Morgunblaðið - 27.05.1965, Síða 16
MORCUNBLADID
Fimmtudagur 27. máí 1965
10
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
SÍLDAR VERTÍÐIN
A ðalsfldarvertíð landsins er '
■í*’ nú framundan. Síldveiði-
skipin eru sem óðast að búa
sig undir veiðarnar í verstöðv
unum um land allt. Veiðihorf
ur fyrir Austurlandi eru tald-
ar góðar, og þau örfáu skip,
sem þegar eru komin á miðin
eru farin að veiða. En síldin
er ennþá nokkuð djúpt. Vís-
indamennirnir telja þó, að
hún sé komin inn í kalda sjó-
inn út frá ströndinni. Er ekki
gert ráð fyrir að ísalögin við
landið í vetur séu líkleg til að
torvelda síldargöngur í sum-
ar.
Við íslendingar eigum í dag
fullkomnari og betur búinn
síldveiðiflota en nokkru sinni
fyrr. Það er fyrst og fremst
hin nýja tækni, sem gert hef-
ur síldveiðar mögulegar í vax
andi mæli síðustu árin. Þessi
nýja tækni hefur stóraukið
framleiðslu landsmanna og
átt ríkan þátt í að tekizt hef-
ur að halda skaplegu jafn-
vægi í efnahagsmálum þjóð-
arinnar.
★
Á þessu sumri er líklegt að
flutningar á síld milli lands-
hluta muni færast mjög í auk
ana, ef síldin gengur aðallega
upp að Austfjörðum eins og
verið hefur undanfarin sum-
ur. Síldarverksmiðjur okkar
afkasta nú rúmlega 100 þús-
und málum í bræðslu á sólar-
hring. Þessi verksmiðjukost-
ur er dreifður um meginhluta
landsins, og ber því brýna
nauðsyn til þess, að hægt sé
að hagnýta hann eftir föng-
um. í fyrrasumar var í fyrsta
skipti hafizt handa um síldar-
flutninga, sem byggðust á því,
að síldinni var dælt úr veiði-
skipunum yfir í flutningaskip
á hafi úti. Hér vai fyrst og
fremst um að ræða tilraun
sem bar merkilegan árangur
og bendir langt áleiðis um
það sem koma skal. En eins
og áður er sagt, er mjög þýð-
ingarmikið fyrir atvinnulífið
í hinum einstöku landshlut-
um, að unnt sé að framkvæma
síldarflutninga í stórum stíl.
★
Óhætt er að fullyiða, að ís-
lendingar geti horft bjartsýn-
ir fram á sumarið. Við eigum
í dag betri framleiðslutæki til
lands og sjávar en nokkru
sinni fyrr. Mestu máli skiptir,
að vinnufriður haldist, og
landsmenn geti gengið að
störfum sínum og hagnýtt
hina nýju tækni, sem stór-
aukið hefur framleiðsluafköst
þeirra og lagt grundvöll að
stöðugt batnandi lífskjörum
alls almennings í landinu.
HYGGILEG OG
SANNGJÖRN
RÁÐSTÖFUN
Ijað er tvímælalaust hyggi-
leg og sanngjörn ráðstöf-
un, að Hannes Kjartansson,
aðalræðismaður íslands í New
York, hefur verið skipaður
ambassador okkar hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Hann hef-
ur mörg undanfarin ár verið
einn af fulltrúum þjóðarinnar
á allsherjarþingum samtak-
anna, og er þar mjög vel kunn
ugur gangi mála. Jafnframt
hefur hann verið dugandi
aðalræðismaður þjóðar sinn-
ar í hinni miklu heimsborg.
Thor heitinn Thors var eins
og kunnugt er, bæði sendi-
herra lands síns í Washington
og hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York. Allir, sem til
þekktu, vissu að það var
geysilegt starf, sem Thor
Thors vann að vísu af ötulleik
og glæsimennsku. Nú hefur
verið talið óhjákvæmilegt að
skipa sérstakan sendiherra
hjá Sameinuðu þjóðunum.
Mun hinum nýja sendiherra
því gefast tækifæri til að
helga sig því starfi eingöngu.
