Morgunblaðið - 27.05.1965, Blaðsíða 31
Fimmtudagur 27. maí 1965
MORGUNBLAÐID
31
— Minning
Framhald af bls. 6
að vitja læknis sem oftar vegna
veikinda á heimili mínu, að
sendimaður kom ekki aftur fyrr
en eftir viku. Hafði veður og
ófærð tálmað för hans, og ekki
kom hann með lækninn.
Vegna læknisleysisins reyndi
oft mjög á yfirsetukonuna. Eitt
sinn varð Regína að framkvæma
verk, er hú.n mátti ekki gera
lögum samkvæmt, til þess að
bjarga lífi sængurkonu. Gat
þetta kostað hana stöðu hennar.
En er 'loks náðist til læknis,
sagði hann að Regína hefði gert
það sama og hann hefði orðið að
gera, ef hann hefði verið yfir
konunni. Dáði hann kjark henn-
ar og úrræði hennar, og að
henni skyidi takast að bjarga
lífi konunnar og annars barns-
ins, en konan fæddi tvíbura. En
heyrt hefi ég eftir Regínu, að
þetta verk hafi hún tekið sér
svo nærri, að hún myndi vart
treysta sér til að gera slíkt aftur,
þótt um samskonar tilfelli væri
að ræða.
Þau Jón og Regína fluttu til
Reykjavíkur árið 1919, ög þar
bjuggu þau til dauðadags. Jón
andaðist árið 1932. Eftir lát
manns síns vann Regína fyrir
sér með saumum og ýmsum
fleiri störfum.
Börn þeirra Jóns og Regínu
voru: Nanna, gift Grími Magn-
ússyni, lækni. Helga, dó á 1. ári.
Helga, gift Sigurliða Kristjáns-
syni, kaupmanni. Páli, dó 18 ára
gamall árið 1921. Þórunn, gift
Vigni Andréssyni, íþróttakenn-
ara. Ingibjörg, gift Þórarni Jóns
syni, tónskáldi. Gunnar Valdi-
mar, dó nýfæddur. Ástþórunn,
dó 10 ára að aldri árið 1920.
Sama árið, sem þau hjón
misstu yngstu dóttur sína, dó
einnig fósturdóttir þeirra,
Þórunn Helgadóttir.
Er Regína var aðeins 67 ára
að aldri missti.hún sjón á báð-
um augum. Þrátt fyrir þetta
mikla áfall hinnar þróttmiklu
og vinnusömu konu, er nær
aldrei hafði látið sér verk úr
hendi falla, hélt hún kjarki sín-
um og mælti aldrei æðruorð.
Skömmu eftir að hún missti
sjónina flutti hún til þeirra
Helgu, dótt.ur sinnar og Sigur-
liða, tengöasonar síns. Á því
heimili var hún jafnan umvafin
ástúð og umhyggju. Hin síðustu
æviár sín var hún oft sárþjáð.
Hún andaðist laugardagsmorg-
uninn 22. þ.m.
Af systkinum Reglnu lifa enn,
Erlingur 91 árs, Geirlaug 89
ára og Guðrún 81 árs, öll bú-
sett hér í Reykjavík.
Allir, sem kynnzt höfðu
Regínu Filippusdóttur að nokkru
ráði, munu jafnan minnast henn
ar með hlýhug og virðingu.
Þorsteinn M. Jónsson.
— íbróttir
Framhald af bls. 30
Fyrri hálfleikur 2—0.
Englendingar náðu snemma
forystu í leiknum og varð
eingöngu fyrir mistök mark-
varðar Keflvíkinga. Vinstri út-
herjinn Mitten var með knöttinn
á 12. mín. nokkra metra fyrir
utan vítateig, skaut að því er
virtist frekar löngu skoti að ís-
lenzka markinu. Kjartan mark-
vörður virtist misreikna skotið
og hafnaði knötturinn í netinu
öllu til mikillar undrunar.
Á 23. mín. skoruðu Englend-
ingar aftur og var þar að verki
hægri útherjinn Turner, sem
skaut úr mjög þröngri stöðu og
hefði Kjartan átt að loka betur
markinu (sjá mynd).
Keflvíkingar áttu í þessum hálf
leik nokkrar hættulegar sóknar-
lotur en voru oft fljótfærir. Vörn
in var heldur ekki samstillt.
Síðari hálfleikur.
í síðari hálíleik voru Keflvík-
ingar mun ákveðnari og sóttu
meira en Englendingar og sköp-
uðust hættuleg augnablik við
enska markið.
