar.
Allar konur í Kópavogi, sem
áihuga hafa á þessu, eru vel-
komnar.
Chou gagnrýnir
endurskoðunarsinna
Stearlsemi barna-
verndarnefndar
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
skýrsla um störf barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur árið 1964.
Hafði nefndin á árinu afskipti
af 117 heimilum vegna aðbúnaðar
350 barr.a og 203 börnum vegna
afbrota. Þá fjallaði nefndin um
deilur nm forræði 17 barna í
hjónaskilnaðarmálum, mælti með
20 ættleiðingum, auk ýmissa ann
arra starfa^
Tilefni afskipta af börnum er
margvíslegt en mest ber þó á
erfiðum heimilisaðstæðum vegna
veikinda, húsnæðisleysis,
drykkjuskapar eða hirðuleysis
foreldra barnanna annars vegar
og hins vegar afbrota barna. Til
nefndarinnar var alls vísað mál-
um 612 barna á árinu. Eins og
áður er getið fjallaði hún um
mál 203 barna vegna 271 afbrots.
Til samanburðar má geta þess,
að á siðasta ári voru börnin 305
en brot 425. í skýrslunni eru brot
in flokkuð í liði. Segir svo um
lækkun þessa:
„Mest er fækkunin á liðunum
„Flakk og útivist", én þar eru nú
einungis skráð 7 brot á móti 76
í fyrra. Nokkur fækkun hefur
einnig orðið á liðnum „Skemmd-
ir og spell“ og „Lauslæti og úti-
vist“. Á tveimur liðum „Innbrot"
og „Svik og falsanir“ hefur fjölg
að lítillega frá síðasta ári. Brota-
fjöldi á öðrum liðum töflunnar
hefur því sem næst staðið í stað.
Varast ber að líta á þá fækkun,
sem orðið hefur, sem merki um
batnandi ástand. Fækkun útivist-
arbrota á ekki rætur sínar að
Lítill afli á
Eskifirði
Eskifirði, 29. marz.
TVEIR nótabátar komu hingað í
gær. Steingrímur trölli kom með
31,5 tonn og Krossanes 48,5 tonn.
Aflinn var mestmegnis ýsa, sem
fengizt hafði á nokkrum dögum.
— íslaust er nú hér inni á firð-
inum, en úti í Reyðarfirði er dá-
lítill íshroði, sem bátar komast
þó klakklaust um.
Bátarnir hafa aflað illa að
undanförnu.
G.W.
rekja til minnkandi eftirlits held
ur til þess, að minna er gert af
því en áður að skrá nöfn þeirra
barna, er sæta áminningu vegna
útivistar. Þá hafa og lauslætis-
brot stúlkna í æ ríkara mæli
orðið viðfangsefni kvenlögregl-
unnar og því fækkað að sama
skapi í skýrslum nefndarinnar".
Þá er skýrt frá því, að í árs-
lok 1964 voru 218 heimili undir
stöðugu eftirliti barnaverndar-
nefndar, vegna ófullnægjandi að-
búnaðar barna. Heimiliseftirliti
er beitt í þeim tilvikum, þar setn
þörf er á stöðugri aðstoð og að-
haldi. Kemur starfsfólk nefndar-
innar vikulega eða oftar á suna
þessara heimila, en önnur nokkru
sjaldnar.
Barnaverndarnefnd útvegaði
204 þörnum og unglmgum dvalar
stað um lengri eða skemmri tíma
(á síðasta ári 218). Var það ýmist
vegna. heimilisástæðna eða erfið-
leika barnanna sjálfra. Dvalar-
staðir þessir eru barnaheimili
Reykjavíkur, Reykjahlíð, Silunga
pollur og Hlíðarendi; ríkisstofn-
anirnar Elliðahvammur o.g
Breiðavík, auk fáeinna einka-
heimila. Að Hliðarenda er vöggu
stofa fyrir 32 börn innan þriggja
ára. Árið 1964 dvöldust alls 98
börn á vöggustofunni. Silunga-
pollur er vistheimili fyrir 30 börn
á aldrinum þriggja til sjö ára.
Þar dvöldust á árinu alls 100
börn. Reykjahlíð er vistheimili
fyrir 20 bÖrn, 7 ára og eldri. Þar
dvöldust árið 1964 alls 37 börn.
Ísraelsvnenn \
vonsviknir !
Jerúsalem, 29. marz (NTB) k
FRÚ GOLDA Meir, utanrikis- 1
ráðherra ísraels, sagffi á fundi f
í þinginu í Jerúsalem í dag, *
aff striðsglæpan-.enn nazista v
ættu aff vita, aff þeir gætu ð
aldrei komizt undan réttvís- »
inni. Hún sagffi, aff ísraels-1
menn væru vonsviknir yfir, V
aff V.-Þjóðverjar hefðu ekki n
lengt fyrningarfrest saka frá f
stríðsárunum nema um f jögur 1
og liálft ár, þ.e.a.s. til ársloka i
1969. I
Tirana 29. marz (NTB).
CHOU En-lai, forsætisráðherra
Kinverska Alþýffulýðveldisins,
hélt ræðu í Tirana, höfuðborg
Albaníu í dag og sagði m.a., að
kínverzka þjóðin væri reiðubúin
að veita ibúum Víetnam alla
nauðsynlega aðstoð. Síðan gagn-
rýndi Chou endurskoðunar-
sinna, og það sama gerði for-
sætisráðherra Albaníu, Mehemt
Chehou, sem tók til máls á eftir
Chou.
Chehuo sagði, að endurskoðun-
arstéfna væri það sama og stefn
am um friðsamlega sambú'ð, sem
Sovétrrkin fylgdu. Þeosi upp-
gjaifarstefna hefði valdið ágrein-
ingi innan heimskommúnismans
og hvatt bandaríska heimsvalda
sinna til þess að framfylgja ár-
ásarstefnu sinni í Víetnam.
Tilkynnt var í kvöld, að frá
Aibaníu héldi Ohou En-lai á
morgun til Alsír í tveggja daga
heimsókn í boði Ben Bella, for-
j seta. Talið er, að þeir ræði sam-
j búð landa sinna, væntanlega ráð-
I stefnu æðstu manna Asíu- og
| Afríkuríkjanná og ástandið í VLet
nam.
STILLT og bjart veður var i
gær í Vestur-Evrópu. Hitinn
þar komst upp í næstum 20
stig um hádaginn, en niður í
5 stig á næturnar. í New York
var slydduél og 4 stiga hiti, en
frost í Boston. Á kortinu sést
nokkurnveginn lega hafísins.
Miðfjörður fylltist af ís í fyrri
nótt, en jakar sáust á reki frá
Horninu á Skaga og Máná á
Tjörnesi. ísinn liggur upp að
Langanesi norðanverðu, en
suður í Vopnafirði er hann út
við sjóndeildarhring. Seyðis-
fjarðarflói, Norðfjarðarflói,
Fáskrúðsfjörður og Stöðvar-
fjörður voru að mestu fullir
af ís.
Þessa mynd af Mexikó tók bandaríski geimfarinn John Young úr geimfarinu „Moliy Brown.“ Sést
hluti geimfarsins neðst tv. á myndinni. Sem kunnagt er, voru þtir tveir i geimfarinu Young og Virgii
i GrLsum.