Morgunblaðið - 30.03.1965, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 30. marz 1965
™ ti a ^TiTT
— Afmæli
f GÆR var haldið áfram umræð-
um í Sameinuðu þingi um vega-
áætlunina 1965-1968 og höfðu
þrir þingmenn talað, er umræð-
um var frestað til kl. 8.30 í gær-
kvöldi. Verður skýrt frá þessum
umræðum síðar í blaðinu.
Er fundi Sameinaðs þings hafði
verið frestað, hófust fundir í
deildum og verður sagt frá þeim
hér á eftir.
EFRI DEILD
Eftirlaun
Ólafur Björnsson (S) gerði igrein
fyrir áliti fjárhagsneíndar um
frumvarp um breytingu á lögum
um hin sérstöku eftirlaun samkv.
fjárlögum óg mælti nefndin með
því, að frumvarpið verði sam-
þykkt óbreytt. Einn nefndar-
manna Jón Þorsteinsson (Alþfl)
kvaðst alltaf hafa verið andvíg-
ur 18. gr. fjárlaga, en þar er kveð
ið á um hin sérstöku eftirlaun
og á þeim forsendum væri hann
andvígur þessu frumvarpi. Taldi
hann, að margt af því fólki, sem
nyti sérstakra eftirlauna samkv.
fjárlögum, bytggi við góð eftir-
laun fyrir og væri því engin á-
stæða til þess að veita því sér-
stök eftirlaun þar að auki um-
fram annað fólk. Var frumvarp-
inu síðan vísað til 3. umr.
Þingfararkaup
Eggert G. þorsteinsson (Alþfl.)
mælti fyrir frumvarpi um að
nefndarmönnum í þingfararkaups
nefnd verði fjölgað úr 5 í 7 og
var frumvarpinu síðan vísað til
2. umr. og nefndar.
Atvinna við siglingar
Jón Árnason (S) mælti fyrir
frumvarpi um breytingu á lqig-
um um atvinnu við siglingar á
íslenzkum skipum, en hann og
Ásgeir Bjarnason eru flutnings-
menn þess. Tilgangur frumvarps-
ins er, að skip, sem notuð eru til
styttri siglinga, aðallega innan
fjarða og flóa, skulu vera undan-
þegin ákvæðum latga um fjölda
skipstjórnarmanna.
Jón Árnason sagði, að þettá
frumvarp væri flutt að beiðni
Skallagríms h.f. í Borgarnesi
vegna reksturs Akraborgarinnar,
en þessi breyting myndi einniig
ná til annarra flóabáta, dráttar-
báta o.fl. Var frumvarpinu síðan
vísað til 2. umr. og sjávarútvegs
nefndar.
NEDRI DEILD
Ýms mál voru á dagskrá í
Neðri deild, en ekki urðu um þau
miklar umræður. Frumvarp til
jarðræktarlaga var til 1. um
ræðu og var vísað til 2. umræðu
oe landbúnaðarnefndar. Frum-
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Víkingur.
heldur aðalfund sinn í
Lindarbæ í kvöld kl. 20,30.
Stjórnin.
Frá Farfuglum
Mynda og skemmtikvöld
verður miðvikudaginn 31.
marz og hefst kl. 8.30.
Farfuglar.
varpi um breytingu á lögum um
réttindi og skyldur ríkisstarfs-
manna var vísað til 2. umræðu og
allsherjarnefndar. Frumvarp um
breytingu á umferðarlögum var
til 3. umræðu og var síðan af-
greitt til Efrideildar.
Þá fór fram framhald 2. um-
ræðu á frumvarpi um lífeyris-
sjóð hjúkrunarfólks, og gerði
Skúli Guðmundsson (F) grein
fyrir breytingartillögum, sem
hann hefur igert við frumvarpið.
