Morgunblaðið - 30.03.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.03.1965, Blaðsíða 28
28 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 30. marz 1965 ANN PETRY: STRÆTID — En hvað þér eruð sæt ungfrú. Eg gæti hreint etið yffiur. Hún flutti inn til hans þenn- an sama dag. Ekki hafði hún nú mikið af húsgögnum meðferð- ist, svo að það varð ekkert vanda mál að koma þeim fyrir í her- bergjunum hans. Rúm, skrifborð, eldhúsborð, nokkra stóla og langt spegilborð með skrautlega út- skornum fótum. — Ein af frún- um mínum gaf mér það, útskýrði hún og áminnti hann um að fara varlega með það í stiganum. Sambúðin gekk prýðilega hjá þeim, allt þar til Lutie Johnson flutti inn. Þá fór honum að þykja sem hann gæti ekki lengur þolað að horfa á Min. Sköpulagslausi líkaminn hennar í rúminu hjá honum varð að einskonar girð- ingu hjá honum og Lutie. Min var alltaf í flóka-inniskóm, sem skelltust við hvíta hælana á henni, þegar hún gekk um. Það hvissaði í þeim þegar hún gekk frá eldavélinni að vaskinum, eins og hún var núna að gera. Hvenær, sem hann heyrði þetta hljóð, minntist hann hælasmell- anna þegar Lutie gekk um. Hviss ið í flókaskónum á Min lokaði úti allt annað hljóð og svörtu, hnút- óttu fæturnir á henni skyggðu í draumum hans á löngu, brúnu fæturna á Lutie. Þegar hann sat og hlustaði á Min vaða fram og aftur um eld- húsið, fann hann, að hann hataði hana. Hann vildi meiða hana eitt hvað, fá hana til að kveinka sér undan honum, þangað til henni liði eins illa og honum leið nú. — Maturinn er til, sagði hún með lágu, sönglandi röddinni. Hann hreyfði sig ekki úr stóln- um. Hann ætlaði ekki framar að borða með henni. Hann tók þessa ákvörðun snögglega meðan hann hlustaði á fótatakið hennar, út úr eldhúsinu og inn í það aftur. Hún stanzaði í dyrunum: — Ætlarðu ekkert að éta? Hann hristi höfuðið og beið eftir, að hún spyrði hann hvers- vegna, og þá gat hann öskrað upp og hótað henni að misþyrma henni. En hún sneri þegjandi til eldhússins, og honum fannst hann hafa verið prettaður. Hann hlustaði á hana matast. Smellina í gafflinum á diskinum, og þegar hún hrærði í tebollanum, sötrið þegar hún drakk teið, og hníf, sem glamraði á diskinum. Hún hellti í annan bolla af te, sitj- andi uppi á eldavélinni og svo heyrði hann ekki í inniskónum þegar hún gekk aftur að borð- inu. Og hann stóð snöggt upp og gekk út úr íbúðinni. Hann þoldi ekki að vera þarna inni með henni mínútu lengur. Hann ætl aði að fara niður í kjallara og moka á miðstöðina og sitja svo þar niðri dálitla stund. Þegar hann kæmi upp aftur, ætlaði hann að éta og labba svo út á götu, til þess að vita, hvort hann sæi ekki til Lutie þegar hún kæmi heim. Þegar hann kom út í ganginn opnuðust götudyrnar og Bub kom þjótandi inn og andlitið var kaf- rjótt af æsingnum yfir mynd- inni, sem hann hafði séð. Hann stanzaði, þegar hann sá Jones. spMBami 10 — Hæ, vörður! sagði hann. Jones kinkaði kolli og hugsaði: Hún er ekki heima. Hvað skyldi hann hafast að svona aleinn, þeg ar hún er ekki heima? — Mömmu líkaði ekki þessi skóburstakassL Hún varð bál- vond. Jones starði á drenginn, en sagði ekki neitt. — Ætlarðu að fara að laga eldinn? spurði Bub. — Ja-á, svaraði hinn og gekk að kjallarahurðinni undir stigan um. Hann krækti aftur hurðinni á eftir sér og hugsaði, að hann gæti ekki þolað að horfa á þenn an krakka. Ekki eins og honum leið núna. Hann mokaði hverri skóflunni eftir aðra á eldinn. Svo starði hann í eldinn og bláa logann, sem smaug upp úr kolunum og djúpa roðann í glóðunum undir