★
Enda þótt Sameinuðu þjóð-
irnar hafi orðið fyrir ýmsum
áföllum og sú hugsjón, sem
liggur til grundvallar þeim
hafijnætt margvíslegum tor-
færum, blandast þó engum
hugsandi manni hugur um, að
þær eru ein merkasta og öfl-
ugasta stofnun sem sett hefur
verið á laggirnar til þess að
standa vörð um heimsfriðinn
og stuðla að heilbrigðri þróun
í alþjóðamálum. Róm var
ekki byggð á einum degi. Það
er heldur ekki hægt að byggja
á örskömmum tíma upp al-
þjóðasamtök, sem svo að
segja allar þjóðir heimsins
taka þátt í, og ná á fáum ár-
um því takmarki, að tryggja
réttlæti og frið um víða ver-
öld. Kjarni málsins er, að þró-
unin haldi áfram, að þjóðirn-
ar ráði deilumálum sínum til
lykta í sölum alþjóðasamtaka,
í staðinn fyrir að láta vopnin
tala. Sameinuðu þjóðirnar
hafa þegar látið mikið gott af
sér leiða, og einstakar stofn-
anir þeirra vinna mikilvægt
menningar- og mannúðarstarf
í öllum heimshlutum. Það er
okkur íslendingum mikils
virði, að eiga dugandi og
starfhæfa menn til málsvarn
ar innan slíkra samtaka.
★
Utanríkisþjónusta okkar er
0LÍA FINNST
Á SVALBARÐA
Rússar og bandarískt fyrirtæki
hyggjast nýta hana
BANDARISKA olíufélagið
Caltex hefur fundið olíu á
Svalbarða (Spitsbergen), en
eyjar þessar eru í ei,gu Norð-
manna, svo sem kunnugt er.
i júlí n.k. hyggst Caltex hefja
boranir eftir bæði olíu og gasi
á Svalbarða, og jafnvel fyrr,
ef veðurfar leyfir. Boranir
þessar munu fara fram í van
Mijen-firði, skammt frá svo-
nefndu Bell-sundi.
Þá hefur rússneska ríkis-
fyrirtækið Arktikugol einnig
tilkynnt að það hafi fundið
olíu á Svalbarða, en Rússarn-
ir geta hinsvegar ekki hafið
boranir fyrr en norska stjórn-
in hefur staðfest olíufund
þeirra. Ekki er talið líklegt að
það verði fyrr en í ágúst.
Einn embættismanna Arkt-
ikugol hefur áður lýst því yf-
ir að hann væri sannfærður
að olíunám geti hafizt á þessu
ári.
Norðmenn fá 10%
xSvalbarði var settur undir
norska stjórn með alþjóða-
samningum 1920 og 1924.
Telja Norðmenn sig því eiga
rétt á að taka þátt í olíunámi
á eyjunum.
Með fyrrgreina alþjóða-
samninga að bakhjarli gætu
Norðmenn la'gt fram fjórða
hluta þess fjármagns, sem til
framkvæmda þyrfti, og feng-
ið fjórða hluta þeirrar olíu,
sem numin væri. Celtex og
norska stjórnin hafa hinsveg-
ar gert með sér bráðabirgða-
samning um að Norðmenn
leggi ekkert fjármagn í fram-
kvæmdir varðandi olíunám á
Svalbarða, en fái hinsvegar
10% af allri olíu, sem numin
er.
Þessi samningur, og aðrir
slíkir, sem kunna að vörða
gerðir við Arktikugol, verða
að staðfestast af norska Stór-
þinginu. Ekki er talið ólíklegt
að Rússar muni stinga upp á
fyrrnefnda kostinum um
kostnaðarþátttöku gegn Vi
af olíunni.
Auk þeirra, sem fyrr getur,
hafa bandarískir jarðfræðing-
ar og norskt fyrirtæki einnig
leitað olíu á Svalbarða. Loks
má geta þess að Caltex var
fyrir skemmstu veitt heimild
til olíuleitar í Norðursjó.
f
Island og samstarf
NATO-ríkjanna
Ráðstefna á vegum Varðbergs
haldin í Borgarnesi
UM næstu helgi, dagana 28. —
31. maí, efnir Varðberg, félag
ungra áhugamanna um vestræna
samvinnu, til ráðstefnu í Borg-
arnesi um „ísland og samstarf
Atlantshafsríkjanna". Á ráð-
stefnunni verða fluttir 6 fyrir-
lestrar, en einnig verða víðtækar
umræður þátttakenda sjálfra,
kvikmyndasýningar p. fl. Þátt-
takendur verða um 35 talsins,
aðallega háskólastúdentar, en
einnig nokkrir utan af landi.