Englendingarnir urðu þó fyrri
til áð skora, en það var á 10
mínútu; er Smith vinstri inn-
herjinn skoraði með glæsilegri
og viðstöðulausri spyrnu eftir
góða sendingu frá vinstri út-
herja.
Tíu mlnútum síðar tókst ís-
landsmeisturunum að skora og
var það Sigurður Albertsson
sem skoraði með skalla eftir
góða sendingu frá Rúnari Júlíus
syni.
Mark þetta setti mikfð fjör í
leikinn og sóttu Keflvíkingar á-
kaft, en tókst ekki að bæta
stöðuna þrátt fyrir góðar til-
raunir.
Englendingar skoruðu fjórða
markið á 25. mínútu og var það
Clementis sem skaut af _ löngu
færi þrumuskoti, sem Kjartan
hafði engin tök að verja.
Enska liðið var sem áður nokk
uð jafnt, þó bar mest á innherj-
unum Clements og Smith og
markvörðurinn Wesson var
mjög traustur.
Keflavíkurliðið áttf góða kafla
og var það einkum framlínan.
Einnig voru framverðirnir góð-
ir. Aftasta vörnin var lakari
hluti liðsins, einkum vegná lé-
legra staðsetninga, en þetta er
nokkuð, sem má lagfæra.
Dómari var Baldur Þórðarson.
NÆSTI L.EIKUR
Næsti leikur Coventry er ann-
að kvöld á Laugardalsvellinum
og mæta þeir þá úrvalsliði lands-
liðsnefndar.
íslenzka liðið er þannig skipað:
Heimir Guðjónsson KR
Jón Stefánsson IBA
Guðjón Jónsson Fram
Högni Gunnlaugsson ÍBK
Guðni Jónsson ÍBA
Sigurður Albertsson ÍBK
í KVÖLD varður lelkritið,
Hver er hræddur við Virg-
iniu Woolf? sýnt í sáðasta
sinn i Þjóðleikhúsinu. Leik-
rit þetta hefur nú verið sýnt
33 sinnum í Þjóðleikhúsinu
við mjög góða aðsókn. í
næsta mánuði verður farið
með þetta leikrit í leikför út
á land og verður sýnt í öllum
helztu samkomuliúsum lands-
ins á vcgum þjóðleikhússins
í sumar.
Myndin er af Gísla Alfreðs
syni og Róbert Arnfinnssyni
i hlutverkum sínum.
arar kærðir fyrir svik
EINS og skýrt hefur verið frá
hér í blaðinu, var lögð fram
kæra á hendur ensku spilur-
unum Terence Reese og Boris
Schapiro á Heimsmeistara-
keppninni í bridge, sem fram
fór í Argentínu í s.l. viku.
Kæran var einkum byggð á
því að þeír hefðu notað ýmis
fingratákn meðan á sögnum
stóð.
Kæran var lögð fyrir dóm-
nefnd keppninnar, sem rann-
sakaði málið og kallaði síðan
saman til fundar stjórn Al-
þjóðabridgesambandsins. Fyr
irliði ensku sveitarinnar
Ralph Swimer var viðstaddur
þennan fund ásamt formanni
enska bridgesambandsins,
G. Bulter. Að fundi þessum
loknum ákvað fyrirliði ensku
sveitarinnar að þeir Reese og
Schapiro skyldu ekki spila
fleiri leiki og jafnframt ósk-
aði hann eftir því, að þeir
leikir, sem þessir spilarar
hefðu tekið þátt í, yrðu dæmd
ir tapaðir fyrir ensku sveit-
ina.
Þeir Reese og Schapiro
vildu lítið um málið segja og
tóku sér far með næstu flug-
vél til London.
Reynist kæra þessi á rök-
um reist geta þessir heims-
kunnu spilarar átt það á
hættu að verða útilokaðir frá
bridgekeppnum æfilangt.
IMyndin er frá leiknum milli Italíu og Englands í Heim ;meistarakeppninni í bridge.
Þeir Schapiro (til viivstri) og Reese eru að spila við BeIladonna( snýr andliti að mynda-
vélinni) og Avelelli.
Tveir enskir bridgespil-
Örn Steinsen KR
Ingvar Elíasson Valur
Rúnar Júlíusson ÍBK
Karl Hermannsson ÍBK
Ellert Schram KR
Varamenn:
Jón Ingi Ingvason IA
Jón Leósson ÍA
Axel Axelsson Þrótti
Árni Njálsson Valur
Steingrímur Dagbjartsson Val.
