Morgunblaðið - 30.03.1965, Qupperneq 10
10
MORGU N BLADID
Þriðjudagur 30. marz 1965
HAFÍSINN Vlr
NA-LAND
FJÖRÐUR fullur af ís, svo
hann líkist úr lofti séð mest
eldhúsgólfi með einum af þess
um flekkóttu gólfdúkum, þar
sem hvítt er aðalliturinn, en á
inn misþéttur, eða að öðru
jöfnu gisnari eftir því sem
sunnar dregur með Austfjörð-
um og sums staðar hefur ís-
spöngin lokað fyrir fjarðar-
Þorpiff Bakkagerði kúrir undir Dyrfjöllum viff isi fylltan Borg-
arfjörð eystri.
milli flekkjanna sér í flösku-
grænan grunninn. Þannig voru
flestir firðir á norðausturhluta
landsins í gær, allt frá Axar-
firði og suður undir Fáskrúðs-
fjörð, þegar fréttamenn Mbl.
flugu þar yfir. Að vísu er ís-
botn, án þess að fylla fjörð-
inn alveg.
Þegar við þetta bætist stilli-
logn og rennisléttur sjór, þá
er þetta mjög fallegt fyrir
þann sem flýgur yfir. En fyrir
ísinn liggur upp að öllum a i esjum á
fjörff eystri.
jum á Austurlandi. Hér er Hafnarbjarg sunnan við Borgar-
fiörð evstrL
íbúana 1 þorpunum, sem kúra
þarna svo umkomuleysisleg
með hafþök af ís fyrir utan og
útilokaðar allar siglingar, hef-
ur það vafalaust annan svip.
Við flugum norður yfir með
Cessna flugvél frá Flugsýn.
Fyrsti ísinn, sem við sáum,
var í Hrútafirði, en aðeins úr
fjarska. Enginn ís er á Skaga-
firði og heldur ekki á Eyja-
firði, en úti við sjóndeildar-
hring sést ísröndin innan við
Grímsey og mun eyjan því um
flotin. Þarna er alls staðar
sléttur sjór og Akureyrarpoll-
ur lagður langt út. Á Axar-
firði liggja spangir af mjög
smátt söxuðum ís og stakir
jakar. En um leið og komið
er austur fyrir Rauðunúpa
liggur ísinn alveg upp að
landi, hafþök af ís, svo langt
sem augað eygir. Ekkert kvikt
sáum við þó á þeim ís, þó við
flygjum yfir og litum eftir
því eftir föngum. Raufarhöfn
ög Þórshöfn eru því alveg um
lukin ís. Átta bátar liggja við
bryggju á Þórshöfn, en höfnin
er lögð innan við isbreiðuna.
Þarna norðan við Langanesið
er ísinn alveg þéttur, jaki við
jaka.
Sunnan við Langanesið virð
ist ísinn gisnari, þó isbreiðan
liggi suður með landinu, upp
að annesjum og víða inn eftir
fjörðunum. í Bakkaflóa voru
ari þröngu lengju sem Seyðis-
fjörður er, sjálfsagt einir 15
km. og þekur allan fjörðinn,
en lokar bara fyrir mynnið á
tandurhreinum Loðmundar-
firði. Það gefur hverjum sem
hann er góður til, segir ein-
hvers staðar, svo okkur datt
í hug að þessi eini ábúandi við
Ba.arnir á Þórshöfn frystir inni í höfninni, og jakarnir úr ís-
breiffunni gerast æði nærgöngulir viff bá.
ifl WL,
lítan viff Raufarhöfn er ísinn þéttur, jaki við jaka svo langt, sem augað eygir tii hafs.
vakir og Gunnólfsfjall náði að
spegla sín fögru form í kyrru
grænu vatni. Vopnafjörður
var auður, þó ísspöngin liggi
um fjarðarminnið og útiloki
siglingar. Borgarfjörður eystri
er fullur af þéttum ísjökum og
af hrímuðum skerjum fældi
flugvélin upp fugla í þessum
kuldalega vetrarriki.
ísinn virðist duttlungafull-
ur, engu síður en aðrir gestir
Austfjarða þessi síðustu ár,
svo sem síldin. Loðmundar-
fjörður og Seyðisfjörður hafa
sama mynni yzt, en samt hefur
ísinn þokað sér inn eftir þess-
Loðmundarfjörð hlyti að eiga
sérstaklega hagstæðan reikn-
ing hjá máttarvöldunum.
Um Norðfjörð allan er ís-
hrafl alveg inn í botn. En
Reyðarfjörður liggur spegil-
sléttur og íslaus, en íshrafl úti
í mynninu. Þaðan sáum við
íshrafl teygja sig með strönd-
inni áfram suður um til Fá-
skrúðsfjarðar og Breiðdalsvík
ur. en er þá orðið mjög óveru
legt.
Þannig liggur ísinn með
Austurlandi og austanverðu
Norðurlandi og útilokar sigl-
ingar.