Ráðstefnan, sem fram fer í
Hótel Borgarnes, verður sett á
föstudaginn 28. maí kl. 14:00 af
formanni Varðbergs, Herði Ein-
arssyni, stud. jur. Þá mun Ás-
geir Pétursson, sýslumaður
Mýra og Borgarfjarðarsýslu,
flytja ávarp.
Fyrsta fyrirlestur ráðstefn-
unnar flytur síðan Þórarinn
Þórarinsson, ritstjóri og alþm.,
og mun hann ræða um „Sam-
einuðu þjóðirnar og Atlantshafs
ennþá ung, og innan hennar
stendur fjölmargt til bóta.
Óhætt er að fullyrða að við
hagnýtum hana naumast enn
nægilega vel til þess að þjóna
hagsmunum okkar, þrátt fyr-
ir það, að margir prýðilega
dugandi og starfhæfir menn
vinni í sendiráðum okkar úti
í heimi.
ríkin“. í framhaldi af fyrirlestr-
inum verða hringborðsumræður
um þátttöku íslendinga í starfi
Sameinuðu þjóðanna og hlut-
verk smáþjóða alménnt á vett-
vangi samtakanna. Stjórnandi
umræðnanna verður Björgvin
Guðmundsson, viðskiptafræð-
ingur. Þá verður sýnd kvikmynd
um ýmsa þætti í starfsemi SÞ
og fluttir af segulbandi kaflar
úr ræðum nokkurra kunnra
manna, sem komu við sögu sam
takanna í upphafi.
Á laugardaginn 29. maí verða
fluttir 2 f.vrirlestrar, annar um
„Atlantshafsbandalagið og vernd
friðar í heiminum", sem Bene-
dikt Gröndal, ritstjóri og alþm.,
flytur, hinn um „Atlantshafs-
samstarf í nútíð og framtíð“,
fluttur af Joseph Harned, sem
kemur frá Atlantic Institute í
Paris. Að fyrirlestrunum lokn-
um verða hringborðsumræður
m. a. um framtíðarhorfur í sam-
skiptum austurs og vesturs,
framtíð Atlanshafsbandalagsins
og þýðingu þess fyrir ísland
o. fl. Umræðustjóri verður dr.
Gunnar G. Schram, ritstjóri. —
Viðstaddur umræðurnar verður
Hörður Helgason deildarstjóri,
formaður Varnarmálanefndar.
Síðdegis á sunnudaginn 30.
maí mun Sigurður Bjarnason,
ritstjóri og form. utanríkismála
nefndar Alþingis, flytja erindi
um „Utanríkisstefnu fslands og
samstarf Atlantshafsrikjanna“.
Að því loknu verða umræður
undir stjórn Björgvins Vilmund-
arsonar, aðstoðarbankastjóra, um
hlutverk utanríkisþjónustunnar,
en þær umræður verður við-
staddur Agnar Kl. Jónsson,
ráðuneytisstjóri.
Á mánudag 31. maí, sem verð-
ur síðasti dagur ráðstefnunnar,
verða fluttir tveir fyrirlestrar.
Helgi Bergs, forstjóri og alþm.,
mun ræða „Efnahagsþróunina í
Atlantshafsríkjunum og aðstöðu
íslands" og próf. Ólafur Björns-
son, alþm., „Þróunarlöndin og
Atlantshafsríkin". í umræðum á
eftir verður m. a. rætt sérstak-
lega um viðskiptahagsmuni ís-
lands nú og í næstu framtíð, en
þeim umræðum stjórnar Guð-
mundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur, og þátttöku ís-
lands í aðgerðum til styrktar
vanþróuðu ríkjunum, þar sem
umræðústjóri verður Tómas
Karlsson, ritstjórnarfulltrúi.
Þátttakendur munu svo halda
til Reykjavíkur síðdegis á mánu-
daginn og verður ráðstefnunni
slitið þar.
Þátttakendur verða sem fyrr
segir einkum úr hópi háskóla-
stúdenta, auk þess sem m. a.
Varðbergs-félögin úti um land
munu eiga fulltrúa á ráðstefn-
unni.
Gegn stefnu de
Gaulle
Briissel, 26. maí. — NTB.
UM 40 leiðtogar sósialistaflokk-
anna í löndum Efnahagsbanda-
lags Evrópu (EEC), sem sitja nú
á fundi í Brússel, gerðu í gær
samþykkt sem vítir harðlega
kjarnorkuvopna- og Evrópu-
stefnu Frakka. Jafnframt var
nauðsyn þess, að bandarískir her
menn yrðu áfram í Evrópu, undir
strikuð rækilega.