Morgunblaðið - 30.03.1965, Blaðsíða 32
i
KELVINATOR
KÆLISKAPAR
HsMz LAUGAVEGI
75. tbl. — Þriðjudagur 30. marz 1965
' * ♦- - , • ■-< *■ * -*.»%■ • ‘ ' ' i' - ' i - -■ 1
;■ : 'v *'>'■ *■■ 1 ' . - . ' \s' \\ V0- X" *
} NorAl'jördur og ísinn, gaeti
þessi mynd heitiff. Hana tók I
Ólafur K. Magnússon af Nes- |
kaupstaff í Norðfirði í gaer, er (
r fréttamenn Mbl. flugu yfir
I Norður- o,g Austurland, þar
i sem firðir eru fullir af ís. Frá
i því er nánar sagt á bls. 10 og
’ myndir birtar á bls. 3 og 10.
IHargir detta
í s;óirm
NESKAUSTAÐ. 29. marz.
ísinn er nú með mesta móti
hér. Virðist hann aukast og þétt-
ast og er nú ekki auðan sjó að
sjá utan mjóa rennu hér út af.
Börn og unglingar hafa mikið
íarið út á ísinn hér við flæðar-
málið og hefur lítt stoðað, þótt
reynt sé að reka þau af ísnum.
Mörg þeirra hafa fallið í sjóinn,
þegar þau hafa verið £t(S stökkva
milli jakanna, sem brotria í flæð
armálinu, en til allrar hamngju
hafa ekki hlotizt slys af.
— Ásgeir.
Hlaut 25 þús. kr. í landhelgissekt
kom að, þar sem togarinn var
með ólöiglaga umbúin veiðar-
færi innan fiskv'eiðitakmark-
anna hinn 6. marz s.l. Skipstjór-
inn viðurkenndi brot sitt, og
var málinu lokið með dómsátt
og skipstjóranum gert að greiða
25 þúsund krónur til Landihelgis-
sjóðs íslands.
í GÆR lauk í Sakadómi Reykja- I skipstjóra á togaranum Marz
víkur máli Ásgeirs Gíslasonar, | RE-261, sam varðskipið Óðinn
Annríki hjá Hafnar-
fjarðarlögreglunni
ÓVENJU annríkt var hjá lögregl-
unnj í Hafnarfirffi í gær og í
fyrradag. I»rír meiriháttar
árekstrar urffu, mikiff bar á
ölvun, víðu var sinubruni og
meira aff segja var hringt í lög-
regluna og skrökvaff, aff slys
hefffi orðiff.
Um hádegi á sunnudag varð
mjög harður árekstur á Reykja-
nesbrautinni í Garðahreppi.
Moskwitzh bifreið á leið frá Hafn
arfirði var ekið út af Reykjanes-
brautinni inn á Lækjarfit. í sömu
andrá bar þar að stóran, amerísk
an bíl sem ætlaði að aka fram úr
á gatnamótunum. Skall hann á
afturhluta Moskwitzh bifreiðar-
innar, sem tókst á loft og lenti
á toppnum. Skemmdist bifreiðin
mjög mikið, en ekki urðu meiðsli
á fólki.
Um kl. 8 í gærmorgun varð það
óhapp á Hafnarfjarðarveginum,
HUSBRUNI Á
EGILSSTÖÐUM
Egilsstöðum, 29. marz.
LAUST fyrir kl. 11 í gærmorg-
tun kom upp eldur í ibúðarhúsi
Gúsla Sigurðssonar, málara. Kona
háns, Heiða Aðalsteinsdóttir, var
ein með f jögur börn þeirra hjóna,
og varð skyndilega vör við það,
að reyk iagði inn í eldhúsið úr
hitastokki, en í húsinu er loft-
hitiun. Þrjú barnanna voru í eld-
Svúisi.nu hjá móður sinni, en hið
yngsta var í vöggu í svefnher-
berginu, sem er næst miðstöðvar
herberginu.
Heiða hljóp þegar jnn í svefn-
herbergið og greip barnið úr
vöggunni, en þé var byrjað að
iloga í inmbyggðum skápum, sem
eru á vegg milli svefnherberg-
isins og miðstöðvarkiefans. Mátti
því ekki tæpara standa um
björgun^ barnsins. Síðan yfirgaf
frúin húsið ásamt börmum sínum
og kalla'ði á slökkviliðið, sem
þegar kom á vettvang.
Ekki tókst að ráða niðurlögum
eldisins fyrr en eftir rúmlega
klukkustund og var þá bæði hús
og innbú mjög skemmt af völd-
um elds, reyks og vatns. Ekki
brann þó nema áðurnefndur vegg
ur í skáipnum. Á honum var
geymdur svo til aJ'lur fatnaður
heimilisfóiks og brann það allt.
Bæði hús og inmibú voru vé-
tryggð.
St. E.
að loftpressa slitnaði aftan úr
vörubíl og lenti framan á bifreið,
sem ekið var á eftir. Skemmdist
bifreiðin mjög mikið.
Laust fyrir kl. 6 í gær varð
síðan hörkuárekstur á Strandgöt-
unni milli tveggja bifreiða úr
Reykjavík, sem báðar skemmdust
mjö mikið.
Þá gerðist sá einstæði atburður
í Hafnarfirði á sunnudag, að mað
ur nokkur hringdi í lögregluna
á staðnum og tilkynnti, að Slys
hefði orðið á Hringbrautinni. Er
lögreglumenn komu á vettvang,
kom í Ijós, að um hreint gabb
hafði verið að ræða. Eru þeir sem
upplýsingar geta gefið um þetta
gabb, beðnir að láta lögregluna
í Hafnarfirði vita.