þeim. Hugsanir hans snerust sam- stundis að Lutie, og þarna stóð hann og studdist fram á skófl- una, eins og hann vissi ekki af hitanum, sem gaus út úr opnum dyrunum. Svo að henni hafði ekki líkað skóburstarakassinn? Það var bölvað. Hann hafði hald ið, að hún yrði svo hrifin af þessu, að hún mundi koma og hringja uppá hjá honum og standa við dyrnar brosandi til hans. Og kannski hefði þetta orðið til þess, að hún færi að hringja bjöllunni oft. — O, ég ætlaði bara að heilsa upp á þig, mundi hún segja. — Það var fallega hugsað af yður, frú Johnson, og svo mundi hann klappa henni á handlegg- inn eða kannski halda dálitla stund í höndina á henni. En hann skyldi ekkert gera, sem gæti hrætt hana. Rétt vera vingjarnlegur og svo gefa henni smágjafir, til að byrja með. — Ég sá þetta í búð. Datt í hug hvorð þér gætuð ekki notað það, frú Johnson. Kannski eina sokka Já, það skyldi hann segja •— sokka. Eina af þessum háu úr neti. Frú Greeene, sem bjó á þriðju hæð og vann í miðborg- inni, mundi kaupa þá fyrir hann. — Æ, þetta eigið þér ekki að vera að gera, hr. Jones, mundi Lutie segja og klappa á öxlina á honum. — Hvernig væri að lofa mér að sjá, hvort þeir eru mátulegir. Já, það skyldi hann segja. Bara svona í gamni. Um að gera að hræða hana ekki. Hann lagðist fastar á skófl- una, og dró upp fyrir sér mynd af þessu, eins og það mundi verða. Hann sá hana fyrir sér inni í íbúðinni, teygjandi fram annan langa legginn — beran, brúnan legg með rautt á nöglun um. Og hann mundi taka annan háa sokkinn og færa hana í hann, hægt og hægt. Mjúka, brúna hör undið mundi sjást gegn -um möskvana, þegar hann drægi sokkinn upp eftir mjúku holdinu. Hann mundi halla sér betur og betur að, eftir því sem sokkur- inn næði upp á sívala hlutann þar sem leggurinn tók að gildna og þá mundi hann þrýsta vörun- um á hnébogann. Og hann mundi færa sig nær og nær, þangað til hann gæti nartað í legginn og hörundið mundi verða sætt af fínni sápu og svalt við heitar va-r ir hans. En hann varð að hætta þessum hugsanagangi. Þar sem hann stóð þarria gat hann séð fyrir sér all- ar konurnar, sem hann hafði búið með. Ein, segja og skrifa, af öll- um hópnum hafði verið ung og hún var rokin eftir þrjá daga. Hinar höfðu verið beinóttir kven menn, komnir yfir fimmtugt, tannlausar kellingar yfir fimm- tugt, stórar og litiar, en allar yfir fimmtugt. Og í þokkabót tolldi enginn þeirra neitt að ráði. Þrjá mánuði . . . sex mánuði . . . og svo voru þær farnar. Allar nema Min. Hún var búin að þrauka í tvö ár. Og samkjaft- aði aldrei. Fyrst fannst honum það upplífgandi að hafa hana hjá sér. Hún eyddi þessari dauða þögn, sem annars var í íbúðinni. En nú yfirgnæfði malið í henni röddina í Lutie, svo að hann gat aldrei munað, hvernig hún hljóm aði. Röddin í Min ruddi henni til hliðar, þegar hann var að reyna að muna hana. Það sem hann þurfti að gera, var að losna við hana. Líklega leit aldrei á hann. Rétt kinkaði var það henni að kenna, að Lutie kolli þegar hún gekk fram hjá. Hann hefði átt að fleygja Min út sama kvöldið og Lutie kom. Hann mundi, hvernig fæturnir á henm höfðu verið, þegar hún gekk á undan honum upp stigann. Hann þurfti ekki annað en sjá hana svona, þá greip hann svo mikil þrá, að hann fékk verk fyrir bringspaiirnar. Þessir háu fæt- ur, sem gengu upp stigann á undan honum, og svo lendarn- ar, sem hreyfðust til beggja hliða á víxl þegar hún gekk. Hann mundi, hvernig hann hafði kreppt höndina, þegar hann gekk á eftir henni. Og í stofunni í íbúðinni hennar hafði hann staðið þarna