Sagði Skúli, að hann vildi, að
frumvarpið yrði kennt við hjúkr
unarkonur, vegna þess, að enda
þótt vera kynni, að karlmenn
myndu fást við hjúkrun hér í
framtíðinni, þá yrði hlutur
kvenna þar jafnan miklu
meiri, enda væri því ekki saman
jafnandi að láta konur hjúkra
sér og karlmenn. Hann kysi þar
kvenfólk miklu fremur. Var um-
ræðum um frumvarpið síðan enn
frestað.
Dráttarvextir
Fram eru komin 3 stjórnar-
frumvörp varðandi dráttarvexti
og fela þau í sér breytingu á lög-
um um. bann við okri, dráttar-
vexti o.fl. frá 1960, breytingu á
víxillögum frá 1933 oig breytingu
á lögum um tékka frá 1933.
Samkv. hinu fyrstnefnda frum-
varpi skuiu dráttarvextir af
skuldum vera jafnháir og Seðla
banki fslands leyfir innlánsstofn-
unum hæst að taka.
Breyting sú, sem ráðgerð er
með frumvarpinu um breytingu á
víxillögunum og nokkuð hærri en
nú gildir segir í greinargerð með
frumvarpinu, áð samkvæmt nú-
gildandi lögum er viðbótarkostn-
aður skuldara vagna vanskila á
greiðslu víxils hverfandi allt til
þess, er kostnaðar við dómsmál
fer að gæta. Slíkt fyrirkomulag
er óheillavænlegt, og er téð vaxta
hækkun eftir gjalddaga víxils því
nauðsynleg og eðlileg til úrbóta,
sem stuðla mundi ótvírætt að
aukinni skilvísi víxilskuldara.
Verði frumvarp þetta að lögum,
mundu dráttarvextir vegna víxil
skulda verða 1 % fyrir hvem
mánuð eða brot úr mánuði, að
óbreyttri ákvörðun Seðlabankans
um dráttarvexti innlánsstofnana.
Þá er með þessu frumvarpi gert
ráð fyrir, að réttur víxilhafa til
þóknunar, sem er Vs % víxilfjár-
hæðarinnar falli úr gildi.
Með frumvarpinu um breyt-
ingu á tékkalögunum er lagt til,
að teknir verði upp dráttarvextir,
sem Seðlabankinn heimilar inn-
lánsstofnunum hæsta að taka,
vegna vanskilatékka. Dráttar-
vextir vegna tékkskulda yrðu þá
1% pr. mánuð eða brot úr mán-
uði, að óbreyttri ákvörðun Seðla-
bankans um dráttarvexti innláns
stofnana. Vaxtahækkun sú, sem
felst í þessari breytingu, er talin
nauðsynlegur liður í þeirri við-
leitni að draga úr misnotkun
tékka, segir í greinargerð með
þessu frumvarpi.
Dýralæknar
Útbýtt hefur verið frumvarpi
um breytingu á lögum um dýra-
lækna og er það flutt af Gisla
Guðmundssyni, Jónasi G. Rafnar,
Halldóri Ásigrímssyni og Jónasi
Péturssyni og er efni þess að
bæta dýralæknisþjónustu á á
kveðnum svæðum í Norður-Múla
sýslu og Norður-Þingeyjarsýslu,
sem ekki njóta þeirrar dýralækn-
isþjónustu, sem skyldL
Sala á jörðum
Þá er komið fram frumvarp
um heimild til handa ríkisstjórn-
inni um að selja Mosfellshreppi
jarðirnar Þormóðsdal og Bringur.
Sérmenntun yfirmanna á fiski-
skipum
Fimm þingmenn Framsóknar-
manna hafa flutt þlngsályktunar-
tillögu um athugun á aðstöðu yfir
manna á fiskiskipum til sérmennt
unar.
