Morgunblaðið - 15.04.1965, Page 17
Fimmtudagur 15. aprll 1965
V
MORGUNBLAÐIÐ
17
Frásögn Sigurðar Gíslasonar, skipstjóra
SIGURÐUR Gíslason er fæddur
1890 á Króki í Grafningi. Hann
hóf sjómennsku skömmu eftir
aldamót og sigldi >á bæði á
dönskum og íslenzkum skipum.
í Árið 1917 hóf hann siglingar
hjá Eimskipafélagi íslands og
þar sigidi hann allt til 1952, en
þá dró hann sig í hlé. Hann var
um 15 ára skeið skipstjóri á
hinum ýmsu skipum félagsins.
^ Sigurður segir svo frá:
f „Þegar ég lít yfir farinn veg
• og hugleiði, hvaða staður sé
xnér hugstæðastur af þeim, er
ég hef komið til, þá dettur mér
i óneitanlega New York fyrst í
hug. Aðallega er það fyrir
, tvennt, þ.e.a.s. hin risaháu hús
í Manhattan og fólkið, er bygg
ir borgina.
I Ég kom fyrst til New York
1917 eða þegar fyrra stríðið
stóð enn yfir. Við höfðum verið
í siglingum á milli Danmerkur
og íslands, en Þjóðverjar höfðu
nú bannað siglingar um Norð-
ursjó, svo Danmerkursiglingar
lögðust niður. Á þessum tíma
var mikill matvælaskortur hér
og það varð því úr að skip okk
ar, Villemoes, færi til Ameríku
og næði í matvörur þar. Þegar
við komum til New York, rák-
um við allir upp stór augu, því
við okkur blasti sjálf'Manhatt-
an með öllum sínum skýja-
kljúfum. Þessu likt höfðum við
aldrei séð áður og höfðum við
þó komið til flestra stórborg-
anna í No " --Evrópu. Við höfð
um þá lí tíma til að fara í
land, því að Ameríkumenn
settu það skilyrði, að ef við
ætluðúm að fá að lesta þarna,
þá yrðum við að taka að okkur
eina skylduferð, sem var til
Kúbu. Hann var eitthvað rýr
skipakostur þeirra Vesturheims
manna á þessum tíma.
Þegar við komum aftur úr
Kúbuferðinni fórum við svo í
land og skoðuðum borgina. Það
sem aðallega dró að sér athygli
okkar voru skýjakljúfarnir sem
gnæfðu eins og risar upp í him
ininn, neðanjarðarlestirnar, sem
brunuðu þarna undir öllum
húsabáknunum, hinar háværu
ofanjarðarjárnbrautir, sem þutu
þarna eftir götunum, svo það
nötraði og skalf í öllu og breið
göturnar í Manhattan t.d. eins
og Broadway, sem eru líkastar
gjám með háhýsin á báða bóga.
Allt þetta var okkur nýr heim
ur. Anddyri þessa háhýsa voru
geysistórir salir og það voru
einir sjö til átta menn er höfðu
þann starfa einan að gæta lyft-
anna. Hæsti skýjakljúfurinn
>
þá var hinn svokallaði Woolf-
worth-skýjakljúfur, sem hét
svo í höfuðið á margmilljón-
era og átti verzlanir um allar
trissur.
Eftir þessa ferð voru sVo
teknar upp stöðugar ferðir
frá Islandi til Ameríku og
kom ég því oft síðar til New
York. Alltaf þótti mér þó jafn
gaman að koma þangað, en í
stríðslok 'lögðust þessar ferð-
ir niður og ég kom ekki aftur
þangað fyrr en 1939 og þá fyrir
tilviljun. Við vorum staddir í
Grimsby er stríðið skall á, og
var okkur þá snúið við og fór-
um við þá aftur til íslands, en
héðan var svo farið til New
York. Þegar þangað kom var
margt með öðrum hætti en
þegar ég var þar fyrr á ferð.
Miðhluti borgarinnar hafði að
mestu leyti verið byggður upp
og í Manhattanhverfinu höfðu
risið nýir skýjakljúfar til við-
bótar, þar á meðal var Empire-
skýjakljúfurinn og nú voru
ofanjarðarbrautirnar að mestu
horfnar af götunum. Jafnvel
fólkið hafðj breytzt, þótt það
ætti eftir að koma betur fram
síðar. Borgin v&r 1 heild orðin
stórfenglegri en áður, en hafði
jafnframt misst dálítið af sín-
um fyrri „sjarma“, að því ermér
farinst. Eftir þetta sigldi ég
oft til New York eða þar til
1952 að ég fór mína seinustu
ferð þangað og skömmu síðar
hætti ég sjómennsku.