Þá var óvenju mikið um ölvun
og víða sinubrunar.
Afli Akranesbáta
Akranesi, 29. marz.
ÞORSKAFLI bátanna um helg-
ina var alls 111 tonn. Á laugar-
dag 44,5 tonn og á sunnudaginn
66,5 tonn, mest tveggja nátta fisk
ur. Haraldur fiskaði á sunnudag-
inn 1700 tunnur af ioðnu.
— Oddur.
Batnandi
aflahorfur
BATNANDI aflahorfur eru nú
hjá bátunum, sem veiða viff Suff-
vesturland. 1 fyrsta sinn í gær á
þessari vertíff veiddist þorskur
í hringnót, og gefur þaff góffar
vonir um aff loks fari aff rætast
úr meff vertíðaraflann. Frá Þor-
lákshöfn og Vestmannaeyium
bárust þessar fréttir frá frétta-
riturum í gær:
Þorlákshöfn 29. marz.
Allt útlit er fyrir, að mjög
mikill afli berist á land hér í
kvöld. Þorskur hefur nú veiðzt
í nót í fyrsta sinn á þessari ver-
tíð, Jörundur II fékk 40 tonn og
Faxi 35 tonn. Aflahæsti báturinn
í dag var Árni Magnússon. hann
veiddi 45 tonn, sem atlt var ýsa.
Alls hafa 17 bátar tilkynnt um
afla. Eru það allt nótabátar.
M.B.
Vestmannaeyjum, 29. marz. \
Afli bátanna er nú að glæðast.
í dag og í kvöld komu margir
bátar inn með afla, sem þó var
nokkuð misjafn. Netjabátar
komu inn með tveggja nátta afla,
sem var misjafn að gæðum .Nóta
bátunum gekk nú vel; í fyrsta
sinni á vertíðinni komu þeir inn
með þorsk. Eins og áður hefur
verið skýrt frá í fréttum, taka
vinnslustöðvarnar hér aðeins á
móti slægðum fiski.
— Fréttaritari.
TRYGGVI HiELGASON hefur
farið nokkrar ferðir með fólk
'héðan af Egilsstöðum í kynnis-
flug yfir ísinn, sem ligigur hér
úti fyrir. Var flogið út Reyðar-
fjörð og síðan til norðurs a'ð Hér
aðsflóa og tók hver ferð um
kluikkustund. Skyggni var með
afbrigðum gott.
St. E.
Háspennustaurar
skemmast í sinubruna
A LAUGARDAG varff mikill
sinubruni í mýrinni ofan viff
Eyrarbakka. Urffu talsverffar
skemmdir á háspennulínunni til
Þorlákshafnar, sem þarna liggur
áleiðis yfir Ölfusárósa.
Eyrbekkingar urðu þess varir
á laugardagsmorgun, að mikill
eldur logaði í sinu fyrir ofan bæ-
inn. Lagði svo mikinn leyk yfir
Eyrarbakka, að leggja varð niður
kennslu í barnaskólanum fyrir
hádegi. í Ijós kom að skemmdir
höfðu orðið á háspennulínunni
til Þorlákshafnar og hún rofnað.
Fjórir staurar brunnu og eyði-
lögðust alveg og aðrir fjórir
skemmdust meira eða minna. —
Fljótlega tókst þó að gera við
línuna.
Morgunblaðið hafði f gær tal
af Guðjóni Guðmundssyni, rekstr
arstjóra raforkumálastjórnarinn-
ar, og kvað hann skemmdir hafa
orðið á háspennulínunni á u.þ.b.
tveggja kílómetra svæði. Væri
nokkuð algengt, að sinubrunar
yllu tjóni á raflínum, en þó væri
Iþetta mesta tjón, sem honum
væri kunnugt um af þessum völd
um.
Jón Guðmundsson, yfirlögreglu
þjónn á Selfossi, skýrði svo frá,
að ókunnugt væri um upptök
sinubrunans, en biður alla þá,
sem einhverjar upplýsingar
kynnu að geta gefið um það mál,
að hafa samband við lögregluna
á Selfossi eða hreppstjórann á
Eyrarbakka, hið fyrsta.
Dæmdur í 18 mánaöa fangelsi
FYRIR skömmu var kveðinn upp
í Sakadómi Reykjavíkur dómur
yfir Geir Egilssyni fyrir fjár-
drátt, skjalafals og svik. Hlaut
hann 18 mánaða fangelsisdóm,
óskilorðsbundið.
Nokkur blaðaskrif urðu um
mál Geirs í haust, en þá hafði
hann verziunar- og tungumála-
námskeið, sem hann þóttist ætla
að haida. Hafði hann þann hátt
á, að hann krafði væntanlega
nemendur sína um nokkra fyrir-
íramgreiðsiu á námsgjaldi og
fékk ailt að 2 þús. kr. frá nokkr-
uim þeirra. Af kennslu varð hins
vegar aldrei, og var hann þá
kærður fyrir þessi svik, í október
mánuði s.L
Geir hafði áður hlotið skilorðs
bundinn dóm, og þegar hann
hiaut kæru fyrir svik sín í sam-
bandi við verzlunar- og tungu-
málanámskeiðið, lágu fyrir hjá
Sakadómara ákærur fynr fieiri
atriði, fjárdrátt, skjalafals og
svik. Fyrir öll ákæruatriðin hlaut
hann því 18 mánaða fangelsis-
<ióm, óskilorðsbundið.