og beint vasaljósinu niður á við, svo hún gæti ekki séð á honum svipinn, þegar hann átti í baráttu við sjálfan sig, hvort hann ætti að stökkva á hana, þar sem hún stóð inni í svefnherberginu og lét ljósið leika um veggina. Hún fór svo inn í eldhúsið og baðið og hann átti bágt með að standa kyrr á meðan. Því að hann vissi að ef hann elti hana þangað inn, mundi hann skella henni niður á gólfið, niður á slitnu gólffjalirn- ar. Hann hafði hugsað sér, hvernig það mundi verða að finna lík- ama hennar undir sínum — mjúkan og heitan og á hreyf- ingu með honum. Og hann gaf frá sér hrygluhljóð úr kverk- unum. — Hvað er þetta? hafði hún sagt. Og hann hafði séð, að vasa ljósið skalf í hendinni á henni. Hann hafði gert hana hrædda. Hann reyndi að tala lágt, svo að röddin í honum gæti róað hana, en honum var svo þröngt um kverkarnar, að hann gat engu hljóði upp komið. Loksins hafði hann sagt: — Ég var bara að ræskja mig frú, en jafnvel hon um sjálfum hafði fundizt röddin einkennileg. Þegar hann hafði gefið henni kvittunina fyrir því, sem hún hafði greitt upp í leiguna, fór hann að velta því fyrir sér, hvað hann gæti gert henni til þægð- ar. Ef honum tækist að gera eitt hvað sérstakt fyrir hana, mundi það hæna hana að honum. Hann ákvað að mála íbúðina á sér- stakan hátt í staðinn fyrir bara þennan hvíta lit, sem hún hafði beðið um. Þessvegna málaði hann stofuna græna, eldhúsið gult, svefnherbergið dökkrautt og bað ið dökkblátt. Þegar því var lokið, var hann hreykinn af því, því að þetta var fínasta málningar- vinna, sem eftir hann hafði nokk urntíma legið. Og hann gerði meira. Hann skóf málninguna af gluggunum, þessar langþornuðu klessur eftir hann sjálfan, og svo þvoði hann rúðurnar. Umboðs- maðurinn var næstum búinn að standa hann að verki. Til allrar hamingju hafði hann læst að sér og maðurinn stóð og barði á dyrnar eins og vitlaus maður og öskraði góða stund: — Hæ, þú þarna Jones! Nú, hvar í andskot anum er hann? En hann hafði staðið steinþegjandi inni með gluggatuskuna í hendinni, þang að til maðurinn var farinn. Þegar Lutie kom að sækja lykl ana, sá hann hana fyrst almenni lega við dagsbirtu. Augun í henni voru stór og svört og varirnar rauðar af varalit. Hún hafði lítið uppbrett nef, sem gerði andlitið unglegt, og hörundið var svo mjúkt og brúnt, að hann gat ekki haft augun af henni. — Þér gætuð átt í brösum með hurðina, hafði hann sagt. — Ég skal sýna yður, hvernig á að opna hana. Hann gat ekki beðið eftir að sjá á henni svipinn þegar hún sæi þessa snilldar-málningu hans á íbúðinni. Og nú gat hann lika Höfn 1 Hornafirði BRÆÐURNIR Ólafur og Bragi Ársælssynir á Höfn í Hornafirði eru umboðsmenn Morgunblaðsins þar. Þeir hafa einnig með höndum blaðadreifinguna til nær- liggjandi sveita og ættu bændur, t.d. í Nesjahreppi að athuga þetta. Sandur UMBOÐSMAÐUR Morgun- blaðsins á Sandi er Herluf Clausen. Gestum og gang- andi skal á það bent, að í Verzl. Bjarg er Morgun- blaðið selt í lausasölu. Grundarfjörður VERZLUN Emils Magnús- sonar í Grundarfirði hefur umboð Morgunblaðsins með höndum, og þar er blaðið einnig selt í lausasölu, um söluop eftir Iokunartíma. Blaðburðarfólk óskast til blaðburðar í eftirtalin hverfi Sími 22-4-80 Meðalholt Lindargata KALLI KUREKI -K— — -K— — >f — Teiknari: J. MORA Tvær dagleiðir frá búgarðinum. hefur verið grasríkt ár“. „Sjáðu, inn skógarbjöm drepið þennan grip. .Þær eru feitar og sællegar. I>etta þarna liggur ein“. „Það hefur eng- Einhver hefur fláð það“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.