Hundaskattur
Þó hefur verið lagt fram frum-
varp af hálfu heilbrigðis- og fé-
lagsmálanefndar Efri deildar um
breytingu á lögum um hundahald
og vamir gegn sullaveiki og er
efni þess, að af hundum búfjár-
eigenda skuli greiða 30 króna
skatt árlega. Einnig af minnka-
hundum, dýrhundum og spor-
hundum, enda hafi verið veitt
sérstakt leyfi til slíks hundahalds
og þeir hundar hafðir í öruggri
gæzlu. Af öðrum hundum greið-
ist 300 króna skattur árlega.
Skatturinn rennur í bæjar- eða
sýslusjóð og innheimtist á mann-
talsþingi.
FASTEIGNA- OG VERÐBRÉFASALA
Höfum verið beðnir að útvega eftirtaldar eignir.
2—3. herbergja íbúð í Norðurmýri eða Hlíðunum.
2ja herbergja íbúð sem næst miðborginni.
Stóra íbúð með bílskúr, margir staðir koma til greina.
Tvær 4ra herbergja íbúðir í vesturborginnL
3—4 herbergja íbúð í Háaleitishverfi.
Iðnaðar og verzlunarhús 6000—10.000 rúmmetrar.
Iðnaðar og verzlunarhús 300—500 fermetrar, sem
næst miðborginni.
Ólaffur Þorgrímsson hri.
Austurstræli 14, 3 hæð - Sfmi 21785
Þrjátíu nýir
ríkisborgarar
FRAM eru komnar tillögur frá
allsherjarnefnd Neðri deildar A1
þingis um, að 30 útlendingum,
sem búsettir eru hér á landi,
verði veittur íslenzkur ríkisborg-
araréttur. Fólk þetta er af ýms-
um þjóðernum, flest frá Júgó-
slavíu eða 8 talsins ,5 frá Þýzka-
landi, 4 frá Ungverjalandi, 4 frá
Danmörku, 3 frá Færeyjum, 2
frá Bandaríkjunum, 1 frá Eng-
landi, 1 frá Noregi, 1 frá Hol-
landi, og ein kona, sem fædd er
hér á landi. Júgóslavarnir eru úr
hópi flóttamanna, sem komu
hingað til lands 1959, en 1958
samþykkti íslenzka ríkisstjórnin,
samkvæmt áskorun allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna, að
veita þessu fólki framtíðarhæli
hér á landi.
Hér fara á eftir nöfn þessa
fólks:
Bajic, Mile, bakari í Keflavík,
f. í Júgóslavíu 29. sept. 1932.
Benkovic, Mijo, verkamaður í
Reykjavík, f. í Júgóslavíu 23. júlí
1936.
Brown, Arthur Kellogg, mat-
sveinn í Reykjavík, f. í Banda-
ríkjunum 29. apríl 1907.
Busetti, Ferruccio Mario, verka
maður í Reykjavík, f. í Júgó-
slavíu 14. ágúst 1939.
Csillag, Maria, húsmóðir í
Reykjavík, f. í Ungverjalandi 27.
jan. 1938.
Dahm, Gisela Gerda Edith, hús
móðir á Siglufirði, f. í Þýzka-
landi 16. júní 1938.
Dam, Eina, húsmóðir á Akra-
nesi, f. í Færeyjum 6. apríl 1938.
Dragutin, Uhr, verkamaður í
Reykjavík, f. í Júgóslavíu 10.
maí 1935.
Hansen, Jógvan Georg, sjómað-
ur í Reykjavík, f. í Færeyjum
26. maí 1938.
Horváth, Adél, þjónustustúlka
í Ytri-Njarðvík, f. í Ungverja-
landi 2. ágúst 1941.
Ipsen, Inger Bjarna, iðnverka-
kona í Reykjavík, f. í Danmörku
5. ágúst 1944.
Jepsen, Frederik Peter, vél-
stjóri í Reykjavík, f. í Dan-
mörku 3. marz 1927.
Johannessen, Ellen Marie,
húsmóðir í Hrísey, f. í Færeyjum
10. jan. 1942.
