Morgunblaðið - 27.05.1965, Qupperneq 13
Fimmtudagur 27. maí 1965
MORGUNBLAÐIÐ
13
Læknafélag
lýkur 55.
NÝLEGA var haldinn aðalfund-
• ur Læknafélags Reykjavíkur (L.
R.) og lauk þar með fimmtugasta
og fimmta starfsári félagsins.
Alls nemur nú tala félags-
manna 279, þar af eru starfandi
læknar í borginni um 180, en um
100 iæknar eru við nám eða bráða
birgðastörf hér og erlendis eða
ha<ir störfum.
Övenju margir almennir félags
fundir og fræðsluerindi voru
haldin á starfsárinu; m.a. héldu
7 erlendir fyrirlesarar erindi
læknisfræðilegs eínis á fundum
féiagsins.
Á vegum félagsins hafa verið
fluttir hálfsmánaðarlega þættir í
Ríkisútvarpinu undir heitinu
„Raddir lækna“.
Læknablaðið hefur nú verið
gefið út frá árinu 1915, en að út-
gaíunni standa Læknafélag
Reykjavíkur og Læknaféiag ís-
lands. Veruleg aukning blaðsins
átti sér stað á liðnu starfsári.
L. R. kemur fram sem samn-
ingsaðili íyrir félagsmenn sína í
umfangsmiklum samningum, m.a.
við Sjúkrasamlag Reykjavíkur og
Tiyggingastofnun rikisins.
Viðtæk athugun hefur farið
Reykjavíkur
starfsári!
fram innan félagsins um fram-
tíðarskipulag læknisþjónustu-
mála og tillögúr gerðar til úr-
bóta og breytinga. Auk þess á
L. R. aðild að læknisþjónustu-
nefnd Reykjavíkurborgar, er
vinnur að endurskoðun læknis-
þjónustu í Reykjavik utan sjúkra
húsa og sambandi hennar við
sjúkrahúsin.
Vel hefur miðað byggingu
læknahúss, „Domus Medica“, en
eins og kunnugt er á L. R. hlut-
deild á móti Læknafélagi ísiands
í sjálfseignarstoínuninni „Domus
Medica".
Að undangenginni samkeppni
um tillögur að félagsmerki fyrir
Læknafélag Reykjavíkur var
verðlaunatiilaga Ingva H. Magn-
ússonar, auglýsingateiknara, sam
þykkt félagsmerki Læknafélags
Reykjavíkur.
Á síðastliðnu starfsári var skip
uð sérstök vaktstjórn af hálfu fé-
lagsins til skipuiagningar kvöld-,
nætur- og helgidagavaktþjónustu
borgarinnar.
Um fjölda annarra nefndar-
starfa og ráðstafana var að ræða
á liðnu starfsári, sem ekki verða
rakin hér nánar.
Læknafélag Reykjavíkur rekur
skrifstoíu að Brautarhoiti 20.
Stjórn Læknafélags Reykjavik-
ur skipa: Dr. Gunnlaugur Snæ-
dal, formaður, Jón Þorsteinsson
og Tómas Á. Jónasson.
Framkvæmdastjóri er Árni Þ.
Árnason, viðskiptafræðingur.
Á aðalfundi Læknafélags
Reykjavíkur 1965 var samþykkt
eftirfarandi áiitsgerð, samin af
sjúkrahúsmálanefnd félagsins:
1. Méð tiiiiti til þess að mikill
skortur hefur verið og er enn á
sjúkrarúmum í Jandinu og einnig
með tUliti til þess að unnt hefði
verið af tæknilegum ástæðum að
Ijúka byggingum sjúkrahúsanna í
Reykjavík á aðeins broti þess
tíma, sem í þær hefur farið, átel-
ur fundurinn þann seinagang.
sem orðið hefur á þessum fram-
kvæmdum. Einkum vill fundur-
inn benda á að jafnframt. því,
sem vitað er um sjúkrarúmaskort
inn er eigi að síður á ári hverju
veittur til bygginganna aðeins
Jítill hluti þess fjár, sem þörf er
á til að ljúka ; þeim. Slika af-
greiðslu á bráðu vandamáli telur
fundurinn Jýsa allt of miklu skiln
ingsleysi heilbrigðisyiirvaiuanna
og f járveitingavaldsins.
2. Fundurinn telur að undir-
búningsvinnu við sjúkrahusin
hljóti að hafa vérið mjög ábóta-
vant og beri byggingarnai þess
glögg merki að ekki haíi verið
leitað sem skyldi til sérfróðra
manna um byggingu sjúkrahúsa.
Slíkt leiðir oft og hefur þegar
leitt til augljósra mistaka, sem '
mátt hefði komast hjá, ef betur ,
hefði verið unnið.
í ýmsum löndum starfa verk-
fræðifyrirtæki með sérþekkingu :
á sjúkrahúsbyggingum og telur
fundurinn eðlilegt að til ein- :
hverra siikra fyrirtækja verði
Jeitað áður en Iengra er haldið.
3. Fullvíst má telja að LÆnds-
spítalinn verði hér eftir sem hing
að til aðalathvarf Háskólans til
kennslu læknastúdenta. Óbyggt
er hinsvegar yfir þá starfsemi
Háskólans, kennslu- og vísinda-
störf, sem eðlilegt er að eigi að
mestu aðsetur í aðalkennsluspít-
alanum.
Með núverandi skipulagi telur
fundurinn að eðlileg hlutdeild
Læknadeildar Háskólans í vænt-
SAUÐÁRKRÓKI, 20 maí: — B1
félags íslands lenti á fhsgveHin
dag ( fimmtudag). Var þetta f
vélar hingað. MikiU fjöldi fólks
skoða þcnnan nýja forkost. —
vélarinnar og afgreiðslumanni
króki Valgarði Blöndal. Ljósmy
ikfaxi, hin nýja flugvél Flug-
um við Sauðárkrók kl. 15,30 í
yrsta ferð þessarar glæsilegu
fór út á völl til að fagna og
Meðfylgjandi mynd er af áhöfn
Flugfélags Islands á Sauðár-
ndina tók Stefán Petersen — Jón.
anlegum áætlunum og bygging-
um á Landsspítalalóðinni sé á
engan hátt tryggð og telur að
miklum mun nánara samstarf
milli fyrrnefndra aðila verði að
taka upp til þess að endanlegar
byggingaákvarðanir verði sem
giftudrýgstar.
Framtíðarstarf — Varahlutaþ|ónusta
Þekkt vélaverzlun óskar að ráða mann til að annast varahlutaþjón-
ustu fyrirtækisins. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu
á þessu sviði eða áhuga á vélum. Góðir framtíðarmöguleikar f)nrir
réttan mann. — Eiginhandarumsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 1. júní, merkt:
„Framtíð — 7688“.
BSSA-r*VIR