Um New York-búa er það að
segja að ég hef hvergi nokkurs
staðar hitt jafri alúðlegt og vin
gjarnlegt fólk og þá sérstak-
lega það fólk er ég kynntist í
mínum fyrstu ferðum þangað.
Ég man t.d. eftir því að þegar
við komum þangað úr einni af
fyrstu ferðunum, þá hafði safn
azt saman á bryggjunni hópur
fólks. Ég var þá fyrsti stýrimað
ur og komst ekki í land en í
New York átti aðeins að hafa
Sigurður Gíslason,
skamma viðdvöl. En þegar þeir,
sem fengu leyfi til að fara í
land komu að bryggjunni,
spurði þetta fólk þá hvaðan
þeir væru. Þeir sögðust vera frá
Islandi, og urðu Ameríkumenn-
iimir mjög undrandi og hrifnir
yfir því. Þeir buðu íslending-
unum upp i bifreiðar sínar og
skiluðu þeim ekki aftur fyrr en
rétt áður en skipið átti að fara.
Höfðu þeir þá ekið með íslend-
ingana um borgina og sýnt þeim
hið markverðasta þar. Sömu
sögu er að segja, þegar sex há-
setar á skipinu fóru eitt sinn í
land til þess að hressa sig á
bjór. Þeir fóru á veitingahús
eitt Brooklynmegin og fengu
sér þar tvo bjóra, en að því
búnu stóðu þeir upp og ætluðu
að greiða reikninginn. Veitinga
maðurinn spurði þá, hvort þeir
ætluðu ekki að fá fleiribjóra, en
þeir svöruðu og sögðust vera ís-
lenzkir sjómenn, nýkomnir í
land og hefðu enn ekki haft
tíma til að taka út næga pen-
inga. Veitingamaðurinn sagði
það ekkert gera til, bauð þeim
að setjast aftur og kom að
vörmu spori með bjór handa
þeim, sem hann sagði að væri
á kostnað hússins. Síðan spurði
hann Islendingana hvort þeir
væru ekki svangir og hvort
ekki mætti bjóða þeim eitthvað
að borða. Þeir endurtóku aftur
að þeir væru mjög félitlir og
hefðu hreinlega ekki ráð á því.
En veitingamaðurinn bað þá
endilega að fást ekki um það,
Goðafoss f höfnlnnl i New York en Sigurður var skipstjórl á honum í einni ferðinni þangað.
því þeir gætu borgað næst
þegar þeir kæmu þangað. Marg
ar sögur fleiri áþekkar þessum
kann ég að segja af New York-
búum frá þessum tíma en því
miður fannst mér þetta breyt-
ast mjög á seinustu árum styrj- "
aldarinnar og ég er hræddur
um að það hafi ekki lagast enn.
Eg held að styrjöldin hafi skilið
eftir dýpri sár í fari Vestur-
heimsmanna en margur hygg-
ur. En New York heldur áfram
að vera hin sama í mínum aug
um og hún er tvímælalaust
inesta mannvirki er ég hef séð.
Gó3 gjöf glebur
fermingarbarnið
Veljið
SHEAFFERS
Kennið barninu að njóta
hinna viðurkenndu
SHEAFFERS gæða.
Gefið því SHEAFFERS penna
í fermingargjöf. SHEAFFERS
penni er fínleg, persónuleg og
virðuleg gjöf. SHEAFFERS
mætir kröfum allra og er fá-
anlegur í ýmsum gerðum,
svo sem:
SHEAFFERS Imperial VHI
kr. 961,00.
SHEAFFERS Imperial IV
kr. 610,00.
SHEAFFERS Imperial II
kr. 299,00.
SHEAFFERS PFM V
kr. 1248,00.
SHEAFFERS PFM III
kr. 864,00.
I næstu ritfangaverzlun getið
þér valið SHEAFFERS penna
með samstæðum kúlupenna
eða skrúfblýant til gjafar
(eða eignar).
SHEAFFER
your assurance of the best • *
SHEAFFERS-umboðið
Egill Guttormsson
Vonarstræti 4.
Sími 14189.
i