Johansen, Helina Olafia, hús
móðir í Reykjavík, f. á íslandi
29. júlí 1937.
Jón Hallgrímsson,, verzlunar-
maður í Reykjavík, f. í Englandi
12. janúar 1944.
Juhasz, Istvan, verkamaður í
Vestmannaeyjum, f. í Ungverja-
landi 11. febrúar 1935.
Kersbergen, Anna Cornelia
nunna í Hafnarfirði, f. í Hollandi
21. maí 1900.
Kujundzic, Josip, sjómaður í
Reykjavík, t i Júgóslavíu 19.
febrúar 1939.
Larsen, Knud Broberg, verzl-
unarmaður í Reykjavík, f. í Dan-
mörku 5. maí 1937.
Lettau, Christel Hildegard,
húsmóðir í Reykjavík, f. í Þýzka
landi 16. október 1920.
Martin, Donald Lewis, tann-
smiður í Reykjavík, f. í Banda-
ríkjunum 7. janúar 1934.
Moen, Rothtraut Elisabeth
Göschl, húsmóðir á Eyrarbakka,
f. í Þýzkalandi 14. apríl 1928.
Molnár, István Ferencz, raf-
virki í Reykjavík, f. í Ungverja-
landi 13. ágúst 1936.
Mörk, Olga Stefanie, starfs-
stúlka í Reykjavík, f. í Noregi 2.
nóvember 1902.
Nilsson, Karl Rudolf Kristian,
verkamaður í Reykjavík, f. í
Danmörku 4. desember 1903.
Pasdh, Elisabeth, húsmóðir í
Keflavík, f. í Þýzkalandi 13. sept.
1921.
Seebörger, Christa, húsmóðir í
Hafnarfirði, f. í Þýzkalandi 29.
maí 1935.
Sindicic, Berislav, verkamaður
1 Reykjavík, f. í Júgóslavíu 24.
júní 1937.
Stavar,, Franc,, vefari á Ála-
fossi, f. í Júgóslavíu 25. nóv. 1935
Terzic, Ivan, smiður í1 Reykja-
vík, f. í Júgóslavíu 21. febrúar
1937.
Framhald af bl. 6.
hleypidóma, fer sínar götur án
þess þó að lenda í tilefnislítlum
árekstrum við samferðamenn,
sem vilja aðrar götur ganga.
Hann vill láta hvern amnn jafn-
an njóta þess sem honum ber og
lætur andstæðinga njóta fyllstu
viðurkenningar fyrir það sem
þeir gera vel. Hann færir skýr
rök fyrir sínu máli á hógværan
hátt og ber hag íslenzkra sveita
mjög fyrir brjósti og um leið
landsins alls. Eigi hefur hann átt
þess kost að búa stórbúi í Kila-
koti, einyrki á fremur lítilli jörð,
en hann er góður bóndi með
vænt bú eftir því sem gerist þar
um sveitir, vel bjargálna og hag-
sýnn mjög í allri búsýslu. Hann
er vinsæll í nágrenni þrátt fyr-
ir það að hann hefur jafnan
verið á öndverðum meiði í lands-
málum við meirihluta nábúa
sinna, enda er hógværð hans i
málflutningi viðurkennd af öll-
um sem til þekkja, og skilningur
á sjónarmiðum annara.
Keldhverfingar eiga fallega
sveit, heiðalönd mikil og flæði-
engjar, sem áður fyrr voru dýr-
mætar mjög til heyöflunar. Nú
hefur túnrækt Yatnsbæja og
annarra býla í Kelduhverfi sem
annars staðar þokað engjum út í
þá aðstöðu að vera aðallega
augnayndi og felustaður and-
fugla Víkingavatns. Sjálft Ás-
byrgi er á umráðasvæði þessarar
fögru sveitar, Fjallafjöll, Vík-
ingavatnsheiði, Garðsheiði, Ás-
heiði, Bláskógar, heiðarnar úr-
vals sumarhagar fyrir sauðfé.
