Morgunblaðið - 12.06.1965, Síða 23

Morgunblaðið - 12.06.1965, Síða 23
Laugardagur 12. júní 1965 MORCUNBLAÐI0 23 Bændur — Ryðverjið Látið ekki landbúnaðartækin verða ryðinu að bráð. Ryðverjið með undraefninu TECTYL. Fæst á útsölustöðum B. P. um land allt. Ryðvörn Heimdallarferð I Heiðmörk Efnt verður til gróðursetningar ferðar í Heiðmörk nk. sunnu- dagskvöld 13. júní. — Lagt verður af stað frá Valhöll kl. 19,30. Veitingar í Félagsheimilinu að gróðursetningu lokinni. HEIMDALLUR FUS Blöðrur — Blöðrur 25 TEGUNDIR. 17. JÚNÍ blöðrur. FLÖGG — FLÖGG Heildsölubirgðir: Eiríkur Ketilsson Garðastræti 2. — Símar 23472 og 19155. 4 LESBÓK BARNANNA Hecfor Malot: Remi og vinir hans 35. Eftir að gesturinn var farinn og allt orðið kyrrt, flýttum við okkur að ná i Brio, tókum sam- an dót okkar og lögðum á flótta. Við höfðum heyrt að móðir okkar byggi við fagurt torg í London, og þegar við komum þan,gað fundum við bráðlega hús- ið með nafninu Beau- mont á hurðinni. Þjónn fylgdi okkur inn til frú Beaumont, en þar var einnig staddur gamli tnálfærslumaðurinn henn ar, herra Gray. Frú Beaumont tók okk- ur opnum örmum, en ég gat aðeins stamað fram, að ég þyrfti að segja henni frá leyndarmáli. Carlo varð að halda sög- unni áfram og segja frá því, sem við höfðum heyrt talað um í sígauna- vagninum. Þe,gar hann endurtók, það sem mágur hennar hafði sagt við I „föður" minn, hrópaði hún: „Remi, sonur minn!“ og faðmaði mig að sér. Herra Gray, sem hafði hlustað á samtalið, sagði ið fá yrði sannanir fyrir því, að ég væri sonur frú Beaumont. 36. „Um það efast ég ekki‘, sagði móðir min. „Ég hefi fundið til þess frá því fyrsta, að ég sá hann. Hann er Charles, sonur minn, sem ég hélt að hefði drukknað í ánni.“ Nú var sent eftir fóstru minni, konu Barberins, svo að hún gæti sannað sögu okkar. Hún býr nú hjá okkur. Carlo er hérna líka og gamli, tryggi hund urinn minn, hann Brio. „Faðir“ minn, sem til allrar hamingju var ekki faðir minn, var tekinn fastur og játaði allt. Fað- ir minn, maður frú Beau- mont var löngu dáinn. Og móðir mín vildi ekki senda mág sinn í fang- elsi, en hann varð að flytja úr landi. Stundum tökum við Carlo fram gömlu hljóð- færin okkar og syngjutn gamla vísu um munaðar- lausan dreng —, og ég er glaður yfir að eiga nú móður, frændur og vinL — Endir — 9 árg. Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson. 12 12. júní 1965 G/ncr Bell - Zano: BONGO — Litli apinn í dýragarðinum — BONGÓ litli átti heima 1 dýragarði. Það var stór dýragarður með ljónum, tígrisdýrum, fílum, selum, bjarndýrum og refum. En flest fólkið, sem heim- sótti dýragarðinn fór þangað fyrst og fremst til að sjá apann, hann Bongó. Það fór heldur ekki fram hjá Bongó. Þetg ar hann sá öll þessi mörgu ancflit fyrir utan búrið, stara á sig, var hann bæði stoltur og hamingj usamur. Bongó lék ýmsar list- ir og kom krökkunum til að hlægja. Stundum- var hann svo sniðugur, að allir viðstaddir veltust um af hlátri. Einn daginn var helli- rigning og fáir komu 1 dýragarðinn. Bongó var einmana. Hann saknaði allra þessara brosandi andlita. Hann saknaði barnanna, sem hrópuðu: „Hæ, Bongó! Stattu á höfðinu! Klifraðu upp rimlana!“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.