— Stormsvalan
Framhald af bis. 32
ið sjósett, en það gerðist eftir
einn eða tvo daga“, sagði hann
við komuna hingað. Hann
bætti því við, að skútan yrði
síðan skírð „Stormsvalan“.
Hörður sagði, að þeir fé-
lagar yrðu reiðubúnir að
leggja upp í íslendssiglinguna
eftir um það bil viku.
„Eftir að skútan hefur verið
sjósett munum við koma fyrir
í henni talstöð og miðunar-
tækjum af fullkomnustu gerð.
Við hyggjum á nokkrar æf-
ingafeiðir I Clydefirði áður en
við leggjum upp í heimsigl-
inguna“.
Siglingin til Islands mun
táka viku til tíu daga, eftir
því hvernig veðurguðirnir
haga sér, og vera má að ís-
lendingarnir hafi viðkomu í
Færeyjum og gisti þar eina
nótt eða svo.
Hörður sagði að sigli'nga-
klúbburinn Óðinn hefði greitt
fyrir skútuna um 4.000 sterl-
ingspund, og að auki um 1000
pund fyrir ýmsan útbúnað.
„Stormsvalan" verður fyrsta
seglskútan sinnar tegundar á
íslandi. „Við vonumst hins
vegar eftir að við getum
byggt upp þróttmikinn, starf-
andi siglingaklúbb heima“,
sagði Hörður; sem A ur var
stýrimaður.
Með Herði komu hingað í
dag Ólafur Bertelsson, sem
verður stýrimaður á heimleið
inni; Guðmundur bróðir hans,
sem verður háseti og Einar
Stefánsson, sem einnig verður
háseti. 1 Glasgow hittu þeir
fyrir Pétur Ingason, sem starf
ar þar á vegum Flugfélags ís-
lands og býr í Skotlandi. Enn
er ókominn Einar Sigurðsson,
flugmaður, sem mun verða
matsveinn á heimleiðinni.
■— Álits Frakka
Framhald af bls. 1
Fyrrnefnd yfirlýsing var gefin
af upplýsingamálaráðherra
Frakka, Alain Peyrefitte í dag.
Segja Bandaríkjamenn að orða-
lag Peyrefitte hafi bætt móðgun
á skaða ofan, er hann talaði um
„erlenda íhlutun". en það orða-
lag hefur til þessa aðeins verið
notað af kommúnistum í gagn-
rýni þeirra á Bandaríkin.
Bandarískir embættismenn
sögðu í dag að sambúðin við
Frakka mundi verða eitt helzta
umræðuefnið er Erhard, kanzl-
ari V-Þýzkalands, heimsækir
(Bandaríkin 4 júní nk. Erhard
mun hitta de Gaulle síðar í mán
uðinum.
Afstaða Frakka vegna Dómini
kanska lýðveldisins bætir enn
við þegar langan kvörtunarlista
Bandaríkjamanna um andúð de
Gaulle á öllu því, sem banda-
rískt telst.
McGeorge Bundy, ráðgjafi
Johnsons forseta í öryggismál-
um, heldur í dag til Washington
frá Santo Domingo, samtímis því
sem fyrstu bandarísku hermenn-
irnir eru kvaddir heim frá land
inu. Næstu daga verða alls um
1700 bandarískir hermenn kal-1-
aðir þaðan, en gæzlusveitir Sam
taka Ameríkuríkja (OAS) taka
við.
Leiðtogi dóminísku herfor-
ingjastjórnarinnar, Imbert hers-
höfðingi, sakaði í gær Banda-
ríkjamenn, Sameinuðu þjóðirn-
ar og OAS um að bíanda sér í
innanlandsmál í Dóminikanska
lýðveldinu. Imbert sagði að til-
lögur þessara aðila væri akki
hægt að taka til greina, því þær
fælu í sér það skilyrði, að á
laggirnar verði komið nýrri
stjórn. Hann lýsti því yfir að
herforingjastjórnin hyggist
halda áfram varðstöðu sinni, sem
hann nefndi svo, og stakk jafn-
framt upp á því að sett yrði á
stofn bráðabirgðaþing án kosn-
inga.
NÝTT
FRÁ
lykkjufastir sokkar
framleiddir úr
Cantrece Nylons
sjúkrasokkar, kr. 290,00 parið.
Verzlunin GYÐJAN
____________Laugavegi 25.