Og skammt frá vallargarði er
svo gljúfrabúinn Dettifoss, sem
öllu tekur fram sem ég hefi séð
í þessu landi. Enn má nefna
Hljóðakletta og Hólmatungur.
Slik náttúrudýrð sem þessi er
ekki á hverju strái. En það er
raunar önnur saga — og þó. —
Á árum áður átti ég mörg spor
um Kelduhverfisheiðar í göngum
og tók oft í horn í Hraunhóla-
rétt, Fjallarétt og Höfðarétt.
Hvergi hef ég komið í sveit þar
sem betra var að koma en Hverf-
ið, og er þá mikið sagt. Fyrir-
greiðsla Fjallaheimilis, Kilsholta
heimilis og Krossdalsheimilis á
þeim dögum er mjög eftirminni-
leg. En á þeim bæjum gerði ég
og margur annar mestan átroðn-
ing.
Um’leið og ég nú sendi Birni I
Kilakoti ómerkilega armælis-
kveðju með þakklæti fyrir ágæt
samskipti og viðkynningu, lang-
ar mig til að láta þessi orð um
Hverfið fljóta með sem örlitla af-
borgun af gamalli skuld.
Bjartmar Guðmundsson.
Séro Emil Björnsson kjörinn
formnður Blnðomnnnafélngsins
Á AÐALFUNDI Blaðamannafé-
lags íslands, sem haldinn var sl.
sunnudag, var séra Emil Björns-
son kjörinn formaður félagsins.
Með honum í stjóm voru kosnir
Atli Steinarsson, Tómas Karls-
son, Jónas Kristjánsson og ívar
H. Jónsson.
Fráfarandi formaður, Mattihías
Johannessen, stjómaði fundinum
fraim yfir formannskjör. Flutti
hann skýrslu stjórnarinnar og
gjaldkermn, Atli Steinarsson, las
reikniniga fédagsins.
Björn Thors, stjórnarformaður
Mermin.garsjóðs, sagði frá hag
sjóðsins og Ingólfur Kristjáns-
son, gjalidkeri, las reikniniga hans.
Á árinu voru veittir 9 styrkir að
upphæð 86 þúsund krónur, en
þrátt fyrir það vatð tekjuafgang-
ur um 67 þúsund krónur. Menn-
ingarsjóður og minningarsjóðir
Vil/hjálms Finsens og Hauks
SnoiTasonar nema alls rúmum
530 þúsund krónum-
Andrés Kristjánisson skýrði
frá hag Lífeyrissjóðs blaðamanna
og nemur hamn rúmum 2.2 millj.
ikrónur og faafa 23 lán verið veitt
I til félagsmanna úr sjóðnum.
Jónas Kristj'ánsson faafði fram
sögu fyrir laganefnd og skýrði
frá fyrirhuguðum breytingum á
löguim félagsins og Þorbjöm Gúð
mundsson skýrði frá tillögum
nefndar um siðareglur blaða-
manna.
Fyrirhugaðar lagabreytingair
og siðareglur eru svo þýðingar-
mikil og umfangsmikil mál, að
ákveðið var að boða til fraimihald*
a'ðalíúndar til að fjalla um þaa
Loks fór fram stjórnarkjör og
kjör í nefndir, þ.á.m. launamálar
nefnd.
Fylltist af ís
Hvammstanga 29. marz.
í GÆR, sunnudaginn 28. marz
rak hafís hér inn Miðfjörð og
virtist fjörðurinn fullur af ís I
morgun. Nokkur hreyfing er á
ísnum og hefur hann rekið aftur
út fjörðinn í dag, en mikið ís-
hrafl er þó eftir. Norður að sjá
virðist atlt fullt af ís, en á stöku
stað eru smárennur eða vakir,
S. Tr. )